blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 38
38 I ÍPRÖTTIR FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöi6 Leifurmeð tilboc frá Fylki Samkvæmt heimildum Blaðs- ins hafa Fylkismenn gert Leifi Sigfinni Garðarssyni tilboð um að þjálfa meistaraflokk féiagsins í knattspymu á næstu leiktíð. Leifur hefur verið aðstoðarþjálfari FH síðastliðin ár með mjög góðum árangri. Samkvæmt heimildum Blaðsins var Leifur enn að vdta málinu íyrir sér í gærkvöldi þegar Blaðið fór í prentun en búist er við að hann svari innan sólarhrings. Samkvæmt þeim Fylkismönnum sem Blaðið hafði samband við í gær er fastlega reiknað með að Leifur Sigfinnur Garðarsson verði næsti þjálfari Fylkis í Landsbankadeildinni. Ef af yrði þá standa FH-ingar uppi aðtoðarþjálfaralausir og sögusagn- ir úr firðinum herma að Heimi Guðjónssyni fyrirliða liðsins síðastliðin ár verði boðin staðan en Heimir hefúr lagt knattspymu- skóna á hifluna ffægu og hefur leikið sinn síðasta leik í efstu deild. Gilberto framlengir Brasflískileikmaðurinn Gflberto Silva sem leikið hefúr með enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal, hefúr ffamlengt samningi sínum við fé- lagið. Gilberto, sem er 28 ára ff am- lengdi til sumarsins 2009, en hann kom tfl Arsenal árið 2002 frá Atletico Mineiro. Hann hefúr þeg- ar leikið 120 leiki fyrir Arsenal en Gflberto hefúr nú tekið við af Patr- ick Vieira sem aðalmaðurinn inná miðju Arsenal-flðsins. Það er stórt skarð að fylla en miðað við þann leik sem Gilberto hefúr sýnt með brasilíska landsflðinu þá á það ekki effir að verða mjög mikið mál fyrir þennan snjafla leikmann. Campofráí langan tíma Sam Aflardyce og hans menn í Bolton Wanderes hafa orðið fyrir áfafli þar sem eiim aðalleikmaður flðsins, Spánverjinn Ivan Campo er meiddur. Campo sem er 3i.árs miðvaflarleikmaður meiddist á æfingu og á röntgen-myndatöku er brotið bein í fæti leikmannsins. Þetta er mikið áfall fyrir Bolton en búist er við að Ivan Campo verði ffá keppni að minnsta kosti næstu 8 vikumar. Bolton er í 3-5.sæti defld- arinnar með 11 stig þrátt fyrir að þeir hafi ekki verið að leilca vd eins og Sam Allardyce komst að orði. Staða flðsins er ekki í samræmi við spilamennskuna, sagði Big Sam. Lið ársins í i.deild og 2.deild I gær var tilkynnt hverjir voru valdir í úrvalsflð í.deildar karla í knattspyrnu sem og í 2.deild karla fyrir leiktíðina 2005 á íslandsmótinu. Heimasíðan Fót- bolti.net stóð að kjörinu í samráði við fé- lögin en fyrirflðar og þjálfarar liðanna höfðu atkvæðisrétt að þessu sinni og er þetta í fyrsta sinn sem fyrirliðarnir eru með atkvæðisrétt. Að auki voru valdir bestu leikmenn og einnig þeir efnileg- ustu sem og bestu þjálfaramir. Verðlaunaafhencflngin fór fram í gær á veitingastaðnum Broadway og er þetta í þriðja sinn sem Fótbolti.net stendur að þessu kjöri. Val á efnileg- asta leikmanni er nýmæfl í kjörinu en miðað var við fæðingarárið 1985. Árið 2004 var Gunnar Guðmundsson þjálf- ari HK valinn besti þjálfarinn í í.deild og Hörður Már Magnússon úr HK var vaflnn besti leikmaðurinn. Árið 2003 var Milan Stefan Jankovic vaflnn þjálf- ari ársins en hann var þá hjá Keflavík og leikmaður ársins í í.deild árið 2003 var valinn Jóhann Þórhallsson leik- maður KA. Marko Tanasic var valinn þjálfari ársins í fyrra í 2.deildinni en hann var hjá KS og félagi hans Ragnar Hauksson var vaflnn besti leikmaður- inn. Árið 2003 var Hlynur Stefánsson leikmaður KFS valinn sá besti en Ás- mundur Arnarsson hjá Völsungi var valinn besti þjálfarinn. I ár var Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabflks