blaðið - 30.11.2005, Síða 4

blaðið - 30.11.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaAÍð Fjáraukalög: Útgjaldaukn- ing upp á tæpa tvo milljarða Útgjöld ríkisins hækka um t,8 miíljarða króna samkvæmt breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar sem lagðar voru fram í þriðju og síðustu umræðu um fjáraukalagafrum- varpið á Alþingi í gær. Nefndin lagði til að íjárheimild fjármála- ráðuneytisins aukist um 500 milljónir í tengslum við kjara- samninga og þá er gert ráð fyrir aukningu fjárheimildar heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytis um 720 milljónir, aðallega vegna tekjutrygginga eUi- og örorkulífeyrisþega. Fjárheimild landbúnaðarráðu- neytis verður aukin um 430 milljónir m.a. vegna fjárfram- lags til Lífeyrirssjóðs bænda. Annað sem nefndin lagði til er um 30 milljóna króna aukning vegna mannúðarmála og neyð- araðstoðar og um 40 milljónir króna hækkun til dóms- og kirkjumálaráðuneytis vegna viðhaldskostnaðar á skipi og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Leiðrétting I Blaðinu í gær birtist grein undir fyrirsögninni „Engin löggjöf um fasteignakaup á Islandi". Þetta er ekki rétt því lög nr. 40. frá árinu 2002 fjaUa einmitt um fasteignakaup. Hins vegar var yfirfyrisögn greinarinnar „Urræði þegar skU á fasteignum eða þjónustu dragast”. Það rétta í málinu er að ekki eru tíl sérstök lög sem fjaUa um drátt á afhendingu fasteigna. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. Auglýsingadeild 510-3744 Ljösin í bænum * sueuRvem Stigahlíð 45 • 105 Reykjavík íslensku vefverðlaunin gagnrýnd Gangrýnisraddir hafa heyrst víða um hvaða vefir voru valdir tilþátttöku. Mbl.is var valinn besti íslenski vef- urinn. Vefur íslandsbanka er besti fyrirtækjavefurinn og einnig þótti hann hafa bestu útlits- og viðmóts- hönnunina. Besti afþreyingarvefur- inn er skjárinn.is og arni.hamstur. is er talinn bjóða upp á besta ein- staklingsvefinn. Nokkrar gagnrýnis- raddir heyrðust fyrir afhendinguna vegna þeirra vefja sem náð hlutu fyrir augum dómnefndar og hlutu til- nefningu. Bent var á að Islandsbanki, einn styrktaraðili verðlaunanna, ætti þrjá vefi sem tilnefndir voru sjö sinnum. Vefstjóri Islandsbanka var einnig f dómnefnd. Landsbank- inn var einnig á meðal styrktaraðila og átti forstöðumaður markaðs- og vefdeildar bankans sæti í nefndinni. Vefur bankans var tilnefndur sem besti íslenski vefurinn, eins og vefur Islandsbanka. Á heimasíðu verð- launanna er gerð grein fyrir störfum dómnefndar. Þar segir að komi til mögulegra hagsmunaárekstra taki varamenn sæti þeirra fastamanna sem gætu haft hagsmuna að gæta. Þetta gerðist í ár og kalla þurfti báða varamenn inn þegar valin voru verðlaun fyrir Besta íslenska vefinn, Besta fyrirtækjavefinn og Bestu út- lits- og viðmótshönnunina. Tekið er fram á síðu verðlaunanna að vara- mennirnir hafi engin samskipti átt við dómnefnd áður en þeir komu til sögunnar. Það vekur þó athygli að annar varamanna sem kallaður var til vinnur hjá fyrirtæki sem gerði tvo af þeim vefjum sem tilnefndir voru í þeim flokkum. Skotið yfir markið „Ég held að þeir sem hafi gagnrýnt þetta út frá þessum forsendum séu að skjóta aðeins yfir markið, “ segir Jóhannes Ingi Davíðsson, framkvæmdastjóri ÍMARK, en vef- verðlaunin eru haldin í samstarfi ÍMARK og Vefsýnar. „Dómnefndin er blönduð og samansett af ábyrgum aðilum sem reyna að gera sitt besta. Við verðlaunaafhendinguna í gær var einnig tilkynnt um að til stæði að stofna sérstök samtök fyrir vef- iðnaðinn og þeir munu sjá um þessi verðlaun í framtíðinni." Jóhannes segir að það megi ekki gleyma því að hingað til hafi verðlaunin verið skipulögð af einskærum áhuga- mönnum en nú stæði til að koma þessu í fastara form. Hann tekur fram að 4.900 tilnefningar hafi bor- ist til dómnefndar um bestu vefina utan úr bæ. Á heimasíðu verðlaun- anna segir að fjöldi tilnefninga sem berst utan úr bæ sé ekki ráðandi þáttur í forvali eða aðalvali, en tekið sé tillit til fjöldans. „Það er grunn- urinn að þessu öllu saman. Vefur sem skorar mjög hátt í innsendum tilnefningum er eðlilega valinn í úrslit." Hann segir að þegar dóm- nefndin í ár var valin var reynt að hafa hana blandaða. Hann segir full- yrðingar þess efnis að styrktaraðilar hafi að einhverju leyti gert kröfu um að vefir þeirra yrðu valdir á meðal þeirra bestu vera fráleitar. „Það er alltaf erfitt líka að vera í þeirri stöðu að velja sjálfan sig og bjóða þannig gagnrýninni heim. Svona fullyrð- ingar eru að mínu mati alveg úr lausu lofti gripnar og bara til þess fallnar að mála svartari mynd en hún í raun er.