blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 10
10 I 3LENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaAÍÖ Abbas hvetur til afvopnunar vopnasveita Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínu- manna, krefst þess að vopnasveitir verði leystar upp eftir þingkosning- ar í janúar. Er þetta til marks um viðleitni hans til að koma á lögum og reglu á Gasasvæðinu i kjölfar brottfarar ísraels. Hamassamtökin, aðalkeppinautur Abbas, árétta aftur á móti að þau hyggist ekki afvopn- ast og palestínskir embættismenn segjast ennfremur ekki vilja hætta á borgarastríð þrátt fyrir stöðugan alþjóðlegan þrýsting um að takast á við vopnasveitirnar. Áframhald- andi pattstaða myndi hamla endur- uppbyggingu Gasasvæðisins og gera erfiðara um vik að taka aftur upp friðarviðræður. Öryggissveitir Abbas þykja hafa sýnt linkind síðan ísraelsmenn hörf- uðu af Gasaströnd á mánudag. Aft- ur á móti héldu hin herskáu Hamas- samtök eina stærstu fjöldasamkomu sem þau hafa haldið á aðaltorgi Gasa- borgar seint á þriðjudag en þá tóku Palestínumenn við stjórn svæðisins. Mannskæð- ar árásir í Bagdad Að minnsta kosti 150 fórust og yfir 500 særðust í árásahrinu í hverfi sjíta í norðurhluta Bagdad í gær. Þetta eru einar mannskæðustu árásir sem gerðar hafa verið í höfuð- borginni. Al-Kaída hryðjuverkasam- tökin lýstu yfir ábyrgð á árásunum að sögn sjónvarpsstöðvarinnar Al- Jazeera. Flestir fórust þegar maður ók litlum sendibíl inn í hóp fólks og sprengdi sig síðan í loft upp. Iraskir stjórnmálamenn fordæmdu hermd- arverkin þegar í stað og Husein al- Shahristani, varaforseti íraska þings- ins, sagði drápin vera villimannsleg og hryllileg. Þá voru 17 manns drepn- hasanew destinatio FYLGSTU IVIEÐ DIRK PITT I BESTU ÆVINTYRAHASARMYND ARSINS MEÐ MATTHEW McCAUGHNAHEY, PENELOPE CRUZ OG STEVE ZAHN NAÐU ÞER I EINTAK I NÆSTU VERSLUN, STRAX I DAG! tl' ? ... 1 PjÉÉyi Syrgjandi maður þrýstir að sér blóðugum fötum ættingja síns sem fórst í sprengju- árásunum i Bagdad f gær. ir í þorpinu Taji um 16 kílómetra norður af Bagdad. Vígamenn fóru hús úr húsi, söfnuðu fólki saman og skutu það eftir að hafa bundið fyrir augu þess og handjárnað það. Bréf frá hermanni sem féll f seinni heims- styrjöldinni skilaði sér loks í réttar hendur á dögunum. Skilar sér eftir 60 ár Bréf sem hermaður, sem lést í seinni heimsstyrjöldinni, sendi fyrir meira en 60 árum skilaði sér loks á áfanga- stað á dögunum. Maður sem keypti kassa fullan af gömlum dagblöðum á bílskúrssölu í Kansas fann þar m.a. bréf sem póstlagt hafði verið í mars- mánuði 1944. Maðurinn auglýsti eft- ir því í dagblaði hvort einhver kann- aðist við fjölskyldu viðtakanda og komst þannig í samband við systur hermannsins. Þetta var síðasta bréf hermannsins unga en hann féll rúm- um tveimur mánuðum eftir að það var póstlagt. I bréfinu þakkar her- maðurinn meðal annars foreldrum sínum fyrir armbandsúr sem þeir sendu honum í afmælisgjöf ásamt ýmsu góðgæti. Systirin segir einu vonbrigði sín með fundinn vera þau að foreldrar sínir hafi aldrei fengið tækifæri til að sjá bréfið. ■ Mary krónprinsessa Danmerkur Krónprin- sessan á sjúkrahús Mary, krónprinsessa Danmerkur, var Iögð inn á fæðingardeild Ríkis- sjúkrahússins á þriðjudag með sam- drætti í móðurlífi. Læknar segja ástand hennar vera stöðugt. Öllum opinberum athöfnum prinsessunn- ar hefur verið aflýst fram yfir fæð- ingu en hún á von á sér eftir sex vikur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.