blaðið - 12.11.2005, Page 4

blaðið - 12.11.2005, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöiö Kaupmáttur launa Jókst um 1,4% milli ára Könnun sem gerð var á vegum Hagstoíunnar sýnir að laun hækkuðu að meðaltali um 5,4% frá því á sama tíma í fyrra í iðn- aði, byggingarstarfsemi, mann- virkjagerð, verslun og viðgerðar- þjónustu. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0%. Samkvæmt því jókst kaupmátt- ur launa að meðaltali um 1,4% í þessum atvinnugreinum. Launa- hækkun starfsstétta var á bilinu 4,5% til 6,0%. Laun á almenn- um vinnumarkaði hækkuðu almennt skv. kjarasamningum um 3% þann 1. janúar 2005. Flestir fá 3% Niðurstöður eru byggðar á launum tæplega 7 þúsund einstaklinga sem voru í úrtaki launakönnunar Hagstofunnar á 3. ársfjórðungi 2004 og 3. árs- fjórðungi 2005. Könnunin sýnir að flestir launamenn í iðnaði, byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð, verslun og viðgerð- arþjónustu fengu 3% hækkun reglulegra launa á tímabilinu. Helmingur fékk allt að 4,1% hækkun og fjórðungur fékk meiri launahækkun en 11,9%. Ólafur Darri Andrason, hag- fræðingur ASl, segir að þær upp- lýsingar sem fram koma í frétt Hagstofimnar sýni að laun hafi hækkað um 5,4% að meðaltali frá þriðja ársfjórðungi 2004 til þriðja ársfjórðungs 2005. ólafur Darri segir að í frétt Hagstof- unnar komi fram launaþróun í einstökum starfsstéttum og atvinnugreinum. Þar komi fram að gæðunum sé nokkuð misskipt.„Við sjáum að það er þensla í byggingarstarfsemi en staðan er aftur á móti erfiðari hjá útflutningsfyrirtækjunum,“ segir Ólafur Darri og bætir við að þessar upplýsingar staðfesti það sem hann hafi haldið. Kaupmáttur rýrnar Ólafur Darri segir að hjá um 40% af þeim sem eru í úrtakinu sé kaupmáttur að rýrna, en að 60% fái kaupmátt sem standi f stað eða aukist.„Á þessu má sjá að sú kjarabót sem fólk er að fá er misskipt eftir starfsstéttum og atvinnugreinum,“ segir Ólaf- ur Darri. Þá segir hann eðlilegt að fólk hafi væntingar um kaup- máttaraukningu þegar verð- mætasköpunin er að aukast eins og núna. Nú er launaskrið minna en við svipaðar aðstæð- ur á tímabilinu 1998-2001. Hafrannsóknarstofnun: Fjárveitingar auknar Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, til- kynnti í gær að óskað yrði eftir auknum fjárlögum til Hafrannsóknastofnunnar frá og með næsta ári. Óskað er eftir 50 milljón króna fjárlög- um á næsta ári og síðan um 100 milljónir króna frá og með fjárlögum ársins 2007. Hafrannsóknastofnunin hygg- ist á næsta ári efla rannsóknir á vistkerfi fslandshafs, frá Grænlandssundi norður og aust- ur um land og leggja sérstaka áherslu á loðnurannsóknir. Varaformaður Félags fasteignasala: Vaxtahækkun kemur verulega á óvart Fasteignasalar óhressir með hœkkun á vöxtum íbúðalána. Þeir vilja ekki að íbúðalánasjóður hverfi afmarkaði. Landsbankinn hækkaði í gær vexti á íbúðalánum úr 4,15% upp í 4,45%. Með þessu segist bankinn vilja leggja lóð á vogarskálarnar og styðja stjórnvöld og Seðlabank- ann í þeirri viðleitni að viðhalda efnahagslegum stöðugleika líkt og fram kemur í fréttaskeyti. Haukur Geir Garðarsson, varaformaður Félags fasteignasala, segir þessa hækkun koma á óvart. Ekki mikil áhrif f fréttaskeyti frá bankanum segir að ákvörðun um hækkun vaxta sé rökrétt framhald af ákvörðun hans um að lækka hámark fbúða- lána úr 90 í 80%. Þá kemur einnig fram að þessi hækkun hafi ekki áhrif á þau lán sem nú þegar hafa verið tekin hjá bankanum. Haukur Geir segist vera afar hissa á þessu en segir að hækkunin muni ekki hafa mikil áhrif á þróun fasteigna- markaðar. „Þetta kemur mér reynd- ar verulega á óvart. Ég var búinn að heyra ávinning af þessu fyrir ; rúmum mánuði síðan og fannst i það mjög skrýtið. Ég hélt reyndar 'i að þessi áhugi þeirra væri genginn til baka í ljósi vísitöluhækkunar á milli mánaða. Ég sé bara ekki rök- in í þessari hagfræði. Ég geri samt ekki ráð fyrir því að þetta muni hafa mikil áhrif á markaðinn.“ Fasteignasalar telja að fbúðalánasjóður sé mikilvægur í því að veita bönkunum aðhald GunnViildur Hrólfsdóttir Engin samkeppni milli bankanna Haukur segist ennfremur ekki sjá rök bankans í þessum vaxtahækk- unum og segir þær fyrst og fremst bitna á almenningi sem muni þurfa að þola aukna greiðslubyrði. Þá seg- ir Haukur fasteignasala uggandi yfir þeim möguleika að íbúðalánasjóður hverfi af markaði því bankarnir hafi ekki sýnt í verki eðlilega samkeppni og hægt sé að túlka þessa vaxta- hækkun sem sýnishorn af því sem koma skal. „Er eðlilegt að þeir séu allir með sömu vextina og allir með sama lántökugjaldið? Það er nánast enginn munur á milli bankanna. Hvar er samkeppnin spyr ég? Þetta minnir mann svolftið á olíufélögin." Með hliðsjón af miklum hagn- aði bankanna væri rétt, að mati Hauks, að bankarnir héldu vöxtun- um óbreyttum. „Bönkunum mundi ekki veita af þeirri jákvæðu ímynd sem það mundi kalla fram. Núna verður allavega spennandi að sjá hvað hinir bankarnir munu gera.“ ■ LEYNDARMAL jolasapa ÖIÍÍÖR*?- —með ekta jólailm by SEKONDA ■ ■ rnjöllfqgg -hrcinlega sterkari Dreifing: BéBé Vöruhús ehf. Sími512-3000 by SEKONDA Utsölustaðir: Jens Kringlunni ■ Gilbert úrsmiður Laugavegl 62 • Helgi Sígurösson úrsmiður Skólavöróustíg 3 • Georg Hannah úrsmiður Keflaúfk • Guðmundur B. Hannah úrsmiður Akranesi • Úra- og skartgripaverslun Karls R. GuðmuiSdssonar Selfossi

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.