blaðið - 15.09.2005, Síða 24

blaðið - 15.09.2005, Síða 24
24 I MATUR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaöiö Mú ætti hreindýrakjötið að vera í boði einhvers staðar því rúmlega 700 dýr hafa verið skotin síðustu vikur. Það er því alveg tilvalið að fara aðeins í gegnum hvernig maður skal hant- era svo stórkostlegt hráefni þannig að maður fái allt það besta úr kjöt- inu. Hreindýrakjöt er náttúrulega ekki ódýr vara þannig að vanda skal valið þegar svona vara er keypt. Það sem flestir vilja er góð „medium rare“ steik og hægt er að nota bæði lærin og hrygginn en einnig stóru steikurnar úr frampartinum ef rétt er gert. Þegar maður er kominn með góðan vöðva í hendurnar ætti hann að vera vel fitu- og sinuhreinsaður. Þá er algjör nauðsyn að leggja hann í marineringu í góða matarolíu með kryddum eins og fersku timian, einiberjum og rósmarín. Þetta skal liggja í lokuðum umbúðum (best að vacumpakka því) i kæli í lágmark fjóra daga því þá brotnar kjötið aðeins niður og kemur til með að bráðna uppi í munni eftir eldun. Með svona bragðmikið kjöt á ekkert að vera að rugla með einhverjum öðrum kryddum heldur en salti og pipar. Svo á bara að steikja steikina í smá olíu á mjög heitri pönnu á öllum hliðum (kallast að loka steikinni). Þá er hún kláruð inni í forhituðum ofni við 180 gráður þar til kjarnhit- inn er ekki meira en 54 gráður. Þá er nauðsynlegt að láta kjötið standa í lágmark 10 mínútur áður en skorið er í það. Villibráð er að mínum mati best með blöndu af steiktu grænmeti og einhverju sætu. Dæmi um meðlæti sem fólk ætti að prófa með hreindýri fyrir utan þetta hefðbundna er grasker, brasser- aðar káltegundir eins og savoykál, jólasalat eða perlulauka. Síðan er hægt að steikja ávexti með eins og mangó, fíkjur, ferskjur svo eitthvað sé nefnt. Ég læt fylgja hér með uppskrift: Hreindýrasteik með graskersrösti og vínberjagljáa fyrir Qóra 800 g hreindýrakjöt (græjað eins og lýst er hér fyrir ofan) 200 g kartöflur 200 g grasker 1 msk timian fínt saxað 2 msk smjör (brætt) 2 msk olía salt og pipar Aðferð: Rífið kartöflurnar og graskerið fínt í rifjárni. Kreistið allan vökva úr og blandið smjörinu og timianinu vel saman við. Hitið pönnu vel upp, setj- ið olíuna út á og þá er kartöflublönd- unni stráð út á pönnuna, þrýst niður í flata pönnuköku og steikt á báðum hliðum í ca. 5 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær verða fallega brúnar. Vínberja gljái: 1 dl balsamico 2 dl portvín N 'W* Blaöid/Gúndi Hreindýrakjöt þykir mikið lostæti en því miður getur verið erfitt að nálgast það, nema hreindýraskytta sé í fjölskyldunni. 2 dl vínberjasafi 3 dl villibráðarsoð (eða vatn og villibráðarteningar) 2 msk smjör salt og pipar nokkur vínber í skraut í sósuna (skorin í helminga) Aðferð: Sjóðið balsamico í potti þar til það er nánast að hverfa og er byrjað að þykkna. Þá er portvíninu og vín- berjasafanum bætt út i og soðið nið- ur um 2/3. Þá er soðinu bætt út í, soð- ið upp á sósunni, smjörið pískað út í og smakkað til með salti og pipar (gæti þurft að þykkja með smá maiz- enamjöli leystu upp i vatni). Kveðja Raggi 111 Sweet chilll satay sósan frá Nando’s er léttkrydduð sósa ættuð frá Bragðgóður og hollur réttur Suður-Afríku með mildu hnetu og parikubragði blandað með hunangi og örlitlu chilli. Ef óskað er eftir sterkara bragði er auðvclt að bæta út í einhverjum af hinum fjölmörgu Peri-Peri sósum frá Nando’s. Nýju uppskriftaspjöldin liggja frammi í öllum verslunum Nóatúns! Morandé, nýr framleiðandi frá Chile. "Stórkostlegt og ögrandl matarvín !!!!' Blaðið iðkynnir: rjt§ í Mc IRAK11| Pablo Morandé vann hjá hinum virta vínframleiðanda Concha y Toro fram til ársins 1982. Þá stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki í félagi við nokkra lykilmenn Concha y Toro. Pablo Morandé ákvað að reyna fyrir sér á nýjum slóðum og plantaði sínum fyrsta vinvið (Casablanca Valley, þar sem lítil reynsla var af vínrækt. Vínviðurinn óx og dafnaði og þrúgurnar þóttu afburða góðar. Þegar vínin fóru á alþjóðlegan markað árið 1997 var þeim strax afar vel tekið, bæði af gagnrýnendum og vínáhugamönnum sem kunnu vel að meta nýjungar. Morandé hefur frá upphafi lagt áherslu á ögrandi vín og hann hefur verið óhræddur við að gera tilraunir sem fallið hafa neytendum vel í geð. Víngerðahús Morandé, Peleguén, er staðsett í Rapel Valley rétt utan við Santiago. Húsið þykir eitt það tæknilegasta ( Chile. Morandé notar bæði franska og ameríska eik í tunnur sínar og blandar jafnvel saman eikartegundum til að fá út skemmtileg, flókin og spennandi vín. Morandé Sauvignon Blanc Curico Valley. Sérstaða þessa nýjaheims víns, úr sauvignon þrúgum, felst I því að það er i senn ferskt og þroskað. ( fyrstu er bragð þess rísandi með áberandi ávaxtakeim. Bragðið verður síðan suðrænt og seiðandi. í lokin læðist fram gott rjómabragð og fyrir vikið hentar vínið vel með feitum sósum. Vínið hentar mjög vel með öllum fiski- og sjávarréttum. Þetta er skemmtilegt sumar- vin og kjörið eitt og sér. "Smakkið og dæmið sjálf" Góða skál og góða helgi. Vínandinn.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.