blaðið - 12.09.2005, Qupperneq 26
26 I TÖLVUR OG TÆKI
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Töff tœki
Tækninni fer sífellt fram og tæki sem áður gengdu einum ákveðnum tilgangi eru að mestu fyrir bí. f dag er
hægt að nota farsímann til fjölda annarra aðgerða sem tengjast netnotkun, upplýsingaöflun og afþreyingu,
Myndavélar verða sífellt fullkomnari og einfaldari í notkun og varla að notandinn þurfi að gera annað en
ýta á einn takka til að færa heila afmælisveislu eða brúðkaup inn í sérbúin myndaalbúm í heimilistölvunni.
Úrval tækja í verslunum landsins eykst dag frá degi og neytandinn þarf að hafa sig allan við til að fylgjast
með nýjungum á markaðnum. Blaðið skoðaði nokkrar vörur sem vöktu athygli.
Vodafone BlackBerry 7100
BlackBerry 7100 veitir þráðlaust að-
gengi að tölvupósti, síma, dagbók,
Internet vafra, SMS skilaboðum og
öðrum upplýsingum sem tengjast
fyrirtækinu. Tækið byggir á þráð-
lausri blátannartækni (Bluetooth)
með heyrnartólum eða bílaútbún-
aði. Öll notkun er auðveld og not-
endavæn og áhersla er lögð á ein-
faldleika. Þá getur tækið samþætt
þjónustu fyrir síma, vafra, dagbók
og aðrar upplýsingar. BlackBerry
7100V er væntanlegur á næstunni og
verður seldur í OgVodafone.
BlackBerry 7200
BlackBerry 7200 er fjölnota farsími
fyrir þá sem nota síma í atvinnu-
skyni enda auðveldar hann aðgang
að upplýsingum og fjarskiptum við
aðra. BlackBerry byggir á Java og
má nota til símtala, sækja netpóst,
senda SMS-skilaboð, halda dagbók,
fara á netið og nota til gagnavinnslu.
Skjárinn er með mikilli upplausn
sem gefur mjög skýrar myndir í
65.000 litum. Rafhlaðan er mjög
endingargóð og tryggir hágæða fjar-
skipti. BlackBerry 7200 er væntan-
legur á næstunni og verður seldur í
OgVodafone.
RDR-HX710
RDR-HX710 er DVD spilari með möguleika á tengingu við sjónvarp sem gef-
ur mjög góða mynd auk þess að vera 160GB harður diskur sem gefur manni
kost á að taka upp efni í allt að 269 klukkutíma. Tækið býður upp á þann
möguleika að byrja að horfa á þátt þótt upptöku hans sé ekki lokið og einnig
er hægt að horfa á einn þátt meðan það er verið að taka upp annan. Hægt
er að tengja myndbandstökuvél við tækið sem tekur þá upp efnið án þess að
gæði tapist. RDR-HX710 er selt í Sony Center.
Kodak Easy Share One
Hér kemur stafræn myndavél með
snertiskjá sem getur nánast allt.
Með 256 MB minni er hægt að geyma
allt að 1500 myndir á skipulagðan
hátt. Þetta er fyrsta vélin á markaðn-
um sem sendir þráðlaust myndir í
tölvupóstfang. Myndavélin er með
skjá sem hægt er að snúa og nýtist
því betur. Kodak Easy Share One er
væntanleg í október og verður seld í
Hans Petersen búðunum.
Fleiri kaupa iPod í út-
löndum en hérlendis
„iPod hefur fengist hér á landi síð-
an 2001 og fór að seljast eitthvað
að ráði um leið og Apple opnaði á
iPod notkun fyrir PC tölvur eftir
árið 2002. Áður hafði iPod aðeins
verið fyrir Macintosh tölvur. Um
leið var forritið iTunes opnað
fyrir PC tölvur. Þá opnaðist þessi
markaður og fólk áttaði sig á að
það var þarna með hlut sem var
einstakur,“ segir Steingrímur
Árnason hjá Apple umboðinu.
iTunes drífur iPod
Skömmu eftir PC opnunina kynnti
Apple fyrstu aðgengilegu iTunes tón-
listarverslunina á netinu þar sem
þeir seldu lögin á 99 sent. „Þessi búð
er ekki opin hér á landi en er opin í
þessum stærstu löndum. Hún hefur
í raun verið drifkrafturinn á bak-
Toshiba Portégé R200
Toshiba Portégé er ótrúlega nett og
falleg vél. R200 tölvan vegur aðeins
i.29kg og er tæplega 2 cm á þykkt.
Þrátt fyrir þetta er vélin með þráð-
lausa netstýringu og minniskorta-
lesara. Með 512 MB minni, Intel
Pentium M 1.2GI1Z 2MB og blátann-
artækni. Toshiba Portégé R200
fæst i Tæknival.
