blaðið

Ulloq

blaðið - 12.11.2005, Qupperneq 22

blaðið - 12.11.2005, Qupperneq 22
22 I JÓLABÆKUR LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöið Sagnamaðurinn Örn Clausen Örn Clausen er goðsögn í lifanda lífi. Þeir Haukur, tvíburabróðir hans, urðu ungir landskunnir sem Clausen-bræður en þeir voru í hópi fremstu frjálsíþróttamanna heims í kringum árið 1950. Örn varð síðar þjóðþekktur hæstarétt- arlögmaður. Hann er annálaður sagnameistari og húmoristi og í bókinni Sagnamaðurinn Örn Clausen, sem Eyrún Ingadóttir tók saman, lætur hann gamminn geysa. I bókinni segir hann yfir eitt hundrað sögur af sjálfum sér og fólki sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni. Þar koma við sögu góðkunningjar lögreglunnar, ráðherrar og pressari, íþróttagarpar og athafnaskáld, rón- ar og broddborgarar en síðast en ekki síst Örn sjálfur og tvíburabróð- ir hans, Haukur, svo aðeins nokkrir séu nefndir. Þetta er ekki eiginleg ævisasaga Arnar Clausen, enda komu tvíbura- bræðurnir, Haukur og Örn, sér sam- an um það fyrir mörgum árum „að skrifa aldrei ævisögur okkar vegna þess að aðeins 15% yrði satt og hitt yrði allt skáldskapur. Við ætluðum ekki að skrifa skáldsögu," eins og hann útskýrir í bókinni. Engu að síð- ur rifjar Örn í bókinni upp ýmislegt úr lífi sínu, uppákomur á löngum lög- mannsferli, eftirminnileg atvik frá þeim árum er þeir Clausen-bræður voru dáðar íþróttahetjur heima og er- lendis og frá bernskuárunum. Örn Clausen segir meðal annars frá því þegar Haukur varð örlaga- valdur í lífi nokkurra öskukalla í Reykjavík, skrautlegri flóttatilraun tveggja fanga, dýrkeyptu sérrýglasi, óvæntu heimsmeti, fjármálaráð- herra sem tók til hendinni á rakara- stofu og hvernig almættið gekk í lið með Erni í þrígang en þá var honum og fleirum hætt að standa á sama. Þá segir Örn frá tildrögum þess að þeir Haukur hættu keppni í íþróttum í árdaga ferils síns. Það var í kringum ólympíuleikana í Helsinki árið 1952 þegar þeir voru 24 ára að aldri. Þar hefði Orn að minnsta kosti átt ann- að sætið víst miðað við árangur kepp- enda í aðdraganda leikanna. „Ég sá nú síðar eftir því að hætta svona snemma en skapið réði þarna,“ segir Örn Clausen í bók sinni. Blaðið birtir hér nokkur brot úr bókinni með leyfi útgefanda sem er bókaforlagið Veröld. Spilað eftir eyranu f bókinni kemur ýmislegt í Ijós sem ekki hefur verið á almanna vitorði, meðal annars að Örn er liðtækur pí- anóleikari: „Ég hef spilað á píanó eft- ir eyranu frá því að ég var smábarn og lærði aldrei nótur almennilega. Við strákarnir hleruðum stundum fyrir utan dansæfingar, þegar Aage Lorange spilaði undir hjá Rigmor Hanson, og þegar ég kom heim þá gat ég spilað lögin. Þegar ég var 12 til 13 ára var ég sett- ur í spilatíma hjá frú Ástu Einarsson sem hjó á Hávallagötu. Hjá frú Ástu stautaði ég mig í gegnum Chopin valsa og var byrjaður að spila þá sæmilega. En ef ég ruglaðist þá þurfti ég að byrja upp á nýtt því ég vissi aldrei hvar ég var í nótunum. Eg hélt að gamla konan tæki ekki eftir þessu en komst að því löngu síðar að hún hafði sagt að ég væri furðulegt séní. Ég hefði greinilega ekki kunnað nót- urnar en spilað Chopin valsana alger- lega „perfect" eftir eyranu. Móðir mín sagði mér mörgum árum seinna að pabbi hefði verið sáttur við það að ég hætti í spilatím- um. Hann óttaðist víst að ef ég héldi áfram þá yrði ég knæpupíanisti og færi ekki í frekara nám.