blaðið - 13.09.2005, Page 18
26 I BÖRN OG UPPELDI
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Bömum kennt
að kljást við
eríiðleika
Námsefni á sviði geðheilsu
Guðrún Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og verkefnastjóri Geðræktar hjá
Lýðheilsustöð
Um þessar mundir er verið að for-
prófa námsefni sem kallast Vinir
Zippý í einum leikskóla og tveimur
grunnskólum á íslandi. Vinir
Zippý er forvarnarverkefni á sviði
geðheilsu fyrir börn og hefur verið
notað með góðum árangri víða um
heim, til að mynda í Danmörku og
Litháen. Námsefnið er hannað fyrir
6-7 ára börn, en hefur reynst gagn-
legt fyrir yngri börn líka.
Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og verkefnastjóri
Geðræktar hjá Lýðheilsustöð, segir
að námsefnið sé mjög metnaðarfullt
verkefni. „Hugmyndin á bak við
þetta námsefni er sú að ef við kenn-
um börnum að kljást á eigin spýtur
við erfiðleika á meðan þau eru ung
þá munu þau verða betur undir það
búin að mæta vandamálum og and-
streymi á unglings- og fullorðinsár-
um. Það sem er líka mjög jákvætt er
að það er enginn skyldugur að segja
neitt, það er í lagi að hlusta bara.“
Andleg og tilfinningaleg heilsa efld
Námsefnið er byggt í kringum sex sög-
ur um Zippý, teiknimyndapersónu
sem á ung börn að vinum. I sögunum
standa börnin ffammi fyrir ýmsum
aðstæðum sem mörg börn þekkja
eins og einmanaleika, einelti, vináttu,
missi og sorg. Til dæmis er fjallað um
tilfmningar í fyrsta námsþættinum.
Vinir Zippý kenna börnum að takast á við erfiðleika
Námsefnið byggist upp á sögunum,
samræðum, blutverkaleikjum, teikn-
ingum og síðan fylgja mismunandi
verkefni með hverri sögu. Með náms-
efninu er börnunum kennt að takast á
við erfiðleika sem kunna að koma upp
í daglegu lífi þeirra, að tala um tilfinn-
ingar og að skoða leiðir til að takast
á við tilfinningaleg vandamál. Vinir
Zippý segir börnunum ekki hvernig
skal leysa ákveðið vandamál, að ein
lausn sé betri en önnur, heldur hvet-
ur námsefnið börnin til sjálfstæðrar
hugsunar við úrlausn vandamála.
Námsefnið hentar fjölmenningu
Markmið námsefnisins er að efla and-
lega og tilfinningalega heilsu allra
barnanna ffekar en að leysa eingöngu
vandamál fárra. í vetur verður náms-
efnið forprófað í leikskólanum Maríu-
borg, grunnskólanum Ingunnarskóla
og nýja grunnskólanum í Norðhnga-
holti og fór Guðrún til London á nám-
skeið í kennslu námsefnisins ásamt
kennurum. En það er skilyrði til þess
að fá leyfi til að kenna námsefnið. Guð-
rún segir að ætlunin sé að innleiða
námsefnið í sem flesta skóla á íslandi.
,En það veltur á því að ég fái skólayfir-
völd á hverjum stað í lið með mér. Það
hefur sýnt sig að námsefnið reynist
vel í mismunandi menningarsamfé-
lögum sem er ekki síst mikilvægt fyrir
okkur því það er að myndast fjölmenn-
ing í skólunum.“ Rannsóknir sýna
að börnin sem höfðu farið í gegnum
námsefnið Vinir Zippý sýndu greini
lega fr amför í því að takast á við vanda-
mál á jákvæðan hátt samanborið við
börn sem ekki fóru í gegnum það.
svanhvit@vbl.is
BlaíiiAteimHugl
Ungt fólk
fær að ráða
Hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar
Arlega slasast mörg smábörn í
innkaupakerrum hér á landi
Reykjavíkurborg leitar eftir hug-
myndum ungs fólks um skipulag
Nauthólsvíkur og efnir til hug-
myndasamkeppni meðal fólks
á aldrinum 13-19 ára. Markmið
keppninnar er að fá fram hug-
myndir um skipulag svæðisins og
þá sérstaklega bvernig megi bæta
og þróa útivistaraðstöðuna í góðu
samspili við núverandi starfsemi.
