blaðið

Ulloq

blaðið - 12.11.2005, Qupperneq 35

blaðið - 12.11.2005, Qupperneq 35
blaðiö LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 Álver leysa ekki allan vanda En Framsóknarflokkurinn er ekki að stcekka. „Staða flokksins er áhyggjuefni miðað við uppganginn og verk- efnin sem við höfum staðið fyrir. Kannski er ekki í tísku að vera framsóknarmaður. Við þurfum að fara í herferð og ná í okkar fólk. Hvað er merkilegra við Sjálfstæðis- flokkinn en Framsóknarflokkinn? Ekki neitt. Hvað er merkilegra við Samfylkinguna en Framsókn- arflokkinn? Ekki neitt. Svo getur Steingrímur J. Sigfússon staðið upp og sagst vera rígmontinn af sjálfum sér og flokknum sínum. Hann segir að Framsóknarflokkur- inn eigi að fara í langa endurhæf- ingu og hvíld. Hvað hafa vinstri -grænir afrekað á sínum ferli? Fátt annað en að vera sítalandi í þing- inu. Við framsóknarmenn höldum því fram að talað mál sé silfur en þögnin sé gull. Það skilar meiru að vinna en að tala. Við höfum látið verkin tala. Hvern einasta dag höfum við tekist á við það að byggja upp sterkara samfélag. Hins vegar má vera að við höfum verið í of mikilli vörn í ákveðnum málaflokkum. Stórkostlegir hlut- ir hafa gerst varðandi stóriðju og virkjanir en andstæðingar okkar í pólitík láta eins og við viljum helst sökkva íslandi og byggðum þess. Við þurfum kannski fyrst og fremst að koma því rækilega til skila að okkur dettur það ekki í hug. Við framsóknarmenn vitum vel að álver leysa ekki vanda hvers byggðarlags. Við elskum þetta land. Ég er sannfærður um að við eigum ekki eftir að fara í margar umhverfisraskandi virkjanir. Svo er annað. Framsóknarmenn eru tvískiptir. Við erum vinstri menn og við erum hægri menn og sameinumst síðan í góðri miðju- stefnu. Vinstri grænir og Samfylk- ingin hafa alið á óánægju vinstri manna í Framsóknarflokknum. Vinstri menn í Framsóknarflokkn- um sem gjóa augum til vinstri- grænna og Samfylkingar munu komast að því að þeir flokkar verða aldrei eins öflugir í uppbygg- ingu atvinnulífsins eins og við höf- um verið. Sókn í atvinnulífi skiptir öllu máli fyrir almenna velmegun fólksins." 99................. Við framsóknarmenn vitum vel að álver leysa ekki vanda hvers byggðarlags. Við elskum þetta land. Ég er sann færður um að við eigum ekki eftir að fara í margar umhverf- israskandi virkjanir." Engin félagshyggjustjórn án Framsóknarfiokks Hver erframtíðarleiðtoginn iFram- sóknarflokknum? „Það kemur í ljós. Halldór er bú- inn að vera lengi og einn daginn fer hann og þá tekur nýr maður við. Ég veit ekki hver það verður. Við eigum efnilegt fólk sem getur tekið við.“ Hefurðu ekki metnað i að verðafor- maður flokksins? „Ég get alveg haft metnað í það en ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er um borð í flaggskipi Framsóknarflokksins og vinn þau verk sem mér eru fal- in. Ég þurfti að berjast fyrir því að verða varaformaður Framsókn- arflokksins og ég hlaut glæsilega kosningu. Ég finn að ég er mjög sterkur meðal flokksmanna og kem vel út úr skoðanakönnunum í öllum flokkunum, sem segir að ég búi við ákveðna breidd sem stjórn- málamaður. Ég er á góðum aldri sem stjórnmálamaður en er þó orðinn hálfsextugur. Það getur vel verið að menn vilji sjá yngri mann sem formann flokksins. Annars er ég ekkert að hugsa um þessi mál. Ég er þjónn þessarar þjóðar en ekki valdagráðugur hagsmunapól- itíkus." Hvað segirðu um hugsanlegt stjórn- arsamstarf Framsóknarflokks, Samfylkingar og vinstri-grænna? „Allt hefur sinn tíma. Þessu ríkis- stjórnarsamstarfi hlýtur að ljúka einhvern tímann. Ég hef áhyggjur af Samfylkingunni. Hún er byggð úr svo ólíkum einingum og virðist nokkuð sundruð. Vinstri-grænir munu eiga mjög erfitt með að setj- ast í ríkisstjórn. Þeir eru miklu frekar menn ræðupúltsins og