blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 blaAi6 Námsmöguleikar fanga á Litla Hrauni Áherslur séu réttar Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bif- röst, segist ekki getað tekið Sveinbjörn Kristjánsson, fanga á Litla Hrauni, í nám við skólann þar sem ekki er tryggð viðunandi aðstaða fyr- ir Sveinbjörn og skólann til að hægt sé að sinna náminu. Sveinbjörn vantar 30 eining- ar til að geta lokið námi i viðskiptafræði. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir að til þessa hafi ekki verið skort- ur á aðstöðu til háskólanáms á Litla Hrauni enda hafi nemend- um til þessa reynst venjulegt fjölbrautarnám erfitt. Námsár- angur þeirra 25-30 nemenda hafi verið viðunandi á heildina litið, jafnvel aðdáunarverður í sumum tilfellum, sérstaklega miðað við aðstæður. Hann seg- ir að hins vegar flosni margir nemendur frá námi, einkum þeir sem eiga við fíkniefna- vanda að stríða. Aðrar ástæður eru t.d. að grunnmenntun sé ábótavant, jafnvel ekki grunn- lestrarkunnátta. Því telur Val- týr að frekar ætti að huga betur að grunnnámi og jafnvel sér- kennslu fyrir fanga. Hægara sagt en gert Runólfur hefur tjáð fangelsis- stjóra að til þess að stunda fjar- nám við skólann þurfi Svein- björn að lágmarki netaðgang í 30 klukkustundir í hverri viku og að slíkt væri forsenda þess að Bifröst treysti sér til að taka Sveinbjörn í nám. Valtýr segir að fjarkennsla á Litla Hrauni sé í athugun hjá fangelsisyfirvöldum. Fullur hugur sé í mönnum til að auka þann möguleika sem nemend- ur hafa í dag til að nýta sér þá tækni. Þannig sé verið að at- huga með húsnæði inni á Litla Hrauni þar sem komið væri fyrir nettengdri tölvu og keypt- ur búnaður til að koma í veg fyrir misnotkun. Litla Hraun sé öryggisfangelsi og því þurfi að fara mjög varlega í þessum efnum. Hann segir að hvergi á Norðurlöndunum sé eins mik- ið frelsi varðandi tölvur hjá föngum og hér á landi. ■ Pantið tíma í síma 511-1551 Hársnyrtistofa Villa Þórs Lynghálsi 3 ILEIKSKOLAR Hlutfall ófaglærða of hátt Formaður Félags leikskólakennara segir höfuðforsendu fyrir því að bœta ástandið á leikskólum vera þá að fjölga fagfólki og bceta kjör þess. Hún segir eingreiðslur til ófaglœrðra lítið gera til að bœta ástandið. Eins og staðan er í dag eru 60% starfsmanna inni á leikskólunum ófaglært starfsfólk. Björg Bjarnadótt- ir formaður Félags leikskólakennara segir að það yrði góður áfangi ef hægt væri að snúa þessu hlutfalli við. „Draumamarkmiðið er auðvit- að að allir starfsmenn verði með leikskólakennaramenntun, en ef tækist að haga því þannig að tveir þriðju starfsmanna væru menntaðir væri það gott. Á síðustu 10-15 árum hefur átt sér stað gífurleg uppbygg- ing í þessum málaflokki. Þjóðfélag- ið hefur þróast þannig að þetta er starfsemi sem er nauðsynleg ekki að- eins fyrir atvinnulífið, heldur fyrst og fremst börnin sjálf og foreldra þeirra. Sveitarfélögin hafa orðið við þessu kalli með því að byggja upp leikskóla með mjög myndarlegum hætti. Þróunin hefur líka orðið sú að stór hluti barna er allan daginn á leikskóla, en áður var stór hluti barna aðeins hálfan daginn," segir Björg. „Það er allt gott um þetta að segja, en það gleymdist eitt, og það var að huga að starfsfólkinu." Engar skyndilausnir til Björg segir engar skyndilausnir vera á þessu vandamáli en sú staða sem nú blasi við gefi fullt tilefni til þess að fólk komi saman og ræði hvernig hægt sé að gera átak í því að fjölga leikskólakennurum og gera bragar- bót á launum þeirra. „Það er þetta tvennt sem þarf að gera. Það er svo auðvitað allt gott um það að segja, að ófaglærða fólkið fái þær kjarabætur sem það á skilið. Okkur hefði hins- vegar þótt eðlilegra að setja þessa peninga sem borgarstjóri tók frá um daginn, í það að flýta gerð kjara- samninga, þannig að þeir hefðu getað tekið gildi fyrr en ella, eins og var raunar kynnt þegar þetta fjár- magn var tekið frá.“ Björg segir að sú útfærsla sem valin var um tvær eingreiðslur til ófaglærðs starfs- fólks hafi valdið ákveðinni ólgu innan skólanna. „Fólk lítur á þessar ein greiðslur sem lið í því að koma til móts við þetta álag sem nú er á starfs- fólkinu, og það bitnar auðvitað á öllum, ekki síst á leikskóla- kennur- um og leikskóla- stjórum sem bera ábyrgð á faglegu starfi innan skól- anna og þurfa að þjálfa inn nýja starfsmenn. Ég hef annars litla trú á að þessar greiðslur eigi eftir að skipta sköpum til að laga ástandið. Félagið mun, þegar þetta ástand líður hjá, óska eftir formleg- um viðræðum við yfirvöld mennta- mála og forsvarsmenn sveitarfélaga til að leita leiða til þess að finna ráð sem virka til framtíðar. Það þarf að leita lausna í ró og næði til að leysa raunverulega vandann sem snýst um að fjölga leikskólakennurum og hækka laun þeirra.