blaðið - 15.10.2005, Side 24
24 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 15 OKTÓBER 2005 blaöiö
Halldóra hugsar upphátt
Klikkaðar kröfur um „lífsins gœði"
Pað er augljóslega vandkvæð-
um bundið að vera ungur í
dag. Að mínu viti er lífsgæða-
kapphlaupið farið að vefja hverjum
einstaklingnum á fætur öðrum um
fingur sér og dauðir hlutir eru í
hvað mestum metum. Hér skal þó
kunngjört að sjálf hef ég ekki verið
til fyrirmyndar í þessu samhengi
og hingað til elt þessa óþarfa hluti.
Ástæðan fyrir þessu skrifum er hins
vegar sú að ég tel mikilvægt fyrir
mig, sem og alla, að breyta um við-
horf og skoða eigin gang. Batnandi
mönnum er best að lifa og aldrei of
seint í rassinn gripið að velta þessu
fyrir sér.
Því er nefnilega þannig farið
að ástand hvers og eins er farið að
brjóta í bága við annars ákveðin
viðmið ef honum hefur ekki áskotn-
ast eitt stykki ferðatölva, nýjasta
www.karon.i
Betra
kynlíf!
UlsinJi 1fxiyu íuenna
Pleasure Créme
Pleasnre Créme er náttúrulegt krem i
hannai) til a<) anka nnað í kynlífi
• Framkallar, styrkir og lcngir fulltiægmgu
• Eykur kynhvöt og kynœsíng
• Iljálfuir knnuni aö myttda cdtilegan raka í leggöngum
Fæst i apótekwn ug í fríhöfninni
Pleasure
Egg
Titrandi unaÁsegg
í Ii.vmo gjvÁaflokk
til að örva og auka
ánivgju i kvnlifi
"Avaxtabomba, með súkkulaði'
Delicato
Delicato fjölskyldan er einn af elstu
vínframleiðendum í Kaliforníu.
Sykileyingurinn Gasparé Indelicato
stofnaði fyrirtækið Delicato í Kaliforníu
árið 1935. Undir stjórn þriggja sona
hans, Tony, Frank og Vince, hefur
fýrirtækið tekið stórstígum framförum
og vakið verðskuldaða athygli fyrir
framleiðslu sína undanfarin ár.
Fyrirtækinu hlotnaðist sá heiðurað
vera kosið vínframleiðandi ársins 2003
í Kaliforníu. Þetta er sérstakur heiður,
þar sem framleiðendur Kaliforníu
kjósa hann úr sínum röðum.
Eins má geta þess að hinn virti
vínrynir, Robert Parker sá ástæðu til að
taka sérstaklega fram að Delicato
vínin væru góð viðbót við gæðavín-
flóru Kaliforníu.
Delicato Merlot frá
Californíu.
Djúprautt á litinn með miklu ávaxta-
bragði, þar sem plómur og hindber
eru allsráðandi. Bragið endist lengi og
í lokin taka súkkulaði- og kaffibragð
yfirhöndina. Vínið passar einstaklega
vel með lambaréttum sérstaklega ef
tómatar, spínat og sveppir eru hluti af
meðlætinu. Vínið er einnig frábært
eitt og sér.
Verð í vínbúðum aðeins 1220,-
Líka til (litlum flöskum 187 ml.
"Smakkið og dæmið sjálf"
Góða skál og góða helgi.
Kv, Vínandinn.
w
afbrigðið af I-pod, ásættanlegt
heimabíókerfi, glænýja stafræna
myndavél, flottar felgur á bílinn og
svo mætti lengi telja. Já, og ekki má
gleyma gallabuxum á 20.000 kall!
Eg sé fyrir mér risastórt spil með
fullt af litlum peðum sem þeytast á
milli með allt sitt hafurtask, sem
er reyndar orðið það mikið að
hver þeirra þarf reglulega að
fara í meðferð á reitnum sem
kallast „slökun og sæla“. Ef
vel er að gáð standa nokkr-
ir einstaklingar i kringum
spilaborðið (þessir sem
neituðu þátttöku í spilinu)
og horfa vorkunnaraug-
um á litlu spilapeðin tapa
geðheilsunni og reka sig á í
gríð og erg! En jæja, aftur að
raunveruleikanum...
Látum vonir
til 40 kílóanna
lönd og leið
Ekki er eingöngu
um kröfur til ver-
aldlegra gæða að
ræða eins og þær
áðurnefndu heldur
er okkur lagðar lín-
urnar um ákveðið
útlit líka. Já, þakka
ykkur fyrir! Það er
sko búið að segja
manni hvernig
líkami okkar og
ásýnd skuli vera
ef við eigum að
gerast svo kræf
að leyfa nokkrum
manni að berja
okkur augum í heita
pottinum. Og ef þið
lesendur góðir eruð
ekki með réttu ímynd-
ina í huga skulið þið
bara rýna í slúðurblöðin,
sem eru víst ófá þessa dagana, og sjá
þar einhverja af stjörnunum í Holly-
wood. Þær eru víst alveg með þetta á
hreinu. Vega flestar ekki meira en 40
kíló og komast í minnstu buxurnar
sem fáanlegar eru. Ef maður vill ná
því að líta út eins og þær
er bara um að gera að
byrja að skera af sér
og passa vel upp á
að ekki fari mik-
ið meira en sem
samsvarar
lítilli barna-
máltíð inn
um varirnar
dag hvern.