“ Hann á bara að mála! Örn og Haukur fæddust ekki með silf- urskeið í munni enda höfðu foreldr- ar þeirra ekki mikið milli handanna, eins og hann segir frá í bókinni, en þau höfðu hins vegar ríkan metnað fyrir hönd þeirra: „Foreldrar okkar bræðra lögðu allt í sölurnar svo við gætum gengið menntaveginn en þeir höfðu ekki mikil fjárráð og eignuð- ust t.d. aldrei húsnæði. Við fundum þó ekki fyrir því nema þegar pabbi var atvinnulaus á árunum 1935 til 1936. Hann hafði unnið í Sjúkrasam- laginu og misst vinnuna en þá var at- vinnuleysi almennt. Pabbi var hins vegar listmálari og þá málaði hann og seldi myndir til að lifa af. Við bræður vorum báðir listrænir en það var Kjarval sem gaf Hauki fyrsta vatnslitakassann. Hann kom einu sinni og sagði: „Þessi strákur á ekki að fara í skóla. Hann á bara að mála.“ En Haukur vildi ekki vera fátækur eins og Kjarval.“ www. MADE IN ICELAND .is Örn Clausen. I bókinni Sagnamaðurinn Örn Clausen segir hann yfir eitt hundrað sögur af sjálfum sér og fólki sem hann hefur kynnst á Iffsleiðinni. Þegar við hættum í KR Örn hefur aldrei látið neinn eiga neitt inni hjá sér og kom sá eiginleiki snemma í ljós hjá þeim Hauki eins og Örn lýsir á einum stað í bókinni: ,Um leið og við bræður fórum að hafa vit skiptum við úr KR í lR. Ástæðan er sú að þegar við vorum tíu ára þá vorum við í leikfimi hjá Benna Jakk í KR salnum, sem stóð þar sem ráð- húsið stendur núna. Benni sagði einu sinni við hópinn: „Sá sem getur gengið á höndun- um eftir endilöngu KR-húsinu fær túkall.“ Aðeins einn úr hópnum gat gert það. Það var Haukur bróðir en Benni sveik hann um túkallinn. Þeg- ar við bræður vorum vissir um að túkallinn yrði ekki greiddur þá sagði ég: „Svona látum við ekki fara með okk- ur. Adios amigos!“ Og við fórum!“ Ruglast á sjálfum mér Örn og Haukur voru mjög líkir sem ungir menn, svo mjög raunar að ólík- legustu menn gátu ruglast á þeim eins og Örn lýsir í bók sinni: „Eftir Ólympíuleikana í London árið 1948 vorum við keppendurnir boðnir í eitt- hvert matarboð upp á Mayfair Hotel. Ég gekk um staðinn og sá þá heljar- miklar gardínur sem voru dregnar fyrir. Ég svipti þeim frá og sá i ann- an sal, líka fullan af fólki og varð svo hissa að ég sagði við sjálfan mig: „Nei, þarna er annar salur fullur af fólki og þarna er Haukur bróðir!" Það voru hins vegar bara speglar á bak við gardínurnar og sá sem ég hélt að væri Haukur bróðir var ég sjálfur!" Úröskunni íeldinn Samband þeirra Clausen-bræðra var einstakt. Þeir voru samrýmdir með eindæmum og höfðu mikið saman að sælda. Einu sinni tók Örn að sér mál fyrir „stóra“ bróður sinn en Haukur var „átta mínútum eldri og alltaf einum og trekvart sentímetra minni og aðeins léttari," eins og Örn segir á einum stað í bókinni. „Haukur bróðir rak eitt sinn tann- læknastofu á Öldugötu 10 í Reykjavík. Það var nokkuð þröngt og óþægilegt fyrir sorphirðumenn borgarinnar að sækja öskutunnurnar á bak við hús- ið og koma þeim út á götu. Einhverju sinni slepptu þeir að tæma hjá tannlækninum og allar tunnur voru orðnar fullar. Haukur varð fokvondur og bað mig um að hafa samband við hreinsunardeild- ina sem ég gerði. Jafnframt hótaði Haukur því að klukkan þrjú þenn- an dag myndi hann tæma úr öllum tunnunum á miðja