blaðið - 12.11.2005, Síða 32

blaðið - 12.11.2005, Síða 32
32 I TÍSKA LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöiö Aðstoð stílista góð lausn fyrir allar konur Stílistar bjóða upp á aðstoð við fataval og að finna rétta brjóstarhaldarastærð fyrir konur Debenhams er ein þeirra verslana sem bíður upp á stílistaþjónustu fyrir alla viðskiptavini. María Kristmanns er stílisti og segir að hver viðskipta- vinur fái einn og hálfan tíma hjá þeim og sé án endurgjalds. „Fólk er ekki skuldbundið til að versla þótt það þiggi ráðleggingar stíl- ista okkar," segir María. Hún segir að stílistarnir hjálpi kon- um að velja fatnað við þeirra hæfi bæði í vinnunni eða við viss tilefni t.d. brúðkaup. .Sumar konur vilja skipta um stíl og þá getur verið gott að fá aðstoð stílista,“ segir María. Hún segir nokkuð um að fólk sem noti þessa þjónustu reglulega. ,Þær konur sem nota þjónustu okkar eru í lokuðu herbergi og stílistarnir sjá um að koma með fötin til þeirra,“ segir María. María segir stílistaþjónustu hafa verið í boði frá því búðin opnaði og þar komi konur á öllum aldri, stærðum og gerðum til að fá þjónustu. „Við förum yfir það hvaða litir og snið klæða hverja konu ásamt þeim notkunarmöguleik- um sem fylgja hverri flík“ segir María. Húnsegirmisjafnthversulangurbið- tími sé eftir stílista það fari frá nokkr- um dögum og upp í mánuð. „Sumar konur komast að því að föt klæðir þær sem þeim hefði aldrei dottið í hug að taka af slánni“ segir María. Hún s e g - ir einnig mikið um það að konur noti ekki rétta stærð af brjóstarhöldur- um og að stílistar geti aðstoðað konur við að finna brjóstarhaldara í réttri stærð. „Ég mæli með þessari þjónustu, hún sparar mikinn tíma og þannig fær fólk sem mest úr úr hverri flík vegna þess að við getum líka ráðlagt fólki hvaða flíkur passi saman,“ segir María. Hún segir að í snyrtivörudeild verslun- arinnar sé hægt að fá ráðleggingar um förðun. Þetta er aðeins brot af þeirri þjón- ustu sem verslunin býður upp á og nefnir María m.a. að karlmenn geti fengið aðstoð við að velja jólagjafir handa konum sínum eða mæðrum. hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is Birna Björnsdóttir er stilisti sem hefur í mörgu að snúast Birna er út- skrifuð frá alþjóðlegum stíl- istaskóla, The Academy of col- or and style, og segir hún stíl- istastarfið vera fjölbreytt og skemmtilegt. „Fatastíll er einn hluti af náminu og þar lærum við að taka mið af vaxtar- lagi, hæð, þyngd og persónueinkennum hvers og eins,“ segir Birna. Hún segir að stílistar að- stoði fólk við að finna út hvaða þætti hver og einn vill draga fram og hvað fólk vill leggja áherslu á í fari sínu og útliti. „Hlutverk stílista getur fal- ist í því að fara í gegnum fataskáp fólks og finna út hvað við þurfum að eiga marga hluti til að fá yfir 190 mismunandi útlit út úr þeim,“ segir Birna. Hún segir að litgreining sé annar þáttur námsins sem skiptist bæði í yfir-og undirflokka og að þar sé tekið mið af húðlit, augum og hárlit hvers og eins og einnig hvaða litir láta okkur virka unglegri. „Fyrirtæki hafa líka nýtt sér þjónustu stíl- ista en þá er tekið mið af hópum en ekki einstak- lingum,“ segir Birna og bætir við að þá gefi stílistinn ýmis góð ráð sem allir geta notað. Birna útskrifaðist sem stílisti síðastliðið vor og lét þá gamlan draum rætast og opn- aði verslunina Stílistinn í Hveragerði. „í verslun- inni sel ég vörur frá Ricco Verosegir Birna og segir þær vörur vera á mjög góðu verði miðað við gæði. Birna segist ekki hafa haft mikinn tíma til að vinna með einstaklinga vegna mikilla anna í versluninni. Birna seg- ir námið einnig nýtast sér vel þegar hún gerir innkaup fyrir verslunina. „Það nýtist einn- ig við uppröðun og skipulag í versluninni, við gluggaút- stillingar og skreytingar,“ segir Birna. Birna segir að hluti af náminu hafi farið í að læra að farða og „stíl- isera“ tískuljósmynd- ir og hefur hún haft nokkuð að gera við að taka stelpuhópa og veita þeim ráðgjöf um útlit og allt sem því viðkemur. „Ég hef stundum tekið ein- staklinga í útlitsráðgjöf og langar að gera meira af því,“ segir Birna og segir þetta vera skemmtilegt en jafnframt krefjandi starf. Birnu finnst að vinnumiðl- arnir og fólk sem er að fara í atvinnuviðtöl megi gjarnan gera meira af þvi að hafa