blaðið

Ulloq

blaðið - 15.09.2005, Qupperneq 14

blaðið - 15.09.2005, Qupperneq 14
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Ár og dagur ehf. Sigurður G. Guðjónsson. Karl Garðarsson. MARKAÐSVÆÐING ÆSKUNNAR Skólaárið hófst fyrir skömmu og markaði endalok leikja og rólegheita fyrir stóran hóp barna og unglinga sem notið höfðu sumarsins og þess frítíma sem skólafríið gaf þeim. Á hverjum morgni má nú sjá fjöldann allan af börnum þramma í átt að skólanum sínum með tösku á bakinu eða sitjandi í bíl mömmu eða pabba á leið til að sækja fróðleik hjá kennurum og öðrum starfsmönnum skólanna. Þetta er tími breytinga hjá ungdómnum sem margir taka fagnandi, á meðan aðrir hefðu gjarnan viljað að sumarið entist aðeins lengur. Á sama tíma og foreldrar um allt land voru að undirbúa upphaf skólaársins valt inn um bréfalúgur landans pappír frá fjölmörgum verslunum þar sem boðið var upp á þjónustu og varning sem var hreinlega bráðnauðsynlegur hverju barni á þessum tímamótum. Verslanir kepptust við að ná foreldrum og börnum inn í húsnæði sitt enda ljóst að tugum þúsunda króna þarf að eyða til að barnið geti hafið skólagöngu sína í upphafi hvers árs. Kaupa þarf bækur, penna, liti, pennaveski og föt - listinn er óendanlegur. Það hlýtur hins vegar að vekja spurningar að mörg fyrirtæki senda á haustin skólabörnum ýmiss konar varning án þess að hafa í fljótu bragði mikinn hag af slíkri gjafmildi. Nestisbox frá Osta- og smjörsölunni, bakpoki frá íslandsbanka og blýantur frá SPRON eru aðeins fáein dæmi um dót sem hefur komið óumbeðið inn um lúgur á heimilum skólabarna að undanförnu. Osta- og smjörsalan vill væntanlega með þessu minna börn og foreldra á að nota ost á ristaða brauðið á morgnana sem og samlokurnar sem teknar eru með í skólann. Hagur bankanna er hins vegar nokkuð óljósari nema þá helst að reyna að ná athygli væntanlegra viðskiptavina fyrr en áður þótti boðlegt. Markaðssetning er nefnilega löngu hætt að miða að foreldrum í von um að þeir muni kaupa ákveðna vöru handa barninu sínu eða beina viðskiptum þeirra í ákveðna átt. Það er mun heppilegra að ná athygli barnsins og láta það vinna foreldrana á sitt band. Þessi tegund markaðssetningar hefur rutt sér til rúms að undanförnu og má rekja upphaf hennar til Bandaríkjanna. Markaðsfræðingar eru farnir að rannsaka atferli ungmenna sérstaklega til að komast að því hvernig best er að ná athygli þeirra. Lítið sem ekkert hefur verið gert til að stöðva þessa þróun sem hlýtur að teljast gagnrýni- verð og jafnvel hættuleg. Það er ekki í lagi að beita hvaða aðferð sem er til að selja vörurnar sínar. Þetta þurfa markaðsfræðingar og fyrirtæki að átta sig á - og það fyrr en síðar. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aöalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaöió Pað þarf að jafna kjörin í landinu Ögmundur Jónasson í fjölmiðlum er nú fjallað um verðbólguna sem komin er framúr verðbólgumark- miðum Seðlabank- ans en þau lágu til grundvallar kjarasamningum ................ bæði á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera. Fulltrúar Samtaka atvinnurekenda segja að vel komi til greina af þeirra hálfu að segja upp kjarasamning- um og í Fréttablaðinu er flennistór fyrirsögn yfir viðtölum við fulltrúa þeirra og fjármálasérfræðinga: Kaupmátturinn í landinu er of hár. Það má til sanns vegar færa að sé því haldið fram að ef krónan sé of hátt skráð miðað við þarfir íslenskra framleiðsluatvinnuvega þá sé jafn- framt verið að segja að kaupmáttur þjóðarinnar sem heildar sé of mik- ill. Hér þarf þó að gera tvo mjög mikil- væga fyrirvara. ffyrsta lagi eru mikil