Tillögurnar eiga helst að sýna
hvernig svæðið í Nauthólsvík getur
orðið að skemmtilegu útivistar- og
afþreyingarsvæði. Þó þarf að hafa
í buga ýmsa starfsemi sem er í ná-
grenninu og hugsa um það sem mun
verða á svæðinu, eins og Háskólinn
í Reykjavík. Reykjavíkurborg leitar
eftir tillögum ungs fólks og vill að
það hafi áhrif á nýtt skipulag svæðis-
ins þar sem sá hópur notar Nauthóls-
vík mikið. Tillögurnar eiga að varpa
áhugaverðri og frjórri sýn á svæðið
auk þess sem þær eiga að leitast
við að gera svæðið aðlaðandi allan
ársins bring. Þrenn verðlaun verða
veitt en fyrstu verðlaun eru 100 þús-
und krónur. Frekari upplýsingar
um samkeppnina má finna á www.
reykjavik.is/hugmyndasamkeppni
Slysin má rekja til eftirlitsleysis
foreldra með börnum meðan
á innkaupunum stendur og
rangrar notkunar á kerrunum. Marg-
ir foreldrar gera sér ekki grein fyrir
hversu alvarleg þessi slys eru en fall
úr innkaupakerru ofan á stein-gólf
getur orsakað alvarlega áverka á
böfði. Dæmi eru um að börn hafi hlot-
ið varanlega áverka á heila.
Það er hægt að forðast þessi slys
Innkaupakerrur eru sérstaklega
hannaðar með það í huga að börnum
sé ekið í þeim. Á þeim eru innbyggð
sæti sem eru skýrlega merkt með
leyfilegri hámarksþyngd sem er 15
kfló.
Mikflvægt er að börn séu einungis
látin sitja í sætinu en þau eiga ekki
að vera í vöruhluta kerrunnar. Mikil-
vægt er að foreldrar velji kerrur sem
eru með belti en það er strekkt yfir
læri barnsins til að halda því í sætinu
og hindra að það geti farið upp úr því.
Aldrei má víkja frá barninu í kerrunni
eitt augnablik því börn eru ótrúlega
fljót að standa upp úr sætinu. Börn
eiga ekki að hanga utan á kerrum en
slys hafa orðið þegar kerrur fullar af
matvælum hafa oltið yfir þau.
Barnainnkaupakerrur
Barnainnkaupakerrur er að finna í
nokkrum verslunum. Foreldrarleyfa
oft smábörnum sem ekki ráða við
þær, að keyraþær jafnvel fullar afvör-
um. Nokkuð er um að slys verði þeg-
ar að búið er að fylla þær af þungum
varningi og börnin reyna að keyra
þær með þeim afleiðingum að þær
velta og lenda á fótum þeirra. Barn
sem hefur fulla stjórn á líkama sín-
um getur keyrt kerruna með 1-3 létt-
um blutum og undir ströngu eftirliti
foreldra
Ábyrgð rekstraraðila verslana
Ábyrgð rekstraraðila er mikil enda
þurfa þeir að sjá til þess að kerrunum
sé alltaf vel við haldið. Dæmi eru um
að slysin hafi orðið vegna þess að kerr-
an hefur ekki virkað eins og skyldi.
Flest slys vegna lélegs viðhalds má
rekja til hjólanna og að þau virki ekki.
Það verður að fara reglulega yfir þær,
taka skemmdar kerrur úr umferð og
lagfæra. Gott væri að sjá leiðbeining-
ar í myndrænu formi við kerrustöðv-
ar sem minna foreldra á rétta notkun
þeirra. Mikilvægt er að nægilega
margar kerrur séu alltaf í notkun
með beltum fyrir börn.
Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni, Lýðheilsustöð
herdis@lydheilsustod. is
www.lydheilsustod.is
<Ðiza eff
Ingólfsstræti 6 sími 561-4000
á/ /Hwnac/ö^imt^
óamae/ni chj /a/rt/ a//
opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga
www.diza.is