“ - Barist gegn gin- og klaufaveiki Það var nóg að gera á skrif- stofu yfirdýralæknis í gær en í vikunni fer fram samnorræn æfing á viðbrögðum við gin- og klaufaveiki. Halldór Runólfs- son yfirdýralæknir segir að á heildina litið sé æfingin búin að ganga vel. „I svona koma alltaf einhverjir hnökrar í ljós en til þess er leikur- inn gerður. Nú verður farið yfir þessa hluti og þeir lagfærðir." Halldór segir að hættan á að gin- og klaufaveiki geti komið upp sé til staðar hér á landi og því séu æfingar sem þessi mjög gagnlegar. Þá sé þessi tími sá hent- ugasti fyrir svona æfingar þar sem fólk og fénaður er á ferð miíli landshluta sem býður upp á dreifingu sjúkdómsins. Æfingin fer fram hér- lendis á skrifstofu embætt- isins, sláturhúsi á Blönduósi, sauðfjárbúi í Eyjafirði og rannsóknarstofu að Keldum. ■ Heimdallur, félag ungra sjálfstœðismanna í Reykjavík: Ólga vegna fulltrúavals stjórnar á SUS-þing Glœnýir félagsmenn teknirfram yfir virka félagsmenn. I ikill hiti er hlaupinn í Heimdall, félag ungra sjálf- Istæðismanna í Reykjavík, í undanfara þings ungra sjálfstæð- ismanna á landsvísu, sem fram fer i Stykkishólmi í lok mánaðarins. Fjöldi félagsmanna í Heimdalli sak- ar stjórn félagsins um að beita ofríki við val á fulltrúum félagsins á SUS- þingið. Segja þeir að þar fái aðeins handvaldir skósveinar stjórnarinn- ar að sitja, meðan virkir félagsmenn, sem henni eru síður auðsveipir, séu settir til hliðar á varamannabekk. „Við áttum okkur ekki á því hvað í ósköpunum býr þarna að baki,“ segir Jónas Hvannberg, fyrrverandi stjórnarmaður í SUS, sem finnst sérkennilegt að slíkur skjálfti skuli vera fyrir þing þar sem allt stefnir í að formaðurinn verði sjálfkjörinn. Hann og 30 aðrir forystumenn úr Heimdalli sendu frá sér yfirlýsingu þar sem vinnubrögðin eru fordæmd. Athygli vekur að þeir eru allir fyrr- um stjórnarmenn eða sérstakir trún- aðarmenn Heimdallar, þar á meðal fyrrum varaformaður félagsins, nú- verandi varastjórnarmenn í SUS og endurskoðandi SUS. „Að mínu viti er þetta fullkomlega fordæmalaust. Þarna eru tugir manna, sem hafa set- ið í stjórnum Heimdallar og SUS eða gegnt sérstökum trúnaðarstörfum, og þeir eru einfaldlega settir aftast á varamannalistann, ef þeir þá kom- ast þangað.“ Jónas kvaðst hafa leitað skýringa hjá Bolla Thoroddsen, formanni Heimdallar, en engar fengið. „En það er svo sem í samræmi við ann- að. Það var auglýst eftir umsóknum fimmtudaginn 8. september og um- sóknarfresturinn rann út þriðjudag- EGLA bréfabindi frá MÚLALUNDI fást í næstu bókaverslun Við kaup á EGLA bréfabindum er stutt við bakið á mörgum sem þurfa á því að halda. Veljum íslenskt! -lwH" Múlalundur sími 5Ó2 8500 www.mulalundur.is inn 13. september,“ segir Jónas og tel- ur ljóst að það hafi ekki vakað fyrir stjórninni að fá margar umsóknir. Á þinginu verður kosinn nýr for- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna (SUS), en Borgar Þór Ein- arsson, stjúpsonur Geirs H. Haarde, hefur einn gefið kost á sér til þess. Hann nýtur opinbers stuðnings stjórnar Heimdallar, en slíkar yfir- lýsingar munu ekki hafa tíðkast áð- ur, enda eiga fulltrúarnir að ganga óbundnir til þings. Ekki náðist í Bolla Thoroddsen, formann Heimdallar, í gær. ■ Wli ■■ »» sjsnvo Uduis ajwuiumjs/ \A« 111u m m* mm '-Inl Mfc, BlaÖið/SteinarHugi ■ ■ Ofug(mót)mæli Náttúruvaktin stóö fyrir mótmælum í gær viö Ráöhús Reykjavíkur. Með mótmælastöð- unni var andæft alþjóðlegri rafskautaráöstefnu, en gestum hennar var boðið til mót- töku í Ráðhúsinu í gær. Mótmælendur börðu á ílát úr áli og voru með háreysti. Auk þess sem munduðu einhverjir úr hópnum skyr án þess að vitað sé til þess aö það hafi verið notað til annars en matar. Einn úr liði mótmælendanna var handtekinn fyrir að fara út fyrir það svæði sem mótmælendum var úthlutað. Eins og sjá má vissu mótmælendur ekki aiveg hvað sneri upp og hvað niður við upphaf mótmælanna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.