blaðið - 15.10.2005, Side 36
36 I SMÁAUGLÝSINGAR
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 blaöiö
Smáauglýsingar
Smáauglýsingavefur Blaðsins er bladid.net
Smáauglýsingasiminn er 510.3737
e-mail : smaauglysingar@vbl.is
655 kr. stykkið
KEYPTOGSELT
TIL SÖLU
Til sölu glæsilegt glerborö úr
GP húsgögnum. Verð:25.000,-
Upplýsingar í síma 698-9898
StcnMikg fjTir fóik á áilun aldri!!
Fáfl i 3 Ujrráim vcrá 7.SOC,- lá.Sá*,- •£ I2JM,-
PANTIÐ TÍMALECA!!!
Bóhtnmm ájlfe
ArUmrákrtl 700i-vprvom
Smu >44 5750 MÖHWnmri
gsm 699 5750
TIL BYGGINGA
STEYPU
VÍBRATORAR
í ÚRVALI
Verð frá kr 55.000 m/vsk
Þ. Þorgrímsson og Co
Ármúla 29 Rvk 5538640
TÓMSTUNDIR
FYRIR VEIÐIMENN
Rjúpnaskot-
veiðivesti
J Sérhannaö fyrir íslenskar
aðstæður, úrsterku öndunarefni
mikið af vösum, pokar fyrir fugl o.fl.
Vandaö og gott vesti.
Litur Svart/Rautt
Svart/Olive .
kr.12.90a-
Vesturröst
Sérverslun v e i ö i m a n n s i n s
Laugavegi 178-105 Reykjavík
Slmar 551 6770 & 553 3380 - Fax 581 3751
www.vesturrost.is
Escort Pumpa Marineguarde
35.000.-Sportbúð Títan
ÞJÓNUSTA
RAFLAGNIR
IÐNAÐARMENN
Parket-Parket
Getum bætt við
okkur parketlögnum
og parketslípunum
Uppl.ís: 847-1481
TILKYNNINGAR
GEISLADISKAVIÐGERÐIR
VISSIR
ÆT
að hjá grensasvideo.is er
gert við alla geisladiska.
PlayStation • DVD • CD
X-BOX
Rispurnar eru fjarlægðar og
diskurinn verður sem nýr.
Verð aðeins 650.-
Grensásvideó.is
Grensásvegi 24
Stmi 568-6635
Opið alla daga 15:00 til 23:30
VW Golf highlíne 00 EK.80þ, Selst
á 1290þ. Stgr lmilj. m/toppl. Uppl.
S.5343119 og 6620588
RENAULT MEGAN SCÉNIC
11/2000 Verð: 490.000 Bílasala
Reykjavíkur: 5878888
__ Raflajgnir
Dyrasfmar
Set upp ný dyrasímakerfi
og geri við eldri. Endurnýja
raflagnir í eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum
Fljót og góö þjónusta
Sími 893 1733
Jón Jónsson
Löggiltur rafverktaki
www.raflagnir.is
BÍLAR0G FARARTÆKI
BÍLAR TIL SÖLU
Rúta-húsbíll 15 manna Mbenz, árg
'84 til sölu. tilb. óskast S:567 2510/659
1893
Landrover fornbíll '64 til sölu
í góðu standi, verð 140þ. Uppl. í síma
848-0328
Feroza '92 selst ódýrt Uppl. (síma
690-9203
Tíl Sölu Grand Cherokke laredo
99 4,71 vél samlitaður vínr. litað gler
nýleg heilsársdekk ek. 128 þ km verð
1690þ 1499þ stgr áhvl ca 950þ atb 28þ
á mán skipti möguleg á ódýrari. S. 697-
7084
BÍLAR ÓSKAST
Ódýr bíll óskast á bilinu 0-
50 þ. Má þarfnast einhverra
lagfæringa. S. 6903411
ATVINNA í B0ÐI
Vilt þú vinna á
frábærum
vinnustað á góðum
launum?
