blaðið - 15.10.2005, Síða 26
26 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 15 OKTÓBER 2005 blaöiö
,Mlir leikarar að
einhverju leyti geðkloíarI"
Guðlaug Elisabet Ólafsdóttir, bet-
ur þekkt sem Gulla, þykir án efa
ein af fyndnustu konum landsins
i dag. Hún brautskráðist frá Leik-
listarskóla íslands árið 1994 og
hefur síðan birst landsmönnum
reglulega í hinum ýmsu gervum
á öldum ljósvakans eða á sviði.
Gulla hefur iðulega mörg járn í
eldinum en hún leikur um þessar
mundir eitt af aðalhlutverkunum
í íslenska sjónvarsþættinum Stelp-
urnar auk þess að sýna í gaman-
leiknum Himnaríki í Hafnarfjarð-
arleikhúsi.
Þessi skemmtilega leikkona gaf
sér þó tíma frá annríkinu til að
hitta blaðakonu og ræða um lífið,
leiklistina og húmor íslenskra
kvenna!
„Já, það er eiginlega alveg nóg að
gera hjá mér - en fyrir það er mað-
úr auðvitað mjög þakklátur. Ég tók
mér frí fyrir nokkrum árum frá leik-
listinni einfaldlega af því að mér var
farið að leiðast í starfi. Sem betur fer
ákvað ég nú að snúa mér aftur að
þessu,“ segir Gulla, en hún settist
á skólabekk hér um árið til þess að
taka meistargráðu í Evrópufræðum.
Hún segist hafa fundið þörf fyrir að
taka smá frí þó svo að hún sé fegin
að hafa snúið sér aftur að leiklistinni.
,Það var alveg innilega nauðsynlegt
að taka frí til þess að finna gleðina
hjá sjálfri mér. Ég er á þeirri skoðun
að fólk eigi hiklaust að skipta um
vettvang í starfi ef það finnur fyrir
leiða eins og ég gerði þarna. Maður
á skilið betra í lífinu en að druslast
áfram í vinnu vegna einhvers vana
og ég veit ekkert sorglegra en fólk
sem situr ómögulegt yfir kaffinu á
morgnana vegna þess að það nennir
ekki að fara að vinna.“
Hefurðu haft áhuga á leiklist frá
unga aldri?
„Eg veit eiginlega ekki alveg hve-
nær þetta byrjaði. Það var reyndar
mikil músík á heimilinu og mik-
ið um listamenn í minni stórfjöl-
skyldu. Reyndar voru engar svona
fyrirmyndir sem vöktu áhuga minn,
þetta var meira bara svona áhugi á
því að komast á svið. Jú, svo átti ég
mér auðvitað draum um að syngja
í Metropolitan,“ segir Gulla og bæt-
ir við að athyglissþörfin hafi eflaust
spilað sitt hlutverk. „Mér finnst
reyndar svo hrikalega leiðinlegt að
tala um athyglissýki eða athyglis-
þörf. Ég held að hjá leikurum sé það
frekar þannig að maður njóti sín þeg-
ar fólk hlær að manni eða skemmtir
sér vel á sýningu - það er ákveðin
fullnægja sem felst í því og alveg ro-
saleg tilfinning.”
Það er mikið talað um nauðsyn auk-
ins sjálfstraust hjá fólki í dag og að
sjálfsöryggi skipti gríðarlegu máli
ef ná á árangri á hvaða sviði sem er.
Standa leikarar ekki vel að vígi hvað
þetta varðar - standið þið ekki hnar-
reist og örugg við hvers konar aðstœð-
ur og laus við allafeimni?
„Þetta er nefnilega lunkin spurn-
ing. Það eru margir sem halda að
leikarar séu alveg rosalega öruggir
og að þeim finnist ekkert erfitt að
koma fram eða tala hvar sem er. Það
er hins vegar sjaldan þannig. Ég til
dæmis held að leikarar séu allir að
einhverju leyti geðklofar. Ég meina,
þú færð handrit og ferð svo létt með
að standa upp á sviði í þínu hlut-
verki þar sem þú þykist vera einhver
annar. Svo hins vegar er þetta mun
erfiðara á öðrum vettvangi þegar
þú getur ekki skýlt þér á bakvið leik-
rit. Ef ég á til dæmis að standa uppi
á foreldrafundum í skólanum hjá
barninu mínu, án handrits, og segja
eitthvað þá verð ég eins og aumingi.
