blaðið - 12.11.2005, Page 26

blaðið - 12.11.2005, Page 26
26 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 blaöiö BlaðiÖ/Frikki Finnum hvað markaðurinn er opinn fyrir Apple - segir Bjarni Ákason framkvœmdastjóri Apple á íslandi Apple er eitt þekktasta vörumerki heims, en aðeins Coca Cola getur státað af meiri kunnugleika mannkyns. Þrátt fyrir að Apple hafi verið frumkvöðull einkatölvu- bylt ingarinnar var gengi þess lengi vel brösugt, en eftir að iMac breytti hugmyndum manna um tölvur og iPod-æðið fór af stað hefur leiðin sífellt legið upp á við. Hér á íslandi hefur þessa ekki síður orðið vart en erlendis og raunar í meiri mæli. Bjarni Ákason hefur stýrt viðreisn Apple á íslandi og hefur aukin held- ur blásið til sóknar á Norðurlöndum. Andrés Magnússon tók hann tali. Maðursérþað nú bara héráforstjóra- skrifstofumi að það er nóg að gera, því égsé ekki betur en að hálfur lagerinn sé kominn inn tilþín. „Já, við blómstrum sem aldrei fyrr og höfúm í raun varla undan. Þetta ár- ið munum sjálfsagt selja um 3.500 til 4.000 tölvur, sem er margföldun ffáþví sem var. Fyrir aðeins 2-3 árum vorum við að selja um 1.200 vélar á góðu ári. En þessari aukningu höfum við náð án þess að markaðurinn hafi stækkað nokkuð að ráði.“ Eruð þið svona flinkir eða selur varan sigsjálf? „Það eru örugglega margar ástæður fyrir þessu. Við þykjumst að minnsta kosti vita hvað við erum að gera og ég er líka viss um að það hefúr ekki sakað að við höldum okkur alfarið við eitt vörumerki. Við höfúm líka þurft að hafa okkur alla við, því við sitjum ekki einir að Apple, okkar samkeppni er á netinu. En síðan má ekki gleyma iPod- væðingu heimsins, sem ég held að sé stóra undiraldan.“ Nú hafiðþið nánast misst afhenni, er það ekki? „Nei, ekki alveg. Ætli við séum ekki að selja um 10.000 iPod á ári.“ Nú, éghélt að tollar og opinber gjöld vœru svo hamlandi að þið selduð sáralit- ið afþeim... „Tja, við erum sjálfsagt ekki að selja nema um 2.000 iPod hér í versluninni. Afgangurinn er seldur í Fríhöfninni þar sem spilararnir eru rifnir út. En síðan er mikið af því að fólk kaupi sér iPod ytra og við gætum trúað því að þar væru um 20.000. Þannig að það er ekki spurning að þessi tollflokkavit- leysa hefur skaðað okkur verulega. En nú er náttúrlega kominn nýr fjármála- ráðherra og maður vonar auðvitað að hann stöðvi ruglið. Ég hef fulla trú á honum, þó hann sé Hafnfirðingur." En mettið þið ekki markaðinn skjótt? „Ég er ekki viss. iPod hefúr auðvitað þróast verulega á sínu stutta æviskeiði og það er talsvert um að fólk sé að fá sér sinn annan spilara um þessar mundir. Annars held ég að það megi kannski bera þetta saman við farsímana. Fólk er að skipta þeim út á 1-2 ára fresti, ekki af því að þeir séu ónýtir, heldur afþví að það vill betri síma með nýrri fídusum. Þannig að ég held að salan eigi enn eftir að aukast verulega og síðan á hún eftir að jafnast. En iPod er ekki að fara að detta upp fyrir, neysluvenjur fólks hvað tónlist varðar hafa einfaldlega breyst fyrir tilverknað þessa litla tækis. Það er talsvert um iPod á íslandi, en við eigum enn langt í að ná sömu útbreiðslu og er- lendis. Þú sérð þetta bara þegar þú ferð til erlendra stórborga, það er hver ein- asti maður með hvít heyrnartól. Þetta erréttaðbyrja." iPod ryður brautina Finnið þið fyrir því að vinsœldir iPod auki vinsældir á annarri vöru frá Apple? „Alveg tvímælalaust. Það er svo merkilegt að þó að iPod hafi farið hæg- ar af stað hér en annars staðar, þá er fólk algerlega meðvitað um þá straum- breytingu, sem Apple hefúr valdið með iPod, og það smitast yfir í tölvurnar og aðra vöru. En það er fleira sem hjálpar. Stýrikerfið hefur breyst verulega, er al- gerlega skothelt og ljósárum á undan Windows. Maður finnur þetta sérstak- lega á yngra fólkinu, sem ber enga ótta- blandna virðingu fyrir Windows og er alls óhrætt við að fá sér Apple. Það upp- götvar líka fljótt að það er ekkert mál að nota Makkann frá Apple, jafnvel þó svo það sé að vinna í Windows-um- hverfi. Makkarnir smella bara inn á net- ið og þá má nota algerlega við hliðina á Windows-kössum. Svo sakar ekki að Apple-vélarnar eru flottari, einfaldrari í notkun og betri til þess að beisla sköp- unarkraftinn." En eruð þið að snúa einhverjum? Skipta menn úr Windows íMacOSX? „Mjög mikið. Án þess að ég sé með töl- urnar á hreinu hugsa ég að við séum að selja meira en helminginn til fólks, sem hefur verið að nota Windows.