Nei og
aftur nei!
hætta að horfa öfundaraugum á
þessar „drottningar“ með sinn silki-
mjúka, netta rass og ákveða það að
ég sé bara engu síðri (þrátt fyrir
skinn á beinunum). Ég hvet allar
ungar konur í dag til þess að taka
undir þetta nýja viðhorf mitt. Mað-
ur á ekki að tapa sjálfsálitinu bara
vegna þess að einhver Paris Hilton
ásamt stöllum sínum hefur þörf fyr-
ir að benda mér á að það heyri til
ófullkomleika að geta klipið í húð á
maganum.
Ef fram fer sem horfir verða
ALLIR búnir að eignast ALLT áður
en „besta aldri“ er náð og heilbrigð-
iskerfið hrynur þar sem ekki er
nægjanlegt fjármagn né pláss til
að standa straum af eftirspurn sjúk-
linga. Er ekki kominn tími til að
við slökum aðeins á í baráttu okkar
fyrir þessum misskildu lífsgæðum
og leyfum öðrum hlutum að skipa
meiri sess. Reynum endrum og eins
að sjá að ekki er nauðsynlegt að
eiga allar heimsins græjur sem svo
mörgum finnst lágmark að eignast.
Einnig skulum við horfa í spegilinn
og sjá það góða, frekar en einhverja
„galla“ og minna okkur á að það þarf
enga fegurðardrottningu til þess að
ná árangri í lífinu. Hver segir að Bill
Gates sé sá fegursti og stæltasti?
Halldóra Þorsteinsdóttir
BlaðiÖ/lngó
Ekki taka þátt i
öngþveitinu
- nokkur ráð til að minnka streitu
1. Sniðgakktu fjölmiðla
Eins skemmtilegt og það getur nú
verið að fylgjast með fréttum og vera
með nýjustu fregnir á hreinu, er því
ekki að neita að mikið stress getur
fylgt í kjölfarið. Þeir fréttaþyrstu
sem lifa ekki daginn af án þess að
hlusta á fréttir á heila tímanum í út-
varpinu, sjónvarpsfréttir á kvöldin
og kryfja öll blöð til mergjar finna
væntanlega fyrir þeim áhrifum sem
umhverfið hefur á þá. Stundum er
gott að hvíla sig á öllu því sem er að
gerast í kringum okkur.
2. Stundaðu jóga
Þeir sem prófað hafa jóga vita vel að
fátt lætur mann slappa betur af en
slíkar æfingar. Þarna er það innri
hugur sem fær sinn frið en það er af-
ar mikilvægt til þess að kúpla sig frá
annríkinu sem oft vill verða mjög
átakanlegt. Það þarf ekki endilega
að fara í þartilgerða jógatíma - það
getur nægt að dunda sér við þetta
heimafyrir og sigla þannig inn í ró.
3. Skiptu út kaffi fyrir te
Fáir drykkir eru jafn streituvald-
andi og kaffið. Eins gott og það getur
nú verið, svo ekki sé talað um þegar
þreytan gerir vart við sig, er mjög
slæmt að drekka of mikið. Kaffi eyk-
ur streitu í líkamanum og við verð-
um örari, sem gerir það að verkum
að hlutirnir taka meira á okkur and-
lega. Prófið te í staðinn!
4. Ekki fara á mannamót þar
sem fleiri en tveir eru
Við viljum ósjaldan eltast við félags-
skap annarra og eigum mörg hver
erfitt með að vera ein með sjálfum
okkur. Þó svo að Gunna Gunn sé al-
veg hrikalega skemmtileg, er alveg
á hreinu að stundum taka sögurnar
og brandararnir hennar sinn toll og
þú verður þreytt/ur eftir ítrekaða
hlustun og hlátur. Stundum er gott
að vera ein/n með sjálfum sér og
tala við sem fæsta.
5. Slökktu á símanum
Þeir sem treysta sér til að slökkva
ásímanum nokkrar klukkustundir
á dag standa vel að vígi hvað rósemi
varðar, en eilífar símhringingar eru
mun meira streituvaldandi en við
gerum okkur grein fyrir. Flestir geta
vart brugðið sér frá án þess að hafa
símann í farteskinu en slíku hátta-
lagi er nauðsynlegt að breyta hið
fyrsta, áður en við töpum geðheils-
unni. Ef við missum af símtali frá
einhverjum mikilvægum þá mun sá
hinn sami bara hringja aftur síðar.
6. Vertu heima nokkur
kvöld vikunnar
Það þarf ekki alltaf að gera eitthvað.
Stundum getur verið nóg að vera
heima, lesa góða bók eða jafnvel
bara horfa upp í loftið og hugsa. Ef
við þurfum í sífellu að finna okk-
ur eitthvað að gera til þess að eyða
tímanum ættum við að hugsa okkar
gang og reyna að öðlast meiri hugar-
ró. ■