blaðið - 12.11.2005, Qupperneq 30
30 I TILVERA
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Nemandinn sem
týndi jólunum ...
Því hefur ósjaldan verið haldið fram að Háskóli ís-
lands sé gróðrarstía kvíða- og þunglyndissjúklinga
og vilja margir meina að kröfurnar hafi aukist til
muna undanfarin ár. Ég get svo sem skrifað undir
það að kröfurnar virðast hjá mörgum ansi miklar og
ófáir þurfa að skjóta rótum á hlöðu bókanna sökum
mikilla anna í náminu. En það má auðvit-
að snúa teningnum við og spyrja sig: Eru r;
auknar kröfur ekki bara nemendum til
góðs? Er ekki gott að skólakerfið sé
þannig úr garði gert að enginn komist
í gegn án tilhlýðilegrar þekkingar? Ég
held að svarið við þessari spurningu
sé jú. Auðvitað gera auknar kröfur
námið fyrirferðameira og nemendur
koma fyrir vikið sterkari til leiks út á
vinnumarkaðinn. Hins vegar er mér
lífsins ómögulegt að skilja ýmsa
þætti í tengslum við skólakerfið...
Vil ég hér nefna hina margróm-
uðu desembertörn - þann tíma árs-
ins sem nemendur hugsa til með
hryllingi. Þeir sem það þekkja
vita að desembermánuður er í
hugum margra nemandanna
sá versti á árinu og fólk er lát-
ið ganga til prófs rétt fyrir jól!
Hvað á það að þýða að leggja fyr-
ir mikilvæg próf tveimur dögum
fyrir aðfangadag? Er stjórnsýslu
Háskólans það hrein nauðsyn að
gera þetta með þessum hætti? Ég
fæ ekki séð að það skipti sköpum
hvort prófin eru tekin um miðjan
mánuðinn eða nokkrum dögum
fyrir jól. Vil ég þá frekar mælast til
þess að skólinn byrji fyrr á haustin
en ella. Svo við bætum nú gráu ofan á
svart þá erum við að tala um tíma þegar svartnættið
er í hávegum og dagsbirtan varir ekki mikið lengur
en kannski 4-5 tíma. Það þykir vera rík ástæða fyrir
þunglyndi fólks hér á klakanum - blessað skamm-
degisþunglyndið. Einmitt þá eru lögð fyrir próf og
það rétt fyrir jólahátíðina. Þetta gerir það að verkum
að fólk týnir gleði þessa fallega tíma í endalausum
lestri og látum - tíma sem annars gæti verið okkur
innblástur og létt okkur lífið áður en þungu vetr-
armánuðirnir, janúar og febrúar, renna í garð.
Glöggir lesendur geta séð það í hendi sér
að andleg heilsa nemenda væri mun betri ef
álaginu yrði dreift og prófum yrði flýtt um
fáeina daga. Við hefðum þá alla vega færi á
að upplifa dass af jólastemmningunni og
kannski fjárfesta í nokkrum jólagjöfum
svo að vinir og vandamenn fari nú ekki
í jólaköttinn af okkar sökum.
Sjálf þarf ég að þreyta próf þann
21. desember. Próf þetta ræður eins
og gefur að skilja úrslitum um fram-
gang mála á komandi misseri. Ekki
lítið áhyggjuefni það skal ég segja
ykkur! Eg má bara gjöra svo vel
og helga síðustu dögunum fyrir
jól próflestri og enda svo vænt-
anlega með hausinn ofan í jóla-
súpunni eftir mikla keyrslu og
væntanlegt spennufall. Mun
væntanlega ekki ná í aðalréttinn
- verð sofnuð vegna þreytu eða
húki hreinlega einhvers staðar
í yfirliði mínu...
Halldóra
Þorsteinsdóttir
Ertu með áhyggjur
á heilanum?
Því er ekki að neita að hraði þjóð-
félagsins er orðinn mikill og ansi
margt herjar á huga okkar dag
frá degi. Við viljum flest standa
okkur í því sem við erum að gera og
við viljum ná árangri í því sem við
tökum okkur fyrir hendur hverju
sinni. f ljósi þessa reynist mörgum
erfitt að lágmarka áhyggjur sínar
og slappa af í nútímaumhverfi. Æ
fleiri þurfa á læknishjálp að halda
vegna mikils kvíða og ófáir neyta
lyfja með það fyrir augum að gera
lífið léttara og fóta sig betur.
