blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 26
26 I HEILSA
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Streita - Stress
Hvað er streita?
Það er varla hægt að tala um líf án
streitu. Jákvætt álag í hóflegu magni
styrkir okkur, á meðan of mikið álag
skaðar okkur.
Það er oft talað um að streita eða
stress hafi einkum þrjár merkingar.
Streita í umhverfinu
Einstaklingar eru misnæmir fyrir
áreiti í umhverfinu, það sem hefur
mikil áhrif á einn kemur lítið við
annan. Það er að stærstum hluta á
okkar valdi hvort og hvernig við leyf-
um atburðum, stórum og smáum,
að hafa áhrif á okkur.
Innri spenna
Það er oft talað um streitu sem innri
tilfinningu um spennu. Að vera
stressaður af kvíða, reiði eða tíma-
hraki eru dæmi sem flestum eru
kunn.
Samsafn þreytu og spennu
Langvinnt álag er það form streitu
sem er liklega erfiðast að greina,
enda getur það komið hægt og hljótt
og einkennin vanist sem hluti dag-
legs lífs. Viðvarandi streita skemmir
líffæri mannsins þannig að hann eld-
ist hraðar og verr en ella.
Við þurfum að þekkja streituna,
vita hvað hún er, hvernig hún er, hvað-
an hún kemur og hvernig við getum
losað okkur við hana. Annars stönd-
um við ráðalaus og kunnum ekki að
leiðrétta málin næst þegar við lend-
um í streituástandi en slíkt getur
hent hvern sem er. Streita er eðlileg
svörun við innra eða ytra álagi, oft-
ast í formi hækkaðrar spennu, en
jafnframt sú þreyta sem safnast upp
ef ekkert er gert í málunum.
Streituvaldar
Almennt má segja að við getum lif-
að heilbrigð ef við höldum okkur
innan vissra marka, þekkjum tak-
mörk okkar og virðum þarfir okkar.
Það má þó ekki skilja það sem svo
að allt streituástand sé framkallað
með ógætni eða ábyrgðarleysi. Á list-
anum hér að neðan eru taldir upp
streituvaldandi atburðir sem geta
gerst í lífi fólks. Hafa þeir svokallað
streitugildi eftir því hversu skaðleg
áhrif þeir hafa á heilsu fólks, en töl-
urnar eiga að meta þörf fyrir aðlög-
un að félagslegri breytingu. Það er
athyglisvert að það virðist sem breyt-
ingin sjálf skipti mestu máli, hvort
sem hún er jákvæð eða neikvæð.
Hvernig skynjum við streitu
Það er misjafnt hvernig streita kemur
fram og fer það fyrst og fremst eftir
því hversu mikil streitan er. Væg
streita er nokkuð sem við þekkjum
öll, en þá getum við afkastað meiru
en venjulega og getum unnið í kapp
við tímann. Þetta ástand getur okk-
ur fundist svo eftirsóknarvert, að
við venjum okkur á að vinna í tíma-
þröng. Þegar streitan verður meiri
fara likamleg einkenni að koma í ljós
s.s. vöðvaspenna, meltingartruflanir,
svefntruflanir og þreyta. Verði streit-
an svo enn meiri eða viðvarandi
versna þessi einkenni og við þau bæt-
ast samskiptaerfiðleikar, verkkvíði
sem síðan getur leitt til ofsakvíða,
svita og skjálfta.
Vinnum bug á streitunni
Streituvaldar eru margir og allt and-
legt og líkamlegt álag er streituvald-
ur. Andlegt álag er verra, áhyggjur
og óvissa eru kvíðavaldur. Flest störf
í dag valda meira andlegu en líkam-
legu álagi. Andlegt álag veldur gjarn-
an andvökum sem eru einn mesti og
markvissasti streituvaldur sem til er.
Það er auðvelt að leiðrétta streitu,
en það getur verið gott að fá hjálp
sérfræðinga, t.d. geðlækna eða sál-
fræðinga til að leiðrétta streituna.
Leiðréttingin byggist fyrst og fremst
á því að finna út hvað veldur streit-
unni, þekkja hana, greina ástandið
rétt og setja markmið um bata, síð-
an er ákveðið hvernig skuli ná þeim
markmiðum.
Líf án streitu
Hvernig getum við lifað án streitu,
hér eru talin upp nokkur atriði sem
skipta hvað mestu máli.
Svefn. Að fá svefn sem veitir fulla
hvíld er merki um heilbrigði og trygg-
ir að við söfnum ekki upp þreytu.
Slökun. Að nota slökun í amstri
dagsins er gulls ígildi.
Hreyfing. Að vera í góðu formi
eru lífsgæði sem auka á vellíðan og
styrkja ónæmiskerfið.
