blaðið - 12.11.2005, Síða 14

blaðið - 12.11.2005, Síða 14
blaðið____ Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. NÖLDURFLOKKUR í FRJÁLSU FALLI I dag er haldinn fyrsti flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varð formaður, en síðan er liðið hálft ár. Á honum mun verður talað um allt annað en stöðu flokksins. Ingibjörg Sólrún sjálf - ekki síður en stuðningsmenn hennar - lofaði miklum breytingum. Stefnan átti að verða skýrari. Fylgið átti að aukast og menn nefndu jafnvel 40%. f dag er Samfylkingin aðeins með 27,8% fylgi. Flokk- urinn er í frjálsu falli. Hann hefur tapað fylgi í hverri einustu könnun frá því Ingibjörg varð formaður. f því samhengi þýðir ekki að benda á utanaðkomandi aðstæður, því það er vitaskuld hlutskipti allra stjórnmálamanna að bregðast við slíku. Stjórnmálaleiðtogar móta hins vegar þann farveg í stað þess að vera ei- líf fórnarlömb kringumstæðna. Formanninum og flokksmönnum Sam- fylkingarinnar er hollt að muna, að veldur hver á heldur. Samfylking var orðinn að frekar jákvæðum flokki og stundum frísk- legum, sem stóð undir nafni sem nútímalegur jafnaðarmannaflokkur. Ingibjörg Sólrún hefur á hinn bóginn breytt Samfylkingunni í neikvæð- an tuð- og nöldurffokk, sem er á hraðri leið til vinstri, eins og vinstri- grænir sinni þeirri eftirspurn ekki fullkomlega. Hún nöldraði yfir vel- heppnaðri sölu Símans og tuðaði yfir að útlendingar hefðu ekki boðið í hann. Þá sjaldan hún rauf pólitíska þögn sína í sumar var það aðeins til þess að kvarta undan vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar vegna sölu Búnað- arbankans. Hún boðaði skattahækkanir, sem stuðningsmaður hennar, Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, kallaði „heimskulegar“. Hún fór á þing LÍÚ og boðaði fráhvarf frá sjávarútvegsstefnu flokksins, en virtist nokkrum dögum slðar vera búin að taka hana aftur upp. Með kjöri Ingibjargar áttu flestir - nema kannski Davíð Oddsson fjandvinur hennar - von á nýjum hugmyndum og nýjum efnistökum. Þegar Ingibjörg kynnti helstu þingmál vetrarins dró hún upp gömul þing- mál frá Jóhönnu Sigurðardóttur um velferð aldraðra og öryrkja. Málin voru vafalaust alls góðs makleg, en vart til marks um ferskleika nýs for- manns. Á Alþingi hefur Samfylking Ingibjargar aðallega vakið eftirtekt fyrir ósýnileika formannsins og málsvörn fyrir auðhringi. Hvað varð um framtíðarhópinn og jafnaðarstefnu 21. aldar? Hvar er hinn breiði jafnaðarmannaflokkur á miðju íslenskra stjórnmála? f dag veit enginn fyrir hvað Samfylkingin stendur. Flokkurinn er með og á móti varnarliðinu, með og á móti skattahækkunum, með og á móti einkarekstri í heilbrigðiskerfinu, og með og á móti kvótakerfinu. Á sama tíma er flokkurinn í borginni rjúkandi rúst eftir andlát R-listans, sem rekja má beint til þess hvernig Ingibjörg kom fram við samstarfs- flokkana þegar hún gekk á bak orða sinna og fór í landsmálin. Umskiptin á stöðu Samfylkingarinnar verða þó varla rædd á fundin- um í dag. f flokki umræðustjórnmála ræða menn ekki um axarsköft. Um það er þegjandi samkomulag. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Kópavogsbúar munið opið prófkjör í dag í Smáraskóla 14 I ÁLIT LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 biaóið 'JÍLEbl s'Kt' tzTÆK < \ Leitin að þriðja manninum Það er ágæt regla í lífinu, og góð hernaðartækni, að virða andstæðing- inn, þekkja styrkleika hans og sömu- leiðis veikleika. Öðruvísi er erfitt að sigra hann. Það er ekki skynsamleg regla að standa í stöðugu skítkasti við andstæðinga sína. Fólk gerir sig alltof oft marklaust með slíku tali. Það mun hafa verið Stefán Jón Haf- stein sem sagði eitthvað á þá leið að í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins hefði verið um tvo laka kosti að ræða. Það var óþarfi að tala á þenn- an hátt og Stefán Jón hlýtur að hafa gert sér grein fyrir því, svona eftir á. Alla vega vona ég að svo hafi verið því þetta voru arfavitlaus orð. Fyrir sjálfstæðismenn var einfaldlega um tvo góða kosti að ræða. Það hefði vissulega verið spennandi að sjá hver framvindan yrði hefði Gísli Marteinn unnið prófkjörsslaginn en hugsanlega var það, á þessum tímapunkti, áhætta sem sjálfstæð- ismenn höfðu ekki efni á að taka. Sjálfstæðisflokkurinn er með sterk- an framboðslista og að mörgu leyti spennandi. Ég get vel treyst þessu fólki til að standa sig vel við stjórn- un borgarinnar - án þess að ég sé þar með að lofa atkvæði mínu. Ég er bara að