blaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 26
26 I VEÍÐI
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Gœsaveiði íýrír byrjendur
Vesturröst
Sérverslun veið i m annsins
Laugavegi 178-105 Reykjavík
Slmar 551 6770 & 553 3380 - Fax 581 3751
rrost@mmedia.is - www.uesturrost.is
-------------------------
Rjúpnavesti
Rjúpnavesti sérhannað fyrir íslenskar aðstæður úr sterku öndunarefni,
púöar yfir axlir, tveir pokar fyrir fugl aö aftan og framan, hólf fyrir auka-
fatnaö og nesti, tveir vasar fyrir skot, tveir vasar fyrir GPS, talstöövar eöa
annan aukabúnað. Allir vasar meö rennilás og frönskum rennilás.
Vandaö og gott vesti. Litir: svart og rautt, svart og olive.
2. Stilla gervigæsum rétt upp.
Gæsin lendir alltaf upp í vindinn og það er nauðsynlegt að hafa það í huga
þegar gervigæsum er stillt upp. Það er líka mikilvægt að hafa hæfilegt pláss á
milli hópa sem og gott lendingarpláss fyrir gæsina.
3. Skjóta á réttum tíma.
Mikilvægt er að skjóta á réttum tíma og augljóslega að hitta. Það á að skjóta
áður en gæsin fer yfir veiðimanninn og helst í 10 til 20 metra færi. Alltaf á að
nýta tækifæri ef gæsin kemst í færi og því á ekki að leyfa gæsinni að hringsóla
of mikið.
Gæsir eru oft sýnd veiði en ekki
gefin. Margir hafa kúrt ofan í
skurði eða í felubyrgi við tún sem
flesta daga er svart af gæs - ein-
göngu til að horfa á hana fljúga
framhjá eða yfir án þess að sýna
túninu nokkurn áhuga þennan
tiltekna morgun. Fyrir þá sem
ekki þekkja vana veiðimenn sem
geta aðstoðað við fyrstu skrefin
í gæsaveiðinni getur það tekið
mörg ár og fjöldann allan af veiði-
ferðum að læra hvernig best er að
haga sér, stilla upp gervigæsum
- stunda gæsaveiði þannig að hún
skili árangri.
Þekking sem berst milli kynslóða
Formleg kennsla í gæsaveiði hefur
fram að þessu verið algerlega óþekkt
fyrirbæri. Þetta er þekking sem oft-
ar en ekki gengur frá föður til son-
ar, eða eldri frænda til þess yngri.
Menn hafa þurft að reiða sig á leið-
beiningu einhvers sem þeir þekkja
- annað hefur ekki verið í boði. Veiði-
maðurinn Róbert Schmidt ákvað
hins vegar í sumar að kenna veiði-
mönnum réttu handbrögðin í gæsa-
veiðinni. Hann auglýsti námskeið
og nú er svo komið að fullbókað er á
fimm slík. Það fyrsta var haldið um
síðustu helgi.
Prjú góð ráð fyrir gæsaskyttur
Gæsaveiðin er að því leyti ólík annarri fuglaveiði hér á landi að veiði-
menn arka ekki um heiðar til að leita að bráðinni, heldur er legið fyrir
henni. Það er mjög mikilvægt að fæla gæsina ekki frá sér og að koma
öllu haglega fyrir þannig að gæsin álpist nú í færi við veiðimanninn. Hér
fyrir neðan fylgja þrjú góð ráð frá Róberti Schmidt fyrir þá sem hyggja á
gæsaveiði á næstunni.
I.Felduþig vel.
Ef gæsin kemur auga á veiðimann er augljóst að hún lætur sig hverfa um leið.
Það er því mikilvægt að fela sig vel. Þar koma feluskýli sér vel, sem og réttur
fatnaður.
Verð kr 12,900,-
Fyrsta námskeiðið vel heppnað
Eins og áður segir var fyrsta nám-
skeiðið af fimm haldið nú um heg-
ina. Það var sjö manna hópur sem
það sótti en tveir boðuðu forföll.
„Bóklega námskeiðið gekk augljós-
lega mjög vel enda engir óvissuþætt-
ir þar. Hvað veiðina varðar þá var sól
þennan morgun sem er óhentugasta
veðrið fyrir gæsaveiði. Við fengum
þó nokkur flug inn og heildarveiði
dagsins varð að lokum sex fuglar
- fimm blesgæsir og ein grágæs. Það
er nokkuð vandasamt að fara með
þetta stóran hóp. Með í för voru yf-
ir íoo gervigæsir og fjögur feluskýli.
Það voru hins vegar allir mjög sáttir
við afrakstur ferðarinnar og ég tel
að námskeiðið hafi skilað tilætluð-
um árangri, sem er að veiðimennirn-
ir geti farið óstuddir í næsta leiðang-
ur,” segir Róbert.
Það kom honum hins vegar örlítið
á óvart að það voru ekki bara byrj-
endur sem sóttu námskeiðið.
„Felstir eru byrjendur en þarna
voru líka einstaklingar sem höfðu
stundað slíkar veiðar áður en vildu
einfaldlega fara með einhverjum
sem hafði reynslu til að skerpa á
kunnáttunni og rifja upp.” ■
Þátttakendur á námskeiðinu búnir að koma sér fyrir við kornakurinn.
„Ég skipti námskeiðinu í tvennt” ur. Þar er farið i hvernig stilla á upp
segir Róbert. „Fyrri hlutinn er tek- gervigæsum og mönnum er kennt
innáfimmtudegiogeríraunbókleg- að flauta í gæsaflautu. Einnig er
farið yfir búnað og veiðitækni sem
og hvar gæsin heldur sig. Morgun-
inn eftir er síðan farið með hópinn
á kornakur í nágrenni Reykjavíkur
þar sem hópurinn notar þá kunn-
áttu við raunverulegar aðstæður,”
segir Róbert.
EXPRESS
ELEY
SPORTVORUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383