blaðið - 12.11.2005, Side 16

blaðið - 12.11.2005, Side 16
16 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöiö o^nPoio Þegar staðreyndum er snúið á hvolf Kringlan s.568 5757 Af frásögn Fréttablaðsins á dögun- um mætti ráða að Össur Skarp- héðinsson hefði gerst taglhnýtingur Sigurjóns Þórðarsonar, alþingismanns, sem hefur haldið uppi afskaplega ómarkvissri og ómálefnalegri umræðu um ráðstefnu sjávarútvegsráðuneytis og Hafrannsóknastofnunar um nýlið- un og framleiðslugetu þorskstofnsins. Svo slæmt er þetta þó ekki. Það sem vitnað er í Össur mun vera úr gamalli ræðu hans á Alþingi af allt öðru tilefni. Sigurjón hélt því fram að ráðstefnan væri til marks um að verið væri að loka á alla umræðu um fiskveiðiráðgjöf og haffannsóknir. Þetta er víðs fjarri öll- um sanni. Á ráðstefnunni töluðu þrír erlendir ffæði- og vísindamenn frá jafnmörgum vísinda- og rannsóknar- stofnunum. Tveir frá Kanada og síðan forstjóri færeysku Hafrannsóknastofn- unarinnar voru með athyglisverð inn- legg. Tveir vísindamenn frá Hafrann- sóknarstofnun fluttu fróðleg erindi sem og prófessor í fiskifræði við Há- skóla Islands. Á dögunum var fyrsti fundurinn í ráðgjafanefhd Hafrannsóknastofn- unar. Þar áttu sæti vísindamenn, inn- Einar K. Guðfinnsson lendir og erlendir, auk fulltrúa úr sjávarútvegi, þ.m.t. starfandi sjómenn. Framundan er síð- an fundarherferð á vegum Hafrann- sóknastofnunar, þar sem heim- sóttir verða 14 stað- ir, allt til þess að örva umræðu um hið mikilvæga mál. Því fer þess vegna víðs fjarri að ætlun- in sé að kæfa umræðuna. Þvert á móti. Ætlunin er að örva slíka umræðu. Menn geta vitaskuld reynt að snúa öllum staðreyndum við eins og Sigurjón og draga síðan ályktan- ir út frá því. Og illt er fyrir Össur Skarphéðinsson að vera spyrtur við slíkt óðagot í blöðunum. En stað- reyndirnar geta menn ekki umflúið. Jafnvel þó þær passi illa við þann sýnd- arveruleika sem þeir kjósa að lifa í. EinarK. Guðfinnsson www.ekg.is Tannlæknakostnaður barna Gífurlegur munur eru á greiðsluþátt- töku Tryggingar- stofnunar ríkisins í tannlæknakostn- aði barna og ung- linga að 17 ára aldri og því verði sem greiða þarf fyrir tannlækningarnar. Þannig var greiðslu- þátttaka Trygging- arstofnunar ríkis-... ins rúmar 537 milljónir á árinu 2004 vegna tannlæknakostnaðar barna og unglinga að 17 ára aldri en raunkostn- aður sem greiða þurfti fyrir tannlækn- ingarnar voru rúmar 888 milljónir króna. Tryggingarstofnun ríkisins greiddi því einungis 60,5% af heildar- kostnaði við tannlækningar þessa ald- urshóps en foreldrar um 40%. Þetta er afleiðing þess að þrátt fyrir margra Jóhanna Sigurðardóttir Alþingismaður Prófkjör framsóknarfélaganna í Kópavogi 4' '& '4í ára tilraun eða frá 1999 hefur ekki enn tekist að semja við tannlækna. Stefnir í tvískipt tannheilbrigðiskerfi Ekki er langt síðan að fram kom hjá sérfræðingi í samfélagstannlækning- um að hér á landi stefni í tvískipt tannheilbrigðiskerfi þar sem hópur barna fari ekki til tannlæknis vegna þess að foreldrar hafi ekki efni á því. Ekki er langt síðan formaður Tannverndarráðs kynnti niðurstöðu rannsóknar um að 30% 16-17 ára ung- linga fari ekki til tannlæknis og 50% þriggja ára barna fari heldur ekki til tannlæknis. Tryggingatanniæknir hefur kallað eftir 100% endurgreiðslu Fyrir 1-2 árum kallaði trygginga- tannlæknir líka eftir því opinberlega að semja þyrfti aftur um fasta gjald- skrá og hækka um leið endurgreiðsl- una í 100%. Sömuleiðis þyrfti að hækka endurgreiðslualdurinn sem fyrst í 20 ár til samræmis við hin Norðurlöndin. Þegar heilbrigðisráð- herra er spurður um þetta á Álþingi skýlir hann sér ávallt á bak við að nú sé í gangi enn ein rannsóknin á tann- heilsu barna. Þegar hún liggi fyrir mun hann taka ákvörðun í málinu. Nú hefur ráðherra í svari til mín á Alþingi boðað að niðurstaða hennar verði kynnt fyrir áramót. Þá kemst ráðherrann ekki lengur undan að taka ákvörðun. Sannarlega verður eft- ir því gengið. Prófkjörið fer fram laugardaginn 12. nóvember frá kl. 10:00 til kl. 20:00 í Smáraskóla. Rétt til að greiða atkvæði eiga allir þeir sem skráðir eru til lögheimilis í Kópavogi og hafa náð 18 ára aldri þann 27. maí 2006 þegar sveitarstjórnarkosningar fara fram. Ágætu Kópavogsbúar, nýtið kosningarétt ykkar og takið þátt í prófkjörinu. Með því hjálpið þið til við að skapa sterkan lista framsóknarmanna. í miðstöð framsóknarfélaganna að Oigranesvegi 12 verður opið hús frá kl. 11:00 og fram eftir degi á kosningadag. Kosningavaka hefst ki. 19:30. "Wíítoi, Framsóknarfélögin í Kópavogi títli Iqúlluiiv fcEGAR. t>Xl ÍM; JSf TTA ÚTjlLL l}Á VyBKÐ,UR MAÐ, HLLGSÍt siwm PŒnæn

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.