blaðið

Ulloq

blaðið - 22.09.2005, Qupperneq 24

blaðið - 22.09.2005, Qupperneq 24
24 I MATUR Ravioli, vermicelli, tagliatelle og spaghetti eru pastaheiti sem allir þekkja ásamt fullt af öðrum, en það jafnast ekkert á við heimalag- að pasta og það skemmtilega er að það er ekkert mál. Þú þarft reyndar að eiga pastavél sem kostar fimm- þúsund kall út í búð en hún borg- ar sig margfalt til baka í gæðum og bullandi hamingju. Mér finnst skemmtilegast að laga pastarétti sem eru með fyllingum eins og ravi- oli og tortellini, því þar getur maður gert bæði „gourmet” fyllingar með til dæmis humri, andarlifur eða villisveppum. Eða bara ódýrari og ekki síðri, góðar með ostum, kart- öflum og graskeri svo eitthvað sé nefnt. Þegar maður er með flottar og góðar fyllingar þarf sósan með ekkert að vera of flókin, gott vine- grette, ólífuolía og saxaðar krydd- jurtir. Ein fræg sósa er léttbrúnað smjör, salvíublöð og sítrónusafi. Síð- an er það pastadeigið sjálft og mér finnst best að nota matvinnsluvél. Þá er öllu blandað saman í vélina og hrært saman þar til það er orðið að einum þéttum deigklumpi. Síð- an er deigið tekið, plastað og sett í ískáp í klukkutíma til að leyfa því að jafna sig. Síðan er bara að fara að fletja út og móta eins og maður vill. Þegar verið er að nota fyllingar þá þarf að bleyta samskeytin á past- anu með vatni til að það lokist vel og ekkert af fyllingunni komist út. Þegar á að sjóða pastað þá er skylda að vera með stóran pott af sjóðandi vatni með salti og smá olíu út í (læt uppskrift fylgja með hér fyrir neð- an). Ravioli fyilt með villisveppum, kartöflum og kryddjurtasmjöri Pastadeig: 300 g hveiti 2 stk heil egg 3 stk eggjarauður 1 msk matarolía smá salt Hrært einsog lýst er hér að ofan. Fylling: 400 g sveppir blandaðir, t.d. flúða- sveppir, shiitake, ostru eða villi- sveppir 1 stk laukur, fínt saxaður 200 g kartöflur (soðnar.skrældar) 2 msk svepparjómaostur 1 msk smjör salt og pipar Aðferð: Steikið sveppina og laukinn á pönnu i olíu þar til það er orðið mjúkt. Þá er rjómaosturinn settur út í og blandað vel saman. Kartöflurnar eru muldar út í og smakkað til með salti og pip- ar, látið kólna. Deigið er flatt út og skorið í 4 cm hringi. Smávegis af fyllingu er sett í miðjuna og lokað með öðrum eins hring, lokið vel öllum samskeytum. Síðan eru pastakoddarnir soðnir eins og lýst er að ofan. Sósan: 6 msk smjör Úr uppskriftabók kjötmeistara Nóatúns Nautakjöt í sannkölluðum sælkerabúning. Zeta Balsamico di modena Riserva Balsamico di modcna Riserva er besta edikið frá Zeta, þess vegna heitir það ekki bara balsamik edik heidur balsamik edik Riserva. Stærsti munurinn liggur í bragði og angan þess. Þú finnur gæðín um leið og þú smakkar, því Það er höfugt með einstakri fyllingu, mikilii sætu og lágri sýru. Nýju uppskriftaspjöldin liggja frammi í öllum verslunum Nóatúns! 2 msk af söxuðum kryddjurtum, safi úr 1 sítrónu eins og basil, salvíu, steinselju salt og pipar Kveðja Raggi .I "Stórkostlegt og ögrandi matarvin llll" Blaðið mælir með: Morandé Syrah Morandé, nýr framleiðandi frá Chile. Pablo Morandé vann hjá hinum virta vínframleiðanda Concha y Toro fram til ársins 1982. Þá stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki í félagi við nokkra lykilmenn Concha yToro. Pablo Morandé ákvað að reyna fyrir sér á nýjum slóðum og plantaði sínum fyrsta vínvið í Casablanca Valley, þar sem lítil reynsla varafvínrækt. Víngerðahús Morandé, Peleguén, er staðsett í Rapel Valley rétt utan við Santiago. Húsið þykir eitt það tæknilegasta í Chile. Morandé notar bæði franska og ameríska eik í tunnur sínarog blandarjafnvel saman eikartegundum til að fá út skemmti- leg, flókin og spennandi vín. Morandé Syrah frá Maipo Valley í Chile Syrah berin eru þekkt fýrir kraftmikið bragð og þetta vín stendur svo sannarlega undir því. Vínið er dökkt og mikilfenglegt. Það hefur kraftmikið hindberjabragð, ákveðna myntuken- nda sætu og í lokin hefur skemmtilegt lakkrísbragð vinninginn. Vínið er verulega kryddað og gott jafnvægi er á milli áfengismagns og sýru vínsins. Gott er að umhella víninu nokkuð ákveðið. Þetta er kjötvin af bestu gerð og hentar vel með nautasteikt og villibráð sérstaklega ef hún er legin í rauðvínslegi.... Gaman er að prófa osta með örlitlu hunangi með þessu víni. "Smakkið og dæmið sjálf" Vínandinn. morandé| % M A I f O »*UÍ r fiíduci C 1» * • ♦ _U%kL Góða skál og góða helgi.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.