blaðið - 12.11.2005, Síða 54

blaðið - 12.11.2005, Síða 54
541 FÓLK LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöiö SKELFILEGUR RAUNVERULEIKI Smáborgarlnn kíktl í DV í gær og las Kjallara eftir Vigdísi Grímsdóttur sem er kannski ekki ífrásögurfærandi utan þess að Smáborgarinn uppgötvaði nýjan sann- leika um sjálfan sig. I Kjallaranum ber Vigdís saman laun tveggja starfsmanna í bókabúð sem vildu ekki láta nafns síns getið. Starfsmennirnir eru nánast jafnaldra, með sömu menntun, eru báðir í sambúð með eitt barn, báðir eru deildarstjórar í bókabúð og vinna átta stundir á dag. Eini munurinn á þessum tveimur einstaklingum er kynið, annar einstaklingurinn er kona á meðan hinn er karlmaður. Fyrst kynið er ólíkt þá segir það sig sjálft að launin eru ólik, það kom Smáborgaranum svo sem ekki á óvart. En karlmaðurinn var með 320 þúsund á mán- uði og konan var með 130 þúsund á mán- uði. Smáborgarinn, sem telur sig vera feminista og trúir vitanlega á jafnrétti kynjanna, brá vitanlega að sjá þennan mikla mun en fyrsta hugsunin sem popp- aði upp (kollinn var: „Þetta getur ekki ver- ið rétt." Eftirsmá umhugsun uppgötvaði Smáborgarinn að vitanlega er þetta rétt og skammaði sjálfan sig fyrir karlremb- una í sér. Næsta hugsun sem poppaði upp var: „En hún á nú mann til að sjá fyrir sér en karlkyns starfsfélagi hennar þarf aftur á móti að sjá fyrir sinni konu." Nú var Smáborgaranum öllum lokið. Ef Smáborgarinn, feministinn sjálfur, hugs- ar svona, hvað hugsa allir hinir þá? Þetta er skelfilegur raunveruleiki sem við lifum íl Smáborgarinn er ekki í neinum vafa um að margir hugsa eins og hann stóð sjálfan sig að. En kannski átta ekki allir sig á því hve rangur þessi hugsunarhátt- ur er og sannast sagna þá dauðskamm- ast Smáborgarinn sín. En kannski liggur hundurinn grafinn þarna, þessi viðhorf skemma gríðarlega fyrir launabaráttu kynjanna. Því Smáborgaranum er eng- inn efi í huga að konan vinni ekkert síðra starf en karlmaðurinn. Samt sem áður er munurinn 210 þúsund krónur. Hvernig má þetta vera? Er ekki kominn tími til að grípa til frekari aðgerða en að labba frá skrifborðinu í örfáar klukkustundir til að sýna að konur séu ómissandi! HVAÐ FINNST ÞER? Sif Friðleifsdóttir alþingismaður og áhugamaður um mótorhjól Er mótorhjólum á íslandi að fjölga of mikið? „Nei, ekki ef komið er til móts við þann vaxandi hóp sem stundar þetta sport sér til ánægju,“ segir Siv og segir að hópurinn sé kominn til að vera. Hún segir þetta skemmti- legt sport en að allar reglur og tryggingavernd verði að vera í lagi. „Vitað er til að örfáir aðilar aki á mótorhjólum utan vega en hópurinn í heild virðir allar reglur,“ segir Siv og bætir við að brýnt sé að fjölga æfingasvæðum fyrir hópinn. „Ég er talsmaður þess að komið verði til móts við þann vaxandi hóp fólks sem stundar þessa íþróttsegir Siv. Hún segir að tryggingamál fyrir unglinga hafi verið óljós og tryggingar almennt tald- ar dýrar. „Þá þarf líka að vera skýrt hvort börn og unglingar geti notað æfingasvæðin,“ segir Siv. Hún segir einnig að nokkurs miskilnings hafi gætt um hvar mætti hjóla. „Sumir halda að það megi aka á gömlum reiðleiðum og utan vega en það er bannað," segir Siv og bætir við að þetta sé umhverfismál ekki síður en tómstundamál. Stökustund t umsjón Péturs Stefánssonar Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd botnar svo úr verður víxlhenda: / lukkupottinn Davíð datt, -draumar stundum rœtast. En Móra ogSkottu skynið bratt skjótt má sundur tœtast. Jónas Frímannsson botnar: / bankanum er brosaðglatt er borgarstjórar mætast. Auðunn Bragi Sveinsson botnar: Hann þó borgi hœrri skatt, honum mun það bætast. Ingólfur Ómar Ármannsson botnar: Ærið heppinn ekki satt, ætti því að kætast. Pálmi Ingólfsson frá Fagrabæ botnar: Digrir sjóðir fara flatt, ogfáir munu kætast. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd botnar: Skagstrendingar gera grín aðgamla kúrekanum. En kveða aðjöfnu kostasýn að kántrý-búrekanum. Jónas Frímannsson botnar: En marga kæta kvæðinfín hjá kántrý-höfðingjanum. Auðunn Bragi Sveinsson botnar: Hætt er við’ann hefni sín hér á ísjakanum. Þorsteinn í Garðabæ botnar fyrripart V.L.: Kvennadagsins djarfa lund dável körlum sýndi viljann. Enga tekur ögurstund ýmsa menn að reyna skilj’ann. Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir til þáttarins: Göfgar mjög oggleður lund, gerist varla betri. Þetta er mögnuð Stökustund, stýrð afhonum Pétri. Jón Sigurðsson frá Rjóðri Djúpavogi orti eitt sinn: Lygin hefur lengi átt láni hérað mæta. Þeim er ekki hossað hátt sem heiminn vilja bæta. Við morgunverkin einn daginn orti Gísli Ásgeirsson: Vakna, geispa,fram úrfer, freta, ropa, pissa. Borða, hugsa, hægi mér, að heimsku minniflissa. Sagt er að Islendingar fari fyrstir allra þjóða að sofa hjá. Auðunn Bragi yrkir: íslendingar fara, fara, fara snemma að sofa hjá. Engan hafa á sér vara; afþvífæðast börnin smá. Eyjólfur Jóhannsson í Hvammi orti á gamals aldri þessa vísu sem ágætlega á við í dag, í umræðunni um aðbúnað aldraðra: Skerðast tekur skemmtan forn, skiptir nú um bragi. Eg er kominn upp í horn, -út úr mannfélagi. Búi nokkur orti eitt sinn fullur bjartsýni: Vetrarmyrkrið sagt er svart í sumumfornum skræðum. Þó telst ísland engilbjart í áramótaræðum. Búi er einnig höfundur næstu visu: Út og suður, ýkt við stuð, í úthugsuðumfræðum. Þjóðin puðarpó nokkuð, -það veit Guð á hæðum. V.L. sendir þættinum vísu: Þá éghennarfer áfund, ferskeytluna að styrkja. Þetta gerir Stökustund, styðja þá sem yrkja. Rúnari Kristjánssyni á Skagaströnd finnst hugtakið kynferðislegt ofbeldi frekar stirt og dregur það saman í orðið klofbeldi. Rúnar yrkir: III er verkun ofbeldis út um heiminn vtða. Vegna karla klofbeldis konur margar líða! Áfram yrkir Rúnar: Illt er hverskyns ofbeldi á öllum lífsins sviðum. Kæra verður klofbeldi og keppa að betri siðum! Rúnar hefur lokaorðið í þættinum að þessu sinni: Yrkjum meðan öndin vakir alltafgleður skemmtun sú. Burtu kveðum sút ogsakir, sól ífreðin hugarbú. Fyrripartar: Elskum landsins móðurmál, meðan blóðið rennur. V.L. sendir þennan: Gleðin færir frið og ró, fegurð nærirhugogsinni. Botnar, vísur og fyrripartar sendist til: stokustund@vbl.is eða á Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. „Ertu búin að vera gefa fuglinum vítamín aftur?" HEYRST HEFUR... Ovænt töf varð á uppkvaðn- ingu dóms gegn Víetna- manum Phu Tién Nguyén sem var í vikunni dæmdur í Hér- aðsdómi Reykjaness í sextán ára fangelsi fyrir morð. Þegar dómari var tilbúinn að lesa upp dóm gegn Phu Tién kom í ljós að hann var hvergi nálæg- ur, því gleymst hafði að sækja hann í fangelsi þar sem hann beið dómsuppkvaðningar. Þeg- ar þessi fjarvera kom í ljós var sent eftir manninum í snar- hasti og dómsuppkvaðning fór fram - góðri klukkustund eftir að hún hafði verið áætluð. Hagfræðingar Seðlabank- ans, með Arnór Sighvats- son aðalhag- fræðing í broddi fylk- ingar, hafa trúað á vaxta- hækkanir sem allra meina bót í efnahagslíf- inu, svo sumum þykir stappa nærri kreddu. Nú vona menn víða í atvinnulífinu að á því verði brey ting með Davíð Odds- syni, Seðlabankastjóra. 1 því sambandi nefna menn að einn af helstu trúnaðarmönnum hans í pólitíkinni er Einar Odd- ur Kristjánsson, alþingismaður, sem hefur verið hávær andstæð- ingur vaxtastefnu bankans. Davíð er þekktur fyrir flugelda- sýningar og í Seðlabankanum felst sjálfsagt besta tækifærið fyrir nýjan aðalbankastjóra til að skjóta upp rakettum í því, að snúa niður vaxtakreddu bank- ans... m Ipólitíkinni taka menn eftir að Árni Magnússon, félags- m á 1 a r á ð - herra, hefur breyttum stíl og tekur nú jafnan undir þegar verið er að gagn- rýna sitthvað í stjórnkerf- inu. Telja menn að þetta megi þakka Pétri Gunnarssyni, sem var áður partur af áróðursgeng- inu kringum Halldór Ásgríms- son en Pétur er nýfarinn að vinna í ráðuneytinu hjá Árna. Segja stuðningsmenn Guðna Ágústssonar að Árni hafi talið óhætt að setja Pétur til nýrra verka fyrst hann var búinn að klára Halldór... Sjálfstæðismenn í Reykjavík eru að ná áttum eftir próf- kjörið um síðustu helgi og er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagður svo sigurviss um komandiborg- arstjórnar- kosningar, að hannmunþeg- ar vera farinn að leggja drög að aðgerðaáætlun. Þrátt fyrir að sjálfstæðismenn hafi hvað eftir annað tapað kapp- ræðunni um fjárhagsvanda borg- arinnar og séu hættir að ræða iau á opinberum vettvangi líta ieir á fjármálin sem eitt sitt íelsta fyrirliggjandi verkefni. Vilhjálmur lítur á þau Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Kjart- an Magnússon, sem fengu flest atkvæði allra í prófkjörinu, sem nánustu samverkamenn sína á þeim vígstöðvum, en hins vegar er sagt að hann ætli Gísla Mar- teini Baldurssyni, keppinaut sínum, stórt hlutverk í kosninga- baráttunni. Sá mun ekki ætla að skorastundanþví...

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.