Þarna er um verulega mismunandi
viðbrögð að ræða og þetta held ég
að eigi við um flesta leikara,” segir
Gulla og bætir því við að fjörugustu
og ærslafyllstu leikarar láti síður en
svo ljós sitt skína á mannamótum,
séu jafnvel feimnir. „Það eru örugg-
lega fæstir sem reyta af sér brandar-
ana í fjölskylduboðunum.“
Kominn tími á stelpugrín
Margur myndi telja líklegt að mik-
ið sé hlegið á heimili Gullu og að
skemmtilegt sé að njóta nærveru
hennar á mannamótum. Aðspurð
um eigin húmor og fyndni segir
Gulla erfitt að dæma um það þó svo
að flestir aðrir telji hana fyndna að
eðlisfari.
„Aðrir vilja svo sem meina það,“
segir hún og hlær. „Maður er ekki
beint að sálgreina sjálfan sig en jú,
ég get alveg gengist við því að ég er
flink í þessu, þ.e.a.s. að setja fram
eitthvað sem er sniðugt og skemmti-
legt. En það er engin hugsun sem slfk
á bakvið það, frekar bara eitthvað
sem kemur án þess að maður sé að
„pródúsera“ það í huganum. Jújú, við
99..........................
Þegar ég t.d. hitti
mínar vinkonur er bara
hlegið út í eitt og það
er klæmst alveg eins
og harðsvíruðustu
togarasjómenn.
skemmtum okkur vel á heimilinu.
Sonur minn virðist til dæmis ætla
að erfa þörf mína fyrir að vera með
skrítlur og skemmtilegheit í kring-
um mig.”
Þó svo að Guðlaug hafi þörf fyr-
ir að hafa gaman f kringum sig og
brandarana í hávegum segir hún
þó að það sé síður en svo alltaf þann-
ig. „Lífið er náttúrulega ekkert djók
- það er dauðans alvara. Það er oft
hundfúlt en sem betur fer er það
skemmtilegt líka. Það er auðvitað
ekkert alltaf brjálæðislega gaman
hjá mér frekar en hjá einhverjum
öðrum.”
Þessa dagana hefur Gulla vakið
verðskuldaða athygli í sjónvarpsþátt-
unum Stelpurnar. Hún segirþáttinn
afar skemmtilegan enda sé frábært
fólk sem vinnur að honum. „Þetta er
alveg rosalega gaman og allir leggja
mikið á sig. Þarna eru gríðarlega
flinkir skrifarar og hópurinn í heild
sinni alveg frábær. Óskar er náttúru-
lega algjör snillingur sem og allir
þarna þannig að maður hefur ekki
áhyggjur af því að kasta sér út í djúpu
laugina. Að mínu mati var kominn
tími á þátt sem þennan, enda hef-
ur staðið til lengi að gera eitthvað
stelpugrín," segir hún og neitar því
að til hafi staðið að skjóta hinum vin-
sæla grínþætti Strákunum ref fyrir
rass. „Nei, þegar farið er af stað með
svona er það auðvitað ekki gert til
höfuðs einum né neinum. Við viss-
um í rauninni ekkert hvernig þetta
myndi æxlast. Það hafa verið gerð-
ar ótal tilraunir með skemmtiþætti
sem hafa átt mislangan líftíma og
það er bara þannig að þú veist aldrei
hvoru megin þú lendir. Maður veit
aldrei hvort þetta verði eitthvað af
viti eða seljist yfir höfuð.“
Konur mega segja typpi
í sjónvarpinu
En eru íslenskar konur fyndnar?
„Já, við höfum margt í karlana. Sko!
Húmor kemur ofsalega mikið með
einhverri sjálfsmynd. Um leið og þú
getur gert þig að fífli einhvers staðar
og hlegið mest af því sjálf - þá ertu
orðin fullorðinn. Menntunarstig ís-
lenskra kvenna er t.d. mjög hátt og
þær eru sjálfstæðar. Það er einmitt
vegna þess að þær taka sjálfar sig
ekkert of hátíðlega. Þess vegna get-
um við gert þetta vel - enda mjög
mikilvægt að geta gert sjálfan sig að
fífli og hlegið að því,“ segir grínleik-
konan sjálf og leggur áherslu á að ís-
lenskar leikkonur hafi komið sér vel
á framfæri síðastliðin ár hvað þetta
varðar.
