blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 10
mm
10 I ERLENDilR rRÉTtífií
issMí^Ss:
FIÍJfMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 bladiö
Óvœtit uppgötvun í
Þýskalandi
Fjöldagröf
á flugvelli
Verkamenn á bandarískum
herflugvelli nálægt Stuttgart
í Þýskalandi hafa uppgötvað
fjöldagröf frá tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Talið er
að í gröfinni séu líkamsleifar
gyðinga sem nasistar notuðu
til þrælavinnu. Fjöldagröfin
kom í ljós við byggingafram-
kvæmdir á vellinum á mánu-
dag. Gyðingar frá Natzweil-
er-Struthof fangabúðunum
voru notaðir sem vinnuafl á
flugvellinum frá nóvember
1944 til febrúar 1945. Vitað er
að meira en 100 þeirra fórust
úr hungri og taugaveiki á
því tímabili. Nítján lík voru
brennd á sínum tíma og 66
til viðbótar fundust í október
1945, skömmu eftir stríðslok.
Yfirvöld eru nú að reyna að
komast að því af hverjum
líkin eru og leita að möguleg-
um vitnum. Framkvæmdum
á vellinum hefur verið frestað
á meðan rannsókn fer fram.
Heimsins
minnsta barn
eins árs
Minnsta barn sem fæðst hefur
og lifað af varð eins árs á
dögunum. Rumaisa Rahman
vó aðeins um 240 grömm við
fæðingu og var ekki nema 25
sentimetrar á hæð. Nú vegur
hún tæp 6 kíló og hefur náð
60 sentimetra hæð. Haldin var
afmælisveisla fyrir stúlkuna
og tvíburasystur hennar á
Loyola háskólasjúkrahúsinu
í Chicago þar sem hún var í
læknismeðferð. Læknar sem
önnuðust systurnar segja að
þeim líði báðum vel og eru
bjartsýnir á að þær muni ekki
eiga við alvarlega fötlun að
stríða vegna smæðar sinnar.
Lifði með lát-
inni móður
Frakki á sjötugsaldri lifði í
fimm ár með líki móður sinnar
til að halda mánaðarlegum
eftirlaunagreiðslum hennar
upp á 700 evrur (rúmar 50.000
íslenskar krónur). Lögregla
fann líkið innan um haug
af rusli í tveggja herbergja
íbúð mæðginanna. Vangreidd
húsaleiga og aðrar skuldir voru
ástæðalögregluheimsóknar-
innar. Maðurinn hafði blekkt
starfsfólk félagsþjónustunnar
með því að gera sér upp rödd
móður sinnar en hún dó af
eðlilegum orsökum í hárri elli.
Maðurinn sem vinnur í líkhúsi
sjúkrahúss verður ákærður fyr-
ir fals og að hafa leynt andláti.
Búist við hinu versta
Milljónir manna beðnir um að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Rítu sem stefnir á
strönd Mexíkóflóa. Gríðarlegur viðbúnaður vegna fellibylsins sem náð hefur sama styrk-
leikastigi ogKatrín.
Áfallfyrir Júsjenkó forseta Úkraínu
Forsætisráðherra hafnað
Talibanar
herða aðgerðir
Talibanar hótuðu frekari stríðs-
aðgerðum í Afganistan í gær.
Þar með hafa vaknað efasemdir
um þá staðhæfingu Hamid
Karzais, forseta landsins, um að
óhætt væri að draga úr herafla
í landinu. Abdul Latif Hakimi,
talsmaður Talibana, þakkaði
afgönsku þjóðinni fyrir að
hafa hunsað þingkosningarnar
í landinu á sunnudag en um
helmingur skráðra kjósenda
greiddi atkvæði í þeim sem er
minni þátttaka en í forsetakosn-
ingunum í fyrra. Hakimi kallaði
kosningarnar amerískt sjónar-
spil og bætti við að þingmenn
myndu ekki vera fulltrúar
Afgana heldur vera undirlægjur
Bandaríkjamanna. „Hið heilaga
stríð okkar mun halda áfram
þangað til að búið verður að
kalla heim hersveitir erlendra
trúleysingja og við munum
fljótlega gera frekari árásir.
Talibanar verða skipulagðari
og sterkari," sagði Hakimi..
Starfsfólk við þingkosningarnar í
Afganistan flokkar atkvæði. Talibanar
hafa hótað frekari stríðsaðgerðum í
kjölfar kosninganna.
Borgarstjóri Houston í Texas hefur
farið fram á að íbúar borgarinn-
ar yfirgefi þau svæði hennar sem
liggja lágt vegna fellibylsins Rítu.
Milljónir manna voru beðnir um að
yfirgefa heimili sín við strönd Mexí-
kóflóa í gær.