valrnn besti þjálfarinn í í.deild en Breiðablik tapaði ekki leik í sumar. Pálmi Rafn Pálmason leikmaður KA var valinn besti leikmaður í.deildar og Rúrik Gíslason leikmaður HK var efnilegasti leikmaðurinn en Rúrik er nýbúinn að gera samning við enska úrvalsdeild- arflðið Charlton. I 2.deild var Guðjón Baldvinsson maður sumarsins. Hann er á nítjánda aldursári og leikur með Stjörnunni í Garðabæ. Guðjón varð markakóngur 2.defldar með 14 mörk i 17 leikjum. Hann var vaflnn efnilegasti leikmaður deildarinnar og einnig besti leikmaðurinn sem er fátítt. Guðjón er þessa dagana úti í Sviss til reynslu hjá úrvalsdeildarflðinu St.Gallen. Besti þjálfarinn í 2.deild í sumar var kjörinn Garðar Ásgeirsson þjálfari Leiknis en þeir unnu deildina og leika í í.deild á næstuleiktið. Button áfram hjá Jenson Button sem hefur verið í tölu- verðum vandræðum að undanförnu vegna tvíliða samkomulags síns við Williams og BAR HONDA liðin í Formúlu 1 kappakstrinum, hefur nú loks náð samkomulagi um að vera áfram hjá BAR Honda á næstu leiktíð. Jenson Button sleppur þó ekki frítt frá hlutunum því að talið er að hann þurfi að greiða veruleg- ar skaðabætur til Williams liðsins. Trúlegt þykir að BAR HONDA komi til með að standa straum af þeim kostnaði. Button verður þess í stað samningsbundinn BAR HONDA til margra ára en ekki hefur enn feng- ist staðfest hversu langur sá samn- ingur er. Málið sem gengið hefur undir nafninu Buttongate I og II er því væntanlega lokið. Vefsíða tímaritsins Autosport greindi frá því í gær að búist væri við staðfestingu á málinu á allra næstu dögum. Williams var með skotheld- an samning við Jenson Button en málið hefur verið mikill farsi í rúmt ár. Button vildi fyrst hætta hjá BAR HONDA í fyrra og ganga til liðs við Williams en snérist hugur þegar BMW ákvað að hætta að styðja Willi- ams í vélamálum. Bæði fjölmiðla- mönnum og félögum í Formúlunni þótti framkoma Buttons í málinu ekki vera honum til framdráttar. Barrichello og Button saman og Sato erfúll Button fór þó sínu fram og eftir stendur að BAR HONDA nýtur starfa hans á næstu árum. Samkvæmt nýj- ustu fréttum þarf Button að greiða á annan tug sterlingspunda í skaða- bætur og BAR HONDA greiðir þær væntanlega. Williams kom Button upphaflega í Formúlu 1 árið 2000 og var með samning við hann um að vera öku- maður hjá liðinu 2006-2007. Hann hefur ekið hjá BAR HONDA síðan 2003 en Frank Williams vildi fá hann til Williams á umsömdum tíma, þ.e.a.s. á næsta ári. Eftir stendur að Williams vant- ar ökumann í stað Buttons. Mark Webber verður áfram hjá liðinu en Williams verður með Cosworth vélar á næsta ári. Nick Heidfeld fer til BMW. Það verður því lykilatriði fyrir Antonio Pizzonia að ná góðum árangri í Brasilíu um næstu helgi en hann er meðal þeirra sem kemur til greina sem ökumaður hjá Willi- ams á næsta ári. Breytingarnar sem verða hjá BAR HONDA á næsta ári BAR verða þær að Brasilíumaðurinn Ru- bens Barrichello mun aka við hlið Buttons og Takuma Sato verður þvi þriðji ökumaður eða þá að hann fer annað. Samkvæmt fréttum er Sato grautfúll með gang mála og er að hugsa sín mál hvað varðar veru sína hjá BAR HONDA. w l (é \ k f □010 lyilTY Böddi Bergs tekur á móti stuðningsmönnuni ensku liðanna seni skeggræða uni í KVÖLD KL 20 00 leikmenn, væntingar og drauma ásamt því að fjalla um gullaldarár hvers liðs. ];i l TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT nn f*Ojm ' : { í SÍMA 800 7000. Á WWW.ENSKI.IS jfff W EÐA í NÆSTU VERSLUN SÍMANS. B O L T 1 N N > *'

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.