blaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 18
18 I BCSTI BITINN
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Skyndttokur í dagsins önn
í þessu hraða þjóðfélagi sem við lifum í virðist einn helsti vandi margra vera sá að þeir gleyma því sem skiptir
mestu máli - að borða. Margir segjast hreinlega ekki gefa sér tíma og sleppa því þá að borða heilu og hálfu dagana
en gúffa 1 sig heilli máltíð seint á kvöldin - allir vita nú að það er ekki hollt fyrir líkamann.
Úrvalið af alls kyns skyndibitum sem hægt er að kaupa tilbúna í næstu sjoppu eða matvörubúð hefur aukist gríð-
arlega síðustu ár. Matarbiti sem fljótlegt og hentugt er að grípa með í amstri dagins, bæði hollustubitar og eitthvað
meira „djúsf fyrir hina sem eru ekki að hugsa eins mikið um línurnar - allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Auk heföbundnu salatsamlokanna, sem standa þó alltaf fyrir sínu, er hægt að fá samlokur og hyrnur með afar fjöl-
breyttu áleggi, tortillavafninga, pastabakka og svona mætti lengi telja. Mikið úrval er af hyrnum með kjúklingi sem
koma í alls kyns útgáfum. Blaðið fór á stúfana og bragðaði á nokkrum kjúklingahyrnum úr ýmsum áttum.
Suðræn og seiðandi
Kjúklingasamlokan með rauðu
pestói frá Sóma er virkilega ljúffeng.
Pestóið gefur samlokunni suðrænt
og seiðandi bragð. Kornbrauðið er
mjúkt og bragðgott auk þess sem
möndlurnar koma með skemmti-
lega milt bragð á móti bragðsterku
pestóinu. Salatið er brakandi ferskt
og gott, greinilega fyrsta flokks
hráefni. Mikið góðgæti fyrir alla þá
sem vilja öðruvísi bragð.
Góð thaisósa
Thai kjúklingasamlokan frá Júm-
bó er sérstaklega bragðgóð. Kjúk-
lingurinn er vel kryddaður og thai-
sósan hentar einstaklega vel með
kjúklingnum. Góð hugmynd hjá
þeim hjá Júmbó að hafa möndlur á
samlokunni, það gaf skemmtilegt
aukabragð. Á samlokunni er auk
kjúklingsins, möndlur, íssalat og
paprika. Brauðið spilar líka stóra
rullu í góða bragðinu - það er með
sólþurrkuðum tómötum. Hreint
hnossgæti.
Karrý sem kitlar
Delí samlokan frá Hagkaupum með
kjúklingi og rauðu karrí er fersk. Sal-
atið sem á samlokunni var ferskt og
bragðgott, kjúklingurinn er nýr og
sósan passlega mikil. Rauða karr-
íið gefur framandi bragð sem kitlar
bragðlaukana - mætti vera meira
af því til að daðra við bragðlauk-
ana enn frekar. Brauðið er ákaflega
mjúkt undir tönn, nýbakað brauð
hér á ferð.
„Djúsí“ og girnileg
King Arthur samlokan með kjúk-
lingi og beikoni er ein sú mest „djú-
sí“ af þessum samlokum. Glænýtt
franskbrauð, beikon, kjúklingur,
sinnepssósa, tómatar og sýrðar
gúrkur gera samlokuna einstaklega
gómsæta og tilvalda fyrir nautna-
seggi sem eru mikið fyrir vel útilátn-
ar samlokur. Tómatarnir koma með
skemmtilegt mótvægi við kjötið og
sósuna - gera samlokuna ferska og
létta.
Hollt brauð
Kjúklingasamlokan frá Nóatúni er
með léttkjúklingaskinku, pítusósu
og grænmeti. Maltað heilsubrauð-
ið gefur samlokunni mjög heilsu-
samlegan blæ - einungis pítusósan
hindrar að hér væri hinn hollasti
heilsubiti. Hráefnið var mjög gott
og þá sérstaklega brauðið sem hrein-
lega kallaði trefjar. Magn sósunnar
mætti minnka töluvert.
VIÐ ERUM AÐ FLYTJA!
OPNUM NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN
AÐ ASKALIND 2A - NÚNA í OKTÓBER
HÚSGAGNAVERSLUN