blaðið - 12.09.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaAÍA
Hryðjuverkaárásum hótað
I myndbandi sem sýnt var í fréttatíma
ABC sjónvarpsstöðvarinnar í gær, fjór-
um árum eftir hryðjuverkaárásirnar á
New York og Washington, var árásum
hótað á bandarísku borgina Los Ange-
les og Melboume í Ástraliu. ABC sjón-
varpsstöðin segir að myndband hafi
borist til hennar í Pakistan. f mynd-
bandinu hótar grímuklæddur maður
árásunum og segir árásarmennina
ekki munu sýna neina miskunn. „í gær
var það London og Madrid. Á morgun
Los Angeles og Melbourne. Við elskum
friðinn en á okkar eigin forsendum",
segir maðurinn sem sjónvarpsstöðin
heldur að sé Adam Gadahn, Banda-
ríkjamaður sem talinn er félagi í A1
Kaída samtökunum. Gadahn er enn
fremur talinn hafa komið fram í öðru
hótunarmyndbandi fyrir um ári síðan.
Skýjakljúfar í Los Angeles. Fjórum árum
eftir árásirnar á New York og Wahington
hóta hryöjuverkasamtök aö ráöast gegn
Los Angeles og Melbourne.
Þingkosningarnar í Japan:
Stefnir í stórsigur
flokks Koizumis
Samkvæmt útgönguspám fór Frjáls-
lyndi demókrataflokkurinn, flokkur
Junichiro Koizumis, forsætisráðherra
Japans, með stórsigur í kosningum til
neðri deildar japanska þingsins í gær.
Spáð er að frjálslyndir demókratar
kunni að hljóta allt að 309 þingsæti af
þeim 480 sem eru í neðri deild. Það
eru 60 þingsætum fleira en flokkur-
inn hafði áður en Koizumi leysti þing-
ið upp. Lýðræðisflokknum, helsta
stjórnarandstöðuflokknum, er aftur
á móti ekki spáð nema 104 sætum en
áður hafði hann 175 sæti og er tapið
því mikið.
Katsuya Okada, leiðtogi Lýðræðis-
flokksins viðurkenndi ósigur seint í
gær en Koizumi var að vonum ánægð-
ur. „Ég batt vonir við að flokkur okk-
ar gæti unnið meirihlutann einn en
við gerðum jafnvel enn betur. Ég tel
að það hafi verið mikilvægt að hlusta
á rödd fólksins", sagði Koizumi. Ef
þetta verða úrslit kosninganna ættu
Frjálslyndir demókratar að geta
myndað ríkisstjórn án annarra
flokka.
Ekki er búist við að eiginleg úrslit
kosninganna liggi fyrir fyrr en í dag.
Junichiro Koizumi, forsætisráðherra
Japans, haföi ástæðu til aö brosa þegar
fyrstu tölur úr útgönguspám vegna þing
kosninga lágu fyrir en samkvæmt þeim
fór flokkur hans meö stórsigur.
í kvöld!
Kynninqarkvöld Alfanámskeiðs
Þu ert hjarrantega velkomin/nn á kynningarkvöid Alfanamskeiðs
sem fram fer í Krossinum ki. 19:00 i kvöld.
Þú ert velkomin/nn á kynningarkvöld í
12. sept. kl. 19:00 í Krossinum Hlíðasm
>94-4150.
Skráning á námskeiðið eða frekari upplýsingai
KROSSINN
Alfa er tiu vikna namskeið
mikiivægustu spurnmgar iifsins
Hvert kvóJd
Fjögur ár eru nú liðinfrá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin
Hryðjuverka minnst í
skugga hamfara
Bandaríkjamenn minntust þess í
gær að fjögur ár eru liðin frá hryðju-
verkaárásunum á New York og Wash-
ington. Á lóð Hvíta hússins leiddi
George W. Bush, Bandaríkjaforseti,
þjóðina í einnar mínútu þögn klukk-
an 8:46 en á þeirri stundu flaug
fyrsta flugvélin á annan turn World
Trade Center byggingarinnar. Einn-
ig fóru fram minningarathafnir þar
sem hryðjuverkaárásirnar áttu sér
stað. Á reitnum þar sem tvíburaturn-
arnir stóðu á Manhattan var mínútu-
þögn og síðan lásu systkini fórna-
lamba upp nöfn þeirra 2.749 manna
sem fórust í árásunum á turnana.
„Við erum hér samankomin til að
minnast þeirra sem við misstum fyr-
Ættingjar þeirra sem fórust í hryðju verkaárásunum á tvíburaturnana í New York þann 11.
september 2001 tóku í gær þátt í minningarathöfn á staðnum þar sem turnarnir stóöu.
Heilsunudd þegar þér hentar
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar Rongtai
RT-H09 nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp
á meðfylgjandi fjarstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni.
Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. Rongtai
nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga. Við bjóðum þér að
koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast.
www.ecc.is
ECC Skúlagötu 63
Sími 5111001
Opið 10-18
ir fjórum árum. Mesti heiður sem
við getum sýnt þeim er að minnast
þeirra, ekki aðeins hvernig þau dóu
heldur hvernig þau lifðu“, sagði Mi-
chael Bloomberg, borgarstjóri New
York, sem enn fremur vottaði þeim
sem fórust í hryðjuverkaárásunum í
London í sumar virðingu sína.
Ólík viðbrögð við harmleikjum
Enn fremur sendi Bloomberg þeim
sem eiga um sárt að binda eftir felli-
bylinn Katrínu samúð sína. Báðir
þessir harmleikir þykja hafa varp-
að ljósi á hversu varnarlaus Banda-
ríkin eru þrátt fyrir að vera mesta
stórveldi heimsins. Munurinn er sá
að á meðan hryðjuverkaárásirnar 11.
september 2001 þjöppuðu þjóðinni
saman í sorg og reiði, virðist Katrín
frekar hafa sundrað henni og leitt
til margvíslegra deilna og ásakanna
um skeytingarleysi yfirvalda, mis-
munun á grundvelli kynþáttar og
stöðu svo fátt eitt sé nefnt.
JustOne
Tifboð: USOkr.
Skammtar eina i einu
Minnkar notkun um 30%
Minni kostnaður
Aukið hreinlæti
Servíettur fyrir kaffistofuna, veitingastaðinn og mötuneytið
Rekstrarvörur
- v/'nna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjav/k
Slmi: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.ts
tir'