blaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 2
2 I IWMLEWDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 blaöiö Ofsagróði bankanna íslandsbanki og Landsbanki grœða samanlagt 87 milljónir á degi hverjum Hagnaður íslandsbanka og Lands- banka eftir skatta nam 31 milljarði króna. Þetta kemur fram í uppgjör- um þeirra sem birtust í vikunni sem er að líða. Þetta þýðir í stuttu máli að bankarnir græða samanlagt 87 millj- ónir á degi hverjum eða rétt rúmlega 10 milljónir á hverri klukkustund sé miðað við átta stunda opnun. Aukið svigrúm Islandsbanki birti afkomutölur sín- ar fyrir fyrstu níu mánuði ársins á þriðjudaginn var en þar kom fram að hagnaður bankans hafi numið rúmum fimmtán milljörðum eftir skatta. I afkomutölum Landsbankans fyr- ir fyrstu níu mánuði þessa árs kem- ur fram að hagnaður bankans fyrir skatta nam 23,3 milljörðum króna. Hagnaður bankans eftir skatta nam 16 milljörðum og hreinar vaxtatekj- ur námu 15,7 milljörðum króna. Þá kemur fram að tekjur af erlendri starfssemi hafi aukist um 252% og námu 6,7 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við 1,9 milljarð króna fyrir sama tímabil í fyrra. Heildareignir bankans jukust um 405 milljarða króna á tímabil- inu og námu 1.142 milljörðum króna í lok september 2005. Eigið fé nam 99 milljörðum og hækkaði um.162% á tímabilinu. Að sögn Sigurjóns Þ. Árnasonar, bankastjóra, var afkoma bankans í ár sú besta í sögu hans og segir hann svigrúm bankans til frek- ari vaxta verulegt í ljósi mjög sterkr- ar eiginfjárstöðu. Ein besta afkoma hingað til í fréttum Greiningardeildar íslands- banka segir að hagnaður Landsbank- ans sé vel yfir þeim væntingum fyrir þriðja ársfjórðung eða 5 milljarðar í stað þeirra 3,6 milljarða sem spáin gerði ráð fyrir. Þeir telja að ekki sé hægt að benda á eina ákveðna ástæðu fyrir góðu uppgjöri held- ur sé afkoman heilt yfir mjög góð. Greiningardeild KB-banka telur aftur á móti að ástæðan fyrir góðu uppgjöri liggi fyrst og fremst í verulegum gengishagn- aði af hlúta- bréfaeign bankans sem nam um 6 milljörðum. Þeir segja ennfremur að við sam- runa Burðaráss við Landsbankann á þriðja ársfjórðungi hafi myndast um 3,3 milljarða krónu viðskiptavild í bókum bankans sem hafi öll verið gjaldfærð. Sé horft framhjá þessari niðurfærslu er ljóst að afkoma bank- ans á þessum ársfjórðungi sé sú allra besta í sögu félagsins. ■ Útkallstími verður 35 mín- útur í bráða- tilvikum Tilboði Mýflugs og Landsflug um sjúkrailutning út árið 2010 var tekið en gert er ráð fyrir að framlengja megi samninginn um tvö ár. Mýflug mun sjá um norðursvæðið og Landsflug um Vestmannaeyjasvæðið. Kostnaðurinn við sjúkraflugið á árinu sem er að líða er áætl- aður um 165 milljónir króna en samningarnir sem nú verða erðir kosta um 139 milljónir. samningnum var gerð krafa um sérútbúna vél í sjúkraflugið og í fyrsta skipti mun sérútbúin vél sinna verkefni sjúkraflugs á norðursvæði. Útkallstími sérút- búinnar sjúkraflugvélar verður 35 mínútur þegar um bráðatil- vik er að ræða. Sjúkraflugvélin er tveggja hreyfla, búin hverfi- hreyflum og jafnþrýstibúnaði og mun ávallt standa tilbúin til útkalls. Samningar verða undirritaðir þegar félögin uppfylla ábyrgðarákvæði útboðs vegna rekstursins. Tœplega 1.000 eldri borgarar deila herbergi með ókunnugum Þjóðarskömm sem ætti að vera forgangsatriði Á heimasíðu Björgvins G. Sigurðs- sonar, þingmanns Samfylkingarinn- ar, má sjá pistil um þá staðreynd að tæplega 1.000 eldri borgarar