blaðið

Ulloq

blaðið - 30.09.2005, Qupperneq 38

blaðið - 30.09.2005, Qupperneq 38
381FÓLK FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaöiö SMAborcrarinn FORRÆÐISHYGGJA SEM VIRKAR EKKI Þegar Smáborgarinn flutti til lands- ins eftir að hafa búið erlendis í nokk- ur ár fór hann niður í bæ á laugar- dagskvöldi klukkan tíu og furðaði sig á því að bærinn væri tómur. Ekki var nú minnið betra en svo að hann mundi ekki að auðvitað fara íslendingar ekki út að skemmta sér nema að þeir séu búnir að hella sig fulla áður. Áfengi er nefnilega svo dýrt og það er miklu ódýrara að drekka heima og fara svo niður í bæ þegar allir eru orðnir of ölvaðir. Reyndar er það svo að þegar fólk er komið niður í bæ eru flestir orðnir of fullir til að muna hvað áfengið er dýrt og hversu miklu er eytt og öllum er sama þegar á hólminn er komið. Smáborgaranum finnst ís- lendingar ekki drekka minna en aðrir þrátt fyrir öll bönnin, alla vega virðist svo vera þegar farið er niður í bæ eftir miðnætti því þá er bærinn orðinn fullur af ofurölvuðu fólki. Hér á landi eru lög og reglur strangari en á flestum öðrum stöð- um og málefnið er viðkvæmara en víðast hvar. Ekki er nóg með að dropinn sé dýr heldur er eingöngu hægt að nálgast hann í verslunum sem reknar eru af ríkinu og því þarf að plana með fyrirvara þegar ákveðið er að neyta áfengis og reik- na út hversu mikið á að kaupa. Það er því þannig að ef einhvern langar að neyta áfengis heima hjá sér eft- ir klukkan sex þá er orðið of seint að stökkva af stað út í búð því það rikir ákveðin hræðsla um að allir Islendingar verði áfengissjúklingar ef slakað verður á reglunum. Smá- borgarinn hlær oft að því í dag að það séu ekki nema rúm tíu ár síðan bannað var að selja bjór og verður hálf vandræðalegur þegar útlend- ingar spyrja út í málið. En getur ekki verið að enn séu svipaðar regl- ur við lýði sem við eigum eftir að hlæja vandræðalega að í framtíð- inni? Smáborgarinn veltir því fyrir sér hvernig standi á því að íslend- ingar séu þekktir fyrir að drekka meira en íbúar margra annarra þjóða þó annars staðar sé áfengið miklu ódýrara og hægt að kaupa það í matvöruverslunum. Smáborg- arinn heldur að ástæðan fyrir því að íslendingar drekki helmingi meira en aðrir sé sú að áfengisverð- ið sé svo hátt. Þá er drukkið bæði heima og svo eftir að komið er nið- ur í bæ. Því heldur Smáborgarinn að forræðishyggja stjórnvalda virki öfugt á fólk því það má velta því fyrir sér hverjum sé verið að bjarga með háu verði áfengis. Smáborgar- inn heldur að ef fólk ætlar sér að drekka þá geri það það þrátt fyrir hátt verð. Ekki virðist háa verðið á áfengi hafa haft áhrif á drykkju- neyslu í landinu, alla vega virðist fjöldi fólks leita sér aðstoðar vegna vandamála tengdum drykkju. Smá- borgaranum leiðist þessi aðferð við að reyna að stjórna fólki og er sann- færður um að forræðishyggja af þessu tagi virki ekki nema síður sé. SU DOKU talnaþraut 62. gáta 4 2 8 3 5 9 5 4 2 4 _ 5 1 9 7 1 2 9 7 2 1 8 8 6 5 4 3 4 6 8 9 Lausná62. gátu verður að finna i blaðinu á mánudag Lausn á 62. gátu lausn á 61. gátu 7 8 3 6 9 2 5 4 1 1 6 5 7 8 4 9 2 3 4 2 9 3 1 5 7 6 8 8 9 6 1 5 7 4 3 2 2 4 1 9 3 8 6 7 5 5 3 7 2 4 6 1 8 9 6 5 2 8 7 1 3 9 4 3 7 4 5 2 9 8 1 6 9 1 8 4 6 3 2 5 7 Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölu- num frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. 