blaðið - 30.09.2005, Side 14

blaðið - 30.09.2005, Side 14
blaðid ; Útgáfufélag: Árogdagurehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. HRÓÐUR ÍSLANDS Islendingum hefur löngum verið umhugað um hróður landsins er- lendis. Þannig á íslenskan hið einstæða orð „landkynning“ og al- kunn er sú spurning, sem allir erlendir ferðamenn þurfa að þola, þó þeir hafi jafnvel ekki náð að stíga af landgangnum á íslenska grundu. Takist þeim það án þess að formæla landi og þjóð fá þeir jafnan nafnbót- ina íslandsvinur. Af sama meiði er sprottinn fréttaflutningur í íslensk- um fjölmiðlum af því hvað erlend stórblöð - eða héraðsfréttablöð ef því er að skipta - greina frá um Island og það sem íslenskt er. Sannast þar hið fornkveðna, að litlu verður Vöggur feginn. Þegar leið að birtingu ákæra í Baugsmálinu voru erlendir fjölmiðlar mjög vakandi í málinu, hingað til lands komu útsendarar enskra stór- blaða og samband sakborninga við þá var með þeim hætti að íslenskir blaðamenn þurftu að lesa Lundúnablöðin til þess að vita hvað var að gerast undir nefinu á þeim. Þegar héraðsdómur vísaði ákærunni svo frá i heild sinni fór fréttin sem lok yfir akra heimsbyggðarinnar. Það er hins vegar með ólíkindum að erlendis hafa engar fregnir borist af gerningaveðri því, sem geysað hefur hérlendis undanfarna viku. Ekki stafur. Nú er það er skiljanlegt að áróðursmeistarar Baugs hafi ekki vilj-. að vekja athygli á þeim vinnubrögðum, en hitt er einkennilegra að frétta- ritarar erlendra fréttastofa hafa ekki heldur flutt af því fréttir. Vera má að þessi þögn sé af hinu góða fyrir hróður Islands, en fram til þessa hefur Baugsmálið vakið efasemdir um siðferði íslenskra viðskipta- víkinga og málsvörn Baugsmanna á opinberum vettvangi verið helst til þess fallin að veikja tiltrú á íslensku fjárfestingaumhverfi. Liðin vika var svo vægast sagt engum til framdráttar, hvorki þeim, sem þar tókust á, né öðrum Islendingum, sem fylgdust forviða með. Kannski það beri að líta á hvell síðustu viku sem ákafa fjölskyldudeilu íslensku þjóðarfjölskyldunnar. Þá má vera að þegjandi samkomulag hafi tekist um það að halda deilunni innan veggja heimilisins. Innmúraðri væntanlega. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Glæsilegt úrval af haustfatnaði á 14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaðiö MEndaþarmsblaðamennskaM Þegar 365 prentmiðlarnir fara yfir strikið í fréttaflutningi sínum koma alltaf fram á sjónarsviðið sömu mennirnir til að réttlæta gerðir þess- ar. Einn þeirra er Eiríkur Jónsson sem vann á Hér og nú og fékk litlar þakkir fyrir birtingu frétta af einka- málum Bubba Morthens og Brynju Gunnarsdóttur í því tímariti fyrr á þessu ári. Þá ofbauð þáttagerða- og fréttamönnum á Stöð 2. Þeim virð- ist síður brugðið nú þegar ráðist er að friðhelgi einkalífs Styrmis Gunn- arssonar og Jónínu Benediktsdóttur með jafn ósmekklegum hætti og raunin var síðastliðinn mánudag á forsíðu DV. Kannski er líka minna í húfi fyrir Stöð 2 núna. Bara Styrmir og Jónína Ben sem hvorugt trekkja að fyrir Stöð 2 í Idolinu eins og Bubbi hefur gert tvö síðustu ár og gerir væntanlega í vetur. Þegar Styrmir og Jónína Ben eiga hlut að máli er allt í lagi að brjóta allar reglur um póstleynd og ráðast að friðhelgi einkalífs. Það er líka í lagi að ráðast að sökuðum mönnum dag eftir dag eins og DV gerði í máli Gunnars Arnar Kristjánssonar, end- urskoðanda og fyrrum forstjóra SlF, sem mátti þola óvæginn og illkvitt- inn fréttaflutning þegar mál hans var til meðferðar fyrir dómstólum. Minna var hins vegar fjallað um af- drif þess máls. Guðmundur Magnússon, blaða- maður á Fréttablaðinu, taldi rof blaðsins á póstleynd um síðustu helgi nauðsynlega í þágu almanna- heilla. Það er viðurkennt að ríkisvaldið getur stundum skert stjórnarskrár- bundin mannréttindi í þágu al- mannaheilla. Slíkar skerðingar get- ur ríkið þurft að