blaðið - 30.09.2005, Síða 31

blaðið - 30.09.2005, Síða 31
blaöið FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 ÍÞRÓTTIR I 31 Handboltinn umhelgina Um helgina verður leikið í DHL-deild karla og kvenna á íslandsmótinu í handknattleik. í kvennaflokki eru fjórir leikir á morgun. Klukkan 14.00 mæt- ast Víkingur og FH í Víkinni og fimmtán mínútum síðar hefst leikur Fram og Gróttu í Framhúsinu. Klukkan 16.15 eru svo tveir leikir. Stjarnan og ÍBV leika í Garðabæ og Valur mætir KA/Þór í Laugardalshöll. {DHL-deild karla eru fimm leikir um helgina. Á morgun eru íjórir leikir og verða þeir allir flautaðir á klukkan 16.15. lR og Selfoss leika í Austur- bergi, Víkingur/Fjölnir tekur á móti KA í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi, Afturelding og Þór Akureyri leika í Mosfefísbæ og Fram mætir Fylki í Framhúsinu. Á sunnudagskvöld klukkan 19.15 mætast svo HK og Stjarn- an í Digranesi í Kópavogi. Þegar þrjár umferðir eru búnar er eitt lið með fullt hús stiga og það er Fram. KA er í öðru sæti með 5 stig og síðan koma fjögur félög með 4 stig, Haukar, IR, Valur og Fylkir. Víkingur/Fjölnir og FH eru einu hðin sem enn hafa ekki hlotið stig á Islandsmótinu. ■ Bolton komstáfram Enska úrvalsdeildarliðið Bolton Wanderes, sem leikur þetta árið í fyrsta sinn í Evrópukeppninni, komst í gær áfram í Evrópu- keppni félagsliða. Bolton vann búlgarska hðið Lokomotiv Plovdiv 1-2. Bolton vann fyrri leikinn 2-1 á Englandi og því var búist við erfiðum leik hjá þeim ensku í gær. Það leit ekki vel út fyrir Bolton eftir 51 mínútu þegar Iliev skoraði fyrir heimamenn og ef það hefðu orðið úrslitin þá hefði Bolton faUið úr leik. Heimamenn urðu svo fyrir því áfaUi að skora sjálfsmark ellefu mínútum fyrir leikslok og það var síðan Kevin Nolan sem innsiglaði sigur Bolton með marki fjór- um mínútum fyrir leikslok. ■ GrétaMjöll með fjögur mörk Landslið kvenna í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann í gær annan stórsigur sinn í undankeppni Evrópumótsins þegar það vann landshð Bosníu/Her- segóvínu. Leikurinn endaði 5-0 fyrir Island en leikið var í Bosníu/Hersegóvínu. Gréta Mjöll Samúelsdóttir átti stórleik í liði Islands og skoraði fjögur mörk og Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt mark. Þar með er ísland öruggt með sæti í mflliriðli en Island og Rúss- land eru efst í þessum riðh með 6 stig. Þjóðirnar mætast á morgun. Rússland vann lið Georgíu í gær með ótrúlegum yfirburðum. Lokatölur urðu 21- 0 fyrir Rússland en ísland vann Georgíu 7-0. ísland verður því að vinna Rússland á morgun tfl að verða í efsta sæti riðUsins. Úlfar hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Blika Lið Breiðabliks í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu vann tvöfalt í ár, varð Is- lands-og bikarmeistari og það var nokk- uð sem knattspymuáhugamenn bjugg- ust ekki alveg við fyrir mót. En Úlfar Hinriksson og stelpurnar hans léku feykivel í sumar og því ætluðu margir að það væri formsatriði fyrir Úlfar að fá endurnýjun á samningi sínum við Breiðablik. Því er nú ekki svo farið og enn hefur ekki verið skrifað undir ffamlengingu á samningi við Úlfar Hinriksson. Það hefur valdð upp marg- ar spurningar meðal leikmanna og for- ráðamanna hðanna í LandsbankadeUd kvenna og menn spyrja af hverju er ekki búið að skrifa undir nýjan samn- ing? VUl Úlfar ekki endurnýja? VUl Breiðablik ekki endurnýja? Eða voru einhverjir samstarfsörðugleikar í sum- ar sem eru þess eðlis að aðUar geti ekki starfað áff am saman? „Ég lýsti yfir áhuga á að vera áfram. Minn samningur er tU 15. október. Fyr- ir hálftun mánuði áttum við fund sam- an og þar var bara almennt spjaU um sumarið og ýjað að næsta tímabUi. Ekk- ert var neglt niður.“ Hafa önnur hð rætt við þig? „Já, en ég bíð effir Breiðabliki fyrst. Ég er að vinna sem starfsmaður fyrir unglinga- ráð Breiðabkks og hefverið yfirþjálfari undanfarin þrjú ár. Það er ágætt að vera hér en ég hef verið hér í 10 ár að þjálfa”, sagði Úlfar Hinriksson þjálfari Islands- og bikarmeistara Breiðabliks um hvort væri búið að framlengja samning hans við Breiðablik. Kari Brynjólfsson er formaður meist- araflokksráðs kvenna hjá Breiðabliki. „Það er bara verið að vinna í þessum málum eins og staðan er akkúrat í dag. Það á eftir að klára lokahófið. Þetta tek- uraUtsinntíma.“ Er vUji hj á ykkur að hafa Úlfar áffam? „Við erum bara að skoða þetta aUt sam- an. Þeir voru tveir þjálfararnir, hann og Björn Bjömsson og við eigum bara eftir að setjast yfir þetta.“ Er ekki einhugur að ráða hann áffam? „Ég get bara ekki svarað þessu að svo stöddu. Þetta kemur aUt í ljós í næstu viku,“ sagði Karl Brynj- ólfsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Breiðabliki, um það hvemig staðan væri á samningamálum við Úlf- ar Hinriksson þjálfara hðsins. ■ LIVEPPOOL CHEtSEA A VELLINUM MEÐ SNORRA MA ALLTAF Á LAUGARDÖGUM AÐ LEIKSLOKUM HELGARUPPGJOR ASUNNUDÖGUM KL 21.00 LEIKIR HELGARINNAR LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 14.00 Charlton • Tottenham (b) 13.55 Fulham - Man.Utd EB2 |b) 13.55 Portsinouth - Newcastle EB3 (b) 13.55 Blackburn - West Brom EB4 (b) 16.15 Sunderland - West Ham (b) SUNNUDAGUR 2. OKTOBER 10.10 Man.City - Everton EB2 (b) 12.10 Arsenal - Birmingham (b) 11.55 Wigan - Bolton EB3 (b) 12.55 Aston Villa - Middlesbrough EB2 (b) 14.40 Liverpool - Chelsea (b) TRYGGÐU PÉR ÁSKRtFT I SÍMA 800 7000. Á WWW.ENSKI.IS EÐA í NÆSTU VERSLUN SI'MANS. EfíSHI h B O L TIN ICELANDAIR #.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.