blaðið - 12.09.2005, Side 37

blaðið - 12.09.2005, Side 37
blaðið MÁNUDAGUE 12. SEPTEMBER 2005 DAGSKRÁ I 37 ■ Fjölmiðlar , Fagleg sjónarmið Þegar Davíð Oddsson greindi frá því að hann væri á förum yfir Arnarhól þar sem hann yrði Seðlabankastjóri tóku menn tíðindunum misjafnlega eins og gengur. En svo hófst hinn full- komlega fyrirsjáanlegi söngur um það hvort hann væri hæfur í djobbið, svona „faglega séð“ eins og það er orðað af þeim, sem telja sjálfa sig fag- menn á einhverju tilteknu sviði. Þeir, sem dregnir voru fram til þess að viðra þessi sjónarmið, voru frekar fyrirsjáanlegir líka, sumsé þeir Ágúst Einarsson og Þorvaldur Gylfason, en í frétt RÚV um „málið“ var Ágúst kynntur til sögunnar sem prófessor og fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, en Þor- valdur aðeins sem prófessor. Gott og vel, þarna voru sumsé tveir hlut- lausir fræðimenn að lýsa skoðun sinni úr hlutlausum fílabeinsturni Háskóla Islands. Eða hvað? Nei, auðvitað er það ekkert þann- ig, því þarna var aðeins um að ræða hefðbundið jarm tveggja Samfylk- ingarmanna. Skoðun þeirra er jafn- gild og hver önnur, en þarna ræddi aðeins um skoðanir og þær næsta pólitískar. Hvers vegna RÚV kaus að kynna þær með öðrum hætti er svo athyglisverðari spurning. Þó verður að taka fram að ég veit það auðvitað ekki fyrir víst hvort Þorvaldur á flokksskírteini í Sam- fylkingunni. En pistlarnir hans eru allir á þann veg, svo ég geri bara ráð fyrir því. Nema náttúrlega að það sé eitthvað allt annað, sem reki hann áfram,. Eins og til dæmis það að hann sé virkilega ekki enn búinn að fyrirgefa Davíð Oddssyni það að hann skyldi vinna sig í inspectors- kjöri í Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969, en þar með var snöggur endir bundinn á pólitískan feril Þor- valdar. Vinir mínir á Vefþjóðviljanum skrifuðu um þetta á laugardag og greindu frá því að vefritinu hefði ekki tekist að rifja upp nein dæmi um gagnrýni Þorvaldar á ráðningu Jóns Sigurðssonar flokksbróðurs síns og Ágústs í sama starf og Dav- íð hreppir senn, en Vefþjóðviljinn er með eindæmum fundvís á gamlar yfirlýsingar á vettvangi stjórnmála. Þess má svo til gamans geta að það var einmitt téður Ágúst, sem hafði forgöngu um ráðningu Jóns sem for- maður bankaráðs Seðlabankans. f hvert skipti, sem ég sé eða heyri einhvern nota orðin „fagleg vinnu- brögð“ á opinberum vettvangi, fyll- ist ég grunsemdum um að ekki sé allt með felldu. Muna menn t.d. hvernig hamrað var á þeim í „frétta- stjóramálinu" sællar minningar? Annar hver fréttamaður RÚV fjasaði um fagið og hvernig dægursfrétta- stjórinn væri óhæfari en allir hinir umsækjendurnir og svo voru þeir mærðir út í eitt á „faglegum forsend- um.“ En þegar maður grennslaðist fyrir um menntunina kom á daginn að það var aðeins einn umsækjandi sem hafði menntun á sviði fjölmiðl- unar og sá var ekki heldur í náðinni hjá fagmönnunum! En ætli það sé nú ekki þannig í þessum málum báðum að formleg menntun manna segir ekki allt um manninn og hæfni hans til hinna að- skiljanlegu verka? Auðvitað og það vita allir. Þegar öðru er haldið fram býr eitthvað allt annað undir og það er þá kannski fréttnæmara en hitt. Andrés Magnússon 21:00-23:00 21.15 Lögreglustjórinn (The District III) 22.00 Tfufréttir 22.25 Lífsháski (24:25) (Lost) Það er komið að lokum myndaflokksins og í kvöld verða tveir sfðustu þættirnir sýndir. 