blaðið - 12.11.2005, Page 34

blaðið - 12.11.2005, Page 34
. 34 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaAÍA Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, um ísland, Gunnar á Hlíðarenda, Framsóknarflokkinn og bjartsýnina og bœnina Pjónn þessarar þjóðar Þú ert þekktur fyrir cettjarðarást þítia, ásamt ást á þvíforna. Hvaðan spretta þessar tilfinningar? „Island er heillandi og yndislegt land. Hér er ég fæddur og alinn upp. Ég er blóð af þessu blóði og brot af landsins sál. Alinn upp í sveit, á Brúnastöðum, sem er 15 kílómetra frá Selfossi. í þá daga voru menn uppteknir af sínum bæ og krakkar fóru svo sem ekki mikið. Kvöldin voru löng og tíminn endalaus. Ég fór ekki í leikskóla. Hugsaðu þér hvað ég hefði nú orðið miklu skemmti- legri ef ég hefði farið í leikskóla og lært að syngja. Svo fór ég í heimavist- arskóla, sem var 8 kílómetra frá bæn- um, og fermingarárið fór ég í skóla á Laugarvatni. A einum vetri varð ég fullorðinn. Heimurinn opnaðist. Þegar ég var að alast upp las ég all- ar bækur sem ég náði í, Islendingasög- ur, Biblíuna, skáldsögur og ljóð. Sem barn ætlaði ég mér að verða prestur þegar ég yrði stór. Ég hafði snemma gaman af ræðum prestanna en svo komst ég að því að ég gat ekki tónað. Þar með var sá draumur úr sögunni. Það var annað trúboð sem lá fyrir mér; að fara í pólitík." Hver var uppáhaldshetjan þín íforn- sögunum þegar þú varst að alast upp? „Við erum tólf bræður og fjórar systur. Hvert okkar átti sína uppá- halds fornhetju. Við tálguðum út sverð og smíðuðum skildi og háðum bardaga og þóttumst vera miklir kappar. Gunnar á Hlíðarenda var mitt uppáhald. Kannski komum við þar að kjarna málsins því ég hreifst mjög af því að hann vildi heldur deyja en yfirgefa Island. Það þótti mér göfugt. Nú er því haldið fram að hann hafi verið hálfgerður kjáni, ekkert vitað og ekkert getað en það er ekki rétt. Gunnar var merkilegur og vitur maður. Hann var 45 ára, til- tölulega ungur maður, þegar þeir drápu hann en hafði þá náð langt og var yfirburðamaður Rangárþings, seinþreyttur til vandræða en varð að verja hendur sínar. Ég held að hann hafi verið mjög góður drengur sem var fjötraður í heljarböndum átaka, eins og gerist í pólitíkinni. Mörgum finnst fornaldarmenn- irnir vera samtíðamenn, ég er þann- ig. Þegar Davíð Oddsson bað mig að vera í stjórn Stafkirkju í Vestmanna- eyjum þá spurði ég hvers vegna verið væri að byggja hana. Hann sagði að það væri í minningu Gissurar hvíta og Hjalta Skeggjasonar. „Nú fyrst það er Gissur hvíti, þá verð ég ekki þar, ég hef aldrei fyrirgefið honum aðförina að Gunnari á Hlíðarenda," svaraði ég. „Þú ert langrækinn, það eru þúsund ár síðan,“ sagði Davið. „Svona er Njála,“ sagði ég.” Genetísk pólitík Hvað gerði þig að framsóknar- manni? „Ég er sonur framsóknarmanns og alþingismanns Framsóknarflokks- ins. íslensk pólitík er ekki flóknari en svo að hún er að stórum hluta genetísk. Barn framsóknarmanns verður oft framsóknarmaður, barn sjálfstæðismanns verður sjálfstæð- ismaður og barn krata verður krati. Svo eru kommarnir, sem voru lika genetískir þótt þeir væru mestu pen- ingamenn allra tíma. Ég hef enga menn þekkt á íslandi sem elskuðu peningana sína jafn heitt og gömlu kommúnistarnir. Þeir voru margir ríkir og miklir aflamenn en um leið kommúnistar. Samt fóru þeir ekki að eins og Jesús Kristur og gáfu öðr- um eigur sinar. Þeir vildu taka skatt- peninga af næsta manni til að gefa öðrum. Lífsskoðanir mínar eru skyldar ungmennafélagshugsjóninni, al- þýðumenntuninni