blaðið - 22.09.2005, Page 34
34 I SAMSKIPTI KYNJANNA
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 biaðið
Tilbreyting um helgina:
Hugmyndir að
Flest hótel bjóða upp á góð tilboð yfir veturinn og er margt í boði
Nú þegar líða fer að vetri er gaman að gera eitthvað skemmtilegt með makanum til að kynda undir ástarloga og lífga upp á tilveruna. Hugmynd
af góðri helgi er að fara út úr bænum í kyrrð og þægindi og gleyma amstri borgarinnar. Gaman væri að fá tilbrey tingu og skella sér á hótel yfir
nótt eða jafnvel heila helgi. Hægt er að finna mörg hótel sem eru staðsett á fallegum stöðum sem eru ekki of langt frá höfuðborginni. Yfir vetrar-
tímann eru oft tilboð á næturgistingu sem gott gæti verið að nýta sér. Á flestum hótelum hefjast vetrartilboðin í.október. Hér eru hugmyndir af
hótelum sem hafa upp á frábæra náttúrufegurð að bjóða.
Þegar þú sækir. Gildir til 30. september 2005
2 pízzJt/r +■ PMar
Tvœr miðstœrðar með tveimur áléggjum, stór
skammtur af brauðstöngum og 2 lítra Pepsi á
2.990 kr.
TV»r fkirir e-ína
Ef þú kaupir eina pizzu, stóran skammt af
brauðstöngum og 2ja lítra gos þá fœrðu aðra
pizzu fría afsömu stœrð.
'via rorn
800 k
Lítil Margarita og
1/2 lítra Pepsi á 800 kr.
^LJMsir jjfrib
Jj'j '2000
■nHMm
Hótel Búðir
Hótel Búðir er vel staðsett enda er
umhverfið algjör náttúruperla. Þeg-
ar kemur að útivist og afþreyingu
eru úr nógu að velja enda segja
margir að allt sem ísland hafi að
bjóða megi finna á Snæfellsnesi. Á
Arnarstapa sem er í grennd við Búð-
ir er óþrjótandi afþreying og má þar
nefna að þar er starfrækt vélsleða-
leiga þaðan sem farið er í skipulagð-
ar ferðir upp á topp Snæfellsjökuls
bæði á vélsleðum og snjótroðara.
Frá Arnarstapa, Ólafsvík og Stykk-
ishólmi er einnig hægt að fara í sjó-
ferðir af ýmsu tagi, svo sem hinnar
þekktu hörpuskels- og eyjaskoðun-
arferðir frá Stykkishólmi, en einnig
hafa sjóstangaveiði- og hvalaskoðun-
arferðir frá Arnarstapa og Ólafsvík
verið afar vinsælar.
Hótel Örk
Hótel Örk í Hveragerði er tilvalið fyr-
ir helgarævintýri. Hagstæðast fyrir
tvo því þar er sælulykill í gangi þar
sem ein nótt fyrir tvo kostar 14.900
og 27.400 fyrir tvær nætur yfir vetr-
artímann. I tilboðinu er innifalinn
þriggja rétta vel útilátinn veislu-
kvöldverður að hætti kokksjns. Með
gistingu á hótelinu fylgir áðgangur
að öllum þægindum hótelsins sem
og aðgangur að golfvellinum við hót-
elið meðan veður leyfir. Umhverfið
í kringum Hótel Örk er mjög fallegt
og það er úr nógu að velja, þar má
nefna gönguferðir um Reykjardal-
inn. Fyrir golfaðdáendur er fín að-
staða til að fara í golf og fyrir þá sem
eru minna fyrir útiveru er dásam-
legt að slappa af í gufu og heitum
pottum inni á hótelsvæðinu og stutt
er að skoða hverasvæðin í Hvera-
gerði. Hægt er að sjá tilboðin inn á
vefsíðunni www.hotel-ork.is
Hótel Valhöll
á Þingvöllum
Hver væri ekki til í að skreppa á Þing-
velli og slappa af í fallegu umhverfi
í kringum Hótel Valhöll. Hótelið
býður upp á „vetrarglaðning" á Val-
höll. Tilboðið inniheldur gistingu
fyrir tvo, þriggja rétta kvöldverð að
hætti kokksins og morgunverð fyr-
ir 19.500. Kokkur Valhallar er Úlfar
Finnbjörnsson sem þekktur er fyrir
snilldar matreiðslu. Það þarf ekki
að fara mörgum orðum um um-
hverfi hótelsins því Þingvellir eru
með fallegri stöðum landsins og þá
sérstaklega á haustin.