23:00-00:00 23.55 Ensku mörkin Sýndir verða valdir kaflar úr leikjum síðustu um- feröar í enska fótboltanum. e. 00:00-6:00 00.50 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldið. 01.10 Dagskrárlok 21:15 Jamie Oliver (Oliver'sTwist) (23:26) (Kokkur án klæða) Meistarakokkurinn Jamie Oliver kemur enn á óvart. 21:40 Grey's Anatomy (5:13) (Læknalíf) Dramatísk þáttaröð um nokkra læknakandídata á sjúkrahúsi í Seattle. 22:25 Most Haunted (1:20) (Reimleikar) Magnaður myndaflokkur sem beinir sjónum okkar að hinni eilífu spurningu um hvort það sé líf eftir dauðann. Bönnuð börnum. 23:15 Eyes (9:12) (A gráu svæði) Dramatiskur myndaflokkur. Judd Risk Mangement er ekkert venjulegt fyrirtæki. Harlan Judd og félagar leysa málin fyrir fólk sem af einhverjum ástæðum vill ekki leita á náðir lögreglunnar. 00:05 The Mirade (Kraftaverkið) 01:45 Tangled (Flækjur) Spennumynd. Lögreglan hefur rannsókn þegar maðurfinnst iila til reika. Aðalhlutverk: Rachael Leigh Cook, Shawn Hatosy, Jonathan Rhys-Mey- ers, Estella Warren. Leikstjóri, Jay Lowi. 2001. Stranglega bönnuð börnum. 03:15 Fréttir og Island í dag Fréttir og ísland 1 dag endursýnt frá þvf fyrr í kvöld. 04:35 Island í bítið 06:35 Tónlistarmyndbönd frá Popp TiVí 21:00TheContender 22:00 Dead Like Me - lokaþáttur Það er hrekkjarvaka og fjöldamorðingi gengur ^Uaús um bæinn, þannig að það er nóg að gera hjá George og félögum hennar. 22:50 Jay Leno 23:35 CShNewYork(e) 00:25 Cheers - 6. þáttaröð (e) 00:50 Óstöðvandi tónlist 22:00 Man. Utd. - Man. City frá 10.09 00:00 Þrumuskot (e) Farið er yfir lelkl liðlnnar helgar og öll mörkin sýnd. Viðtöl við knattspyrnustjóra og leikmenn. 01:00 Bolton - Blackburn frá 11.09 03:00 Dagskrárlok búinn er að slá f gegn út um allan heim. Ramsey fær til liðs við sig óreynda kokka til þess að hjálpa sér að opna veitingastaö í Los Angeles. f hverri viku rekur Ramsey einn kokk þar til einn stendur eftir sem sigurvegari. 21.00 Veggfóður Hönnunar og Iffstfls þátturinn Veggfóður sem er undir stjórn arkltektsins og sjónvarpskonunnar vin- sælu Völu Matt og sjónvarpsmannsins Hálfdáns Steinþórssonar. 22.00 Kvöldþátturlnn Beinskeyttur spjall- og skemmtiþáttur þar sem við- burðir dagsins eru hafðir að háði og spotti. 22.40 David Letterman 23.30 The Newlyweds (23:30)(Celebrity Issues) 23.55 The Newlyweds (24:30)(Eye Surgery) 00.20 Friends 3 (4:25) (Vinir) 00.45 Seinfeld (11:24)(The Contest) 01.10 Kvöldþátturínn 21:00 Enskumörkin 21:30 Spænsku mörkin 22:00 Olfssport 22:30 Playmakers (11:11)(NFL-liöið) Það er komið að kveöjustund hjá Fjallaljónunum. Fram undan er slöasti þátturinn og það gengur mikið á. Bönnuð börnum. 23:15 Landsbankamörki 00:05 UEFA Champions League Fréttir af leikmönnum og liðum 1 Meistaradeild Evrópu. 22:00 Instinct to Kill (Drápseðli) Hasarmynd sem stendurvel fyrlr sfnu enda er efnisþráðurinn kunnuglegur og klikkar ekkl. Hér koma heitar ástriður og grimmileg hefnd við sögu. Við kynnumst hjónum sem eru hamingjusöm eina stundina en á heljarþröm þá næstu. Annar aðilinn á sér dökka fortið sem þolir ekki dagsljósið. Aðal- hlutverk: Mark Dacascos, Missy Crider.Trm Abell. Leikstjóri, Gustavo Graef-Marino. 