deili her- bergi með einhverjum ókunnugum. Aðspurður segir Björgvin að þessar tölur séu sláandi og þjóðarskömm. ,Mér finnst þessar tölur mjög slá- andi og ef maður miðar þær við stöðuna í samfélaginu þá finnst mér þetta vera þjóðarskömm sem hlýtur að vera forgangsatriði að leysa. Mér finnst að við eigum að setja lög á þetta eins og er til dæmis gert í Sví- þjóð og Danmörku. Þar er það bann- að með lögum að eldri borgarar á öldrunarstofnunum deili herbergi með öðrum en þeim sem óska eftir Nátthrafnar athugið Opið til kl. 07:00 á laugardags og sunnudagsmorgnum Quiznos Sub HHMM...GLOÐADUR Lækjargata 8 að búa saman. Heilbrigðis- ráðherra vildi ekki gera það þegar ég spurði hann um það í þess- ari umræðu í febrúar. Þetta kostar nátt- úrulega pen- þingmaður Samfylking- inga. Á sama arinnar tíma og menn eru að forgangsraða til dæmis Síma- peningunum þá er ekkert tekið á þessu þar.“ Líkt og dýr í þröngu búri í umræðu um þessi mál í febrúar sagði heilbrigðis-og tryggingamála- ráðherra, Jón Kristjánsson, að það að banna með lögum að aldraðir deili herbergjum sé ekki á dagskrá. Hins vegar sé stefnan sú að sem flestir aldraðir á stofnunum hafi eigið herbergi. Á heimasíðu sinni skrifar Björgvin að margir íbúar öldrunarstofnana endi ævina líkt og dýr í búri í þröngu sambýli við bláókunnugt fólk. Þegar Björgvin er spurður hvort þetta sé ekki held- ur djúpt í árina tekið segir hann svo ekki vera. „Þegar maður sér myndir af ósjálfbjarga gömlu fólki, kannski fjórir bláókunnugir á herbergi, þá er það bara andstyggilegt. Það er al- gjörlega óviðunandi, algjörlega." Snýst um forgangsröð- un ríkisstjórnar Björgvin segir líka að auðvitað sé ekki hægt að reka hjúkrunarheim- ili nema að það vinni á þeim fólk. „En það er nú sjálfstætt mál, það eru ekki greidd viðunandi laun í svona umönnunarstéttum. En hvort tveggja verður að leysa en það er alveg útilokað að fela sig á bak við það að það fáist ekki fólk í störfin og þess vegna byggi fólk ekki yfir gamla fólkið. Þetta er mál sem þjóð- félagið á og verður að leysa,“ segir Björgvin og bætir við að við höfum hiklaust efni á þessu en þetta snúist um forgangsröðun ríkisstjórnarinn- ar. Aðspurður hvort Björgvin hefði áhuga á að deila herbergi með öðr- um sér ókunnugum eftir 40-50 ár svaraði hann því neitandi. „Ég vona að ég lifi það aldrei." ■ Blalid/lngó Vöruskiptahallinn kemur í höfn Vöruskiptin í septembermánuði voru óhagstæð um 12,5 milljarða. Þetta kemurfram í fréttatilkynningu sem Hagstofa fslands sendi frá sér í gær. Samkvæmt henni nam verð- mæti útflutnings í september 14,8 milljörðum en á sama tíma voru fluttar inn vörur fyrir 27,3 milljarða. Vöruskiptahallinn á fyrstu níu mánuðum ársins er því kominn upp í alls 71,7 milljarða króna en á sama tíma f fyrra nam hallinn 24,4 milljörðum króna. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Gæða sængur og heilsukoddar. O' 0 Léttskýjað Skýjað | Alskýjað Rlgnfng, lltllsháttar W, Rignlng 11 Súld Sn]ókoma * Amsterdam 16 Barcelona 22 Berlín 16 Chicago 03 Frankfurt 19 Hamborg 18 Helsinki 08 Kaupmannahöfn 13 London 18 Madrid 19 Mallorka 24 Montreal -01 New York 06 Orlando 16 Osló 12 París 19 Stokkhólmur 10 Þórshöfn 08 Vín 09 Algarve 20 Dublin 15 Glasgow 13 2.** '2/>* -2°* * * 9 -2’ ■2 ° 9 Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á uppiýsingum frá Veðurstof u íslands -6°* 4° % Stydda Snjóél < -4° -2° * 0°d -5° 4:^* 4^ * 0° ! morgun * 0°*

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.