blaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 40
40 I MENWIWG
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Las nýju
Potter bókina
i handriti
Gylfi Þorsteinn. Þessi átta ára Potter aðdáandi fékk að lesa nýju bókina í handriti.
Heígaman
af að skálda
Nýja Harry Potter bókin, Harry Pott-
er og Blendingsprinsinn, er komin
í verslanir og mun örugglega verða
ein af metsölubókum ársins. Gylfi
Þorsteinn Gunnlaugs- son, sem
er átta ára Potter
aðdáandi, hefur for-
skot á jafnaldra sína
því hann fékk að
lesa bókina í hand-
riti.
Gylfi var búinn
að lesa allar fimm
Potter bækurnar
og gat ekki beð-
ið eftir því að
bók númer sex
kæmi út. Móðir
hans, Guðrún
Vilmundar-
dóttir, sem er
þýðandi hjá
bókaforlag-
inu Bjarti,
hitti útgáfu-
stjórann Snæ-
björn Arngrímsson á förnum
vegi þar sem hann var að fara með
handritið að sjöttu bókinni i yfir-
lestur. Hún sagði honum frá raunum
sonar síns og Snæbjörn miskunnaði
sig yfir drenginn og lánaði honum
handrit.
Gylfi var mánuð að lesa handritið
en nýja bókin er rúmar 500 síður.
,Ég hætti að gera allt annað og las
bara,“ segir hann. „Þessi bók er dálít-
ið óhugnanleg. 1 fjórðu Harry Potter
bókinni byrjuðu menn að deyja og
í þeirri fimmtu gerðust líka hrika-
legir atburðir. í þessari nýju gerist
margt spennandi. Það var mjög
gaman að lesa.
S t u n d u m
skildi ég
samt ekki orð
og stundum
fannst mér
vera farið að-
eins yfir strikið
í ofbeldi.“
Gylfi var um
sexára aldurþeg-
arhannlasHarry
Potterfyrst.Hann
byrjaði á fjórðu
bókinni sem afi
hans og amma
gáfu honum. „Ég
hætti á blaðsíðu 210
af því mér fannst
bókin svo erfið en
svo fékk ég mikinn
á h u g a nokkrum mánuðum
seinna og byrjaði þá á fyrstu bók-
inni og las hinar svo allar i röð. Þeg-
ar ég var búinn að klára þær allar þá
byrjaði ég aftur á númer eitt. Þegar
ég var búinn með þá fjórðu í annað
sinn og kominn í miðja bók númer
fimm þá fékk ég handritið að Harry
Potter og Blendingsprinsinum."
Gylfi segir suma skólafélaga sína
öfunda sig af því að vera búinn að
lesa nýju Potter bókina. „En það eru
samt ekkert voðalega margir á mín-
um aldri í skólanum sem lesa Harry
Potter. Við erum bara átta ára og
þetta eru svo risastórar bækur,“ seg-
ir Gylfi.
,Þetta gerðist
bara alveg
óvart. Mér datt
í hug heldur
afkáralegar að-
stæður manns
sem stendur á
tímamótum
og fór einn dag-
inn að skrifa
þær upp í stað Eiríkur Bergmann
þess að vmna í Einarsson, stjórnmála-
doktorsritgerð- fræðingur, hefur sent
inni minni frá sér fyrstu skáld-
Síðan komst ég SÖ9U sína' Glapræði.
einhvern veginn ekki út úr sögunni
þótt ég hafi margoft reynt það. Fór
að velta fyrir mér hvernig þessum
náunga tókst að þvæla sig inn í þá
óheillastöðu sem hann var kominn í
og gat ekki hætt fyrr en ég var búinn
að skrifa upp úr því heila sögu. Það
má eiginlega segja að mannfýlan hafi
ofsótt mig þar til ég var búinn að segja
sögu hans. Svo fannst mér nú bara svo
miklu skemmtilegra að skrifa þetta
heldur en þurra fræðitexta. Það passar
raunar alveg ljómandi vel saman,“ seg-
ir Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórn-
málafr æðingur, sem hefur sent frá sér
íífUI
NR.1 í AMERÍKU
SAW PALMETTO EXTRACT
FYRIR BLOÐRUHALSKIRTIL
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI
fyrstu skáldsögu sína, Glapræði.
Er þetta þjóðfélagslega gagn-
rýnin bók eða skemmtisaga?
,Þetta er fyrst og fremst skemmtisaga
um mann sem missir trúna á það líf
sem hann lifir og fer að skoða sjálfan
sig og tilveruna upp á nýtt. Hann lend-
ir í ýmsum ævintýrum í borgarfrum-
skóginum, þvæhst víða og kynnist alls
konar fólki sem hann vissi ekki einu
sinni að væri til. En um leið og hann er
að endurskoða líf sitt fer hann að skoða
þjóðfélagið upp á nýtt og er að mörgu
leyti ansi gagnrýninn á pólitíkina.
Hann heldur því til að mynda fram að
á íslandi ríki ekki lýðræði, heldur glap-
ræði. Titillinn vísar til þess.“
Ætlarðu að skrifa meira?
„Ég er í raun sískrifandi, en vanalega
eru það fyrirlestrar, fræðiritgerðir eða
pistlar um þjóðfélagsmál sem æða út
úr lyklaborðinu mínu. Hvort ég skrifi
meiri skáldskap verður tíminn að
leiða í ljós, ég hef svo sem engin áform
um það. Ég hafði þó mjög gaman af að
skálda þessa sögu svo hver veit hvað
gerist ef mér flýgur í hug skemmtileg-
ur karakter og finn tíma til að sinna
honum.“
Metsölulisti erlendra bóka
The Broker John Grisham
1.
2. TheBig BookofSudoku Mark Huckvale
3. Going Postal Terry Pratchett 1M
4. StateofFear Michael Crlchton
5. Mammoth Book of Sudoku Nathan Haselbauer
6. Harry Potter & the Half-Blood Prince
J.K. Rowling
7. Asterix and the Falling Sky Albert Uderzo
8. DeathandthePenguin
Andrey Kurkov
9. Mary, Mary James Pattersonr
10. Thud! Terry Pratchett
Listinn er gerður út frá sölu dagana 02.11.05
- 08.11.05 í Bókabúðum Máls og menningar, Eymunds-
son ogPennanum
Bækurnar um Mellussínu og börnin
hennar Dínu og Davín hafa farið
sigurför um heiminn.
Bókaflokkurinn hefur fengið nafnið
"Ávítarinn" vegna þess að Mellussína
hefur þann eiginleika að þegar hún
horfir í augun á fólki fær hún það
til að skammast sín fyrir illar gerðir.
Slíkir eiginleikar eru hættulegir þegar
áhrifamikil illmenni eiga í hlut.
Hilmar Hilmarsson hefur þýtt báðar bækurnar og fengið
heiðursverðlaun frá barnabókasamtökunum Ibby fyrir þýðingu
sína á bókaflokknum.
Bækumar um Ávítarann verða kvikmyndaðar á næst ári.
J E N TAS ehf.
www.jentas.com
Sala og dreifing: Sögur ehf. útgáfa, tomas@baekur.is, sími: 557 3100 fax: 557 3137