„íslenskar konur eru farnar að
vilja sitt olnbogarými í þessu. Ég
til dæmis þoli ekki þegar talað er
um að konur séu svo alvarlegar og
dramatískar að þær geti með engu
móti gert grín að sjálfri sér og slegið
á létta strengi eins og karlar. Þetta
er bara gömul lumma og eitthvað
sem við erum sko að breyta. Þegar
ég t.d. hitti mínar vinkonur er bara
hlegið út í eitt og það er klæmst al-
veg eins og harðsvíruðustu togara-
sjómenn. Þegar þú getur verið örugg
með þig þá öðlastu betri dýpt á því
fyndna í kringum þig og þú verður
afslappaðari. Þetta er partur af því
að verða fyndin - við verðum að geta
gert grín að okkur sjálfum fyrst og
fremst til þess að geta gert grín að
öðrum hlutum og manneskjum.“
Aðspurð um hvað séu einkenni
góðrar leikkonu segir hún það afar
margt og að erfitt sé að henda reiður
á eitthvað ákveðið sem sé mikilvæg-
ast. Leikkonur séu misjafnar og hafi
margar sinn einstaka stíl. Þá tekur
hún fram að þetta sé löng leið og að
flestar séu frekar feimnar í upphafi
ferilsins.
„Þetta er ansi mikið ferðalag
myndi ég segja. Auðvitað er maður
stressaður fyrst og hræddur um að
vera ófyndin eða kjánaleg, nú eða
þá að maður gangi of langt og segi
of mikið. Maður þarf að losa sig
við þessa hugsun og vera eiginlega
sama um hvað öðrum finnst. Ekki
alltaf að pæla í því hvað fólki ætti að
finnast skemmtilegt - heldur meira
það sem þér finnst sjálfum, treysta á
eigin dómgreind og tilfinningu fyr-
ir hlutunum án þess að ritskoða allt
sem út úr okkur kemur. Um leið og
maður tekur sig ekki of hátíðlega er
maður komin með svo mikið vopn
í hendurnar. Þetta er bara spurning
um að slappa af, segja og gera það
sem maður vill og á endanum fjúka
nokkur kíló af bakinu. Það er alveg
rosalega strembið að vera alltaf að
passa upp á það sem maður segir.
Konur eru mun sjálfstæðari en þær
gera sér jafnan grein fyrir og mega
vera öruggari með sig. Þær mega til
dæmis alveg segja typpi í sjónvarp-
inu þó svo að margir karlmenn viti
stundum ekki sitt rjúkandi ráð þeg-
ar kona notar slík orð á opinberum
vettvangi."
Gulla tekur þó að lokum undir að
auðvitað þurfi ákveðna hæfileika í
þetta og að það geti ekki allir staðið
uppi á sviði eða fyrir framan fólk al-
mennt og farið með einhverja rullu.
„Svo er líka mikill munur á því að
vera grínleikkona eða dramatísk
leikkona - starfsvettvangurinn er
svo gjörólíkur. Það geta alls ekki
allir verið brjálæðislega fyndnir þó
þeir geti kannski ýmislegt annað.
Sumir geta leikið Macbeth, Hamlet
og fleira dramahlutverk en verða
aldrei fyndnir. Ég held að fyndnin
sem slík sé eitthvað sem þér er gef-
ið eða ekki, án þess að þetta eigi að
hljóma fáránlega.“
halldora@vbl.is
Teg 2001 Teg 299/6 Teg 704 Teg 43 Teg 44 Teg 287
106.000.-stgr. 19.600.-stgr. 79.100.-stgr. 21.400.-stgr. 10.500.-stgr. 9.400.-stgr.
Skápar, stólar, kommóöur, sófaborð.
Mfullt afhúsgögnum
Rococo stólar margir litir „
Teg 2064 frá kr. 24.900,- stgr. Teg 544 25-900-' st9r-
□□□□□EZO
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKORVEOI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 565 4100
PLAST-, TRÉ- OG JÁRNMÓDEL Í MIKLU ÚRVALI
>
Landsins mesta úrvai fjarstýrðra bíla
Tómstundahúsið Nethyl 2 sími 5870600 www.tomstundahusid.is