blaðið - 15.09.2005, Side 16
16 I HEILSA
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
msmnmm
TORFÆRIITRIIKICIIR SEM
SAMEINAR STRYK OG KRAFT
HPI Savage 3,5 fjarstýrður bensínbíll,2,3 hestöfl,
verð 43.900,-
Meiri lús en oft áður
Nú er lúsin farin að stinga sér nið-
ur eina ferðina enn í skólum lands-
manna. Lúsin fer ekki í manngrein-
ingarálit, það geta allir smitast en
smit er algengast hjá 3-11 ára börn-
um.
Á hverju ári stingur lúsin sér nið-
ur í leikskólum og grunnskólum
landsins. Það er afar mikilvægt að
skólayfirvöld séu látin vita strax ef
lús finnst i skólabarni þvi mikilvægt
er að stoppa faraldurinn strax. Til
þess að það sé hægt þarf að finna
og lækna alla sem hafa smitast í fjöl-
skyldunni, í skólanum og á vinnu-
staðnum.
Höfuðlúsin smitast aðallega við
það að höfuð snertast, skipst er á
höfuðfötum, hárburstum, koddum
eða öðru slíku. Lúsin verður þó
fljótt máttvana utan líkamans og er
talið að hún deyi á um það bil 15-20
klukkustundum.
Útlit
Höfuðlúsin er lítið en þó sjáanlegt
skordýr, 2-4 mm að stærð (svipað
sesamfræi), grá eða ljósbrún að lit.
Það getur verið erfitt að koma auga
á lúsina þar sem hún er oft samlit
hörundinu, snör í snúningum og
forðast ljós. Þegar lýsnar eru full-
þroska um 8-10 daga gamlar verpa
þær eggjum, allt að tíu á dag. Eggin
kallast nit en nitin sést oft betur en
lúsin sjálf og er um ímm að stærð,
finnst helst í hnakka, hnakkagróf
eða bak við eyru. Nitin er eins og
silfraður hnúður á hárinu niðri við
hársvörðinn.
Einkenni
Lúsin getur verið einkennalítil en
aðeins einn af hverjum þremur sem
smitast fær kláða. Þegar lúsin sýg-
ur, spýtir hún deyfiefni með munn-
vatninu sem gerir það að verkum að
einungis einn af hverjum þremur
sem smitast fá kláða, en það eru
þeir sem hafa ofnæmi fyrir munn-
vatninu. Finnist lifandi lús í hárinu
er það klárt merki um smit. Það er
mælt með þvi að kemba hárið með
lúsakambi til að kanna hvort um
smit sé að ræða. Gott er að kemba yf-
ir hvítu blaði eða spegli til að greina
það strax ef lýs falla niður. Mörgum
finnst betra að kemba blautt hár
með næringu, sérstaklega ef hárið
er sítt. Nauðsynlegt er að fara vand-
lega í gegnum allt hárið.
Meðferð
Meðferð er ekki alltaf einföld, sér-
staklega ef ekki er nægjanlega vand-
að til hennar í upphafi og oft þarf að
meðhöndla aðra í fjölskyldunni eða
nánasta umhverfi þess smitaða.
Það er hægt að fá lúsameðal án
lyfseðils í næstu lyfjaverslun, þessi
efni eru borin í hárið í þeim tilgangi
að drepa lúsina og nitin. Afar mik-
ilvægt er að fara nákvæmlega eftir
leiðbeiningum sem fylgja. Samhliða
því þarf jafnframt að:
•Skoða aðra í nánasta umhverfi
•Meðhöndla þá sem eru með lús
samtímis
•Kemba skal daginn eftir að með-
ferð var beitt til að athuga hvort
meðferðin hafi heppnast og síð-
an er nauðsynlegt að kemba ann-
an hvern dag í 10 daga þar á eftir.
•Endurtaka skal meðferðina sjö
dögum eftir upphaflegu meðferð-
ina
•Reynst hefur ágætlega að frysta
höfuðföt, kodda, tuskudýr og
annað þvíumlíkt í að minnsta
kosti 4 klst við —20°C.
Hér á landi eru á markaði nokkrar
tegundir efna til meðhöndlunar á
lúsasmiti. Þessi efni eru ólík og er
nauðsynlegt að kynna sér kosti og
galla þeirra þegar ákveðið er hvaða
efni skuli valið. Starfsfólk apótek-
anna er vel að sér um eiginleika efn-
anna og hefur jafnvel þekkingu á því
hvernig þau hafa reynst. Leitið því
endilega ráða í næsta apóteki ef upp
kemur lúsasmit á heimilinu, fylgið
nákvæmlega leiðbeiningum þess
efnis sem valið er að meðhöndla
með.
Jórunn Frímannsdóttir, hjúkrunar-
frœðingur ritstjóri www.doktor.is
Þú borðar þær með
uppáhaldsálegginu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvítlauksolíu,
stundum eins og pizzur
...eða eins og Strandamenn,
glænýjar með íslensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í
næstu matvöruverslun.
Hollara brauð finnst varla.
