blaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTZR
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 blaöiö
Baugsmálið
Dómarar
skipaðir
Fimm dómarar munu fjalla um
Baugsmálið þegar frávisun málsins
fyrir héraðsdómi verður tekin fyrir
í hæstarétti. Dómararnir sem fjalla
munu um málið eru: Markús Sigur-
björnsson, Garðar Gíslason, Guðrún
Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen
og Ingibjörg Benediktsdóttir. Verj-
endur, saksóknari og dómarar skil-
uðu greinargerðum til hæstaréttar
síðastliðinn föstudag og hefur hæsti-
réttur þrjár vikur frá þeim tima til
að kveða upp dóm sinn.
Jóhanna
Vilhjálms í
Kastljósið
í gær gekk Jóhanna Vilhjálmsdóttir
til liðs við RÚV. Þar mun hún taka
þátt í nýjum frétta- og dægurmála-
þætti, sem fær í arf nafnið Kastljós.
Jóhanna siglir í kjölfar Þórhalls
Gunnarssonar, sem var ráðinn rit-
stjóri þáttarins í fyrradag, en þau
hafa undanfarin ár verið vinsælt tví-
eyki á vettvangi Stöðvar 2.
,Það eru blendnar tilfinningar við að
færa sig svona um set, en okkur Þór-
hall langaði til þess að vinna saman
á ný og það gerði sjálfsagt útslagið,"
segir Jóhanna. Hún segist jafnframt
hafa hrifist af þeim nýjungum, sem
verið er að brydda upp á hjá RÚV.
„Ég hef trú á því, sem Páll Magnússon
er að gera og hlakka til að vinna í því
umhverfi, sem hann er að skapa.“
Hún telur að hið nýja Kastljós eigi
eftir að slá í gegn. „Þarna er verið
að steypa nokkrum þáttum saman í
einn og við það safnast saman góð-
ur og samrýmdur hópur fólks og þá
geta undursamlegir hlutir gerst.“
Seðlabankinn hækkar
stýrivexti um 0,75%
- erfull alvara með að halda verðbólgunni innan markmiða.
Seðlabankinn hækkaði í gær stýri-
vexti um 0,75 prósent samhliða út-
gáfu Peningamála, ársfjórðungsrits
bankans. Eftir breytingu eru stýri-
vextirnir 10,25% og hafa hækkað um
4,95% frá maí 2004 þegar bankinn
hóf vaxtahækkunarferli sitt. Grein-
ingardeildir bankanna höfðu spáð
því að hækkunin yrði hálft prósent-
ustig. Með því að taka svo stórt skref
að þessu sinni vonar Seðlabankinn
að honum heppnist að sannfæra
einstaklinga, fyrirtæki og fjármála-
markaðinn um að honum sé full
alvara með að halda verðbólgu sem
næst verðbólgumarkmiði bankans
á næstu tveimur árum og til lengri
tíma þótt það kunni um tíma að
koma hart niður á ýmsum atvinnu-
greinum.
Harðari tónn en áður
{ Peningamálum segir: „Ójafnvægi
í þjóðarbúskapnum hefur aukist frá
því að Peningamál komu siðast út 6.
júní sl. og er það meira um þessar
mundir en um langt skeið. Aðstæð-
ur í þjóðarbúskapnum nú eru að
ýmsu leyti áþekkar þeim sem ríktu
á árunum 1999 og 2000. Töluverðar
sviptingar fylgdu í kjölfarið þegar
efnahagslífið leitaði jafnvægis á ný
á árunum 2001 og 2002. Ójafnvægið
er jafnvel meira nú: viðskiptahalli
meiri, raungengi hærra, íbúðaverð
lengra yfir langtímajafnvægi og
skuldsetning heimila, fyrirtækja og
þjóðarbúskaparins í heild töluvert
meiri." Greiningardeild Landsbank-
ans benti á að tónninn frá Seðla-
bankanum að þessu sinni er harðari
en áður og segir að svo virðist sem
bankinn sé staðráðinn í að viðhalda
aðhaldsamri peningastefnu með
meiri krafti en áður hefur komið
fram. Þá sé greinilegt að bankinn
hyggst endurheimta þann trúverð-
ugleika sem virðist hafa dvínað upp
á síðkastið. ■
m Blaiií/Frikki
I heimsókn i Húsdýragaröinum
Þessi snæugla sem fannst á Hólmavík fyrr í mánuðinum var helst til önug þegar Ijósmyndara bar að garði í Húsdýragarðinum í gær. Þar
sem hún er löskuð á væng verður vart sett út á það. Hún gaf sér þó smátíma til þess að brosa í myndavélina. Óvíst er hvort hún muni
ná sér að fullu en þangað til geta forvitnir kikt á hana í Húsdýragarðinum.