Nikon Coolpix 7900
Nikon stafræn myndavél með 7,1
milljón punkta upplausn og 3X að-
dráttalinsu með Nikon ED gleri ög
myndavélahús úr áli. Vélin er full
af frábærum nýjum stillingum og
til dæmis er hægt að taka afrit af
myndum í vélinni þannig að hægt
sé að lýsa upp skugga á myndum,
fjarlægja rauð augu auk þess sem
hún greinir andlit sérstaklega til
að stilla fókusinn eftir því. In-Cam-
era Red-Eye Fix sem fjarlægir rauð
augu af myndunum. Nikon Coolpix
7900 fæst í Bræðurnir Ormsson.
Spennandi tímar framundan í iPod heimum
við vinsældir iPod. Fyrst varð iPod
mjög tískutengdur. Hvítu heyrnar-
tólin sem voru mjög auðkennandi
fyrir iPod og margir tengdu þau við
snobb. iPod var dýrari til að byrja
með en verðið hefur lækkað töluvert.
Það hafa komið ódýrari týpur og
þannig hefur markaðurinn stækkað
og fleiri hafa efni á iPod. Núna síðast
var iPod shuffle kynntur til sögunn-
ar sem er jafnstór og tyggjópakki. Þá
erum við komnir með allan skalann.
iPod mini er millitýpan og stærstur
er iPod. Á minnstu útgáfiina kom-
ast 120 lög og á þá stærstu komast
allt að 15.000 lög,“ segir Steingrímur
og bætir því við að það sé ógerlegt
að vita hversu margir eiga iPod hér
á landi þar sem fleiri kaupa iPod er-
lendis en hérlendis.
íslendingar grófir tónlistarþjófar
Lagastuldur af netinu er vel þekkt-
ur í heiminum þar sem margir mis-
nota Internetið í þeim tilgangi að
verða sér út um tónlist án þess að
borga fyrir hana. „Ég held að íslend-
ingar geri mikið af því vegna þess að
það er skortur á almennilegum tón-
listarverslunum á netinu. Uti hefur
þjófnaður minnkað mikið eftir að
Ápple opnaði iTunes verslunina því
aðgengið er betra. Núna er mikið
meira mál að stela af netinu og það
eru mjög vafasöm gæði á þeim lög-
um sem stolin eru. í Apple iTunes
búðinni gengur neytandinn að gæð-
um og úrvali,“ segir Steingrímur.
Hann segir að þó við íslendingar höf-
um vefverslunina tónlist.is þá upp-
fylli hún hreinlega ekki kröfur iPod
notenda. „Hún kom á réttum tíma
og var í sjálfu sér góð hugmynd en er
bara ekki að virka. Hún virkaði ekki
fyrr en nýlega fyrir iPod eigendur. ís-
lendingar eru mjög grófir í að stela
tónlist - ef til vill vegna skorts á al-
mennilegri tónlistarvefverslun."
Apple kærir íslenska ríkið
Margir kvarta yfir háu verði á iPod
hér á landi og skilja ekkert af hverju
verðið lækkar ekki. Steingrímur seg-
ir þó vera rökrétta skýringu á því.
,Þetta stafar að því að það er 7,5% toll-
ur af iPod hér á landi, 30% vörugjald,
og 24.5% virðisaukaskattur. Þannig
að þegar fólk horfir á bandarískt
verð á iPod sem er kannski 300 doll-
arar þarftu að bæta öllu þessu ofaná.
íslenska ríkið hefur ekki séð ástæðu
til að endurskoða þetta. Lögfræð-
ingur frá Apple er að vinna í því að
kæra ríkið fyrir þetta þar sem þetta
er eina landið í heiminum þar sem
þetta er svona,“ segir hann. Ríkið
heldur þessum sköttum og gjöldum
í hámarki til þess að græða sem mest
en í raun er því þveröfugt farið.
„íslenska rikið er í raun og veru að
tapa á því að hafa þetta svona. Það
seljast færri iPod-ar hér á landi fyr-
ir vikið. Allir smygla þeim inn til
landsins því þetta er svo lítið þetta
fer bara í vasann - allir kaupa fyrir
alla. Ríkið missir því af öllum virðis-
aukaskattinum af þeim iPodum sem
koma inn í landið,“ segir Steingrím-
ur. Það eru spennandi hlutir fram-
undan í iPod heiminum. Meðal ann-
ars er að koma sími sem Motorola
hefur þróað í samstarfi við Apple og
hann mun innihalda iTunes tónlist-
arspilarann sem verður fyrsti sím-
inn með forritinu í heiminum.
katrin.bessadottir@vbl.is