Fróðleiksmolar
•Kembing er mikilvæg fýrir
alla fullorðna sem og börn.
• Best er að kemba hárið
þegar það er blautt og með
hárnæringu í. Kemba skal vel
yfir allt hárið í 15-20 mínútur.
•Ef lús finnst er betra að nota
alkóhóllausn en sjampó. Best
er að setja í hárið 50 ml af
alkóhóllausn sem fæst 1 apó-
tekum lyfseðlalaust í þurrt
hár og láta lausnina standa í
hárinu í 8-12 klukkustundir
og endurtaka eftir viku.
•Hægt er að leita upplýsinga
á heimasíðu Landlæknis
www.landlaeknir.is
•Lúsin er gamalt fyribæri en
hefur sérhæff sig í hverju
spendýri fyrir sig og hefur
fundist í fornleifauppgröft-
um og til dæmis hafa fundist
lúsakambafar í Reykholti.
•Lúsin hefur mikla aðlög-
unarhæfni og getur meðal
annars lagað sig að hárlit.
• Ekki er vitað til þess
að höfuðlúsin beri
nokkra sjúkdóma.
Lús, lús, lús
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
t-.
„Það
t
liggur
**• enn ákveðin
skömm yfir
því að fá lús
og oft tilkynnir
fólk ekki um lús
sem leiðir til þess að ekki
er að marka tölulegar upplýsingar.
En það er mín tilfinning að það sé
meira um hana en áður”, segir Ása
Atladóttir, hjúkrunarfræðingur á
sóttvarnarsviði Landlæknisemb-
ættisins. Tilkynningarskylda
gildir í lúsartilfellum en
hún er ekki virt og það
má draga þá ályktun að
það sé vegna þess að upp- ,
lýsingastreymi sé meira en
oft áður og því er algengt
að fólk leiti eigin leiða. Það b
verður seint lögð á það nógu
mikil áhersla að kemba börn
og fullorðna með lúsakambi reglu-
lega einkum vegna þess að tveir af
hverjum þremur sem fá lús fá eng-
in einkenni og engan kláða. Besta
ráðið við lús er að setja alkóhólupp-
lausn í þurrt hárið frekar en sjampó
því oft er það sett í of blautt hár sem
þynnir efnið of mikið út og það er
oft látið standa í stutta stund þannig
að það nær oft ekki að drepa lúsina.
Blaðið kannaði viðbrögð við orðum
Ásu um að meira væri af lús nú en
oft áður og sagðist Ingunn
hjá Heilsuverndarstöðinni í
Árbæ ekki hafa orðið vör
við meiri lús en vana-
lega á þessum árstíma.
Katrín Davíðsdóttir, trún-
aðarlæknir hjá leikskólum
Reykjavíkur, hefur ekki orðið
vör við aukningu frá því í fyrra
en tekur þó undir það að meira sé
af lús á síðari árum en ef farið væri
lengra aftur i tímann. „Leikskóla-
kennarar hafa þó hringt minna
, en oft áður en það tel ég vera
vegna þess að flestir þeirra
séu þegar komnir með góðar
leiðbeiningar um hvað skuli
gera enda breytist upplýs-
ingarnar lítið milli ára“, segir
Katrín.
sara@vbl.is
Hláturkætisklúbburinn
Eitt af því sérstæðara sem hægt
er að gera fyrir heilsuna er að
sækja fundi hjá Hláturkæti-
klúbbnum. Fundir eru haldnir alla
miðvikudaga í vetur í Borgartúni 24,
í versluninni Maður Lifandi. Fund-
irnir standa frá kl. 17:30 til 18:15 og
kostar 300 krónur hvert skipti. Ásta
Valdimarsdóttir var fús að veita smá
upplýsingar um þennan sérstæða
klúbb. Hún segir Hláturkætiklúbb-
inn vera hóp fólks sem tekur sig
saman og hlær í hálftíma til 45 mín-
útur einu sinni í viku og noti það
sem sína líkamsrækt. Engir skráðir
meðlimir eru í klúbbnum, heldur
kemur fólk bara þegar það kemst,
eins oft eða sjaldan og því hentar.
Það þarf ekkert að láta vita eða skrá
sig ef maður vill koma heldur mæta
bara á staðinn með góða skapið og
barnið í sjálfu sér. Hún segir held-
ur ekki nauðsynlegt að taka með
sér skrýtlur eða brandara til að
kitla hláturtaugarnar því þau noti
ákveðnar hláturæfingar til að koma
hlátrinum af stað. Þessar æfingar
virka ótrúlega vel og segir hún sjón
vera sögu ríkari. Fastur kjarni mæt-
ir á fundina og er eitthvað á milli 10
og 20 manns sem mæta að staðaldri.
Þar er fólk á öllum aldri, úr öllum
þjóðfélagsstéttum sem hlær saman
og menn öðlast mikla samkennd
í hlátrinum. Einnig segir Ásta hlát-
urinn vera bæði heilsubætandi og
hafa góð áhrif á líkama og sál. Hér
sannast því ef til vill gamla máltæk-
ið: „Hláturinn lengir lífið“.