blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 12
12 I VEIÐI ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 blaöið Stephen Slack og Róbert Schmidt á góóum morgni fyrir norðan með ref, heiðagæsir og grágæsir. Skotveiðin gengur vel Gœsin loksins kom in á veiðisvœðin Veiðimenn kætast þessa dagana því mikið af gæs er komin í akra og tún. Um síðastliðna helgi fylltust marg- ir kornakrar af gæs m.a. blesgæs, heiðagæs og grágæs á suður- og suð- austurlandi. Víða er búið að slá korn- akra á suðurlandi en þó eru margir óslegnir. Þrátt fyrir það leitar gæsin í akrana og étur sig í gegnum þá á fáeinum dögum ef ekkert er að gert. Bóndi einn í Austur-Landeyjum varð meðal annars fyrir því óláni fyrir stuttu að gæsir höfðu étið upp allan kornakurinn hans án þess að hann hafi orðið þess var. Tvær skyttur náðu 52 gæsum í morgunflugi á austurlandi um helg- ina og hættu veiðum fyrir klukkan níu að morgni. Heiðagæsaveiðin þar um slóðir hefur verið ágæt og menn fengið viðunandi afla á fjöllum. Mikið hefur verið af gæs á norður- landi og hefur heiðagæsin leitað nið- ur á láglendið enda hefur snjóað til fjalla. Nokkrir veiðimenn fengu 15 fugla i kvöldflugi ásamt einum ref og 10 í morgunflugi, mest heiðagæs. Er því óhætt að segja að gæsaveiðin sé nú hafin fyrir alvöru enda fugl- inn kominn á svæðin, loksins. Andaveiði Andaveiðin er byrjuð og sumir bún- ir að ná sér hóflega í soðið. Yfirleitt er öndin tekin í „léiðinni” þegar veiðimenn halda á gæsaveiðar. Gæsa- skyttur sem vou á Mýrum náðu sér í fáeinar stokkendur og urtend- ur ásamt fáeinum grágæsum. Ein skytta hafði 20 endur seinni part dags sem er mjög góð veiði. Var afl- inn blandaður stokköndum, urtönd- um, rauðhöfða og skúfönd. Danskir sjónvarpsmenn gera veiðimynd Róbert Schmidt tekur um þessar mundir á móti fjórum dönskum veiðimönnum sem koma frá Hunters Video og Seeland. Mun Róbert sjá til þess að þessir heiðursmenn komist í góða gæsaveiði en tilefni heimsókn- arinnar er einmitt að búa til góða mynd um gæsaveiðar á Islandi. „Við verðum á ferðinni frá og með 14. til 19. september og þá munum við heimsækja hestabúgarðinn Ármót og dvelja þar um tíma í boði Hafliða Halldórs en hann mun bjóða okkur á gæsaveiðar," sagði Róbert. Hunters Video hefur sérhæft sig í gerð veiði- mynda um allan heim, sérstaklega um veiði á stórum villtum dýrum. Nú ætla þeir að snúa sér að íslandi og mynda náttúru landsins í haust- búningi og ná góðum myndum af gæsum ásamt gæsaveiðum. Stefnt er að þeir komi að ári til að mynda sil- ungs- og laxveiðar. Óvenju mikið veiðst afsmálaxi í sumar Stœrri laxinn að hverfa? 1ffrfritýritir^rfr**-ýrfeirir » -ft * VeiöÍDortið * ■k k k k k k * í í k k k Í i k + k ir k k k k i k k k k + k ★ k k k k k k k ér ***-*♦ kttk •ér*k** 4r *+•*++ + ér ék -é-értrlr ♦♦♦*'» ★ ★ * ★ * ★ ★ ★ ★ ★ ★ * UTSALA! 10-60 % AMitlliir Af öllum vöruui! Veiðiportið Grauclagarði 3. Simi:552-9940 Frábæru veiðisumri er nú að ljúka en veitt er í mörgum laxveiðiám út þennan mánuð. Ekki er ólíklegt að heildarfjöldi laxa verði um 55 þús- und og þá mest smálax sem veiðst hefur í sumar. En það sem er alvarlegast er að stærri laxinn virðist vera að hverfa, en lítið hefur veiðst af honum í sum- ar. Hvort hann komi aftur næsta sumar eða þar næsta veit augljós- lega engin. Honum hefur fækkað, það sést i öllum veiðibókum sem skoðaðar eru ofan í kjölinn. „Já það fer ekki að milli mála að stórlaxinn er að hverfa úr aflanum, það er bara tímamót ef það veiðast laxar yfir 10-12 pundinn i mörgum veiðiám," sagði veiðimaður sem hef- ur víða rennt fyrir lax í sumar en aflinn hefur samanstaðið af 4 til 6 punda smálaxi. Netaveiðin tekur toll Netin taka sinn toll en vefurinn krafla.is hefur tekið málið upp að undanförnu. Þar kemur fram að skuggalegt sé hvað margir laxar lendi í netunum. Þessi vandi er víða ræddur og Gunnar Örlygsson alþingsmaður og veiðimaður hefur boðað að hann muni ræða málið á alþingi. Margir vænir laxar hafa end- Ari Þórðarsson með lax en líklega veiðast um 55 þúsund laxar í veiðiánum f sumar og flestir 4- til 6 punda. að aldur sinn ( netum í gegnum ár- in. Þetta verður að stoppa, laxinum fækkar og lítið verð fæst fyrir hann dauðan. Aflahæstu ár Þverá í Borgarfirði heldur ennþá toppsætinu en áin hefur gefið 4025 laxa. Bændadagar eru núna í ánni og gefið að töluvert af fiski muni veiðast í þeim. Eystri-Rangá hefur gefið 3800 laxa og er í öðru sæti, en síðan kemur Norðurá sem endáði í 3142 löxum í þriðja sætinu og síðan Ytri-Rangá sem er í 2400 löxum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.