Við erum i leit að þroskuðum og
samviskusömum einstaklingum i sölu
og þjónustuverkefni á kvöldin og á
laugardögum við úthringingar I allan
vetur.
Við bjóðum góð árangurstengd laun
með góðri launatryggingu. Aðstoð
og leiðbeiningar í starfi.
Starfsskilyrði:
Samviskusemi, gott skap og létt
lundarfar.
Allar nánari upplýsingar á
katrinkr@bm.is og bm@bm.is eða í
síma: 661-0716
Bmráðgjöfehf • Ármúla 36 • 108
Reykjavík
www.bm.is
fbúð óskast Þriggja barna faðir
óskar eftir 3-4 herb. ibúð til leigu á
Höfuðborgarsvæðinu. Uppl. f S.693-
6210.
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
Ritstjórn
510-3799
Skiptiborð
510-3700
blaðiá=
FRJÁLST
OHAÐ
blaóið
The Mitchell Brothers á Airwaves
Hljómar betur en MP Teddy og T
Hipphopp-tónlist og rapp hef-
ur lengi verið til og eiga ræt-
ur sínar að rekja til götulífs í
fátækari hverfum stórborga í Banda-
ríkjunum í upphafi 9. áratugarins.
Sumir segja þó að rætur þessarar
tónlistar liggi enn aftar en það þótti
vinsælt að lesa ljóð yfir sýrudjass-
tónlist á hippasamkundum á 7. ára-
tugnum. Það voru hin svokölluðu
,beat-skáld“ sem gerðu það fyrst.
Eitt er þó víst að tónlistarstefnan
hefur tekið ýmsum breytingum frá
upphafi og er enn að breytast ört og
taka á sig ólíkar myndir. Tónlistinni
er jafnan skipt niður í austur- og
vesturstrandahipphopp þegar hún
kemur frá Bandaríkjunum. Hins
vegar eru margar flóknar skiptingar
og skilgreiningar undir þessari aðal-
skiptingu sem er einungis á færi sér-
fræðinga á þessu sviði að kunna skil
á. En það er langt frá því að Banda-
ríkin séu eina landið sem getur af
sér færa rappara og/eða hipphopp-
tónlistarmenn. Mikil gróska er í
rapptónlist víðs vegar um heiminn
og viðast hvar í Evrópu má finna
mjög fínt hipphopp. Bretland er
þar engin undantekning og breski
tónlistarmaðurinn Mike Skinner,
sem notar listamannanafnið „The
Streets", fékk geysimikla athygli
fyrir nokkrum árum þegar hann
sendi frá sér sína fyrstu plötu, Or-
iginal Pirate Material. Sumir segja
að hann hafi hrundið af stað ein-
hvers konar nýrri breskri hipphopp-
bylgju, en víst er að hann er áhrifa-
valdur margra í dag. Mike Skinner
starfrækir útgáfufyrirtækið The
Beats og fyrstu listamennirnir sem
fengu útgáfusamning hjá honum
voru landar hans í hljómsveitinni
The Mitchell Brothers. Blaðinu lék
forvitni á að vita aðeins meira um
þá sveit þar sem hún er nú væntan-
leg á tónlistarhátíðina Airwaves sem
hefst í næstu viku. Því var slegið á
þráðinn til Lundúnaborgar og varð
Ted fyrir svörum.
Upphafið
Þegar Ted er spurður að því hvenær
ævintýri þeirra bræðra í The Mitc-
hell Brothers hafi farið af stað byrjar
hann á að leiðrétta að þeir séu raun-
ar ekki bræður, heldur frændur. Þeir
hafi þó alist upp og leikið sér saman
frá því þeir voru litlir strákar. Vinur
þeirra hafi svo sagt að þeir minntu
sig á bræðurna Mitchell Brothers í
sjónvarpsseríunni bresku East En-
ders og þeir hafi ákveðið að nefna
bandið eftir því þar sem það hljóm-
aði töluvert Setur en MP Teddy og
Tony. Árið 1997 tóku þeir fyrstu
skrefin í átt til þess sem í dag er
hljómsveitin The Mitchell Brothers.