áhöld um að hátt gengi krónunnar hafi skilað sér í vöruverði á innfluttum varningi og þar með í auknum kaupmætti almenn- ings. Enginn efast um að kaupmáttur stórhöndlara í viðskiptum hefur aukist. Ef krónan er hátt skráð fá innflytjend- ur aðkeypta vöru á lágu verði. Eg hef mjög miklar efasemdir um að þetta hafi skilað sér í verðlagningu þegar i búðarhillurnar er komið, nema að litlu leyti. Á þessu þyrfti að gera markvissa og nákvæma könnun og fýlgja því síð- an eftir að kaupmenn láti almenning njóta sanngjarnra kjara. f öðru lagi þarf að gera alvarlegan fýr- irvara við þá alhæfingu að lcaupmáttur allra sé of mikill. Atvinnurekendur á almennum og opinberum vinnumark- aði hafa neitað að bæta kjör þeirra sem eru á almennum kauptöxtum svo ásætt- anlegt sé. Toppunum er hins vegar hygl- að sem aldrei fyrr. Kaupmáttur margra þeirra er of mikill. Hjá öðrum er hann of lítill. Þegar Samtök atvinnulffsins segja að til álita komi að segja upp kjara- samningum, þá eru þau í rauninni að segja að rýra eigi kjörin hjá síðarnefnda 99........................ Þegar Samtök atvinnu- lífsins segja að til álita komi að segja upp kjarasamningum, þá eru þau í rauninni að segja að rýra eigi kjörin hjá síðarnefnda hópnum, almennu launafólki, sem býr við umsamin lágmarkskjör. hópnum, almennu launafólki, sem býr við umsamin lágmarkskjör. Uppsögn samninga miðar væntanlega að því að fallið verði ffá fyrirhuguðum almenn- um taxtahækkunum. Þetta er ffáleit hugsun. Nær væri að samningum væri sagt upp til þess að hækka kauptaxt- ana til að halda í við verðbólguna og gott betur. Slíkar raddir hafa heyrst ff á launafólki og eru þær skiljanlegar og eðlilegar. Eflaust kæmu margir til með að halda því ffam að hækkun almennra kauptaxta myndi leiða til hærri verð- bólgu. Nei, segi ég. Ekki ef gerð yrði gangskör að því að færa niður verðlag á innfluttum varningi í samræmi við hagstætt innflutningsverð. Þetta myndi draga úr verðbólgunni. Þá þarf ekki sfður að draga úr kaupmætti og þar með gegndarlausri neyslu hátekju- fólks og fjármálabraskara. Ég gæti hæg- lega skrifað upp á að dregið yrði hressi- lega saman hjá þeim sem skammta sér eða er skammtað, milljónir, jafnvel milljónatugir, á mánuði hverjum. Það er fyrir löngu komið að þessum aðil- um að sýna samfélagslega ábyrgð og færa kjör sín til samræmis við það sem tíðkast hjá launaþjóðinni almennt. Það þarf, með öðrum orðum að jafha kjör- in í þjóðfélaginu. Á sama tíma og kaup- máttur láglauna- og millitekjufólks er of lítill, er kaupmáttur þessa fólks of mikill. Við skulum ekki gleyma því að það er einkum hátekjufólkið sem ber sök á þeim hluta viðsíciptahallans sem rekja má til neyslu. Þetta er fólkið sem lætur flytja til sín erlendis ffá rándýr- an munaðarvarning og lifir bílífi sem aldrei fyrr, kaupir bíla sem kosta tugi milljóna og annað eftir því. Samtök at- vinnulífsins ættu að svipast um eftir þessu fólki þegar til umræðu er að rýra kjörin í landinu. Mér segir svo hugur um að þar á bæ þurfi ekki að leita langt til að hafa upp á fólki sem vel má herða beltisólina. Ögmundur Jónasson www.ogmundur.is Sovéskar heildarlausnir i stað menntasóknar m Samanborið við það vægi sem önn- ur Norðurlönd setja á menntamál, í víðasta skilningi þess orðs, er sinnu- leysi íslenskra stjórnvalda í garð málaflokksins með nokkrum ólíkindum. í pól- itískri umræðu, bæði á vettvangi Björgvin G. stjórnmála og fjol- ........... miðla, eru málefni menntakerfisins mjög áberandi á hinum Norðurlöndunum. Þvert á það sem gerist hérlendis. Staða og geta skólakerfisins á öllum sviðum er undir stöðugu kastljósi og megin þemað f inntaki