Enn sagt upp í
rækjuvinnslu
Öllum starfsmönnum rækju-
vinnslu íshafs á Húsavík verður
sagt upp frá og með morgun-
deginum. Líkur eru á að rækju-
vinnslu verði alfarið hætt i bæj-
arfélaginu ef rekstrarforsendur
breytast ekld til hins betra. Haít
er eftir Pétri Hafsteini Pálssyni,
stjórnarformanni félagsins, að
rækjuiðnaðurinn hafi um langa
hríð átt við mikla rekstrarerf-
iðleika að stríða sem stafa af
háu gengi, lágu afurðaverði,
sölutregðu, háu hráefnisverði
á iðnaðarrækju og algjörum
aflabresti á íslandsmiðum sam-
hliða mjög háu olíuverði. Fyr-
irtækið mun að öllu óbreyttu
hætta vinnslu á rækju þegar
uppsagnaffestur meginþorra
starfsmanna rennur út um
áramótin. „Fram að þeim tíma
mun stjórnin leita allra leiða
til að finna rekstrinum þann far-
veg sem ásættanlegur þyldr og
jafnframt að aðstoða það starfs-
fólk sem þess óskar að leita sér
að öðru starfi," segir Pétur.
Bensínmót-
mæli til
að trufla
þingmenn
Meðlimir í Kvartmíluklúbbn-
um hafa blásið til mótmæla
gegn háu bensínverði á hádegi
á morgun. Ætlunin er að vekja
athygli á háu bensínverði og
verða mótmæli vörubifreiða-
stjóra um verslunarmannahelg-
ina höfð til fyrirmyndar. í þetta
skiptið vonast þó þeir sem að
mótmælunum standa til þess
að tefja þingmenn á leið til
setningarathafnar Alþingis
sem hefst klukkan 13.30.
Auglýsið
í réttu Ijósi!
Ný auglýsingaljós, lýst með lasertækni sem gefur bjaita
og jafna áferð á allan flötinn.
Góð lausn fyrirJyrirtæki og
stofnanir sem vilja augiýsa
vörusýna ogþjónustuá
áberandi og smekklegan hátt
Stærðin
A2,420 x 595 x 30mm
A1,600x835x30mm
Örugg og góð þjónusta.
Upplýsingar í síma 553 5600.
RAFSOL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík • Sími 553 5600 • www.rafsol.is • rafsol@rafsol.is
Hœstiréttur:
Staöfesti 16 ára fangelsi fyrir morð
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkuryfir Hákoni Ey-
dal fyrir morðið á fyrrum sambýlis-
konu sinni, Sri Ramawati. Þar hafði
hann verið dæmdur í 16 ára fangelsi
auk skaðabóta til barna hinnar látnu
og greiðslu sakarkostnaðar.
Hákon var dæmdur fyrir mann-
dráp með því að hafa ráðist að fyrr-
um sambýliskonu sinni og veitt
henni lífshættulega áverka með því
að slá hana ítrekað í höfuðið með kú-
beini og kyrkja síðan með taubelti.
Hann viðurkenndi verknaðinn en
kvaðst hafa verið ósakhæfur. Réttur-
inn féllst ekki á það, kvað hann vera
fyllilega sakhæfan og hafa unnið til
refsingar með broti sfnu.
Við ákvörðun refsingar var litið
til þess að atlagan var heiftarleg og
meðferð hans á líkinu smánarleg.
Ennfremur var horft til þess að Há-
kon neitaði sök lengi framan af og
reyndi að villa um fyrir lögreglunni
við rannsókn málsins. ■
o Heiðskírt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað ^ Alskýjaö
!
Rigning, lítilsháttar V/' Rigning ") 1 Súld Snjökoma
7 *
*
XjJ Slydda Snjóél
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chlcago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vfn
Algarve
Dublin
Glasgow
13
25
12
10
14
13
13
14
18
26
23
06
12
23
11
17
15
10
14
25
17
15
3°
&
'//
/ //
//
/ //
&
// /
//'
///
5°
&
/ //
.P
7°
&
'//
/ //
f
///
///
///
///
t
///
6°///
Ámorgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýaingum trá Veóurstofu (slands
■0
/ //
0
4°