blaðið - 12.11.2005, Side 12

blaðið - 12.11.2005, Side 12
12 IFRÉTTASKÝRING LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 bla6iö Umdeild lagafrumvörp um varnirgegn hryðjuverkum í Bretlandi ogÁstralíu: Aðför að mannréttindum og ógn við lýðræði Munið eftir Friðriki í 5. sætið! FRAMSÓKNARFLOKKUfttNM Friðrik G. Gunnarsson gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Framsóknar- flokksins í Smáraskóla laugardaginn 12. nóv. Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af frumvarpi til laga gegn hryðju- verkum sem nýlega var samþykkt í Ástralíu og öðru frumvarpi um sama efni sem fellt var á Bretlandi á miðvikudag. Áður en gengið var til atkvæðagreiðslu um frumvörp- in tvö varaði Alþjóðasamband blaðamanna við því að lögin væru ógn við lýðræði og frelsi fjölmiðla og með þeim væru þeim sem ynnu við fjölmiðla „sendar kaldar kveðj- ur“. í yfirlýsingu frá sambandinu segir að í frumvörpunum séu sett- ar verulegar hömlur á tjáningar- frelsi ogviss tegund tjáningar jafn- vel gerð glæpsamleg. Aidan White, aðalritari sambandsins, sagði að í báðum tilfellum myndu lögin gerbreyta eðli almennra skoðana- skipta í þessum samfélögum. Nýta sér ótta almennings Kvartar sambandið ennfremur yfir því að ríkisstjórnir í löndunum tveimur nýti sér ótta almennings við hryðjuverk til að réttlæta lagasetn- inguna. „Bresku lögin sem nú liggja fyrir eru ruglingsleg og gerir að engu hina miklu hefð sem er fyrir tján- ingarfrelsi í landinu," sagði White og bætti við að ef slík löggjöf hefði verið í gildi síðastliðin 30 ár hefði ekki ver- ið frjáls fjölmiðlun á Norður-frlandi og það hefði haft hörmulegar afleið- ingar í för með sér fyrir friðarferlið sem þar stendur yfir. Hagsmunasamtök fjölmiðlafólks og listamanna í Ástralíu (Media Entertainment & Arts Alliance) segja að samkvæmt nýjum lögum gegn hryðjuverkum sé hægt að kæra hvern sem er fyrir uppreisnaráróður án þess að þeir hefðu gerst sekir um að hvetja til ofbeldis eða valdbeiting- ar eins og kveðið var á um í fyrri lögum. „f raun verður hægt að kæra blaðamann samkvæmt þessum lög- um sem hefur skrifað frétt um eða birt athugasemdir gegn aðgerðum stjórnvalda, lögreglu eða dómskerfis- ins,“ segir Cristopher Warren, ritari samtakanna. Það sama gildir um gjörningalistamenn eða kvikmynda- gerðarmenn sem taka þátt í verkefn- um sem fela í sér ádeilu gegn stjórn- völdum. Hægt að leggja hald á trúnaðarupplýsingar Samkvæmt lögunum fær lögregla ennfremur auknar heimildir til að leggja hald á skjöl sem kunna að tengj- ast alvarlegri hryðjuverkaógn. Hún getur meðal annars þvingað blaða- menn til að iáta af hendi upplýsingar, þar á meðal nöfn heimildarmanna sem njóta trúnaðar. Blaðamennirnir Ríkisstjórnir í Bretlandi og Ástralíu hafa verið gagnrýndar fyrir að nýta sér ótta almennings við hryðjuverk til að réttlæta umdeild frum- vörp til laga gegn hryðjuverkum. mega ennfremur eiga yfir höfði sér sektir ef þeir neita að fara að tilmæl- um lögreglu. Þeir mega jafnvel eiga von á háum fjársektum fyrir það eitt að segja frá því að lögregla hafi falast eftir upplýsingum hjá þeim. Alþjóðlegumannréttindasamtökin Amnesty International létu einnig í ljósi áhyggjur af frumvörpunum til laga gegn hryðjuverkum bæði í Bret- landi og í Ástralíu. Það var ekki síst ákvæði um lengd gæsluvarðhalds án ákæru sem gagnrýnt var í breska lagafrumvarpinu. Samtökin vöruðu við því að ákvæði um gæsluvarðhald yrðu að virða ýmis grundvallarmann- réttindi. Þar með talin eru réttindi mánna til frelsis, bann við geðþótta- ákvörðunum um gæsluvarðhald og réttur varðhaldsfanga til að vera ákærður án tafar. Þá hafa samtökin jafnframt bent á að því lengur sem maður er yfirheyrður í gæsluvarð- haldi þeim mun meiri líkur séu á því að dómstólar dæmi yfirlýsingar sem hann gefi ómerkar. „Ríkisstjórnin og þingmenn á Bretlandi mega ekki gera neinar málamiðlanir þegar kem- ur að þessum réttindum. Sá tími sem halda má manneskju í varðhaldi, án þess að kæra sé lögð fram, á ekki að vera ágreiningsefni í pólitískum samningaviðræðum. Rétturinn til að vera ákærður án tafar skilur á milli þess hvort virðing sé borin fyrir rétt- inum til frelsis eða hvort geðþótti ræð- ur ákvörðunum um gæsluvarðhald," segir í fréttatilkynningu sem sam- John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, segir nýju iögin nauðsynleg vegna þjóð- aröryggis. Tony Blair hefur ásakað meirihluta þing- manna um að vera ekki í tengslum við almenning og gera sér ekki grein fyrir hvílík ógn stæði af hryðjuverkum. tökin sendu frá sér eftir að Charles Clarke, innanríkisráðherra, hafði dregið lögin til baka í síðustu viku. Ýmis mannréttindi í hættu Ástralíudeild Amnesty hefur einnig lýst