Næring. Það er mikilvægt að vera
í kjörþyngd og drekka nóg af vatni.
Það er mikið af næringarlítilli fæðu
í boði. Maður er það sem maður borð-
ar, því er mikilvægt að spá í það sem
maður setur ofan í sig og velja það af
kostgæfni. Lífrænt og grænt er alltaf
gott. Hafa ber i huga að koffein eykur
spennu og nikótín líka.
Leikur. Að hlæja og leika sér hefur
verulega slakandi áhrif á alla.
Markmið. Þér leyfist að leggja
mikið á þig ef þú stefnir að ákveðnu
markmiði og vinnur að hugðarefn-
um þínum. Markmið og draumar
gefa manni stefnu og tilgang í lífinu.
Okkur er öllum hollt að hugsa um
það hvernig við getum haft áhrif á líð-
an okkar. Jákvæð hegðun og hugsun
skiptir þar mestu máli.
Jórunn Frímannsdóttir, hjúlcrunar-
fræðingur og ritstjóri
www.doktor.is
Makamissir 100
Hjónaskilnaður 73
Dauði einhvers nákomins 63
Meiðsl, sjúkdómur 53
Að vera sagt upp starfi 47
Hjónabandserfiðleikar 47
Vinnulok 45
Breytingar á vinnustað 36
Búferlaflutningar 30
Vandræði í samskiptum 29
Framúrskarandi árangur 28
Sumarfrí 13
Streita á verðbréfamarkaði
Finn fyrir mikilli ábyrgð að sýsla með fé annarra
Streita getur verið hættuleg ef
henni er ekki gefinn gaumur en
viðhorf skiptir miklu þegar átt er
við streitu. Það er streita og stress í
ýmsum atvinnugreinum og vinna
á verðbréfamörkuðum hefur jafn-
an verið álitin streitumikið starf.
Marteinn Kristjánsson er ráðgjafi
í verðbréfa-og lífeyrisþjónustu
Landsbanka Islands og viðurkenn-
ir að starfið geti verið stressandi.
Marteinn segir að stressið stafi helst
af mikilli ábyrgð. „Þetta getur verið
stressandi starf að því leyti að þetta
er oft svo mikilvægur hluti af eignum
einstaklinga. Maður finnur virkilega
fyrir þeirri ábyrgð að vera að sýsla
með fé einstaklinga. Það getur verið
þónokkuð spennufall þegar maður
kemur heim úr vinnunni og stund-
um jafnvel um leið og síminn okkar
lokar klukkan fjögur. Þá fyrst áttar
maður sig á því að álagið hefur verið
talsvert yfir daginn."
Mikil nákvæmni
Aðspurður hvort verðbréfamarkaðir
Þú borðar þær með
uppáhalds álegginu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvitlauksolíu,
stundum eins og pizzur
...eða eins og Strandamenn,
glænýjar með Islensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku
næstu matvöruverslun.
Hollara brauð finnst varla.
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
DRANGABÁKSTUR
séu eins og í bandarískum kvikmynd-
um segir Marteinn: „Nei, það eru eng-
in hróp og köll og miðar fljúgandi
um loftið. Þessi viðskipti fara fram á
mjög hreinlegan og skipulegan hátt í
gegnum tölvur. í raun og veru er yfir-
vegunin meiri en kvikmyndir gefa til
kynna. Nákvæmni í vinnubrögðum
þarf að vera mikil. Það getur oft ver-
ið mjög mikið álag á ráðgjafana að af-
greiða á vandaðan hátt hver einustu
viðskipti og klára þau fullkomlega.“
Skilja vinnuna eftir í vinnunni
Þegar Marteinn er spurður hvað hann
geri til að koma í veg fyrir streitu seg-
ir hann: „Það mikilvægasta sem mér
dettur í hug er að skilja aldrei eftir
lausa enda í lok vinnudags og passa
svo upp á það að skilja vinnuna eftir
í vinnunni og fara bara með sjálfan
mig heim.“ Marteinn viðurkennir þó
að það takist ekki alltaf. „Það vill ger-
ast að hugurinn reikar til baka.“
Hreyfirsig tilað slakaá
Marteinn segist hafa sínar leiðir til
að slaka á að loknum erfiðum vinnu-
degi. „Það er helst líkamleg hreyfing
og að fara í innanhússfótbolta með
vinnufélögunum. Það hjálpar manni
mjög mikið. Eins held ég að það sé
mjög hollt og gott að taka sér svona
10-15 mínútur einn með sjálfum sér,
sitja og leyfa áhyggjunum að gufa
upp í rólegheitunum."
svanhvit@vbl.is
■
Marteinn Kristjánsson