Með því að svara spurningun-
um á eftirfarandi prófi og reikna
út samanlögð stig geturðu komist
nær því að sjá hvort þú þjáist af
miklum kvíða eða ekki. Auðvitað
er ekki um nein vísindi að ræða,
heldur bara könnun sem gera má
til gamans.
1. Áttu auðvelt með að sofna á
kvöldin?
a) Nei, ég sofna yfirleitt um leið og ég
leggst á koddann og það er fátt sem
heldur fyrir mér vöku.
b) Það er misjafnt og fer í raun eftir
álagi hverju sinni.
c) Já, ég á i miklum erfiðleikum með að
sofna á kvöldin og hef íhugað að leita
mér hjálpar vegna þess.
4. Þér gengur illa í verkefni sem þú
þarft að leysa? Hvernig bregstu við?
a) Þú ferð t algjört„panikk" og þér líður
hræðilega. Þú skammast þín og ert afar
ósátt/ur við frammistöðu þína.
b) Þú ert ekkert alltof ánægð/ur en lætur
það ekki mikið á þig fá. Það koma víst önn-
ur verkefni á eftir þessu.
c) Þú kippir þér lítið upp við þetta. Þú veist
sem er að það þýðir lítið að gráta svona
uppákomur og þú munt bara gera betur
næst.
5. Þú ert boðuð/boðaður áfund í vinn-
unni. Hvað erþaðfyrsta sem þú hugsar
eftir að yfirmaður þinn hefur tjáð þér
að hann þurfi að eiga viðþig orð?
a) Jæja, nú verður mér sko sparkað!
b) Þetta hlýtur að vera eitthvað jákvætt
- ég er búin/n að standa mig svo vel síðustu
dagal
c) Þú veltir fyrir þér hvað þetta gæti mögu-
lega verið en ákveður ekkert í flýti.
6. Er stundum sagt við þig að þú sért
mikið á iði? T.d. með því að dingla fót-
unum, naga neglurnar eða slápennan-
um í borðið?
a) Nei,égeryfirleittmjögróleg/ur.
b) Stundum, en það er yfirleitt undir miklu
álagi.
c) Já, ég virðist ekki geta verið kyrr - er allt-
af eitthvað á ferðinni og á í erfiðleikum með
að ná hugarró.
7. Hlakkarðu til að vakna á morgnana
oghefja nýjan dag?
a) Oftast tek ég nýjum degi með bros á vör,
en það koma slæmir dagar inn á milli og þá
kvíði ég þeim oft fyrirfram.
b) Nei, það er ekkert rosalega spennandi
við þessa blessuðu daga.
c) Auðvitaðl Það er alltaf gaman að takast á
við nýjan dag og hver dagur hefur í för með
sér skemmtileg verkefni og góðar stundir.
2. Leggurðu mikið á ráðin um fram-
tíð þína? Hugsarðu mikið um það
sem morgundagurinn ber í skauti
sér eða hvar þú verður staddur/
stödd íframtíðinni?
a) Ekkert sérstaklega. Ég reyni að lifa í
þessu svokallaða núi og hef litlar áhyggj-
ur af því sem gerist eftir daginn í dag.
b) Já, ég er alltaf að plana og skipu-
leggja I huganum. Mér finnst ég þurfa
að leggja á ráðin um komandi tíma ef
mér á að Ifða vel.
c) Stundum velti ég því fyrir mér sem
koma skal en reyni eftir fremsta megni
hugsa sem minnst um það.
3. Hefurðu áhyggjur af „óþarfa
hlutum?
a) Bara af og til. Sérstaklega ef illa ligg-
ur á mér.
b) Já, ég á það til að mikla hlutina fyrir
mér og hafa miklar áhyggjur.
c) Nei, til hvers að vera alltaf með sífelld-
ar áhyggjur?
