blaðið - 15.09.2005, Síða 2

blaðið - 15.09.2005, Síða 2
2 I INNLEWDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaðiö Evrópubúar þyngjast Tíu til þrjátíu af hverjum eitt hundrað börnum í Evrópu á aldrinum sjö til ellefu ára eru of þung og í aldurshópn- um fjórtán til sautján ára er hlutfallið 8 til 25%, mismunandi eftir löndum. Talað er um þetta sem ástand og er það skilgreint sem alvarlegt og vaxandi heilsufarsvandamál. Allt að fjórfalt fleiri Evrópumenn eru of þungir en voru fyrir aldarfjórðungi en þetta kom fram á haustfundi svæðisskrifstofu al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Sérfræðingar WHO leggja til að samtökin og aðildarþjóðirnar setji baráttuna gegn ofþyngd og offitu ofar- lega á forgangslista í heilbrigðismálum. Fimm til tuttugu prósent karla í Evrópu eru of þungir og fimm til þrjátíu pró- sent kvenna, mismunandi eftir löndum. Fjöldi Evrópubúa sem skilgreindir eru of þungir hefur u.þ.b. fjórfaldast frá árinu 1980 og að óbreyttu stefnir í að 150 milljónir þeirra verði of þungir árið 2010. Gera sérfræðingar ráð fyrir að þetta verði til þess að sjúkdómar sem tengjast ofþyngd muni valda auknum þrýstingi í heilbrigðisþjónustu landanna á næstu fimrh árum og því brýnt að bregðast við ogsnúaþróuninnivið. ■ Setjum okkur við- búnaðaráætlanir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, hvatti aðildarþjóðir alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til að setja sér viðbúnaðaráætl- anir til að geta mætt hugsanlegum af- leiðingum náttúruhamfara á haustfundi svæðisskrifstofu stofnunarinnar. Fjall- aði ráðherra m.a. um heilsufarslegar afleiðingar þeirra náttúruhamfara sem dunið hafa yfir ríkar þjóðir og fátækar síðustu misserin. Á fundinum var einnig fjallað um að áfengisneysla væri hvergi meiri en í Evrópu, tvisvar sinnum meiri en meðal- neysla í heiminum miðað við höfðatölu. Hafa fulltrúar Norðurlandanna á fund- inum hvatt aðildarþjóðir WHO til að fá menn til þess hvarvetna að viðurkenna að áfengi sé ekki eins og hver önnur neysluvara heldur vara sem getur haft alvarlegar heilsufarslegar og félagslegar afleiðingar. ■ Sjónvarpsáhorf barna hefur áhrif langt fram á fullorðinsár Samkvœmt nýrri rannsókn hefur sjónvarpsáhorf barna áhrifá lík- amsþyngd þeirra langt fram á fullorðinsár. Því meira sem barn horfir á sjónvarp, því meiri eru líkurnar á að einstaklingur eigi við offituvandamál að stríða síðar á lífsleiðinni. Mikið sjónvarpsáhorf barna getur ekki aðeins leitt til þess að þau fitni á barnsaldri heldur eykur það líkur á offitu síðar á lífsleiðinni. Ný rannsókn sýnir að 41% þeirra sem voru of þungir eða þjáðust af offitu við 26 ára aldur voru í hópi þeirra sem mest höfðu horft á sjón- varp á barnsaldri. Læknarnir sem að rannsókninni stóðu segja að sjónvarpsáhorf hafi meiri áhrif á líkamsþyngd síðar á lífsleiðinni en til að mynda hreyfing eða mataræði. Vísindamennirnir segja að ástand- ið hafi líklega vernsað til muna þar sem framboð á sjónvarpsefni fyrir börn hafi aukist gríðarlega á síðustu árum. Það er því niðurstaða þeirra, sem að rannsókninni stóðu, að sjón- varpsgláp sé stór sökudólgur í þeim faraldri sem offita er orðin í heimin- umídag. Trúverðuglegar niðurstöður Laufey Steingrímsdóttir hjá Lýð- heilsustöð segir að þessi rannsókn sé í takt við aðrar rannsóknir af svip- Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gaeðastaðli Innimáining Gljástig 3,7,20 y Verð frá kr. 298 pr.ltr. ^ Gæða málning á frábæru verði / Útimálning / Viðarvörn / Lakkmálning / Þakmálning / Gólfmálning Gluggamálning "ÍSLANDS MÁLNING Sætúni 4/ Sími 517 1500 uðum toga. „Aukin kyrrseta eykur líkur á því að börn fitni og því kem- ur ekki á óvart að sjónvarpsáhorf hafi þessi áhrif. Þetta eru að mínu mati mjög trúverðugar niðurstöður við fyrstu sýn. Við hjá Lýðheilsustöð höfum verið að líta á umhverfi og að- stæður barna og verið í samstarfi við sveitarfélög og skóla um rannsókn þar að lútandi. Þar spyrjum við með- al annars foreldra um hvort börnin hafi sjónvarpstæki inni hjá sér, hve mikið þau horfi á það og um leið hvort foreldrarnir telji börnin sín of þung. Það er alltaf að koma meira og meira í ljós hve mikil áhrif kyrrseta hefur á heilsuna og það er ekki nóg að hvetja eingöngu til íþrótta því öll hreyfing er betri en kyrrseta.