1.SÆTI METSÖLULISTA Kate Moss i meðferð Fyrirsætan Kate Moss hefur tilkynnt að hún sé búin að skrá sig í meðferð. Eins og frægt er orðið þá voru tekn- ar myndir af henni að sniffa kóka- ín í síðustu viku. Hún er sögð hafa flogið til eyðimerkur í Arisona þar sem hún ætli að dvelja í einangrun frá umheiminum og án samskipta við alla. Hún hefur valið Meadows meðferðarheimilið en þangað hef- ur margt frægt fólk farið og má þar nefna söngkonuna Whitney Hou- ston. Þetta er tilraun Kate Moss til að ná sér á strik og breyta lífstíl sín- um en hún hefur misst marga samn- inga út af eiturlyfjaneyslu sinni. ■ Stökustund í umsjón Péturs Stefánssonar Sigrún Erla botnar: Hans er lundin greypt ígrjót gleðin sundur slitin. Nú um stundir leið og Ijót líkt oghundtík bitin. Rúnar Kristjánsson frá Skagaströnd: Öll við bundin ólánsrót œvistundin litin. Jónas Frímannsson: Veittist undá vinstra fót var afhundi bitinn. Auðunn Bragi Sveinsson: Allt í tundri, engin bót, ornar mundu svitinn. Rúnar botnar áfram: Lífið er ágætt svo erað sjá, það sést á þessu’og hinu. Þaðfinnst hverjum þeim sem á þokkafulla vinu. Sigrún Erla: Gleðinnar nýt ég meðan ég má mestþó afkvenfólkinu. Jónas Frímannsson: Gullna voga glampar á í glaðasólskininu. Sveinn Auðunsson: Horfin er loksins höndin blá herjans úrþinghúsinu. Magnús Hagalínsson: í draumi sigldi égsundin blá ogstefndi að takmarkinu. Auðunn Bragi Sveinsson: -þó að grænu grösin smá gráni, verði að sinu. Auðunn Bragi yrkir: Komið er nú kuldahaust, -kannski leynist draugur. Fjarri, að séfréttalaust; fyrir því sér Baugur. Rúnar Kristjánsson frá Skagaströnd yrkir: Eru að leggja aðýmsu drög út um borgarlendur; þeirsem GíslaMartein mjög mæra nú sem stendur. Erþar horft á ungan mann, ekki á reynslu ogfestu. Bak við eyrun bæði er hann blautur enn að mestu! Rúnar yrkir: Stefnu þá sem arðrán er ærleg hugsunfær ei stutt. Stendur samt á stalli hér stóriðjunnar Gilitrutt. Um Baugsmálið yrkir Rúnar: Riða á grunnum glæstar hallir, glatast sitthvað fleira. Baugs við málin mæðast allir, máþað sjá og heyra. Öndverðir þar ernir klóast, yfirráðagjarnir. I skaðabœtur síðan sóast símapeningarnir! Jónas Frímannsson yrkir: Slyngur labbar langa slóð, lífs í kvabbi refur. Aldrei gabbað okkar þjóð Oddsson Dabbi hefur. Áfram um Davíð, Pétur yrkir: Davíð enn til dáða brýst, dvelur nú við Arnarhól. -Einhversstaðar verða víst vondir menn að sitja’ístól. Enn yrkir Pétur: íhald hefurýmsa blekkt, öreiga og ríka. Siðferðið er svakalegt, Seðlabankinn líka. fslendingar eru meðal þeirra þjóða sem stoltastir eru af þjóð- erni sínu. Pétur tekur undir það: Aldrei hefég eignast nóg, oft afhungri soltið. Imér bærist ávalltþó íslendinga stoltið. Pálmi Ingólfsson frá Fagrabæ yrkir: Undarleg er okkar stjórn ei má leyna slíku. Snauða læturfæra fórn fyrir hina ríku. Fyrripartar: Baugsmálið er býsna frekt t blöðum þessa daga. í valdastríði vaknar níð er veldur tíðum skaða. V.L. sendi þennan: Styttast dagar dimmir skjótt dofnar hagur margra. Botnar, vísur og fyrripartar sendist til: stokustund@vbl.is eða á: Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) á* Þú nærð góðum tengslum við fólk í vinnunni og ættir að kynna þér málin til að ná markmiðum þínum. Þú færð jákvæða athygli frá einhverjum V Það virðist sem þú eigir í leynilegu sambandi við einhverja sem að ráða öllu. Það er enginn tími til að pirrast út í bað en þér verða gefnar upplvsing- ar við hvern er best að hafa samband svo arífðu þigaf stað. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) 3 Það gæti litið út fyrir að þú hafir verið út úr heiminum í einhvern tíma því allt virðist ffekar erfitt þessa stundina. Ekki hafa áhvggjur af því,því ef einnver getur höndlað málin þa ert það þú. V Þér hefur verið kippt niður á jörðina og það er fyrir bestu. Þú þarft að skoða í kringum þig nvaða fölk þú átt við og reyna að fá viðbrögð hjá þeim. