blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005
NEYTENDURI 11
Verðsamanburður á
klippingu fyrir karla
Verðkönnun var gerð á hársnyrti-
stofum i2.september á vegum Blaðs-
ins. Stofur sem allar eru staðsettar
í miðbæ Reykjavíkur voru valdar af
handahófi. Verðið var nokkuð mis-
munandi eftir hárgreiðslustofum.
Lægsta verðið er hjá Amadeus og
er verðið 2500 kr. og hæsta verðið er
hjá Hárgreiðslustofunni Mojo 3500-
3900. Þess má geta að á Toni & Guy
og Mojo eru klippingarnar mis dýr-
ar eftir reynslu hárgreiðslusérfræð-
ingsins. Þá er ódýrasta verðið fyrir
klippingu af nema eða sveini og
hæsta verðið þegar meistari klippir.
Hár Expó, Laugarvegi 33
Amadeus, Laugavegi 62
Toni & Guy
Hár Gallerý
Soho
Hárgreiðslustofan Mojo
Rauðhetta og úlfurinn
3000
2500
3100-4900
2900
2900
3500-3900
3900
Varkár
verslun
á netinu
Það verður sífellt vinsælla að versla
á netinu og nú er svo komið að hægt
er að versla nær allt á netinu, bíla,
brúðarkjóla, húsgögn og svo mætti
lengi telja. Netið getur þó verið vafa-
samt og ber því að hafa vara á því þar
geta leynst óprúttnir aðilar. Gott er
að fylgja nokkrum meginreglum ef
á að versla á netinu.
• Kynntu þér vel hvað fyrirtækið
heitir og við hvaða götu það er stað-
sett. Sem og í hvaða landi og borg.
• Kynntu þér vöruna, hvort henni
fylgi ábyrgðarskírteini, hvort hún
sé lögleg og hvort hún virki yfir höf-
uð á íslandi. Vörur sem þú kaupir í
gegnum netið eiga að passa við vöru-
lýsingu.
• Kynntu þér samninginn og
reyndu að skilja hann vel. Ekki
gleyma smáa letrinu.
• Kynntu þér kostnaðinn. Athug-
aðu vel hvort einhver aukakostn-
aður fylgir, eins og skattur, tollar,
sendingarkostnaður og pökkun. At-
hugaðu einnig hver borgar sending-
arkostnað ef skila þarf vörunni.
• Kynntu þér hvað verður gert við
persónulegar upplýsingar þínar og
hvort þeim verði dreift til þriðja að-
ila.
• Staðfestu pöntunina. Þér ætti að
vera gefinn sá valmöguleiki að stað-
festa eða hafna pöntuninni áður en
þú greiðir fyrir hana.
• Geymdu öll skjöl. Prentaðu út
pöntunina og skrifaðu hjá þér öll til-
vísunarnúmer.
• Verslaðu aðeins á síðum sem eru
öruggar. Öruggar síður hefjast oft á
https auk þess sem sjá má lykil eða
hengilás á botni skjásins. Ekki skrá
neinar fjárhagslegar upplýsingar á
siðu sem er ekki örugg.
• Hafðu tafarlaust samband við
söluaðila ef eitthvað vandamál kem-
ur upp. Ef vandamálið er ekki leyst
skaltu hafa samband við neytenda-
samtök eða önnur slík samtök.
• Hafðu augun opin fyrir alls kyns
svindli. Ef eitthvað virðist vera of
gott til að vera satt, þá er það senni-
lega rétt ályktun.
svanhvit@vbl.is
Það getur verið varasamt að versla á
netinu.
RAPS0DY RSH-100 1
HEILSTÆÐ LAUSN FYRIR STAFRÆNA SKEMMTUN HEIMILISINS!
B
S
0
0
0
H0RFÐU Á MYNDBÖND/MYNDIR/TÓNLIST í SJÓNVARPINU EÐA SKJÁVARPA
AN ÞESS AÐ TENGJASTTÖLVU.
TENGDU STAFRÆNU MYNDAVÉLINA BEINTVIÐ RAPS0DY HVAR SEM ER ÁN ÞESS AÐ
TENGJASTTÖLVU!
USB2 FLAKKARI!
LÍTIL 0G NETT GRÆJA - TASKA 0G FJARSTÝRING FYLGIR MEÐ!
TAKMARKAÐ MAGN!
VERÐ AÐEINS:
19.900 kr.
HDD FYLGIR EKKIMEÐ
K0RTALESARI
- USB 2.0 interface
- 1.2MEGA Pixel support
- Innbyggðurhljóðnemi
LES:
MMC.SD, SM, MD, CF, XD, MS
0G MSPRO.
LASERBENDILL - VIRKAR SEM
MÚS/LYKLABORÐ! -TILVALIÐ (
P0WERP0INT KYNNINGAR
V-......... ...........
VijeTalk2.0 Pro
WEBCAM
README 15 IN 1
X-P0INTERII (ÞRÁÐLAUST)
SKJÁKORT: HIS RADEON 9550
DVI - AGPX - TVOUT
128 mb DDR
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
5.900kr.-
3.900kn-
9.900kn-
5490 kn-
ER TOLVAN AÐ GERA ÞIG BRJALAÐA(N)?
HVER ÞJONUSTAR ÞIG?
KOMDU MEÐ GOMLU
VÉLINAOGVIÐ
RAÐLEGGJUM ÞÉR HVAÐ
GERA SKAL!
VIÐ VEITUM ÞER
PERSÓNULEGA OG GODA
ÞJONUSTU
TASK ÞJONUSTA ER
FYRIRÞIG...