blaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INWLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaðiö
SUSHI
t r n i n
FL-Group:
Tvöfaldar hlut sinn í íslandsbanka
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Þorgils óttar Mat-
hiesen, fráfarandi
forstjóri Sjóvá
Þór Sigfússon,
nýráðinn forstjóri
Sjóvá
Forstjóra-
skipti hjá
r r
Sjova
Þorgils Óttar Mathiesen,
forstjóri Sjóvá, mun láta af störf-
um hjá fyrirtækinu og tekur
við stjórnun
fasteigna- og
þróunarfélags
Klasa. Þetta
gerist í kjölfar
þess að Þorgils
keypti 40% hlut
í félaginu. Aðrir
eigendur Klasa
eru Sjóvá og
íslandsbanki.
Stjórn Sjóvá
hefur ráðið
Þór Sigfússon
sem forstjóra
fyrirtækisins en
hann mun hefja
störf í desemb-
ermánuði. Þór
er hagfræðingur að mennt. Þá
hefur Sjóvá ráðið Helga Bjarna-
son, tryggingastærðff æðing,
sem aðstoðarforstjóra félagsins.
Tundurdufl í
veiðarfærum
Sprengjusveit Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð út í gær til
að gera tundurdufl óvirkt sem
kom upp með veiðarfærum tog-
arans Þórunnar Sveinsdóttur
VE-401 en skipið var á veiðum
út af Austfjörðum. Skipverjar
óskuðu eftir aðstoð Landhelg-
isgæslunnar laust eftir hádegi í
gær eftir að þeir urðu dufls-
ins varir og var TF Lff, þyrla
Landhelgisgæslunnar, send
í kjölfarið með tvo sprengju-
sveitarmenn að skipinu. Var
hér um að ræða sprengiefn-
istunnu úr tundurdufli ásamt
forsprengju og hvellhettu. Er
talið að tundurduflið sé yfir
hálfrar aldar gamalt eða frá
tímum seinni heimsstyrjaldar.
Eignarhlutur FL Group í Islands-
banka jókst um rúm 50% í gær eða
frá 3,05% uppí 6,65% í kjölfar hluta-
fjárútboðs félagsins á fimmtudag-
inn. Verðmæti hlutar FL Group í
bankanum er nú um 13,3 milljarða.
Mikil eftirspurn
1 hlutafjárútboði FL Group sem lauk
sl. fimmtudag var fagfjárfestum
boðnir hlutir fyrir 8 milljarða króna
en eftirspurn reyndist vera mun
meirieðasemnam33,6milljörðum. 1
kjölfarið ákváðu KB-banki og Lands-
bankinn að skerða fyrirfram ákveð-
inn hlut sinn og því hækkaði tilboð
til fagfjárfesta uppí 12,9 milljarða. 1
hlutafjárútboðinu var mögulegt að
greiða fyrir nýja hluti með annað
hvort peningum eða hlutabréfum
í 10 stærstu félögunum í Kauphöll
Islands. Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Kauphöllinni að um 55,7%
mun verða greitt með peningum og
44,3% með hlutabréfum.
Hlutabréf hækkuðu
Aðloknuhlutafjárútboðinuerljóstað
FL Group á eftir hlutafjárútboð rúmlega 6% í Islandsbanka
Blalit/SteinarHugi
staða FL Group innan íslandsbanka
og Straums hefur styrkst verulega
enda fóru um sextán milljarðar í út-
boðinu í gegnum hlutabréf í þessum
tveimur félögum. Ganga verður frá
öllum greiðslum fyrir 16. nóvember
nk. og verði gengi hlutabréfa ísland-
banka 5% hærra eða lægra sem nem-
urskráðulokagengiþanng. nóvemb-
er hefur stjórn FL Group heimild til
að hafna viðtöku viðkomandi hluta
og krefjast peningagreiðslu þess í
stað. I útboðinu fékk FL Group hluta-
bréf í Straumi-Burðarási fyrir um
8,5 milljarða og í íslandsbanka fyrir
um 7,2 milljarða. Um 3,8 milljarðar
fóru svo í gegnum hlutabréf í öðrum
félögum í Kauphöllinni og alls nam
því greiðsla með hlutabréfum um 19
og hálfum milljarði. Staða FL Group
á íslenskum markaði er því um 35,5
milljarða og sé hlutabréf í Easyjet
bætt við nemur staðan um 56 millj-
örðum. Fram kom einnig i tilkynn-
ingu frá Kauphöllinni að hlutabréf í
FL Group hækkuðu í kjölfar viðskipt-
anna um 4,7% og var verð hlutar í
lok markaðar í gær 14,5 krónur. ■
FARICE bilanir:
Fyrirtæki flytja
þjónustu úr landi
Stöðugar bilanir á Farice sæstrengn-
um á þessu ári eru byrjaðar að
valda óróa í hugbúnaðargeiranum.