8. Fœrðu líkamlega útrás við einhverja
iðju, t.d. œfingareða útivist?
a) Nei, ég hreyfi mig aldrei.
b) Kannski tvisvar í viku en ekki mikið
meira en það.
c) Jú, ég tel mikilvægt að losa um streitu
með því að hreyfa mig reglulega og ég finn
að það gerir mér gott.
9. Færðu oft depurðareinkenni, þ.e.
vanlíðan og innri togstreitu?
a) Það gerist stundum, en alls ekki oft.
b) Já, mér líður oft ansi illa, þó svo að ég viti
ekki endilega hvers vegna.
c) Nei, ég reyni eftir fremsta megni að vera
jákvæð/ur og því lendi ég sjaldan í þvi að
finna fyrir depurð.
10. Nærðu að halda hugarró í kringum
jólin?
a) Já. Ég reyndar veðrast upp, en það er
bara á jákvæðan máta.
b) Ekki alveg nóg kannski, en ég reyni að
passa mig að taka þetta ekki of alvarlega.
c) Nei, ég fer úr öllu jafnvægi og finnst
þetta hrikalega erfiður mánuðir.
Reiknaðu út stigin:
1. a) 4 stig b) 2 stig
2. a)4 stig b)1 stig
3. a)2 stig b) 1 stig
4. a)1 stig b)2 stig
5. a)1 stig b)4 stig
6. a)4 stig b) 2 stig
7. a) 2 stig b) 1 stig
8. a) 1 stig b) 2 stig
9. a)2 stig b) 1 stig
10. a)4 stig b) 2 stig
c) 1 stig
c)2 stig
c) 4 stig
c) 4 stig
c) 2 stig
c)1 stig
c) 4 stig
c)4 stig
c) 4 stig
c) 1 stig
10-18 stig:
Þú ert frekar kviðin/n að eðlisfari og tek-
ur hlutina oft aðeins of mikið inn á þig.
Það er mikilvægt að mikla lífið ekki fyrir
sér og láta kvíða og áhyggjur bitna á sér
heilsufarslega. Þú verður að gefa þessu
gaum núna - það er ekki of seint að
snúa vörn í sókn og laga málin. Hreyfing,
hollt mataræði, regiulegur svefn og gott
líferni eru lykillinn að meira jafnvægi og
með þvf að breyta þessu til hins betra
ættirðu að finna mun. Þá er mælt með
þvf við kvfðasjúklinga að sniðganga
áfengi eftir fremsta megni, svo og drykki
sem innihalda mikið koffín. En það sem
kannski er mikilvægast fyrir þig núna er
að breyta um hugarfarl Hugurinn skiptir
öllu máli og þú getur svo sannarlega tek-
ið þig á hvað hann varðar. Slepptu takinu
og horfðu á björtu hliðarnar frekar en
þær slæmu og slepptu óþarfa vangavelt-
um um hluti sem skipta litlu máli.
19-30 stig:
Ætli þú sért ekki eins of flestir, þ.e.a.s.
færð kvíða innan eðiiiegra marka og ert
laus við hann þess á milli. Þú stendur
kannski ágætlega að vígi, en það má
alltaf bæta ástandið. Þegar þú lendir í
streitu- eða kvfðavekjandi aðstæðum
skaltu setja þig í réttan gír og taka málun-
um létt. Það sem áður vakti upp kvíða hjá
þér fer að verða auðveldara ef þú hristir
áhyggjurnar af þér og heldur áfram. Þú
stendur ágætlega i þessum málum og
ættir ekki að eiga í erfiðleikum með að
ná góðu jafnvægi.
31-40 stig:
Það er naumastl Þú hefur náð mikilli
hugarró og ert svo sannarlega fær um að
halda sjálfri/sjálfum þér i góðu jafnvægi
i gegnum lífið. Það er í einu orði sagt f rá-
bært að geta öðlast þessa yfirvegun og
hlaupa ekki upp til handa og fóta þegar
eitthvað bjátar á eða ef verkefnin eru
erfið. Þú gerir þér grein fyrir þvi að við
tökum alls kyns skref í lífinu og þú veist
að þau leiða ekki til heimsendis, þó svo
að þau séu miserfið. Haltu áfram á þess-
ari braut og þú munt sigla i gegnum lífið,
bæði á góðum og slæmum tímum.