Þeir voru eiginlega bara að leika
sér í þá daga komu til dæmis fram
hér og þar á klúbbum í London og
röppuðu yfir takta sem aðrir höfðu
gert, eins og takta eftir Outkast og
fleira í þeim dúr. Síðan uppgötvuðu
þeir að þeir gætu alveg gert sín eigin
lög og létu verða af því. I kringum
árið 2000 fóru þeir að koma reglu-
lega fram á stað í West-End hverfinu
sem heitir 10 rooms. Þar fengu þeir
mjög góð viðbrögð frá áhorfendum
og héldu því ótrauðir áfram.
Röð tilviljana
The Mitchell Brothers gerðu kynn-
ingareintak (demo) með nokkrum
lögum sem þeir kölluðu Sorted og
fóru þannig að auglýsa sig aðeins
meira. Símanúmer þeirra voru á
diskinum og þeir reyndu að dreifa
honum hvar sem þeir fóru. Ted var
svo staddur í banka í Brixton-hverf-
inu i London fyrir algjöra tilviljun
en hann var að greiða reikning fyrir
móður sína. Þar beið hann í biðröð
og tekur eftir Mike Skinner úr The
Streets í röðinni. Hann var ekki viss
í fyrstu um hvort þetta væri hann
en svo sá hann að taskan hans var
opin og í henni voru diskar, snúrur
og græjur. Hann tók Mike tali og
var eitthvað að gantast við hann
um að hann væri aðdáandi og hvort
hann vildi ekki koma hljómsveit-
inni sinni áfram og svo framvegis.
Hann laumaði diskinum í tösku
Skinner og svo hringdi hann bara
til baka fimm stundum síðar. Þeir
voru himinlifandi og hófu samstarf
þá og þegar. Byrjað var að taka upp
plötu The Mitchell Brothers í mars
2004 en Mike Skinner tekur upp, út-
setur, hljóðblandar og semur sum
lögin með piltunum, ásamt því að
koma sumum lögunum að sjálfum.
Þetta er búið að vera mikil og hörð
vinna en þeir gáfu sér þó alltaf tíma
til að fara á pöbbinn í lok hvers dags,
slaka á og njóta lífsins. Mike Skinn-
er hlustar á mikið af mismunandi
tónlist og The Mitchell Brothers eru
með opinn huga svo allt gekk upp.
Ted lýsir samvinnunni eins og góðu
hjónabandi!
Tónleikarnir þeirra
Þeir hafa verið að spila hér og þar,
m.a. á Hróarskelduhátíðinni í Dan-
mörku árið 2005, í Svíþióð, París,
Amsterdam og Brussel. Árið hefur
því verið sérlega gott fyrir The Mitc-
hell Brothers. Þeir hafa þó aldrei
komið fyrr til íslands og eru glaðir
að bæta því landi við listann. Ted
segir að það sem The Mitchell Brot-
hers geri fyrst og fremst á tónleikum
sé að virkja tónleikagesti og láta þá
taka þátt í tónleikunum. Það sé því
eins og að vera í einu stóru partýi
sem maður kom í með öllum vinum
sínum að vera á tónleikunum þeirra.
Þeir hlusta á mikið af breskri tónlist
eins og Oasis og Coldplay en hafa
líka meðal annars orðið fyrir áhrif-
um frá tónlist Notorius B.I.G.. Outc-
ast er þó einn helsti áhrifavaldurinn
því þeir koma manni sífellt á óvart
með tónlist sinni og maður veit
ekkert hvað kemur frá þeim næst.
Að lokum vill Ted biðja íslenska les-
endur Blaðsins um að skoða nýju
smáskífuna Alone with the TV sem
er næsta smáskífa af plötu þeirra A
breath of fresh attire. Svo vill hann
bara sjá sem flesta á tónleikunum
en þeir spila á Airwaves á Gauki á
Stöng, föstudagskvöldið 21. október,
kl. 23:30. ■