stór- yrðanna fremur en verkmenn. Það er áhyggjuefni ef Framsókn- arflokkurinn stækkar ekki upp í 20-25 prósent. Þá verður hér eng- in félagshyggjustjórn. Menn verða að átta sig á því að Framsóknar- flokkurinn og Samfylkingin eru einu öflin sem geta myndað félags- hyggjustjórn í framtíðinni. Ég tel reyndar að núverandi ríkisstjórn hafi skilað samhjálpinni miklum peningum til baka frá skerðing- unni í kreppunni." Fallegar hugsanir Víkjum í lokin aftur að sjálfum þér. Hvernig skap hefurðu, ertu alltaf kátur og glaður? „Ég hef mikið skap en sem bet- ur fer hef ég lært að temja það. Ég missti mig stundum þannig að ég reiddist og barði í púltið og varð ill- mannlegur en með lífsreynslunni og aldrinum líður mér miklu bet- ur; ef maður reiðist þá tapar mað- ur. Ég er hamingjusamur maður. Ég var glaðlyndur krakki, svolítið feiminn að vísu lengi. Svo braut ég feimnina af mér. Það trúir því eng- inn lengur að ég hafi verið feiminn og vonandi enginn að ég hafi ein- hvern tíma verið leiðinlegur. Lífið er dásamlegt og tækifær- in mörg. Manni vegnar svo miklu betur þegar maður er bjartsýnn og glaður og góður við fólk. Illu á maður að svara með góðu, eins og sannkristinn maður.“ Ertu mjög trúaður? „Ég lærði það sem barn að fara með bænir. Ég hef haldið þeim sið og sofna ekki öðruvísi en að fara með fallega bæn og signa mig. Þetta gefur mér svefnfrið og ró. Ef mað- ur hugsar fallegar hugsanir getur maður látið margt gott gerast. 111- ar hugsanir skríða hins vegar í gegnum loftið og ná inn í andrúm manna og skemma og skaða. Ég held að bænin og trúin, jákvæðnin og bjartsýnin skipti mestu máli til að skapa gott umhverfi og þannig, og aðeins þannig, nái maður ár- angri með fólki.“ kolbrun@vbl.is AÐEINS SYNINGA MORGUN CRITIC'S CHOICE? WONDERLAND POCKETOCEAN SYNINGAR EFTIR Landsbankinn Miðasala í Borgarleikhúsinu s. 568 8000 eða á www.id.is 100% verðtrygging til Kanarí Þú færð ávallt lægsta veróið og mestu gæðiti hjá Heiinsferóum - annars endurgreióum við mismuninn.* Þjónustan í öndvegi Okkar kappsmál er aó veita sem besta þjónustu. AUir fararstjórar Heimsferóa hafa áralanga reynslu og sérþekkingu á Kanaríeyjum. • Islensk fararstjórn • Úrval kynnisferóa • Viótalstímar á gististöóum • Beint leiguflug án millilendingar • Upplýsingabók Heimsferóa meó hagnýtum upplýsingum • Skemmti- og íþróttadagskrá i sérvöldum feróum • Símavakt allan sólarhringinn • Örugg tæknaþjónusta Viðbótargisting á frábæru verði - Aguacates - Vista Golf - Las Arenas 17. jan. - aðeins 11 íbúðir 24. jan. - aðeins 15 íbúðir 31. jan. - aðeins 17 íbúðir 7. feb. - aðeins 17 íbúðir Bókaðu strax! Tryggðu þer bestu gististaðina og lægsta verðið á Kanarí í vetur! Kanaríeyjar eru langvinsælasti áfangastaður Evrópubúa yfir vetrarmánuðina, enda er þar milt og gott veður með jöfirn hitastigi árið um kring. Á Gran Canaria er að jafhaði 20-25 stiga hiti á daginn. Vinsælustu staðirnir eru Enska ströndin og Maspalomas og þar eru Heimsferðir með sína gististaði. Frábært verð! Kr. 49.990 - vika, m.v. 2 Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í íbúð á Aguacates, Vista Golf eða Las Arenas, vikuferð, 17., 24. og 31. janúar eða 7. febrúar. Netverð á mann. Kr. 59.990 - 2 vikur, m.v. 2 Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í íbúð á Aguacates, Vista Golf eða Las Arenas, í 2 vikur, 17., 24. og 31. janúar eða 7. febrúar. Netverð á mann. Mundu MasterCard feröaátHsunlna Heimsferðir Skógarhllð 18 • 105 Reykjavik, siml 595 1000 Akureyrl, slml 461 1099 • Hafnarfjörður, sfmi 510 9500 • www.helmsferdlr.ls ’Verðtrygging Heimsferða tryggir þér lægsta verðið á viðkomandi ferð, m.v. gististað í boði, ferðadag og ferðalengd. Háð því að viðkomandi ferð sé í boði.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.