“ íslendingar sæmilega settir Laufey segir að hér á íslandi virðist ákveðin vitundarvakning í þessum málum vera í gangi sem gefi tilefni til bjartsýni. „Ef við hins vegar lít- um til þess hversu mörg börn eru of þung setur að okkur ugg. 1 saman- burði við aðrar þjóðir erum við verr sett en hinar Norðurlandaþjóðirnar en betur sett en þjóðir í Suður- og Mið-Evrópu. Þessi þróun hefur ver- ið að gerast mjög hratt og menn hafa bara ekki áttað sig almennilega á henni. En við höfum alla möguleika hér, með okkar heilbrigðiskerfi, að snúa þessari þróun við.“ Rannsóknin sem um er rætt var unn- in í háskóla á Nýja Sjálandi og birt í tímaritinu „The International Journ- al of Obesity“, og náði rannsóknin til barna sem fædd eru á árunum 1972-73- 1000 börn hófu þátttöku í rannsókninni og var sjónvarpsáhorf þeirra kannað með jöfnu millibili frá 5 ára aldri til 15 ára. ■ Aðstandandi í Skerjafjarðarslysi Kærir formann nefndarinnar Friðrik Þór Guðmundsson, faðir eins fórnarlambs Skerjafjarðarflug- slyssins, hyggst kæra Sigurð Líndal, formann sérstakrar Rannsóknar- nefndar flugslysa, fyrir meiðyrði. Þegar skýrsla nefndarinnar lá fyrir lak hún til fjölmiðla áður en hald- inn var blaðamannafundur vegna hennar. Sigurður Líndal sendi því skýrsluna til fjölmiðla og blés af blaðamannafundinn með þeim forsendum að Friðrik Þór hefði lekið upplýsingum til fréttastofu Stöðvar 2. Friðrikneitaði ásökunum og óskaði eftir því opinberlega að Sigurður bæri orð sín til baka. „Sig- urður er búinn að hafa mánuð til þess að leiðrétta þessa lygi um trún- aðarbrest. Hann hefur ekki gert það svo ég er að undirbúa meiðyrðamál“, segir Friðrik Þór. ® New York Times: Skyrið og lamb- ið í verðskuld- aðri sókn vestanhafs Bandaríska stórblaðið New York Times gerir íslenskri matarmenningu hátt undir höfði í ýtralegri umfjöllun á sælkerasíðum sínum í gær. Þar er fjallað um aukinn inn- flutning íslenskra matvæla til Bandaríkjanna, tækifæri þar í landi og hindranir. 1 greininni segir áð þegar Islend- ingar hafi farið að velta fyrir sér matvælaútflutningi hafi þeir orðið að grisja það, sem á borðum væri. Ka?stur hákarl, hvalket og reyktur lundi væri t.d. eklti líklegt til árangurs. Á hinn bóginn væri gnægð annarar vöru, sem ætti að geta gengið í sælkera vestanhafs. Til þess að koma henni á framfæri þyrfti þó meira en gæðin ein og segir blaðið þá nálgun felast í hinu lítillega stirðbusalega slagorði: „Sjálfbært Island frá 874.“ Það kunni hins vegar að reynast erfitt fýrir land á stærð við Kentucky með ámóta mannfjölda og Toledo í Ohio. Helsti styrkurinn er sagður felast i því að verslanakeðjan Whole Foods, sem sérhæfir sig í náttúrulegum matvælum, hafi haft íslenskt lambaket á boðstól- um um sjö ára skeið og hyggist bjóða viðskiptavinum sínum fleira ætt frá íslandi. „Það sem sannfærði okkur voru gæði vörunnar", er haft eítir Neal Weinberg, sem er innkaupa- stjóri sérvöru hjá Whole Foods. í greininni er vikið að því hversu frábrugðið íslenskt lambaket sé öðru, hreinleiki þess undirstrikaður og lífs- hlaup íslensks sauðíjár dásam- að, þar sem lömbin skoppi um græna haga og grösugar hlíðar uns þeim sé smalað af íjalli af fjölskyldufólki á hestbaki. Ekki er hins vegar farið út í hvað bíður þeirra eftir réttir. Hins vegar er í blaðinu nefnt að markaðsáætlun íslendinga sé ekki skotheld. Lambið þurfi að fara um langan veg til Bandaríkjanna, sem sumir umhverfissinnar kunni að finna að, hvalveiðarnar fari í taugarnar á mörgum og síðan geti reynst erfitt að kenna Könum að segja „skyr.“ I heildina er greinin þó afar jákvæð í garð islenskra mat- væla og mun vafalaust reynast þeim mikilvæg kynning. Helðskfrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað £ Alskýjað Rignlng, litllsháttar /V/ Rigning 7 5 Súld Snjðkoma 5 * SJJ Slydda Snjóél Skúr Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló Paris Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 17 27 17 16 20 15 11 16 18 29 26 19 24 22 10 21 11 07 22 25 15 12 ^7° CT •jo / / / 8 • O o* 9° ^ o* Q+ 8C Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands // / /// 8°/// 10°/// /// Á morgun 10° // / /// / // 10°

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.