blaðið - 12.11.2005, Side 28

blaðið - 12.11.2005, Side 28
28 I SÚKKULAÐX LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaóíö „Ást er það besta í heiminum, fyrir utan súkkulaði" Spekingurinn sem mælti þessi orð fór með rétt mál að margra mati. Það er varla til sá einstak- lingur í heiminum sem ekki elskar súkkulaði og það á við um fullorðna og börn. Það er eitthvað sérstakt við þetta brúna góðgæti sem fólk getur hreinlega ekki staðist. Maður getur því ekki annað en velt fyrir sér hvort það sé eitthvað annað og meira við súkkulaði en einungis bragðið. Sumir vísindamenn halda því fram að löngun í súkkulaði sé að- lögun sem hjálpar fólki að velja mat sem mun auka líkurnar á því að lifa af. Aðrir vísindamenn trúa því að löngunin í súkkulaði sé innbyggð í samfélag okkar. Karlmenn fá jafnan viskí og rakspíra í gjöf en konur fá súkkulaði sem myndar sterkt sam- band á milli súkkulaðis og ástar. Það má líka skýra þráhyggju í súkku- laði með hlutverkum nokkurra hormóna. 1 súkkulaði eru meira en 380 efni sem tengjast tilfinningum, skapi og fíkn. Ánægjuleg víma Eitt helsta efnið í súkkulaði er fenýl- alanín sem gerir það að verkum að blóðþrýstingur og blóðsykursstig hækkar sem hefur áhrif á tilfinn- ingar eins og spennu, aðdráttarafl, léttlyndi og sælutilfinningu. Fenýlal- anín ber líka ábyrgð á þessari áköfu tilfinningu sem fólk fær þegar það fær fullnægingu. Auk þess inniheld- ur súkkulaði efni sem getur minnk- að skynjun sársauka og valdið ánægjulegrivímu. Súkkulaðilöngun er því mjög algeng hjá fólki af öll- um kynþáttum, aldri og af báðum kynjum. Eina vandamálið sem fylg- ir því að sinna þessari löngun, utan aukinna fjárútláta, er möguleikinn á mikilli þyngdaraukningu. Góðar súkkulaðiuppskriftir í jólabókaflóðinu í ár er bókin Súkkulaði frá Vöku-Helgafell sem ætti að kæta súkkulaðiaðdáendur um allt land. Bókin inniheldur bestu súkkulaðiuppskriftir frá Nóa-Sír- íus, sumar úr gömlu bæklingunum sem komu jafnan út fyrir hver jól og sumar eru glænýjar. Marentza Poulsen valdi og samdi uppskriftirn- ar og markmið hennar var að gefa sí- gildum réttum nýjan og glæsilegan búning sem hentar sælkerum dags- ins í dag. Blaðið fékkleyfi til að birta nokkrar uppskriftir úr bókinni og geta súkkulaðiunnendur því gert sér glaðan dag. Hér er ljúffeng frönsk súkkulaðikaka en þær hafa einmitt verið vinsælar upp á síðkastið. Kaka þessi hentar bæði i boð eða bara til að gæða sér á á rómantísku vetrarkvöldi. Frönsk súkkulaðikaka 1 % dl sterkt kaffi 200 grömm sykur 250 grömm suðusúkkulaði (konsum) 225 grömm smjör 4egg Sjóðið kaffi og sykur saman í potti þar til það verður að sírópi, bætið smjörinu og súkkulaðinu út í sír- ópið á meðan það er heitt og látið bráðna. Kælið aðeins eða þar til blandan verður fingurvolg. Þeytið eggin saman við súkkulaðiblönd- una, eitt í senn. Smyrjið 24 sentí- metra lausbotna tertubotn og stráið hveiti á botn þess og barma. Hellið deiginu í og bakið við i70°C í 60-70 mínútur. Kakan er blaut og best er að láta hana standa yfir nótt. Segja má að heitt súkkulaði sé heims- ins besti drykkur á köldum vetrar- degi og því ekki vitlaust að birta upp- skrift að ljúffengu heitu súkkulaði. Heitt súkkulaði 150 grömm suðusúkkulaði (konsum) / líter mjólk Salt á hnífsoddi Þeyttur rjómi ef vill Hellið mjólkinni í pott og hitið í suðu. Takið pottinn af hellunni og brytjið súkkulaðið út í heita mjólk- ina. Hrærið þar til súkkulaðið er bráðið, bætið saltinu út í og hrærið aðeins. Hellið heita súkkulaðinu í glas eða bolla og sprautið þeyttum rjóma ofan á, skreytið með rifnu súkkulaði.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.