blaðið - 29.10.2005, Síða 26
26 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 blaðÍA
Litblindur listamaður
sem nýtur lífsins
heldur sýningu á verkum sínum t Laugarneskirkju
Garðar Guðjónsson er einn af
þeim eldri borgurum sem ekki
lætur deigan síga þrátt fyrir
aldur eða starfslok. Garðar, sem
er 72 ára gamall, hefur lagt stund
á saumaskap síðan hann hætti
störfum hjá Menntaskólanum
við Hamrahlíð og hefur allar
götur síðan lagt stund á listina af
kappi. Hann heldur nú sýningu á
verkum sínum í safnaðarheimili
Laugarneskirkju, en þar gefur að
líta fjölmörg verka hans auk þess
sem gestir og gangandi geta feng-
ið sér kaffisopa og spjallað við
þennan skemmtilega listamann.
Það vekur eflaust undrun marga
að Garðar er litblindur og ætti því
ekki að eiga auðvelt með að sinna
listinni, en hann segist ekki láta
það aftra sér og heldur ótrauður
áfram. Hann gaf sér tíma til þess
að setjast niður með blaðakonu
og spjalla um lífið og tilveruna,
listina og ástina!
,Ég hætti árið 2000 að vinna, en
ég vann þá við ljósritunarstörf við
Menntaskólann í Hamrahlíð. í kjöl-
farið fór ég að sinna saumaskapn-
um af enn meira kappi, en ég hef
þó stundað þetta í ein 25 ár. Það fer
kannski meira fyrir áhugamáli sem
þessu þegar maður er kominn af
vinnumarkaðinum."
Hvernig kviknaði þessi hugmynd
- að byrja að stunda hannyrðir í
frístundum?
,Það er nú það. Konan mín, sem hef-
ur verið ansi dugleg í handavinnu,
hvatti mig til þess að prófa eftir að
ég hafði verið veikur í baki og leið
illa heima fyrir. Mig vantaði eitt-
hvað skemmtilegt sem gæti stytt
mér stundir. Ég tók þessari athuga-
semd hennar ekkert of alvarlega og
fyrst um sinn var þetta bara hugar-
fóstur. Svo náttúrulega er ég litblind-
ur, þannig að við trúðum því hvor-
ugt að þetta yrði að einhverju miklu
hjá mér,“ segir Garðar, en aðspurður
segir hann litblinduna ekki ná að
stoppa sig í þeim hugmyndum sem
hann vill framkvæma. „Konan mín
hjálpar mér mikið og kemur mér af
stað með liti og fleira. Hún er í raun
minn leiðbeinandi og með henni
fæ ég ánægjuna af því að gera þetta.
Auðvitað er ekkert auðvelt að gera
þetta miðað við litblinduna - manni
finnst nú bara eiginlega ótrúlegt
að maður hafi búið til allar þessar
myndir miðað við það að geta ekki
gert skýran greinarmun á litunum.“
Er ekki mikið um myndverk á
heimili ykkar hjóna?
Jú, svo sannarlega. Allar þær mynd-
ir sem eru á sýningunni eru til
dæmis á heimilinu okkar. Það er
voða líflegt hjá okkur og afskaplega
skemmtilegt að vera með allar þess-
ar myndir," segir Garðar, og bætir
við að á heimilinu séu bæði verk eft-
ir hann og konuna. Hún eigi ekki síð-
ur heiðurinn af listalífi heimilisins.
Að sauma saman gefur líflnu gildi
Sitjið þið hjónin sem sagt tímun-
um saman ogsaumið?
Já, við gerum það svo sannarlega.
Það er ekki hægt að hugsa sér neitt
betra en að vera með konunni sinni
að sinna áhugamálinu. Við erum
alveg saman í þessu og það gefur
lífinu sannarlega gildi - það gefur
mér mikla lífsfyllingu. Við sitjum
saman með vinnuljós og fallega tón-
list og sinnum sameiginlegu áhuga-
máli. Það er ekki til neitt betra held
ég,“ segir Garðar, sem hikar ekki við
að lýsa yfir ánægju sinni með sam-
vinnu þeirra hjóna við saumaskap
og hugmyndavinnu.
Sýning Garðars stendur yfir í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju þessa
dagana. Hann segir ástæðu sýning-
arinnar vera boð sem hann þáði frá
kirkjuverði kirkjunnar fyrir nokkru.
Hafði hann ætlað sér að gefa kirkj-
unni mynd eftir sig en það varð úr
að honum bauðst að halda sýningu
fyrir almenning.