2001. Stranglega bönnuö börnum. 00:00 U.S. Seals (Bandarísku Selirnir) Hasarmynd. Nút(ma sjóræningjar gera Bandaríkja- mönnum lífið leitt. Aðalhlutverk: Jim Fitzpatrick, Greg Collins, Justin Williams. Leikstjóri, Yossi Wein. 1999. Stranglega bönnuð börnum. 02:00 Extreme Ops (Öfgasport I ölpunum) Ævintýraleg hasarspennumynd. Leikstjóri, Christi- an Duguay. 2002. Stranglega bönnuð börnum. 04:00 Instinct to Kill (Drápseðli) ■ Af netinu Það var ekki þverfótað fyrir Clint í borginni okkar í gær. Sástu kallinn? - spurði Björn Leifs- son mig þegar ég kom í Laugar í gær. Clintarinn var þá nýbúinn að spretta úr spori á sínum 75 ára gömlu fótum á brettunum. En eina „celebbið" sem ég sá í saln- um í gær var nýi utanríkisráðherr- ann. Hann var mæðulegur einsog menn eru sem eru búnir að vera lengi í aðhaldi. Þær geta verið erf- iðar, dr. Árný og Inga Jóna. Við eigum að setja Geir á rjóma og feitt kjöt þegar hann tekur yfir nýja job- bið. Það borgar sig að hafa glaða menn og reifa í utanríkisþjónust- unni. Þeir ná betri samningum. Það hljóp hins vegar á snærið hjá mér þegar ég kom í Landsbank- ann fyrr um daginn. Fyrst mætti ég Lalla Johnes. Hann var edrú - einsog ég. Lalla er hlýtt til Lands- bankans og Björgólfs. En það var allt á iði í bankanum. Hviss og urg í dömunum í gjaldkerastúk- unum. Þær horfðu allar í eina átt. Ég hélt fyrst að þær væru að horfa á Gunnlaug Sigmundsson fyrrver- andi alþingismann og forstjóra Kögunar sem skeiðaði inn í öllu sínu veldi. En rétt fyrir aftan hann var hópur af mönnum. Aftast gnæfði maður með töffaralegt lúkk og glit í auga. Mér fannst hann kinka kolli til mín - en líklega var það til Lalla Johnes. Það var sami töffarasvipurinn á þeim báðum. Þetta var Clintarinn. Flottur og ekkert mæðulegur. Á leið upp stig- ann til Björgólfs. Bjöggarnir eru líklega að fá hann til að gera mynd um bankann. Eða um KR. Eða bara um þá sjálfa. From Rags to Riches. Ég flýtti mér y fir á skrifstofuna mína hinu megin og sagði Bettý ritara að Clint Eastwood væri hinu megin við götuna.ViðBettýhorfumststundum í augu við Björgólf yfir Austurstræt- ið. Við stóðum lengi og horfðum á þykk gluggatjöldin sem bærðust fyrir skrifstofu stórbankastjórans. Svo hreyfðust gluggatjöldin og ég get svarið að það voru augu Clints sem horfðu rannsakandi á mig. Kanski hann hafi séð mig á brettinu inní Laugum. Eða þegar Pétur í Strákun- um á Stöðinni stökk upp á bakið á mér í Földu myndavélinni. Kanski hann sé að leita að myndarlegum þéttvöxnum íslenskum karlmanni í myndina fyrir Björgólf. Kanski fæ ég að leika bankastjóra - hver veit? Svo sá ég að hann leit niður í þann mund sem Lalli Johnes gekk út úr bankanum. Lalli leit upp, sá mig og veifaði. Augnablikið rann inn í eilífð- ina og þetta var einsog myndin hans Sergío Leóne sem Clintarinn lék í. The Good, Bad and Ugly. Össur. http://web.hexia.net/roller/ page/ossur Morgunveröur/Brunch Món-fös frá 08:00 til 11:30 Lau-sun frá 09:00 til 15:00 ii 1 x o P www.cafeoliver.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.