Fellibylurinn Ríta var orðinn að
fjórðu gráðu byl í gær og var hann
þar með orðinn jafnöflugur og Katr-
ín sem olli gríðarlegu tjóni á vissum
svæðum í Louisiana, Mississippi og
Alabama. Fellibylurinn varbúinn að
ná meira en 200 km/klst vindstyrk
þegar hann hélt yfir flóann í gær og
færðist í aukana. Bylurinn olli ekki
jafnmiklu tjóni á Keys eyjum undan
Flórídaskaga og óttast var en hætta
er talin á að hann kynni að valda
miklum usla í Louisiana, ekki síst
í New Orleans þar sem menn hræð-
ast frekari flóð. Búist er við að Ríta
nái til strandar Louisiana fyrir helgi.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir
í ríkinu og fólksflutningar frá New
Orleans hafnir.
fbúar Galveston yfirgefa heimili sín
íbúum í borginni Galveston var fyr-
irskipað að yfirgefa heimili sín í gær
en borgin stendur á eyju á Mexíkó-
flóa. Árið 1900 fórust á milli 8000 og
12000 manns þegar fellibylur skall á
borginni og er það mannskæðasta
Hjólastólsbundnir vistmenn á Edgewater elliheimilinu í borginni Galveston í Texas bíöa eftir að komast um borð í rútur til að flytja þá á
brott af hættusvæði.
óveður í sögu Bandaríkjanna.
Ríkisstjórnin setti viðbragðsáætl-
un sína í gang vegna óveðursins
enda er henni í mun að koma í veg
fyrir svipaða gagnrýni og eftir felli-
bylinn Katrínu. Hundruð vörubíls-
farmar af vatni, ís og matarskömmt-
um var dreift á staði þar sem búist
var við að Ríta færi yfir.
Um 130.000 manns yfirgáfu heim-
ili sín á Kúbu í fyrradag vegna felli-
bylsins. Ríta olli eignatjóni á Kúbu
en ekki er vitað um mannfall í kjöl-
far hans.
Verð á hráolíu hækkaði um nærri
einn Bandaríkjadal á tunnuna á
mörkuðum í gær vegna þeirrar
hættu sem talin er stafa að olíu-
hreinsistöðvum í Mexíkóflóa og í
Texas.
Eftir að hafa farið framhjá Keys
eyjum hélt fellibylurinn Ríta yfir
Mexíkóflóa. Búist var við að hann
héldi síðan yfir Louisianafylki og
síðan til Texas.
Þing Úkraínu hefur naumlega
hafnað Júrí Jekanúrof sem Viktor
Júsjenkó, forseti landsins, tilnefndi
sem forsætisráðherraefni eftir að
hann leysti upp ríkisstjórnina fyrr
í mánuðinum. Aðeins vantaði þrjú
atkvæði upp á að tilnefning Jekanú-
rofs yrði samþykkt. Pólitísk staða Jú-
sjenkós þykir hafa versnað enn við
þetta áfall auk þess sem efasemdir
hafa vaknað um þá vestrænu lýð-
ræðisþróun sem hann hefur einsett
sér að hrinda af stað í landinu. Jú-
sjenkó tilnefndi Jekanúrof sem starf-
andi forsætisráðherra eftir að hann
hafði leyst upp ríkisstjórn Júlíu
Timósjenkó vegna samstarfsörðug-
leika og ásakana um spillingu. Að-
stoðarmaður Júsjenkós sagði líklegt
að hann muni tilnefna Jekanúrof
að nýju eftir nokkra daga enda hafi
hanri rétt til þess. Timósjenkó hefur
heitið því að verða forsætisráðherra
með því að sigra í þingkosningum í
mars.
„Þetta er enn eitt áfallið fyrir Jú-
sjenkó og gefur honum enn eitt
tilefnið til að endurmeta hvernig
hann vinnur að stefnumálum sín-
um,“ segir Mikhail Pogrebinskíj,
stjórnmálaskýrandi í Kiev við AFP
fréttastofuna eftir úrslit atkvæða-
greiðslunnar.
Vantraust á forsetann
Tilnefning Jekanúrofs sem starf-
andi forsætisráðherra var fagnað af
flestum flokkum Úkraínu á sínum
Júlía Timósjenkó hefur heitið þvt að verða forsætisráðherra á ný eftir þingkosningar í
mars.
tíma og stjórnmálaskýrendur vilja
meina að niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar endurspegli frekar vantraust
þingsins á forsetann og óánægju
með störf hans. „Þingmenn greiddu
ekki atkvæði gegn Jekanúrof, þeir
greiddu atkvæði gegn forsetanum
og liði hans,“ sagði Volodymyr, ann-
ar stjórnmálaskýrandi.
Stjórnmálaskýrendur telja enn
fremur að Júsjenkó hafi misst stuðn-
ing fyrir að hafa rekið Timósjenkó
og sundrað liðsheildinni sem stóð
að „appelsínugulu byltingunni“ í
lok síðasta árs.
„Hann hefur ekki axlað ábyrgð á
því sem gerðist,“ sagði Pogrebinskíj.
,Hann kenndi öðrum um og það var
ekki sannfærandi. Hann hefði átt að
axla ábyrgð að einhverju leyti.“
Mesti, blússur og bolir í miklu úrvali
Opnunartími
mán - föst. 10-18
laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12 • 200 Rópavogi
Súni 554 4433