„Ég leitaði til kirkjuvarðarins til
þess að fá upplýsingar um hvernig
ég ætti að snúa mér ef ég vildi gefa
kirkjunni mynd. Hún spurði mig
svo bara hvort ég vildi ekki halda
sýningu á verkum mínum og þann-
ig varð þetta til,“ segir Garðar og
bætir við að svo skemmtilega vilji til
að nú séu þau hjónin að fagna 50 ára
brúðkaupsafmæli og skemmtilegt
sé að halda sýningu af því tilefni.
„Það er nú svo skemmtilegt að segja
frá því að við giftum okkur hérna í
kirkjunni fyrir 50 árum síðan. Mér
finnst því afar vel viðeigandi að
halda sýninguna hérna núna fyrir
okkar hönd, en þetta er auðvitað af-
rakstur vinnu okkar beggja. Konan
mín er ekki síður stór þáttur í þessu
- hún er mín hægri hönd og gerir það
að verkum að mér finnst þetta stór-
kostlegt.“
Aldrei farið út fyrir landsteinana
Eru eldri borgarar að þínu viti
mikið að sinna áhugamálum á
Blaöið/Frikkl
borð við þetta?
„Það mætti vera meira af því. Það
skiptir öllu máli að hafa áhugamál á
sínum eldri árum - fyrir mér er það
lífið og veitir mér gifurlega ánægju.
Ég vil hvetja alla þá sem hættir eru
störfum sökum aldurs að taka upp
á skemmtilegum hannyrðum. Þó
svo að fólk haldi að það geti það
ekki, þá er nú ýmislegt hægt og al-
veg æðislegt að finna sig í einhverju
svona. Ég hélt sjálfur að ég gæti það
ekki og hafði aldrei snert nál. Núna
er ég hins vegar á fullu í þessu. Fólk
vill kannski leiðbeinanda til þess að
byrja með en það er nóg til af þeim
á höfuðborgarsvæðinu og alveg
sjálfsagt að leita til þeirra. Það eru
til dæmis tvær félagsmiðstöðvar í
Kópavogi fyrir eldri borgara; Gull-
smári og Gjábakki. Þar kemur fólk
saman, hjálpar hvort öðru auk þess
sem góðir aðstoðarmenn eru til stað-
ar ef þörf er á. Svo er þetta auðvitað
voðalega gaman - þó svo að ég sé oft
eini karlmaðurinn með öllum kon-
unum!“
Ætlarðu að halda ötull áfram í
listamennskunni í náinni fram-
tíð?
„Já, auðvitað. Ég hætti þessu sko ekki
- það er alveg á hreinu. Þetta á eftir
að fylgja mér, ásamt kímnigáfunni.
Ég er nú svolítill grínari í mér inn
við beinið. Maður á að hafa gaman
af lífinu og skella upp úr stöku sinn-
um, þannig lifir maður lengi. Ég
ætla bara að njóta þess að vera til og
þá verð ég hérna lengi,“ segir þessi
lífsglaði listamaður að lokum. Hann
bendir að auki á að hann eigi e.t.v.
eftir að leggja land undir fót þar sem
hann hafi aldrei farið út fyrir land-
steinana.
„Ég hef aldrei farið til útlanda. Mér
líður svo vel á íslandi og hef aldrei
fundið hjá mér þörf fyrir að skella
mér til annarra landa. Móðir mín
fór fyrst til útlanda áttræð og það er
aldrei að vita nema maður geri slíkt
hið sama.
halldora@vbl.is
■ Kl R
um
Laugardagskvöldið
29. október
Rokkgoðið
Rúnar Júlíusson
& hljómsveit
Sérstakur gestur Óttar Felix Hauksson
fjólahlaðborð
Valhallar
Vandað jólahlaðborð að hætti eins fremsta
matreiðslumeistara landsins, Lllfars Finnbjörnssonar.
Yfir boróhaldi á föstudags- og laugardagskvöldum mun
Védis Hervör sjá um aö halda uppi notalegri jólastemningu við
undirleik Valda úr Bang Gang.
Við minnum á að nú er opið á Hótel Valhöll allan ársins hring og tilvalið að nýta sér
frábæra gistipakka Valhallar og dekra við sig i skammdeginu.
Frábær þriggja rétta óvissumatseðill sem svo
sannarlega hefur slegið í gegn
Alla
rAllar nánari upplýsingar á heimasíöu okkar
■ www.hotelvalholl.is
| Hótel Valhöll, Þingvöllum / S: 480-7100
hotelvalholl@hotelvalholl.is