“ ■ Borgarpólitík: Meirihluti Reykvíkinga vill ílugvöllinn burt úr Vatnsmýri Lögbann á Fréttablaðið: Jónína segir blaðamenn hafa hlíft eigendunum Samkvæmt skoðanakönnun, sem Gallup gerði fyrir borgarstjórn- arflokk F-listans, vill meirihluti Reykvíkinga að Reykjavíkurflug- völlur fari úr Vatnsmýrinni. Um fjórðungur vill hins vegar hafa hann þar áfram óbreyttan. Munur á afstöðu eftir búsetu Borgarstjórnarflokkur Frjálslynda flokksins boðaði til opins borgara- fundar í gærkveldi til þess að ræða framtíð Vatnsmýrarinnar undir fyr- irsögninni „Reykjavíkurflugvöllur erþekkingarþorp". Frjálslyndi flokk- urinn hefur einn þeirra flokka, sem hyggjast bjóða fram í borgarstjórnar- kosningum næsta vor, það að stefnu sinni að halda Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýri áfram, þó fallist sé á að hann kunni að þurfa að vera í breyttri mynd. I skoðanakönnun, sem IMG Gallup gerði fyrir borgarstjórnar- flokk F-listans meðal Reykvíkinga á aldrinum 16-75 ára, kom fram að 52,3% vilja sjá Reykjavíkurflugvöll annars staðar en í Vatnsmýri. Um 24,8% vildu hins vegar að hann yrði óbreyttur í Vatnsmýri, en 23% að hann yrði þar en í breyttri mynd. Ekki var ýkja mikill munur á skoð- unum fólks eftir kyni og aldri. Á hinn bóginn var mikill munur eftir búsetu. Greinileg fylgni var með nábýli við flugvöllinn og andstöðu við hann. Meðal fólks í Vestur- og Miðbæ, $em er í mestu návígi við Reykjavíkurflugvöll, voru þannig aðeins 17% hlynnt honum í óbreyttri mynd, en 63% vildu að hann yrði ann- ars staðar. I Austurbæ að Elliðaám, Árbæ, Breiðholti og Grafarholti var meira en helmingur á móti vell- inum, en í Grafarvogi og Kjalarnesi virtist fólki vera minna uppsigað við hann. Ennfremur var augljós munur á afstöðu fólks eftir menntun. And- staðan við Reykjavíkurflugvöll jókst þannig i réttu hlutfalli við menntun svarenda. Meðal þeirra, sem aðeins höfðu grunnskólapróf, voru þannig 39% hlynntir óbreyttu ástandi en 46% vildi flugvöllinn burt. Meðal fólks með háskólapróf voru hins vegar aðeins 17% fylgjandi flugvelli í Vatnsmýri en 61% vildu að hann færi þaðan. ■ Aðalmeðferð í máli Jónínu Bene- diktsdóttur gegn Kára Jónassyni, ritstjóra, og Fréttablaðinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. I réttarhaldinu sagði Jónína augljóst að starfsmenn Fréttablaðsins hefðu hlíft eigendum Baugs með því að birta ekki fréttir um efni tölvupósta, sem kæmi þeim illa. Nefndi hún sérstak- lega afrit af tölvupóstum milli Jóns Geralds Sullenberger og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Sigurjón Magnús Egils- son, fréttastjóri Fréttablaðsins, og Kári Jónasson, ritstjóri þess, kváðust ekki muna eftir honum. Jón Magnússon, lögmaður Fréttablaðsmanna, spurði Jónínu út í efni þess pósts, en hún kvaðst vilja komast hjá því að greina frá því. Ekki var frekar eftir gengið, en eftir því sem Blaðið kemst næst munu þeir póstar fjalla um greiðslu fyrir þjónustu fylgdarkvenna í samkvæmi um borð í snekkjunni Thee Viking í Flórida árið200i. Lögmaður Fréttablaðsins lagði áherslu á að málið snerist um tjáning- arfrelsið og að blaðamenn Fréttablaðs- ins hefðu gætt þess að fjalla ekki um persónuleg málefni í tölvupósti Jón- ínu. Eftir lestur hans hefði aðeins verið notað efni úr tölvu- póstinum, sem blaðið teldi eiga erindi við almenning. Þar að baki hefðu legið almannahagsmunir. Málið var höfðað til staðfestingar á lögbanni, sem Jónina fékk lagt við birtingu einkabréfa sinna í Fréttablað- inu. Að fengnu lögbanninu lagði sýslu- maður hald á fjölda gagna á ritstjórn blaðsins f lok september. Jónína krefst 5 milljóna króna miskabóta. I september birti Frétta- blaðið fréttir, sem að mestu leyti voru byggðar á tölvupósti til og frá Jónfnu, en hún telur að einhver hafi stolið honum frá sér, líklegast úr tölvupóst- miðlara árið 2002. Fréttirnar snerust um upphaf rannsóknar Baugsmálsins og fund ritstjóra Morgunblaðsins og framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins með Jóni Steinari Gunnlaugs- syni, lögmanni, áður en Jón Gerald Sullenberger kærði til lögreglunnar mál, sem hratt af stað rannsókn Ríkislögreglustjóra. ■ HfiRŒNGINGFIR WINK Hársnyrtlstofa Smiðjuvegi 1 • 5444949 JÓLAFATNAÐURINN FÆST HJÁ OKKUR —VErhlistiniL v/Laugalæk • sími 553 3755

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.