stefnumiða vinstri-og miðflokkanna sérstak- lega. Þetta á við um allt nám. Frá leikskóla og til öflugrar fullorðins- fræðslu og endurmenntunar hvers- konar og birtist best hjá Danmörku. Þjóð án verulegra náttúruauðlinda er í fremstu röð í heiminum vegna fjárfestinga í mannafla landsins. Þvert á það sem tíðkast hjá ríkis- stjórnarflokkunum hér þar sem allt kapp er lagt á sovéskar heildarlausn- ir í atvinnumálum í stað markvissra fjárfestinga í menntakerfinu. fslenska sinnuleysið í skólamálum birtist næstum þvi óþægilega skýrt í þeim umfangsmiklu fjöldatakmörk- unum sem eiga sér stað bæði á með- al margra framhaldsskóla og opin- beru háskólanna. Vegna fjársveltis af hálfu stjórnvalda. Þetta er neyðar- úrræði skólanna sem þeir eru þving- aðir út í af menntamálaráðherra. Annað árið í röð er t.d. mörghundr- uð umsækjendum vísað frá námi í bæði ff amhaldsskóla landsins og opin- beru háskólana. Það er hrein nýjung í íslenskri skólastefhu enda aldrei verið viðurkennt af hálfu menntamálayfir- valda að þetta eigi að viðgangast eða eigiréttásér. Er það ekki lengur opinber mennta- stefna í landinu að allir sem um sækja fái vist í framhaldsskóla? Og að háskól- ar hins opinbera mennti þá sem þang- að sækja og hafa tilskilin próf upp á vasann? Fjársveltið i menntakerfinu hefur t.d. þær afleiðingar að hundruðum nemenda, sérstaklega þeim sem hugð- ust hefja nám að nýju eftir hlé, er vísað frá og fá ekki skólavist. Að halda hundr- uðum f slendinga frá námi með þessum hætti er óþolandi staða og á sér enga réttlætingu. Einstaklingurinn verður af dýrmætri reynslu og menntun og samfélagið af miklum verðmætum. Hin hliðin á menntastefnu stjórn- valda eru fjöldatakmarkanir inn í Kennaraháskólann, Háskóla f slands og Háskólann á Akureyri. Inn í þá skóla er nú fjöldatakmarkað með einum eða öðrum hætti í stað þess að auka til þeirra fjárveitingar þannig að þeir geti tekið á móti fleiri nemendum. Fjöldatakmarkanirnar koma í veg fyrir að skólarnir eflist og geti sinnt Klutverki sfnu með þeim hætti sem þörf er á. Ef skólarnir fara að gefa eft- ir vegna fjársveltis þá tapaþeir í sam- keppninni við erlendu skólana. Til að taka dæmi þá er staðan í 99.................... Að halda hundruðum íslendinga frá námi með þessum hætti er óþolandi staða og á sér enga réttlætingu. Einstaklingurinn verður afdýrmætri reynslu og menntun og samfélagið afmiklum verðmætum. Háskóla íslands sú að það eru yfir 500 virkir nemendur við skólann umfram kennslusamning sem ríkið hefur ekki greitt fyrir. Þá hafa fjár- veitingar til rannsókna við HÍ farið lækkandi á liðnum árum og fram- lag ríkisins á hvern nemanda er nú lægra en árið 1999! Fjárfestingar í menntun skilar sér margfalt til baka inn í samfélagið. f erindi sem Þorvaldur Gylfason pró- fessor hélt á Menntadögum iðnaðar- ins fyrr á árinu kom það skýrt fram. Hvert ár I skóla hefur f för með sér 6% tekjuauka að meðaltali fyrir ein- staklinginn og þar með aukna lands- framleiðslu um 4% fyrir hvert ár. Veruleikinn er hinsvegar sá að ís- lensk stjórnvöld veita einungis 0,8% af landsframleiðslu til háskólastigs- ins. Þrátt fyrir að íslendingar séu hlutfallslega mun fleiri á skólaaldri en gerist meðal annarra Norður- Iandaþjóða verja þær hins vegar allt að helmingi hærra hlutfalli til sinna háskóla eða um 1,2-1,7%. Ef íslensk stjórnvöld verðu svip- uðu hlutfalli og hinar Norðurlanda- þjóðirnar fengi háskólastigið um 4-8 milljörðum króna meira á ári en það gerir nú. Þetta er veruleikinn sem við búum við eftir áratuga valdasetu Sjálfstæðisflokksins í menntamála- ráðuneytinu. Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.