Á þessu ári hefur netsamband við
útlönd legið niðri fjórtán sinnum
og oft hefur sæstrengurinn einfald-
lega ekki staðist álagið og því hægst
verulega á öllum nettengingum. 1
gær tilkynntu tvö hugbúnaðarfyrir-
tæki að þau myndu flytja netþjóna
sem sinna erlendum viðskiptum úr
landi. Fyrirtækin eru annarsvegar
Hex hugbúnaðarhús og hinsvegar
Frontur ehf. Fyrrnefnda fyrirtæk-
ið rekur efnisveituna hexia.net en
það síðarnefnda rekur vefsetur fyrir
meðal annars danskan, bandarísk-
an og kínverskan markað. Hætt er
við að fleiri svipuð fyrirtæki fylgi
í kjölfarið ef ekki verður gerð brag-
arhót á. Samkvæmt samgönguráðu-
neytinu er unnið að því að skoða
möguleika á tvöföldun Farice en
ekki hefur nein endanleg ákvörðun
um það mál verið tekin.
I tilkynningu frá stjórn Fronts
www. MADE IN ICELAND As
Blalil/Frikki
vegna málsins í gær segir að skorað
sé á ráðamenn að grípa í taumana
„því ekki er auðvelt að fá fyrirtæki
heim aftur með þá netþjóna sem
fluttir eru úr landi. Það er alveg ljóst
að hér eru störf og tekjur að tapast
fyrir þjóðarbúið þar sem margir að-
ilar í skyldum rekstri hafa þegar tek-
ið af skarið og flutt sýna netþjóna
úr landi“ eins og segir í tilkynning-
unni. ■
Kvittunarpappír:
Verslanir velja
verri gerðina
Verslanir velja frekar ódýrari pappír
og þá lélegri sem veldur því að let-
ur er viðkvæmara og máist frekar
af. Þetta segir Jóhannes Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Pappírs hf„ en
hann er einn helsti sölu- og fram-
leiðsluaðili fyrir kvittunarrúllur á
íslandi.
Þarf að geyma pappír rétt
1 frétt Blaðsins á fimmtudaginn var
talað um að vegna lélegs pappírs
ætti letur á sumum kassakvittun-
um það til að hverfa eftir smá tíma.
Þetta væri vandamál fyrir fólk sem
þyrfti að sýna kassakvittun til að
fá vöru, keypta í ábyrgð, greidda til
baka og einnig fyrir fyrirtæki sem
er gert skylt að geyma bókhald í allt
að sjö ár. Að sögn Jóhannesar eru
gæði pappírs mismunandi. I hans
tilviki er um þrjár gerðir að ræða
þar sem endingartími leturs er gef-
inn samkvæmt staðli frá allt niður
í fimm ár, hvað ódýrustu gerðina
varðar, upp í allt að 12 ár í dýrasta til-
vikinu. „Þetta er, vel að merkja, háð
því að pappírinn sé rétt geymdur.
Það má t.d. ekki geyma hann und-
ir glampandi sól svo dæmi sé tekið
því þá getur endingartími ódýrasta
flokksins verið frekar stuttur."
BlaSiS/Frikkl
Jóhannes segir eftirsókn eftir ódýrum og
verri pappir vera að aukast.
Velja ódýrari gerðina
Jóhannes segir að ekki eigi að geyma
þennan pappír í plasti því þá eigi
íetrið til með að tærast og þar með
talið plast í veskjum. Hann segir
ennfremur að verslanir eigi það til
að velja frekar ódýrustu gerðina þar
sem þær telja sig spara töluvert á því.
„Sumar búðir vilja bara fá það ódýra.
Það er nefnilega búið að koma því
í hausinn á okkur Islendingum að
ekkert má kosta og helst þarf allt
að vera ókeypis,“ segir Jóhannes að
lokum. ■
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka dagæ 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
(3 Heiðskirt 0 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítilsháttar Rigning 9 9 Súid
;jc ^ Snjókoma
*
\^J Slydda \^J Snjóél
Skúr
Amsterdam 11
Barcelona 17
Berlín 11
Chicago 07
Frankfurt 11
Hamborg 11
Helsinki 08
Kaupmannahöfn 10
London 10
Madrid 12
Mallorka 18
Montreal -02
New York 05
Orlando 18
Osló 07
París 08
Stokkhólmur 10
Þórshöfn 05
Vín 08
Algarve 18
Dublin 09
Glasgow 08
0C
*
Veðurhorfur í dag ki: 18.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands