blaðið - 29.10.2005, Side 18
18 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 blaAÍA
Fjármálaeftirlit nýtir ekki lagaheimildir
- Reglur eru þó vœntanlegar
Umfangsmikil fjármálastarfsemi hér á landi
er tiltölulega ný af nálinni. Framkvæmd eft-
irlits með starfseminni á sér því ekki mjög
langa sögu. Tvær stofnanir, Fjármálaeftirlitið
og Kauphöll íslands deila með sér eftirlitinu.
En hversu gegnsætt er þetta eftirlit og hvern-
ig stenst reglugerðarumhverfið hér á landi
samanburð við önnur ríki?
^ filímf
R
B
ó Stftúvab
y ,(tflitl
n attaf
N ÍSLENSK BLÓM
Nú styttist til jóla. Okkar vinsæla
jólahlaðborð byrjar 17. nóvember.
Bjóðum upp á sali fyrir öll tækifæri: Fundahöld,
árshátiðir, afmæli, ættarmót, fyrirtækjamóttökur,
starfsmannahóf, þorrablót, giftingaveislur.
Þú getur einnig yljað þér með Ijúfum veigum
á hlýlega Koníaksbarnum eða kælt þig niður
með kokkteil á (sbarnum, svalasta barnum í
bænum, en þar er alltaf meira en 6° frostl
AFFI
Vesturgötu 2, sími 5523030, kaffireykjavikOkaffireykjavik.is, www.kaffireykjavik.is
BlaÖiÖ/Frikki
Regluverkið á grundvelli
Evrópulaga
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, segir eftirlit hér á landi
mjög sambærilegt því sem gerist í
nágrannalöndunum þar sem að hér
sé búið að innleiða flestar tilskip-
anir Evrópusambandsins í þessum
efnum. Þetta er gert á grundvelli
EES-samningsins og því er búið
að samræma mjög mikið laga- og
reglugerðarumhverfið hér og ann-
ars staðar innan innri markaðar
ESB. Þá er einnig afar náið samstarf
milli eftirlitsaðila um framkvæmd
eftirlits á milli landa á evrópska
efnahagssvæðinu. „Ég held að það
sé hægt að halda því fram með góð-
um og gildum rökum að við séum
með mjög gott laga- og reglugerð-
arumhverfi í samanburði við aðrar
þjóðir og að eftirlitsstarfsemi hér
á landi sé með því besta sem gerist
annars staðar,” segir Þórður og bæt-
ir við að Kauphöllin vinni mjög náið
með Fjármálaeftirlitinu. Þau nánu
samskipti felast, samkvæmt sam-
eiginlegri yfirlýsingu Fjármálaeftir-
litsins og Kauphallarinnar, í því að
Kauphöllin á að fylgjast með því að
útgefendur verðbréfa og Kauphallar-
aðilar starfi í samræmi við reglur
Kauphallarinnar.
Þórður er algerlega ósammála
því að reglur og eftirlit á íslandi
séu á einhvern hátt vanþróaðri en
í nágrannalöndum okkar og að þær
bjóði með einhverjum hætti upp
á vafasama viðskiptahætti. Hann
telur afar erfitt að færa veigamikil
rök fyrir þannig staðhæfingum, sér-
staklega þegar litið er til stórra mála
sem hafa komið upp annars staðar í
heiminum en hafa ekki komið upp
hér. Nefnir hann í því sambandi mál
Enron og Worldcom í Bandaríkjun-
um en bandaríski markaðurinn er
þó talinn einn sá þéttasti með tilliti
til reglna sem til er í heiminum. Því
sé ljóst að jafnvel þar sem reglur séu
mjög strangar geta komið upp svo-
leiðis mál.
Jóhannes Sigurðsson, prófessor
og forstöðumaður Rannsóknarstofn-
unar í fjármálarétti við Háskólann í
Reykjavík, er sammála Þórði um að
regluverkið hér sé í ágætu lagi. Hins
vegar bendir hann á að umfangsmik-
il fjármálaþjónustustarfsemi hér á
landi sé tiltölulega ný af nálinni og
þar af leiðandi eigi framkvæmd á
eftirlitinu sér ekki mjög langa sögu.
