blaðið - 30.09.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Reuters um Írakstríðið:
Hersveitir hefta fjölmiðlafólk
Alþjóðlega fréttastofan Reuters hefur kvartað undan því að bandarískar hersveitir tak-
marki getu sjálfstæðra fréttamanna til að sinna starfi sínu.
Framkoma bandarískra hersveita í Irak
í garð fjölmiðlafólks kemur í veg fyrir
að almenningur í Bandaríkjunum fái ít-
arlega umfjöUun um styijöldina í land-
inu að mati alþjóðlegu fféttastofunnar
Reuters. I bréfi til John Warner, öldunga-
deildaiþingmanns repúblikana og
yfirmanns heraflanefndar öldunga-
deildarinnar, segir David Schlesinger,
yfirmaður hjá Reuters, að bandarískar
hersveitir takmarki getu sjálfstæðra
fréttamanna til að sinna starfi sínu.
Bað hann Warner ennffemur um að
taka máhð upp við Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
sem kom fyrir nefndina í gær.
Máh sínu til stuðnings vísaði Schles-
inger í fjölda tilvikaþar sem fféttamenn
hefðu verið drepnir, teknir höndum að
ósekju og/eða þurft að sæta illri með-
ferð af bandarískum hersveitum í Irak.
Hvatti hann Wamer til að biðja Rums-
feld um að leysa þessi vandamál á þann
hátt sem stefndi hvorki í voða lögmæt-
um öryggishagsmunum bandaríska
hersins né þeim lögmætu réttindum
sem blaðamenn á átakasvæðum njóta
samkvæmt alþjóðalögum. Að minnsta
kosti 66 blaðamenn og starfsmenn fjöl-
miðla hafa verið drepnir i írak síðan í
mars 2003. ■
Verkfall á Indlandi
Milljónir
leggja
niður vinnu
Starfsemi opinberra stofnana lamað-
ist og tafir urðu á flugumferð þegar
milljónir opinberra starfsmanna
lögðu niður vinnu á Indlandi í gær.
Með verkfallinu vildu verkalýðsfé-
lög mótmæla einkavæðingaáform-
um ríkisstjórnarinnar sem vill selja
fyrirtæki og flugvelli í ríkisseigu
auk þess að slaka á reglum um fjár-
festingar útlendinga í landinu. M.K.
Pandhe, verkalýðsleiðtogi, sagði
verkfallið í gær aðeins vera fyrsta
skref í frekari aðgerðum gegn áform-
unum. „Ef ríkisstjórnin tekur ekki
stefnu sína til gagngerar endurskoð-
unar, munum við standa að frekari
aðgerðum og lengri verkföllum,“
sagði Pandhe.
Flugvallarstarfsmaður í borginni Kolkata
mótmælir einkavæðingaráformum ríkis-
stjórnarinnar.
Alltaf Ijúffeogt
Frutti fit brauð
Trefjaríkt, próteinríkt, E-vítamín ríkt, kolvetnaskert
Innihald: epla/appelsínutrefjar, -melónu og graskerskjarnar, limesaft, sólkjarnafræ, hafrar, rúgsigtimjöl
'CÍ“'
-í i •-.V- - 'kS.
iyh*cjrcTi
Flóðvarna-
garður í
Feneyjum
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Italíu, ætlar að hrinda í framkvæmd
áformum um byggingu varnargarðs
til að koma í veg fyrir flóð í Feneyj-
um. Talið er að verkefnið komi til
með að kosta 5,2 milljarða Banda-
ríkjadala (um 330 milljarða króna).
Verkefnið er umdeilt en Berlusconi
sagði það vera „lausn á vandamáli
sem hafi alltaf verið til staðar."
Hreyfanlegir varnargarðar verða
byggðir á sjávarbotninum rétt fyrir
utan Feneyjar sem hægt verður að
reisa upp þegar flóð ógna borginni.
Gert er ráð fyrir að byggingu garðs-
ins verði lokið fyrir árið 2011.
Umhverfisverndarsinnar hafa
mótmælt áætlununum sem upphaf-
lega voru samþykktar af ríkisstjórn-
inni. Þeir segja að garðurinn muni
breyta Feneyjum í fúlan pytt en
stuðningsmenn verkefnisins segja
það nauðsynlegt til að koma í veg
fyrir frekari flóð. ■
Slökkviliðsmenn berjast við skógareld I
nágrenni Los Angeles í Kalifornfu f gær.
Skógareldur
í Kaliforniu
Að minnsta kosti eitt hús eyðilagð-
ist og fjöldi fólks þurfti að yfirgefa
heimili sín í skógareldi í nágrenni
Los Angeles í Kaliforníu í gær.
Vegna mikils vindstyrks breiddist
eldurinn á stuttum tíma yfir meira
en 9300 ekrur skóglendis. Hundruð
slökkviliðsmanna börðust við eld-
inn og slasaðist einn þeirra þegar
hann fékk grjóthnullung í höfuðið.
Slökkvistarfið gekk seint og illa
enda hvasst á svæðinu og heitt í
veðri.