láta andstæðinginn njóta sannmælis. Vandræðagangur Samfylkingar Nú er yfirvofandi sambærilegt leið- togaprófkjör hjá hinu mikla kærleiks- heimili, Samfylkingunni. Nokkrum mánuðum fyrir prófkjörið er kom- inn kurr innan flokksins. Kemur mér ekkert á óvart. Þetta er nú einu Kolbrún Bergþórsdóttir sinni þannig samsettur flokkur að innan hans eru hópar sem þola ekki hvern annan. Ég nefni engin nöfn. Ja, nema hvað ég sá að Mörður Árnason sendi Stefáni Jóni Hafstein tóninn á heimasíðu sinni. Ég hef hitt samfylkingarmenn sem hugsa svip- aðar hugsanir og þær sem Mörður kom í orð. Sem félagsmaður í Samfylking- unni ber mér víst siðferðileg skylda til að kjósa í því prófkjöri. En ég hef náttúrulega líka skyldur við sam- visku mína og ég sé ekki vænlega kosti í leiðtogakjörinu. Ég sé tvo laka kosti. Mér sýnist að ég sé ekki ein í mínum vandræðagangi. Meira að segja formaður Samfylkingar grát- bænir fólk utan Samfylkingar um að blanda sér í baráttuna. Það hlýt- ur að vera staðfesting þess að Sam- fylkingin á í basli með að finna sér leiðtoga í borginni. Kannski hlýðir einhver góður og sanngjarn einstak- lingur kalli formannsins. En mikið finnst mér snautlegt ef Samfylking- in þarf að leita utan eigin raða eftir leiðtoga. Það er ekki allt í góðum gír hjá flokki þar sem svo háttar. Leitin að ieiðtoganum Samfylkingin er í vandræðum. Borg- arstjórinn I Reykjavík er kona sem var sett í embættið vegna þess að hún þótti meinlaus. Hún er sögð vera valdalaus, eins konar varaskeifa þar til „alvöru“ kandídat kæmi fram og sigraði í prófkjöri. Annað leiðtoga- efni Samfylkingar er maður sem er vægast sagt umdeildur innan flokks- ins enda er hann orðhvatur maður og á til ótrúlegan hroka sem hleypir illu blóði í menn. Ekkert þráir hann heitar en að verða borgarstjóri. Mér finnst reyndar sitthvað fallegt við að þrá eitthvað svona heitt og inni- lega. En ég held að Stefán Jón yrði ekki farsæll borgarstjóri. Samfylkingin þarf sterkan leið- toga í borginni ætli hún sér að sigra Sjálfstæðisflokkinn í næstu borgar- stjórnarkosningum. Nú hefst leitin að þriðja manninum. Klippt & skoríð Framsóknarmenn ganga nú að því sem gefnu að Alfreð Þorsteinsson verði keyptur til að hætta í borg- armálum með þvf að verða launaður stjórnarformaður í Landsvirkjun. Flokksmenn hafa hins vegar tak- markaða trú á að Anna Kristinsdóttir, borgarfull- trúi, geti flikkað upp á fylgið enda liggja afrek hennar í borgarstjóm ekki á glámbekk. Vonarpen- ingurinn og almenningstengill Halldórs Ásgríms- sonar, Björn Ingi Hrafnsson, mun fátt vera að van- búnaði f slaginn. Andstæðingar hans benda þó á að mlðað við hvernig Bimi Inga hefur tekist upp við að bæta (mynd Halldórs þurfi Framsókn vart um sárt að binda undir forystu hans í borginni. Er nú leitað logandi Ijósi að nýjum og ferskum kand- ídat. Augu sumra hafa staðnæmst viðfréttamann- inn gamla Eggert Skúlason. Sá hængur er þó á að Eggert mun ekki vera í Framsóknarflokknum. ISamfylkingunni f Reykjavík leggja ungir jafnaðarmenn á ráðin um að senda Andrés Jóns- son, formann UJ, í prófkjör sem sinn fulltrúa og ætla honum þriðja sætið. Innan- búðarmenn telja þó að Andrés muni líklega lenda í samkeppni við annan UJ-ara, Bryndisi (sfold Hlöðversdóttur. Andrés er þó litinn illu auga af mörgum þingmönnum og fiokksbrodd- um (Reykjavík, þar sem hann ertalinn ábyrgur fyrir vægast sagt umdeildum aðferðum, sem beitt var til að fella virtan þingmann, Lúðvik Bergvinsson, i varafomannskjöri flokksins i vor sem leið. Innan flokksins eru margir þeirrar skoðunar að það mál sé óuppgert. A starjátning Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til útgerðarmanna á LfO þinginu um daginn virðist hafa kom- klipptogskorid@vbl.is ið flokksmönnum algerlega á óvart. (plstli á heimasíðu sinni sá Jóhann Ársælsson, þingmaður og lengi vel talsmaður flokksins í sjávar- útvegsmálum, ástæðu til að itreka andstöðu sfna gegn kvótakerfinu. Sama mátti lesa á heimasiðu Marðar Árnasonar. (fyrradag skrifuðu svo tveir flokksmenn, Björgvin Guðmundsson, fyrrv. borgarfulltrúi, og Björn Davíðsson, flokks- stjórnarmaður í Samfylkingunni, greinar í Fréttablaðið þar sem þeir lýsa stuðningi sínum við óbreytta stefnu flokksins. Kúvending Ingi- bjargar virðist þvi bundin við þrönga kliku ráð- gjafa. I hópi heistu trúnaðarmanna hennar er kvótaerfinginn Ágúst Ó. Ágústsson, sem hvísl- að er um að sé varaformaður flokksins.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.