blaðið - 15.09.2005, Qupperneq 15
blaðið FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005
ÁLIT I 15
Baráttan um stafrænt dreifikerfi sjónvarps
A
Þóröur H.
Þórarinsson.
mánudaginn kom athygli-
verð niðurstaða frá Sam-
keppnis-
stofnun varðandi
dreifingu á enska
boltanum en sam-
kvæmt henni er
íslenska sjónvarps-
félaginu skylt
að afhenda sjón-
varpsmerkið til
dreifingar á dreifi-..............
kerfum annarra
aðila. Samkvæmt
þessu hefur íslenska sjónvarpsfé-
laginu því verið óheimilt að skylda
þá sem hyggjast kaupa enska bolt-
ann að vera í ADSL viðskiptum
við Símann. Er þessi niðurstaða í
samræmi við óskir neytenda enda
óþolandi að vera skyldaður til að
kaupa ADSL af Símanum til að geta
horft á enska boltann í sjónvarpinu.
Samkvæmt frétt á www.mbl.is
á mánudag virðist Samkeppnis-
stofnun (þá Samkeppnisráð) í
mars á þessu ári hafa úrskurðað
að Islenska sjónvarpsfélaginu væri
skylt að afhenda sjónvarpsmerki
Enska boltans til dreifingar á öðr-
um dreifikerfum þó mættu þeir
setja það skilyrði að myndlykill frá
þeim yrði að vera notaður til í. júlí
2007. Var þetta gert til að koma í veg
fyrir frekari yfirráð Símans á fjar-
skiptamarkaði með ADSL tengingar.
Það virðist því hafa legið fyrir allan
tímann að Islenska sjónvarpsfélag-
ið mætti ekki skylda þá sem vildu
kaupa enska boltann til að kaupa
ADSL þjónustu af Símanum. Samt
sem áður setti fyrirtækið það sem
skilyrði þegar það hóf að selja að-
gang að sjónvarpi um ADSL. Það má
því telja nokkuð ljóst að tilgangur
Símans með kaupum á íslenska sjón-
varpsfélaginu hafi ekki eingöngu ver-
ið til að tryggja sér áhugavert efni til
að dreifa um stafrænt sjónvarpskerfi
heldur líka að ná til sín enn stærri
viðskiptavinahópi í ADSL þjónustu.
Viðbrögð Magnúsar Ragnarssonar,
sjónvarpsstjóra Islenska sjónvarps-
félagsins, staðfesta þetta enn frekar.
Hann segir þessa niðurstöðu Sam-
keppnisstofnunar á mánudag vera
dauðadóm yfir áskriftarsjónvarpi
sínu. Sé það rétt má telja ljóst að
íslenska sjónvarpsfélagið hafi verð-
lagt efnið undir kostnaðarverði og
hugmyndin hafi verið að hagnast á
annan hátt, ef til vill með stóraukn-
um tekjum í ADSL þjónustu. Það
skal nefnilega haft í huga að hver
viðskiptavinur sem kaupir Enska
boltann mánaðarlega fyrir 1.990
kr. þarf auk þess að greiða 2.500
kr. í línugjald ADSL tengingar auk
netáskriftarinnar sjálfrar sem kost-
ar frá um 1.200-1.300 kr. og upp úr.
Það er ljóst að Síminn hefur náð til
sín í ADSL viðskipti þó nokkrum
fjölda af viðskiptavinum samkeppn-
isaðilanna og þá mest frá OgVodaf-
one. Hvað þeir eru margir er óvíst
en eflaust eru þeir í versta falli nokk-
ur hundruð og mun líklegra að þeir
séu nokkur þúsund. Það er því um
mikla fjármuni að ræða eða líklega,
fyrir utan áskriftina að sjónvarpsefn-
inu, margir tugir, jafnvel hundruðir
milljóna á ári. Það er því skiljanlegt
að samkeppnisaðilar Símans séu
hundfúlir og sé það rétt að Síminn
hafi allan tímann hagað viðskipt-
um andstætt úrskurði Samkeppnis-
stofnunar þá gæti hann hafa skapað
sér skaðabótaskyldu gagnvart sam-
keppnisaðilum á ADSL markaði.
Málið er þó ekki svona einfalt því
að sér til varnar þá er Islenska sjón-
varpsfélagið í erfiðri stöðu með
að byggja upp áskriftarsjónvarp.
Stærsti samkeppnisaðili Símans,
OgVodafone, er nefnilega hluti af
365 ljósvakamiðlum sem er með yf-
irburðastöðu á markaði fyrir áskrift-
arsjónvarp á Islandi. Með breytingu
yfir í stafrænar útsendingar á sjón-
varpi skapast miklir möguleikar
sem voru ekki áður fyrir hendi s.s.
stafrænar myndbandsleigur og versl-
anir í sjónvarpi svo eitthvað sé nefnt.