götuna ef ekki yrði búið að tæma þær á þeim tíma. Hann stóð við orð sín og hafði áður kallað til blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins. Blaðamaðurinn, Haukur heitinn Hauksson, skrifaði greinargóða frétt um málið daginn eftir og fékk skömm í hattinn fyrir frá ritstjórunum enda Sjálfstæðis- flokkurinn með meirihluta í borgar- stjórn. Haukur bróðir sá eftir þessum gjörningi vegna öskukarlanna því hann vissi að það var erfitt fyrir þá að koma tunnunum út á götu. Hann ákvað því að bæta þeim þetta upp á Þorláksmessu en hann var að vinna þegar þeir komu til að tæma tunn- urnar. Haukur bauð þeim öllum upp á bjór og vín inni á tannlæknastof- unni. Hann áttaði sig hins vegar ekki á því að þetta voru allt saman fyrrver- andi alkar sem duttu nú ærlega í það. Sumir þeirra voru frá vinnu vikum saman og flestir voru á endanum reknir úr öskunni." Fyrirtaks barnfóstra Örn Clausen hefur kynnst mörgu eftirminnilegu fólki á löngum lög- mannsferli en hann mun vera sá lögmaður íslenskur sem lengst hefur starfað. Meðal góðkunningja hans var Munda Pálín Enoksdóttir, sem var tvivegis fundin sek um morð. „Þegar Munda Pálín Enoksdóttir lenti í ógæfu í fyrsta skipti var ég skipaður verjandi hennar. Hún hafði þá drepið manninn sinn sem hafði áður barið hana eins og harðfisk. Eitt sinn fór ég í heimsókn á sunnu- degi að hennar beiðni. Hún var með sérklefa í Síðumúlafangelsinu og var mikið að bródera, var mjög flink í höndunum og vel gefin kona. Ég tók dóttur mína með, Buddu, sem var þá um það bil sex ára gömul. Þegar við komum aftur heim þá spurði Rúna, kona mín, hvar stelp- an hefði verið á meðan ég talaði við Mundu. Ég sagði henni að hún hefði komið með mér inn í klefann og Rúna varð alveg hissa. „Hvað segirðu, tókstu Buddu með í klefann til þessarar manneskju?“ „Já, Rúna mín,“ sagði ég, „ég skal segja þér, að við gætum farið í þriggja vikna frí og ég myndi treysta henni Mundu fyrir Börnunum okk- ar.“ Budda er núna ekki síður þekkt sem Guðrún Sesselja Arnardóttir lög- maður. Talar eins og fangavörðurinn Örn Clausen hefur um langt árabil verið réttargæslumaður í sakamál- um og telur bann ástæðuna fyrir því líklega vera þá að nafn hans bafi ver- ið þekkt þegar hann hóf störf og því auðvelt fyrir menn að muna það þeg- ar þeir komust í kast við lögin! Með- al skjólstæðinga hans er Jónas Bjarki sem hann segir frá í bók sinni: „Fyrir um það bil tveimur árum var ég að koma úr Héraðsdómi Reykja- víkur í Austurstræti er ég hitti Jónas Bjarka, vin minn. Hann vildi endi- lega gefa mér andaregg sem hann sagði að væru úr búi sem hann ætti austur á fjörðum. Ég hugsaði með mér hvar í fjand- anum hann hefði stolið þessu en það endaði með því að ég þáði eggin. Jón- as sagði mér svo að hann væri nýkom- inn af Hrauninu. „Hvern sjálfan djöfulinn varst þú að gera þar?“ spurði ég. „Ja, þetta var lítilræði, kjötlæri og eitthvert smotterí," sagði hann. „Hvern djöfulinn meinarðu með því að láta dæma þig austur fyrir eitthvað svona?“ spurði ég og Jónas Bjarki svaraði svo kostulega: „Þú talar bara eins og fangavörð- urinn sem fylgdi mér út að hliðinu. Hann las svona yfir mér, eins og þú, og endaði með því að rétta mér höndina og segja: Sjáumst svo ekki aftur! Þá sagði ég: Ha, ertu að hætta hérna?““ ■

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.