yfir áhyggjum af þeim lögum sem þar er nýbúið að samþykkja. Líkt og á Bretlandi voru það ekki síst ákvæði um gæsluvarðhald sem mót- mælt var en samkvæmt nýju lögun- um verður hægt að halda fólki í allt að 14 daga án þess að ákærur séu lagð- ar fram. Þá finnst samtökunum sér- staklega aðfinnsluvert að samkvæmt nýju lögunum verði hægt að hneppa í gæsluvarðhald börn á aldrinum 16 til 18 ára. Það brjóti í bága við alþjóð- leg viðmið sem kveða á um að ekki skuli hneppa börn í gæsluvarðhald nema þegar menn eiga enga aðra úrkosti. Ennfremur telja samtökin að ógn stafi af ýmsum stjórnarskrár- bundnum mannréttindum svo sem tjáningarfrelsi og rétti fólks til að vera talið saklaust áður en sekt er sönnuð. Frumvarpið fellt í breska þinginu Frumvarp til laga gegn hryðju- verkum var fellt í breska þinginu á miðvikudag. Þetta þykir gríðarlegt áfall fyrir Tony Blair og er talið að málið muni veikja stöðu hans sem forsætisráðherra. Blair bar höfuðið hátt þrátt fyrir tapið og á ríkisstjórn- arfundi daginn eftir sakaði hann meirihluta þingmanna um að vera ekki í tengslum við almenning og að þeir gerðu sér ekki grein fyrir hvílík ógn stafaði af hryðjuverkum. í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar á miðvikudag gerði Blair sér grein fyr- ir að ekki mátti miklu skeika til að frumvarpið yrði fellt og kallaði hann meðal annars Gordon Brown, fjár- málaráðherra, og Jack Straw, utan- ríkisráðherra, heim frá útlöndum til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Tony Blair hvatti þingmenn til að sýna ábyrgð og varaði þá við því að þeir stefndu öryggi landsins í hættu með andstöðu sinni við frumvarpið. Hann sagði það vera skyldu þeirra að styðja frumvarpið og benti ennfrem- ur á að komið hefði verið í veg fyrir tvær hryðjuverkaárásir í landinu síðan árásirnar í London voru gerðar í júlí á þessu ári. Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, dró hið umdeilda frum- varp gegn hryðjuverkum til baka í síðustu viku þegar sýnt þótti að það myndi ekki verða samþykkt þar sem stór hópur stjórnarþingmanna hafði snúist gegn því. Á mánudagskvöld tilkynnti hann síðan að sú breyting yrði gerð á frumvarpinu að umdeild- asta ákvæði þess yrði endurskoðað eftir eitt ár. Ákvæðið umdeilda veit- ir lögreglu rétt til að halda grunuð- um í allt að þrjá mánuði án þess að ákæra sé lögð fram. Ríkisstjórnin hélt því fram að nauðsynlegt væri vegna þjóðaröryggis að hafa 90 daga hámarksgæsluvarðhald. Þingmenn Frjálslyndra jafnaðarmanna vildu aft- ur á móti að hámarkslengd gæsluvarð- halds án ákæru yrði 14 dagar. Ihalds- menn vildu aftur á móti að dagarnir yrðu 28. Lagasetningu hraðað í Ástralíu John Howard, forsætisráðherra Ástr- alíu, var harðlega gagnrýndur fyrir að hafa hraðað frumvarpi um hert lög gegn hryðjuverkum í gegnum ástralska þingið í síðustu viku. Rík- isstjórnin hafði kallað saman þingið til að afgreiða frumvarpið sem gef- ur meðal annars lögreglu víðtækari heimildir en áður til að berjast gegn hryðjuverkaógnum. Verkamanna- flokkurinn, jafnaðarmenn og græn- ingjar sökuðu ríkisstjórnina um að vera í pólitískum hráskinnaleik með þjóðaröryggi og reyna að hræða Ástrali. Howard vísaði ásökununum á bug og sagði breytingarnar á lög- gjöf gegn hryðjuverkum vera í þágu þjóðaröryggis. Afgreiðsla frumvarpsins hafði tafist vegna andstöðu sumra fylkis- stjóra við það. Ríkisstjórnin þurfti á stuðningi allra fylkja að halda til að frumvarpið næði fram að ganga en fylkin lúta stjórn Verkamanna- flokksins sem er í stjórnarandstöðu. Leiðtogar hinna átta fylkja Ástralíu sögðust hlynntir frumvarpinu í sept- ember gegn loforði um að lögin yrðu endurskoðuð eftir fimm ár. Meintir hryðjuverka- menn handteknir Skömmu áður en atkvæði voru greidd um frumvarpið í síðustu viku tilkynnti Howard að yfirvöld hefðu fengið veð- ur af því að hryðjuverkamenn hefðu í hyggju að gera árás á landið án þess að tiltaka nánar í hverju hættan fælist. Jafnframt réttlæti hann flýtiafgreiðslu þingsins á frumvarpinu með vísun til þessarar ógnar. Á þriðjudag handtók lögregla íjölda manna sem grunaðir eru um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverkaárásir í umfangsmiklum aðgerðum í Sydney og Melbourne. Umdeildasta atriði I frumvarpinu er heimild lögreglu til að skjóta meinta hryðjuverkamenn til bana við vissar aðstæður. Ennfremur fær lögregla víðtækari heimildir til að leita á fólki og að samhæfðri stjórn verður komið á á flugvöllum landsins. Þá eru uppi ráðagerðir um að ævilangt fangelsi liggi við því að fjármagna starfsemi herskárra samtaka og hægt verður að hafagrunaðahryðjuverkamenn í varð- haldi án ákæru í 14 daga.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.