Markaðurinn fyrir dreifingu sjón-
varpsefnis er því að breytast mjög
mikið og líklegt að mikil verðmæti
liggi í því í framtíðinni að hafa gott
og tæknilega fullkomið dreifikerfi
sem getur nýtt alla helstu kosti staf-
rænna sjónvarpsútsendinga. Það er
því vel skiljanlegt að fyrirtæki sem
99.....................
Þetta erþví miklu frekar
barátta um dreifikerfi
stafræns sjónvarps en
samkeppni um sölu á
ákveðnu sjónvarpsefni.
ætlar sér að komast inn á þann mark-
að gefi ekki helsta samkeppnisaðila
sínum, og þeim sem er langstærstur
á markaðinum, aðgang að gullgæs-
inni sinni. Síminn vildi augljóslega
koma upp góðu dreifikerfi fyrir
stafrænt sjónvarp á sem skemmst-
um tíma og því var tilvalið að nota
vinsældir enska boltans til þess.
Þetta er því miklu frekar barátta
um dreifikerfi stafræns sjónvarps
en samkeppni um sölu á ákveðnu
sjónvarpsefni. Þessi úrskurður Sam-
keppnisstofnunar hlýtur að teljast
eðlilegur því að Símanum er leyft
að einskorða dreifingu enska bolt-
ans við sína myndlykla til 1. júlí
2007. Eftir það er Símanum skylt
að afhenda sjónvarpsmerki Enska
boltans inn á hvaða myndlykla sem
er. Það væri sömuleiðis eðlilegt að
þetta skilyrði væri gagnkvæmt og
að 365 ljósvakamiðlum væri skylt að
afhenda öll sín sjónvarpsmerki inn
á myndlykla Símans. Þannig yrði
þetta samkeppni milli þessara aðila
um það hver byði besta dreifikerfið
og neytendur gætu valið efnið óháð
dreifikerfi (svo lengi sem tækni
stæði ekki í vegi fyrir þvi) sama
hvort það væri frá 365, Símanum
eða þriðja aðila s.s. RÚV.
Þórður H. Þórarinsson.verkfrœðingur
www.deiglan.com
P
Þegar kemur að því að velja tölvubúnað...
...skipta gæði og þjónusta höfuðmóli!
SKOLADAGAR I HP BU
hp sempron nx6125
*spran
2ja óra
neytendaábyrgð
3.100 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
+
99.900 kr.
512 MB
15"SXGA
1024 X 768
- ATl X300 skjákorl
60GB 4200rpm
lithium rafhlaða.
Ending alft að 3.45
klsf. (8.45 með ferð-
arafhlöðunni)
DVD+/-RW- skrifarí
'Ekhí
WTndS»«p
- sorvico pack 2
hp turion nx6125
*spron
2ja ára
neytendaábyrgð
4.390 kr. á mánuði
(meðaltali)
♦
+n
129.900 kr.
MMMH
AMDn
TurionM
15"SXGA
1400X1050
ATIX300 skjákort
80GB 5400rpm
Lithium rafhlaða.
Ending allt að 3.45
klst. (8.45 með ferð-
atiafhlöðunnil
^sg
Windowsxp
- serviœ pack 2
hp nc6120
hp nx8220
3ja ára alþjóðleg
ábyrgð á vinnu
og varahlutum
*spron
4.490 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
159.900 kr.
f IIMÖ (■bíímis® f ;d\?})LAd;0
512 MB 15"SXGA 1400X1050 V y , 60GB 5400rpm Lithium rafhlaða. Ending allt að 4.5 klst. (8.45 með ferð- L arafhlöðunni)
f ■lirjjÚr. ) í | l'MMÍifcWrllMl
DVD+/-RW- skrifari r a m í ^ Þráðlaust netkort ss DVD+/-RW
*spron
4.990 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
179.900 kr.
15,4"SXGA
1680X1050
- ATl X600 skjákort
60GB 5400rpm J
Lithium rafhlaða.
Ending allt að 3.45
klst. (8.45 með ferð-
arafhlöðunni)
Opið:
mán-fös frá 10-
lau frá 12-
r *spixm
BUÐIN * M.v. 48 mánuði og vaxtatöflu Spron
i n v e n t
ÞAR SEM FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN
HP er eini framleiðandinn í heiminum sem bíður upp á heildarlínu í tölvubúnaði. HP fartölvumar
eru margverðlaunaðar og hp prentarar mest seldu prentarar 1' heimi.
ehííhi
hp BÚÐIN ehf - business partner á íslandi - Brautarholti 10 - 14 - s: 568 5400 - www.budin.is
Tilboöin otlda i áaúst 2005 eöa á meöa btroöir endast Birt meö fyrirvara um myndbrengl og prenNílur. - Verö og mánaöargreiöslur eru án ábyrgöar