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) $ Ekki hafa of miklar áhyggjur þó þú hafir ekki miklar upplýsingar. Þú þartt að halda þínu striki í vinnunm og reyna að gera aðeins betur ef eitthvað er. V Stundum er ekki eott að vita of lítið um mál- in og jafnvel betra að Iáta sem þú vitir ekkert um ákveoin mál ef þú vilt ná einhverju fram. Hrútur (21. mars-19. apríl) 3 Reyndu að hjáipa vinnufélögum þínum við skipulagningu. Þú sérð að hann parfnast þinnar aðstoðar, reyndu að vera eins diplómatísk eins og þú getur. V Það er kominn tími til að koma hreint fram við einhvern náinn þér. Vertu viðbúin/n og veldu orðin og stund og stað gaumgæfilega. Naut (20. apríl-20. maí) $ Þú átt gott samstarf við fólk í kringum þig og þú segir alltaf réttu hlutina á réttum tíma. Þetta er rétti tíminn til að skara fram úr. V Nú er rétti timinn til að sýna sig. Stfllinn þinn á eftir að vekia eftirtekt og ef þú ert að leita eftir ástarsambanai þá er þetta rétti tíminn. ©Tvíburar ... (21. maí-21..júní)..... $ Passaðu þig á smáatriðunum jafnvel þó þú sért upptekin/n. Þú ert á leiðinni að fara aö slá í gegn en vertu vakandi. ^ Ef þú stendur í stað í rómantfldnni þá skaltu samt reyna að halda út aðeins lengur. Þú verður að vinna áiram í málunum þangað til hlutirnir fara að ganga upp. Krabbi (22. júní-22. júlí) 3 Þú ert hugfangin/n af einhverju ákveðnu málefni. Nú er góður tími að reyna ao losa þig við stress og þú gætir þurft að losa þigvið eittnvað af þeim málum sem pú hefur tekio ao þér. V Þér líður eins og gólftusku og að enginn kunni að meta það sem þú ert að gera. Þraukaðu því þú átt eftir ao fá hlutina endurgoldna. Ljón (23. júlí- 22. ágúst) 3 Nú er góður tími til að endurskoða áform þín og framhala á þeim. Þú tekur vel eftir smáatriðum og ert hæfilega bjartsýn/n. V Ef þú hefur áformað að herja á ákveðið mál- efni þá er núna rétti tíminn. Ef ekki þá skaltu halda áfram að skipuleggja því það er nauðsynlegt að undirbúa næsta verkefni. Meyja (23. ágúst-22. september) 3 Efþað er eitthvað sem þú hefur verið að tefja þá skaltu fara að hefjast handa því nú er rétti tím- ínn. Það á allt eftir ao ganga vel á endanum. V Það er góður tími til að bvrja á nýium hlut- um, hvort sem það eru ný sambönd, verkefni eða skemmtun. Allt sem þú byrjar á í dag fer vel og því er best að fresta ekkinlutunum. ©Vog (23. september-23. október) $ Sum áf verkefnum þínum hafa setið á liák- anum og á meðan þú bíour eftir athugasemdum reyndu þá að skipuleggja næstu skref. V Þú hefúr verið að reyna að ná samkomulagi við einhvern og það hefur gengið frekar brösulega en láttu það ekki hindra þig við að byrja á nýjum hlutum og breyta um stefnu þvi það á eftir að gangamjögvel. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Taktu tima til að hjálpa viðskiptavinum þin- um og félögum og láttu verkefni þín biða um stund. Þér er að takast að fá gott orð fyrir verk þín og það mun hjálpa þér á næstu vikum og mánuð- um. V Það er kominn timi til að lita í kringum þig til að sjá hverjir eru vinir þinir og það er mikílvægt að þú veltir fyrir þér hverjir þurfa á þér að halda. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Vinnufélagar þínir eru eittlivað að pirra þig í dag og þú færo leíðinlegar athugasemdir. Reýndu að einbeita þér að vinnunni og haltu þinu striki. “ Vinir þinir eru eitthvað að striða þér i dag út af atburði sem gerðist nýlega en reyndu bara að hlusta ekki of mikið á þá og alls ekki taka nærri þér ef þér finnst eitthvað ósanngjarnt sagt.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.