sam- band við stilista því fyrirlestrar þar sem útlitsráðgjöf er gefin séu mjög uppbyggjandi og styrki sjálfsmynd fólks. ■ NY KVIKMYND FRA LEIKSTJORA "JERRY MAGUIRE" OG "ALMOST FAMOUS" MEÐ STJÖRNUNU/W ORLANDO BL00IV1 OG KIRSTEN DUNST. BESTI STAÐURINH TIL AÐ FINIIA SJALFAII SIG. Tískumolar Anna Friðrika Gunnarsdóttir, betur þekkt sem Anna í Anna og útlitið segir síð pils ennþá mjög áberandi og að þau séu úr þungum þykkum efnum. „Það er mikið um stór belti við pilsin og að ofan eru gjarnan notaðir leðurjakkar, eða stakir jakkar í öllum liturn," segir Anna. Anna segir að þeir htir sem séu ríkjandi núna séu brúnn, túrkis (blágrænn) og ljólublár. „Galla- buxur eru að þrengjast og þær gyrtar ofan í stigvélin,“ segir Anna en bætir við að þessi tíska gangi ekki nema fyrir mjög grannar konur. Anna segir að perulaga konur ættu ekki að vera í mussum því þannig tapist falleg- asti hluti líkamans. „Tígrísdýra- mynstur er mikið í tísku en það er fallegra á konum með mjúkar línur heldur en mjög grönnum konum,“ segir Anna. Hún segist sjá tísku frá stríðsárum og jafnvel frá Twiggýtímabilinu og nefnir sem dæmi köflótta skó. Anna segir að það sé erfitt fyrir konur að kaupa sér föt nema þær viti í hvaða stíl þær eru. „Ég sé um að versla föt fyrir 100 manns,“ seg- ir Anna og segir að fólk sé mikið að spá í ímynd. Þannig var mikið að gera hjá henni fyrir prófkjör sjálfstæðisflokksins en þar voru það meira karlmennirnir sem leit- uðu ráða.„Konur sem fara í próf- kjör ættu að nota staka jakka til að byggja upp axlirnar eða dragtir,“ segir Anna og mælir með bláum lit, svörtum eða drapplituðum sem virki vel til að komast áfram. Hvað ber að varast í fatavali og förðun 1) Aldrei að skera þverlínu þar sem veikeiki þinn er (t.d ekki láta jakka enda á mjöðmum ef þær eru stórar). Anna Friðrika Gunnarsdóttir Ráðleggur fólki um fataval út f rá vaxtalagi. 2) Frjálslega vaxin kona ætti að nota dökka iiti en ekki svart, því það formar hana af þvf liturinn er það djúpur 3) Aldrei kaup flfk nema hún geri eitt- hvað fyrir þig t.d. geri þig fallegri eða grenni ákveðna líkamshluta. 4) Ekki kaupaflfknema hún passi við a.m.k. sex hluti sem þú átti f fataskápn- um, annars þarf að kaupa svo marga hluti sem passa við þann sem þú keypt- ir. 5) Aldrei að fara í kvartbuxnatísku nema þú sért viss um að þú berir hana, en það gera aðeins mjög grannar kon- ur með langa fótleggi. 6) Aldrei að nota of dökka varaliti ef þú ert með grannar varir, þá verður svo lítið eftir af þeim. 7) Ekki geyma flfkurnar sem þú passar ekki í, því þá ertu alltaf að segja sjálfri þér að þú sért ekki nógu góð 8) Aldrei að kaupa föt of Iftil og hugsa sem svo að þú ætlir einhverntíma að passa f þau. 9) Aldreiaðtakamóðurþfnaeða vinkonu með, þegar þú verslar þvf þær vilja klæða þig eins og þær eru. 10) Ekki versla föt nema þú sért í góðu skapi, því annars áttu á hættu að kaupa föt sem ekki passa þér. hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is Þykir þér ekki vænt um jeppann þinn jJmUGESTOHE LOFTBÓLUDEKK FYR/R JEPPA Bridgestone DMZ3 4x4 jeppa loftbóludekkin eru ein fárra sérhannaðra vetrardekkja fyrir jeppa. „Ekki nokkur vafi á að loftbóludekkin frá Bridgestone er ein merkasta nýjung sem fram hefur komið í þróun hjólbarða síðustu árirí' segir Gunni Gunn, margfaldur íslandsmeistari í torfæruakstri. Hann hefur um árabil rekið hjólbarðaþjónustu í Keflavík. Helstu söluaðilar fyrir BRIDGESTONE REYKJAVÍK & nágrenni: ORMSSON, Ligmúla 9, Rvík. • Bílaáttan, Smiðjuvegur 30, Kópav. • Smurstöðin Klöpp, Vegmúli 4, Rvík. • ESSO, Geirsgötu 19, Rvík. • Smur, Bón og Dekk. Sætúni 4, Rvík. • Smur- og dekkjaþj. Breiðholts, Jafnaseli • Hjólbarðaþj. Hjalta, Hjallahr. 4, Hafnarf. SUÐURNES: Hjólbarðaþj. Gunna Gunn, Keflavík • Bflaþj. Vitatorg, Sandgerði VESTMANNAEYJAR: Áhaldaleigan VESTUR- & NORÐURLAND: Hjólbarðaviðgerðin.Akranesi • Bifreiðaþjón. Borgamesi • Guttormur Sigurðsson, Ólafsvík • Bílagerði, Hvammstanga • Hjólbarðaþj. Óskars, Sauðárkróki • Dekkjahöllin, Akureyri • Bflaleiga Húsavíkur AUSTURLAND: BB Ljósaland, Fáskrúðsfiröi • B.S. Bflaverkst Neskaupstað • Bflaverkst Ásbjöms. Eskifiröi ORMSSON DEKKJAÞJÓNUSTA • LÁCMÚLA 9 ! SALA 530-2842 / 896-0578 VERKSTÆDI 530 2846 / 899-2844 í

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.