“ Flóttamenn frá Windows Eru menn þá að skipta alfariðyfir? „Það er mjög mismunandi. Sumir eru að skipta alfarið, en aðrir eru að taka Makkann inn sem heimilisvélar, undir myndir, músík og svo framveg- is. En sumir þurfa einfaldlega að hafa Windows í vinnunni af því að einhveij- ir tæknistjórar hafa ákveðið það. En jafnvel það er aðeins að breytast.“ En erþað Apple, sem togar, eða erfólk aðflœmastfrá Windows? „Örugglega sitt lítið af hverju. En það sem maður heyrir flesta minnast á, er að þeir eru emfaldlega búnir að fá upp í kokafvírusum, vandræðum með stýri- kerfið og sníkjuforritum. Ég skipti til dæmis sjálfur fyrir þremur árum og þó ég sé ekki með neinar vírusvarnir eða neitt, hef ég aldrei fengið neina slíka óværuyfir. Svo er hitt, að Makkinn hefur sér- stakt orð á sér fyrir að vera notenda- vænn. Allt aðgengi er með öðrum hætti og hann gerir vinnsluna einfalda og skemmtilega. Það sækja margir í það. Inn í það spilar svo að hann kemur til- búinn úr kassanum, menn þurfa bara að stinga honum í samband og kveikja. Svo fylgir honum dágott safn af forrit- um frá Apple, sem smella öll saman til þess að gera alla vinnu á vélina þægi- legri. Þannig að efþú ert að setja inn fjöl- skyldumyndirnar læturðu iPhoto tala við iTunes til þess að spila uppáhaldslag- ið þitt undir myndasýningunni og það getur hver sem er gert án þess að þurfa að leggjast yfir handbækur eða hringja í undrabarnið í fjölskyldunni." En er ekkert erfitt að færa sig yfir? Menn eru búnir að venjast Windows og komið sér upp gagnasafni þar, tölvu- pósti, símanúmerabókum o.sfrv. „Nei, það get ég nú ekki sagt. Það er yfirleitt afar lítið mál að koma þessu yf- ir úr algengustu forritunum Windows- megin. En síðan er það líka svo að vin- sælustu forritin eru til beggja megin. Word-skjal í Windows er alveg eins og Word-skjal i Mac OS X, þannig að það skiptir engu máli hvort verkfærið þú kýst, efniviðurinn er sá sami. Þarna hjálpar líka mikið að með netvæðing- unni fyrir um áratug fóru hugbúnað- arframleiðendur að átta sig á gildi þess að nota staðla. Þannig að það er orðið erfitt að finna eitthvert forrit Windows- megin, sem ekki á sér hliðstæðu Makka-megin og nær undantekninga- laust nota þau samskonar skrárstaðla. I þessu samhengi hjálpaði líka mik- ið að Apple skipti um stýrikerfi fyrir nokkrum árum og Mac OS X, eúis og stýrikerfið er kallað, er í raun UNIX í dularklæðum eða UNIX fyrir dauðlega, eins og einhver orðaði það. Það er sama stýrikerfi og netið er byggt á, en síðan UMHVERFISÞING Umhverfisráðherra boðartil IV. Umhverfísþings dagana 18. og 19. nóvember nk. á Nordica Hotel í Reykjavík og verður þingið öllum opið á meðan húsrúm leyfir. Umhverfisþing mun að þessu sinni fjalla um sjálfbæra þróun og verður stefna stjórnvalda um sjálfbæra þróun „Velferð til framtíðar" í brennidepli. Kynntar verða tölulegar vísbendingar um hvernig miðað hefur á tilteknum sviðum á síðustu árum og fjallað um drög að nýjum áherslum fyrir tímabilið 2006-2009. Þingfulltrúum mun gefast kostur á að bera fram tillögur um nýjar áherslur og stefnu stjórnvalda. Það er von umhverfis- ráðherra að Umhverfisþing verði vettvangur frjórrar umræðu og skoðanaskipta um stöðu og stefnu varðandi sjálfbæra þróun hér á landi. Skráning, sem er þátttakendum að kostnaðarlausu, fer fram til 15. nóvember nk. á vefsíðunni www.umhverfisraduneyti.is. Þar er einnig að finna dagskrá þingsins og nánari upplýsingar. Einnig má skrá þátttöku í umhverfisráðuneytinu í síma 545 8600 Umhverfisráðuneytið www.umhverfisraduneyti.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.