„Ég held að menn séu að þróa það
kerfi," segir Jóhannes ennfremur.
Laqaheimildir nú þegar til staðar
Á Islandi vinnur Fjármálaeftirlitið
fyrir luktum dyrum, ólíkt öðrum
eftirlitsstofnunum eins og Sam-
keppnisstofnun, og vekur slíkt óneit-
anlega upp spurningar um skort á
gegnsæi. Þórður segist vera þeirrar
skoðunar að það væri æskilegt að
hafa starfsemi Fjármálaeftirlitsins
gegnsærri en bendir á að það sé ver-
ið að vinna töluvert í því að breyta
þessu til hins betra. Pétur Blöndal,
formaður efnhags- og viðskipta-
nefndar, sagði að lagaheimildir sem
heimiluðu aukið gegnsæi við rann-
sókn þeirra mála sem Fjármálaeft-
irlitið fjallaði um væru nú þegar til
staðar og það væri algerlega undir
Fjármálaeftirlitinu komið hvort og
þá hvernig það hyggst nýta þá heim-
ild. Af þessu er ljóst að lagaheimildir
eru til staðar til þess að upplýsa al-
menning um hvaða fyrirtæki eru til
rannsóknar og af hverju, en þær eru
einfaldlega ekki nýttar ennþá. Að
sögn Jónasar Fr. Jónssonar, forstjóra
Fjármálaeftirlitsins, þá er verið að
vinna að útfærslu þessara reglna.
„Meginstefnan liggur þó fyrir. Hún
er sú að við ætlum að upplýsa um
niðurstöður í málum en hvernig það
verður nákvæmlega gert, hvort að
nöfn verði birt og í hvaða tilvikum,
það er eitthvað sem við erum að
klára,” segir Jónas. Hann segir
ennfremur að þessi framkvæmd
muni liggja fyrir á næstunni en
er ekki tilbúinn að segja hvenær
nákvæmlega. Þórður Friðjónsson
bendir þó á að þessi mál eru með
mjög mismunandi hætti annars
staðar, allt frá því að vera mjög opið
yfir í það að vera ennþá lokaðra en
hér hjá okkur. „Þannig að lönd velja
sér mjög mismundi staði í þessu lit-
rófi,“ segir Þórður að lokum.
Jóhannes Sigurðsson segir að sú
vinnuregla, að starfa fyrir luktum
dyrum, hafi upphaflega verið sett til
þess að gæta trúnaðar um starfsemi
og málefni sem fjármálafyrirtæki
eru að vinna með. Eins hefur reynst
auðveldara að fá fyrirtæki til þess að
gera úrbætur á sínum málum ef þau
eru ekki gerð opinber. Hann segir
að fyrirtækjum þyki kannski ekkert
sérlega athugavert að greiða sektir
fyrir möguleg brot en að það skaði
fyrirtækin mun meira þegar um-
fjöllun verður opinber. Slík opinber-
un getur valdið tugmilljóna króna
skaða því að kuskið á ímyndina er
fyrirtækjum í þessum geira mun
meira virði en sektargreiðslurnar.
t.juliusson@vbl.is
Mikið úrval af vandaðri gjafavöru
á frábæru verði
Búsáhöld-Gardínur
Gæludýravörur- íþóttavörur
Jólavörur- Leikföng
Ljós- Mublur
Rúmföt- Sk^rtgripir
Snyrtigræjur- Utileguvörur
Verkfæri ofl.ofl.
Erum að taka upp nýjar vörur
, _ , íverslun
B. Magnusson
■ Austurhrauni 3,Gbæ. s:555-2866
i www.bmagnusson.is bm@bmagnusson.is
! Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-14
, PANTIÐ
JOLAGJAFIRNAR
NUNA
ARGOS listinn FRIR
* MEÐAN BIRGÐIR ENDAST