bæta. En þó að ríkið geti skert mannréttindi í þágu al- mannaheilla er ekki þar með sagt að 365 prentmiðlar geti það til að þjóna hagsmunum eigenda sinna, sem nú sæta ákæru eins og reyndin var með Gunnar Örn Kristjánsson. Eig- endur 365 prentmiðla kunna að vera stærri en íslenska ríkið á peningaleg- an mælikvarða en þeir lúta engu að síður enn íslenskri stjórnskipan og réttarreglum að öðru leyti. Eftir afrek sín á Hér og nú fór Eirík- ur Jónsson yfir á DV sem ritstýrt er af Jónasi Kristjánssyni. Jónas þessi taldi sig á árum áður sómakæran og háttvísan blaðamann. Hann taldi Ei- rik þá með óvönduðustu og ómerki- Sigurður G. Guðjónsson legustu blaðamönnum Islands og kallaði blaða- og fréttamennsku hans „endaþarmsblaðamennsku". Slík væri lágkúran í fréttaflutningi Eiríks. Nú eru þeir á sama báti og stunda endaþarmsblaðamennsku sem ritstjóri og blaðamaður undir handleiðslu Gunnars Smára Egils- sonar, sem einmitt er þekktur fyrir hana og hefur í gegnum tíðina ekki hikað við að spinna upp fréttir um menn og málefni þjónaði það öf- und hans og illkvittni; öfund og ill- kvittni sem jaðrar við það sem kalla má „dyravarðakomplex". Gunnar Smári öfundaðist sérstak- lega mikið út í Jón Ólafsson í Skíf- unni hér á árum áður og reyndar flesta sem komust eitthvað áfram í samfélaginu. Reyndi hann þá allt hvað hann gat til að hafa af þeim æruna. Sem betur fer brugðust sum fórnarlamba Gunnars Smára við of- sóknum hans og fengu hann dæmd- an fyrir óþverraskapinn, róginn og lygarnar. Gunnar Smári, sem bara hafði rekið blöð sem fóru á hausinn þar til hann náði Fréttablaðinu með brögð- um af vinnuveitanda sínum, sem þá átti í vök að verjast, reyndi til dæmis að koma því orði á Jón Ólafsson að hann væri dópsali og allir sem stund- uðu viðskipti væru í raun óheiðarleg- ir, ef ekki hreinlega glæpamenn. Nú er öldin önnur og því skal kom- ið inn hjá þjóðinni hvað sem það kostar að velgjörðarmaður Gunnars Smára, Jón Ásgeir Jóhannesson, sé sómapiltur sem sæti árásum óheið- arlegra, svikulla og spilltra stjórn- málamanna, lögmanns og ritstjóra fjölmiðils sem Jón Ásgeir hefur ekki enn náð að gefa honum hlut í og Smárinn fær því ekki ritstýrt í gegn- um farsíma sinn. Höfundur er útgefandi Blaðsins. Klippt & skorið Tölvupóstur Jónínu Benediktsdótt- ur hefur Iftillega verið tilumræðuund- anfarna daga. Hann var hýstur hjá Og Vodafone áðuren hann rataði með einhverjum hætti á síður Fréttablaðsins, en fyrirtækin eru bæði í eigu Baugsmanna. í framhaldi af þessari umræðu hef- ur slagorð fyrirtækisins vakið athygli þeirra sem aka framhjá höfuð- stöðvum þess. Þar stendur letrað „.. .og hvað segir þú" en sumum finnst nær að þar stæði „...og hvað sendirþú?" Pær fréttir að Logi Bergmann Eiðs- son hefði ákveðið að hætta hjá RÚV og færa sig yfir til Stöðvar 2 komu mörgum i opna skjöldu. Þetta mun hins veg- ar ekki í fyrsta sinn sem Stöð 2 sækist eftir starfskröftum Loga, enda einn vinsælasti sjónvarpsmaður lands-1 ins. Sagan segir að j það hafi gerst tvisvar áður, en Logi hafi þá j rætt það við yfirmenn I sína hjá RÚV, sem þá hafi boðið betur til þess að halda honum. Að þessu sinni fór þetta þó öðruvísi, því nú er Páll Magnússon f stóli útvarpsstjóra og sá kannað- ist Ifklega við aðferðina. Hann tók þvf ekki þátt f uppboðinu um Loga. klipptogskorid@vbl.is „ViS komu mina til landsins á þriðjudaginn sá ég forsíðufrétt DV 26. september. Mér finnst hún vera langt utan við það sem réttlætanlegt er. Um leið og ég lýsi sárum vonbrigðum mín- um með „fréttina" þá vona ég að hérhafi verið ummistökaðræða." JÖHANNES JÖNSSON, LESENDABRÉF [ FrÉTIABLAÐINU 29-09.2005. Jói í Bónus vonar að þarna hafi verið um mistök hjá DV að ræða, en er þó ekki viss í sinni sök. Getur verið að hann óttist að þar sé eitt- hvað annað á ferðinni en mistök? Bragð er að þá barnið finnur!

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.