blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 19
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005
BÖRN OG UPPELDI I 27
Borgin með
augum unglinga
Ljósmyndasýning að Skúlagötu 21
Iþjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða að Skúlagötu 21 gefur
að líta líflegar og skemmtileg-
ar ljósmyndir af hverfinu. Eru þær
afrakstur verkefnis þar sem hópur
úr Vinnuskóla Reykjavíkur fékk
myndavélar og átti að mynda hverf-
ið sitt. Þeirra sýn á borgina er ein-
staklega skemmtileg og fróðleg.
Þetta verkefni var unnið að frum-
kvæði hinnar nýju þjónustumið-
stöðvar Miðborgar og Hlíða í sam-
starfi við Vinnuskólann í Reykjavík.
Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi við
Þjónustumiðstöð Miðborgar og
Hlíða, sagði að hugmyndin hefði ver-
ið að gera krakkana meðvitaðri um
umhverfi sitt. „Okkur langaði að fá
myndir af hverfinu á heimasíðu okk-
ar og gera krakkana meðvitaðri um
hverfið sitt. Svo var þetta líka leið
fyrir okkur að kynnast betur hverf-
inu í gegnum augu unglingsins.“
JJ ••••••••••••••••••••••
Svo var þetta líka leið
fyrír okkur að kynnast
betur hverfinu í gegn-
um augu unglingsins.
•••«•••••••••••••••••••••
Hvað er leyndardómsfullt
í hverfinu mínu?
Valinn var hópur krakka, sem núna
eru í tíunda bekk í Austurbæjar-
skóla í verkefnið. Krakkarnir fengu
stafræna myndavél og var lagt fyr-
ir að mynda hverfið sitt. Þau fengu
þó ekki alveg frjálsar hendur því
áður höfðu þau, i sameiningu við
starfsfólkþjónustumiðstöðvarinnar,
ákveðið nokkur þema. Sem dæmi
um þema var hvað er leyndardóms-
fullt, hvað er fallegt í hverfinu mínu
hvað er öruggt, gestir í hverfinu
mínu, það sem má breyta og furðu-
fuglar. Krakkarnir fengu þrjá daga
til að ljúka verkefninu.
Myndirnar ótrúlega flottar
Ljósmyndasýningin var opnuð
formlega 3. september af Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur, Borgarstjóra
Reykjavíkur og hægt er að skoða
myndirnar á Þjónustumiðstöð Mið-
borgar og Hlíða að Skúlagötu 21.
Edda segir að krakkarnir hafi verið
mjög hugmyndarík. „Krakkarnir
voru rosalega ánægð með þetta. Og
við vorum það líka. Það var einstak-
lega gaman að vinna með þeim enda
voru þau alveg til fyrirmyndar. Þau
voru svo frjó og skemmtileg. Við er-
um svo stolt af því að hafa átt sam-
skipti við þau og myndirnar eru
ótrúlega flottar."
Samstarf sem býður upp
á marga möguleika
Aðspurð að því hvort framhald
verði á þessu skemmtilega verkefni
segir Edda: „Mér persónulega fynd-
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
ist áhugavert að fara í meira sam-
starf við Vinnuskólann í Reykjavík.
Svona samstarf býður upp á marga
möguleika enda eiga þjónustumið-
stöðvarnar að hlúa að félagsauðnum
í nærsamfélaginu. Við erum opin
fyrir frekara samstarfi og ætlum að
skoða það frekar.“
svanhvit@vbl.is
Skemmtileg mynd í þemanu: Framtíðar-
sýn
e)
www.ht.is -