blaðið - 13.09.2005, Síða 4
4 I INWLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 biaAÍ6
Verðbólgan ekki
meiri í rúm þrjú ár
Vísitala neysluverðs hækkaði íseptember langt umfram spár bankanna. Aukin verðbólga
setur kjarasamninga í hœttu og ógnar stöðugleika á vinnumarkaði
Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn hækki stýrivexti á næstunni Blaöið/Gúndi
Icelandair
hefur beint
áætlunarflug
til Manchester
Icelandair mun hefja beint
áætlunarflug til Manchester 1
Englandi í byrjun apríl á næsta
ári. Flogið verður tvisvar í viku,
á fbstudögum og mánudögum.
Samkvæmt fréttaskeyti frá fyrir-
tækinu hefur fjöldi ferðamanna
frá Bretlandi þrefaldast á
undanförnum áratug og menn
gera sér vonir um að frekari
aukning verði þar á. Nú þegar
flýgur Icelandair reglulega til
Glasgow og London og verður
Manchester því þriðji viðkomu-
staður félagsins þar í landi.
f ágústbyrjun tilkynnti
breska flugfélagið British
Airways þá ætlun sína að hefja
reglulegt flug til íslands í lok
marsmánaðar á næsta ári. Það
er því ljóst að Icelandair ætlar
ekki að gefa þumlung eftir í
vaxandi samkeppni um flug
milli íslands og Bretlands.
Verðbólgan mæhst nú 4,8% prósent
og hefúr hækkað um rúmlega i% ffá
síðasta mánuði þegar hún var 3,7%
samkvæmt tilkynningu ffá Hagstofu
íslands í gær. Þetta hljóta að teljast vá-
leg tíðindi og bendir Greiningadeild
íslandsbanka meðal annars á að auk-
in verðbólga setji nú kjarasamninga f
hættu og ógni stöðugleikanum á vinnu-
markaði. Ennffemur segir bankinn að
Iíkur hafi aukist á að Seðlabankinn
hækki stýrivexti þann 29. september
næstkomandi þegar Peningatíðindi
koma út. Effi verðbólgu-þolmörk Seðla-
bankans, sem 0114,0%, hafa verið rofin
og þarf bankinn nú að gera ríkisstjórn-
inni skriflega grein fyrir áformum sín-
um um hvernig ná megi verðbólgunni
niður í 2,5% á ný. Vegvísir Landsbank-
ans leiðir að því líkum að Seðlabank-
inn hækki stýrivextina jafnvel strax
f næstu viku um leið og hann sendir
greinargerðina til ríkisstjórnar.
Hverfandi líkur á að forsendur haldi
Á vefsíðu ASf koma fram viðbrögð sam-
takanna við fréttum af aukinni verð-
bólgu, sem hefur ekki verið meiri í 40
mánuði. Þar segir að líkur á að forsend-
ur kjarasamninga í nóvember haldi
séu hverfandi. Þegar skrifað var undir
kjarasamninga árið 2004 var verðbólg-
an 1,8% og var miðað við að hún yrði
sem næst 2,5% út samningstímann.
Mál hafa hins vegar þróast á þann veg
að síðastliðna 12 mánuði hefúr verð-
bólgan verið nánast tvöfóld sú tala.
Útsölulok hafa mikil áhrif
Vísitala neysluverðs í september er
246,9 stig og hækkaði um 1.52% frá
fyrra mánuði. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Hagstofunni. Efvisitalan
er reiknuð án húsnæðis nemur hækk-
unin 1.71%. Síðasthðna tólf mánuði
nemur hækkun vísitölunnar 4,8% og
undanfarna þrjá mánuði er hækkunin
1,9%. Þetta jafngildir 7,6% verðbólgu á
ári. Hækkunm í september var langt
umfram spár bankanna, en greinmg
fslandsbanka hafði spáð hækkun upp
á 0,9%. Skýring hækkunarinnar um-
fram spár er meðal annars sögð sú að
áhrif útsöluloka hlaðast á einn mánuð
f stað tveggja og gæti verðbólgan því
reynst minni í næsta mánuði fyrir vik-
ið. Aðrar skýringar á hækkuninni að
sögn fslandsbanka er verðhækkun á
dagvöru, sem hækkaði meira en gert
var ráð fyrir, hækkun á fbúðaverði, og
miklar eldsneytishækkanir.
Lögreglutæki
fyrir tæpar
100 miUjón-
ir á árinu
Gert er ráð fyrir að Bílamiðstöð ríkis-
lögreglustjóra endurnýi ökutæki og
búnað fyrir um 95 milljónir króna
á þessu ári. Keypt verða 26 ökutæki
en sérstök áhersla hefur verið lögð á
endurnýjun stærri lögreglubifreiða
og hafa verið keypt sex ökutæki af
gerðinni Ford Econoline 350 og fara
þrjú þeirra til lögreglustjórans í
Reykjavík.
Bílamiðstöðin mun flytja úr Borg-
artúni 4 í nýtt húsnæði við Skógar-
hlíð í byrjun nóvember og verður
þar miðstöð fyrir öll Lögregluemb-
ætti landsins. Samt sem áður verður
sérstaklega passað að þjónusta við
Lögregluna í Reykjavík verði áfram
jöfn því sem hefur verið. ■
Leit haldið
áfram
Leit að manninum sem saknað er
eftir að bátur sem hann var í strand-
aði á skeri á Viðeyjarsundi hefur
engan árangur borið. Þorsteinn
Þorkelsson hjá Landsbjörg segir að
leitað sé úr bátum með neðansjáv-
armyndavél og sónartæki. f gær
stóð leit yfir frá kl. 18 til 24 og segir
Þorsteinn að stuðst verði við þessa
leitaraðferð út vikuna. Hafi leitin
engan árangur borið verður hafist
handa við að ganga fjörur á ný um
helgina. Maðurinn sem leitað er að
heitir Friðrik Á. Hermannsson, 34
ára lögfræðingur. Konan sem lést í
slysinu hét Matthildur Harðardóttir,
51 árs. Hún var einnig lögfræðingur
að mennt. Friðrik og Matthildur
voru í sambúð.
Staðgengill þjónustustjóra - þjónustufulltrúi
í útibú íslandsbanka Kringlunni
Við leitum að kraftmiklum starfsmanni sem sinnir starfi þjónustufulltrúa og
erjafnframtstaðgengill þjónustustjóra. Reynsla af fjármálamarkaði og/eða
sölumálum er æskileg. Hér er um 100% starf að ræða með vinnutíma frá 12.00
til 18.20. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni:
Fjármálaráðgjöf
Ýmis verkefni tengd starfsmannamálum
Sala á þjónustuþáttum bankans
Að veita framúrskarandi þjónustu
Hæfniskröfur:
Viðskiptafræðimenntun æskileg
Reynsla affjármálatengdum störfum æskileg
Frumkvæði
Söluhæfileikar
Sveigjanleiki
Þjónustulund
Nánari upplýsingar veitir Rósa Margrét Sigursteinsdóttir, þjónustustjóri,
rosa.margret@isb.is, sími 440 3573. Umsóknir óskast fylltar út á www.isb.is,
og sendar ásamt ferilskrá fyrir 19. september nk. Tengiliður í starfsmanna-
þjónustu er Sigrún Ólafsdóttir, sigrun.olafs@isb.is.
Sími 440 4000 • isb.is
ÍSLANDSBANKI
Úrval af buxum
frá RALPH LAUREN
ogMAC
A-.Wx,' >
Ralph Lauren
Laugavegi 40
S: 561 1690.
5111000
‘jfraunbœr 121
Eldbakað Er Betra!
1