og landbúnað- inum. Ég tel að rót mín sé í vinstri kjarna Framsóknarflokksins." Hvað segirðu um þá gagnrýni að þú standirfyrirgamaldags viðhorf? „Það er auðvelt að halda því fram. Það er bæði vegna þess hvernig ég lít út og hvernig ég tala. Einu sinni héldu andstæðingarnir því fram að ég væri leiðinlegur. Svo þótti ég vera skemmtilegur og þá urðu þeir afbrýðisamir og sögðu að ég væri bara skemmtikraftur. Þeir hafa hald- ið því fram að ég sé gamaldags en sjá svo að ég er að nútímavæða land- búnaðinn og skapa þar margar nýjar greinar. Það gerir þá önuga að sjá að allt er í „full swing“ í sveitunum og að ég sit á friðarstóli og bóndinn og sveitin eru komin í tísku. Ég veit ekki hverju þeir finna upp á næst. Ég tek hverju sem er. Aðalatriðið í pólitík er að halda ró sinni og vera maður sjálfur. Maður er í þjónustu- starfi sem manni hefur verið falið stutta stund. Þá skiptir máli að vera auðmjúkur og lítillátur en þó fastur fyrir þegar þess er þörf.“ Bush of harðvítugur Hvað með stöðu þíns flokks? Það heyr- ist sagt að Halldór Ásgrímsson sé ekki nógu sterkur leiðtogi, hvorki fyrir Framsóknarflokkinn néþjóðina. „Það hefur alltaf verið vandi að taka við forsætisráðherraembættinu. Davíð átti erfiða daga fyrstu tvö árin. Steingrímur Hermannsson sömuleið- is, svo urðu þeir þjóðarleiðtogar. Ég get nefnt Gunnar Thoroddsen, Geir Hallgrímsson, Ólaf Jóhannesson og fleiri. Þetta er ekki létt verkt. Lengst af hefur þjóðin litið á Halldór sem mjög traustan stjórnmálamann. Seinni tíma pólitík stjórnarandstöð- unnar hefur gengið of mikið út á það að reyna að svipta hann traust- inu. Kannski hefur andstæðingum Framsóknarflokksins tekist þetta að einhverju leyti. En Halldór er sterkur stjórnmálamaður og veit hvert hann er að fara.“ En þið eruð ekki alltaf sammála, þú varst til dœmis ekki hrifinn af ákvörðun Halldórs og Davíðs um stuðning við Iraksstríðið. „Ég sá hvað Halldór sagði í Blað- inu um daginn að ef ákveðnar upp- lýsingar hefðu legið fyrir þá hefði hann kannski brugðist öðruvísi við. Það er drengileg yfirlýsing. Öll svona mál eru viðkvæm en ég held að bæði Halldór og Framsókn- arflokkurinn hafi ranglega verið skilgreindir sem stuðningsmenn og einhverjir aðdáendur Bush. Ég sakna Clintons sem mér fannst góður leiðtogi sem hafði frið- samleg áhrif á heiminn. Bush og haukar hans í Washington eru of harðvítugir og hafa breytt heimin- um. Kínverskt spakmæli segir að mýktin sigri hörkuna og ég held að það eigi við í heiminum, jafnt og í íslenskri pólitík. Við Halldór höfum svo sem ekk- ert verið að takast á. Ég held að öllum sé ljóst að áherslur okkar eru nokkuð ólíkar alveg eins og áherslur Hermanns og Eysteins voru mismunandi og Halldórs og Steingrims, Davíðs og Geirs. Þetta er ekkert öðruvísi og á frek- ar að breikka flokk en að minnka hann.“ BESTA EINKUNN! EISA BEST CI9M pRODUCT 2005 2006 S9 POCKiT CAMIHA 0 F10 býður upp á eðlilega húðtóna og frábæra liti, auk þess sem 6.3M díla flagan er með meira en næga upplausn fyrir myndir í venjulegum stærðum. Ljósnæmissviðið er einstakt (ISO 80- 1600) og því flassdrægni mun meiri en hjá öðrum. Rafhlöðuendingin er framúrskarandi (allt að 500 skot á hleðslu). Allt saman í nettri og léttri vasavél, með 3x aðdrætti. Núna á tilboði kr. 39.900 (fullt verð 49.900). tPj 5 FUJIFILM www.IJosmyndavorur.is <3LZi> Q O DISP/BACK Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 04501 Myndsmiðjan Egilsstöðum

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.