blaðið - 30.11.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið;
Byggðastofnun hefur
lánveitingar að nýju
Fjárhagsstaða slœm vegna mikillar áhœttu í lánveitingum. Ráðherra óskar eftirþví að lán-
veitingar hefjist að nýju.
Blaöið/Frikki
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-og viðskiptaráðherra, kynnti niðurstöðu starfshóps um
málefni Byggðastofnunar á blaðamannafundi í gær.
DeCODE:
Mikil hækkun
hlutabréfa
Hlutabréf í DeCODE hafa
hækkað um 44% síðustu 12
mánuðina og stendur gengi
bréfa nú í 9,35 dollurum á hlut.
Frá þvi að félagið birti uppgjör
fyrir 3. ársfjórðung þann 8. nóv-
ember síðastliðinn hafa bréfin
hækkað um 7%. Hafa ber í huga
að þegar DeCODE var fyrst
skráð á Nasdaq árið 2000 var
útboðsgengið 18 dollarar á hlut
og því ljóst að gengið í dag er
nokkuð undir upphaflegu gengi.
Vœntingavísitala:
Bjartsýni
eykst
Bjartsýni neytenda er að
aukast samkvæmt væntinga-
vísitölu Gallup sem birt var í
gær. Hækkar hún um rúm 10
stig og fer í gildið 123, sem er
hæsta gildi vísitölunnar frá
upphafi mælinga árið 2001.
„Töluverður munur er á
viðhorfi svarenda eftir búsetu.
Þannig hækkar vísitalan um
23 stig ef aðeins eru teknir
þeir sem búa utan höfuð-
borgarsvæðis en meðal íbúa
Reykjavíkur og nágrennis
hækkar vísitalan um tæp 3 stig.
Einnig munar nokkru á tiltrú
og væntingum neytenda eftir
aldri og tekjum. Til að mynda
hækkar vísitalan verulega
meðal fólks á aldrinum 35-54
ára en mun minna hjá þeim
sem eru eldri eða yngri. Þeir
sem hafa lægri tekjur en sem
nemur 250 þ.kr. á mánuði
telja ástand og horfur fara
versnandi á sama tíma og hinir
sem hafa hærri laun eru bjart-
sýnir,“ segir í Morgunkorni
íslandsbanka um málið í gær.
Lánastarfsemi Byggðastofnunar á
að halda áfram en í nánari samstarfi
við fjármálafyrirtæki í landinu.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
starfshóps sem falið var að fjalla um
fjárhagsvanda Byggðastofnunar og
kynnt var á sérstökum blaðamanna-
fundi í iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu í gær. Starfshópurinn telur
að stofnunin geti ekki að óbreyttu
uppfyllt lagalegt hlutverk sitt.
Tóku of mikla áhættu
Starfshópnum var falið það hlutverk
að fjalla um fjárhagsvanda Byggða-
stofnunar og móta tillögur um fram-
tíðarstarfsemi hennar og þeirra
málaflokka sem hún hefur sinnt. I
niðurstöðum starfshópsins segir
að fjárhagsstaða stofnunarinnar sé
erfið og skýrist að miklu leyti af út-
lánatöpum sem eru afleiðing of mik-
illar áhættu i lánveitingum. Þá telur
hópurinn að samkeppni á fjármála-
markaði hafi dregið úr þörf á opin-
berri lánastarfsemi og að stjórnvöld
þurfi að endurmeta byggðastefnu
með skýrri stefnumótun og bættari
og skýrari forgangsröðun verkefna.
Starfshópurinn telur þó ennþá þörf
á lánastarfsemi af þessu tagi og
leggur til að stofnunin hefji lánveit-
ingar að nýju í skemmri tíma í skjóli
íslenskfyrirtœki:
Aukinn
Rekstrarhagnaður íslenskra fyrir-
tækja jókst um tæpa 30 milljarða
milli áranna 2002 til 2003 sam-
þess að unnið verði að frekari um-
bótum starfseminnar að frumkvæði
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis.
Hópurinn leggur áherslu á að stofn-
unin hefji samstarf við atvinnuþró-
unarfélög og aðra aðila sem vinna
að atvinnuþróun. Þá er lagt til að
nýsköpun verði efld til muna.
Veiti ábyrgð lána
Að sögn Valgerðar Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var
samþykkt á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun, í samræmi við til-
lögur starfshópsins, að sameina
þá atvinnuþróunarstarfsemi sem
heyrir undir iðnaðarráðuneytið og
þróa nýjar fjármögnunarleiðir fyrir
Byggðastofnun m.a. í samstarfi við
banka og önnur fjármálafyrirtæki.
Þá kom fram í máli ráðherra að
óskað hefur verið eftir því við stjórn
Byggðastofnunar að lánveitingar
verði hafnar að nýju þrátt fyrir að
ríkisstjórnin muni ekki leggja meiri
pening til stofnunarinnar að sinni.
„Við erum ekki að setja nýtt fé inn í
stofnunina núna. Við erum að fara
í þessa vinnu sem varðar framtíðar
atvinnuþróun í landinu og ætlum
okkur skamman tíma til þess að ná
niðurstöðu um það hvort að þetta
getur gengið upp,“ sagði Valgerður.
kvæmt yfirliti Hagstofunnar um
afkomu atvinnurekstrar á þessum
árum. í yfirlitinu kemur einnig fram
að vegna breytinga á gengismuni af
erlendum lánum jókst rekstrarhagn-
aður fyrirtækja töluvert.
Um 26 þúsund fyrirtæki
Yfirlitið nær til ársreikninga rúm-
Þá telur ráðherra það ekki rétt að
stöðva starfsemi Byggðastofnunar
á meðan á endurskipulagningu
stendur enda gæti sú vinna staðið í
nokkra mánuði og framundan séu
viðræður við banka og fjármálafyr-
irtæki um þátttöku í þessu máli.
,Það er ekkert sem liggur fyrir um
lega 25 þúsund fyrirtækja og einstak-
linga í atvinnurekstri árið 2002 og
rúmlega 26 þúsund fyrirtækja árið
2003. Af þessum fyrirtækjum voru
um 19 þúsund í rekstri bæði árin. Sé
einungis horft til þeirra fyrirtækja
er voru í rekstri bæði árin má sjá
að rekstrarhagnaður árið 2002 nam
um 77,4 milljörðum. Árið 2003 var
það í dag að þarna verði lánastarf-
semi eftir að við höfum- gengið í
gegnum þessar breytingar. Það er
möguleiki að stofnunin muni í fram-
tíðinni veita ábyrgðir vegna lána
sem hugsanlega verði veitt af hálfu
bankanna." ■
Heildarhagnaður íslenskra fyrirtækja
jókst frá árinu 2002 til 2003.
hagnaðurinn kominn upp í 104,3
milljarða og nemur heildaraukning
því um 30 milljörðum. Ef fjármála-,
trygginga- og orkufyrirtæki eru
ekki talin með er rekstrarhagnaður
mun minni eða um 11 milljarðar.
Hagnaður fjármálafyrirtækja batn-
aði um 15 milljarða milli ára og
hagnaður tryggingafélaga jókst
um 7 milljarða. Þá kemur fram að
afkoma 74 veitufyrirtækja af reglu-
legri starfsemi versnaði um 6,3 millj-
arða á tímabilinu.
Minkapelsar
Ný
sending
4
PEISINN \%\
Kirkjuhvoli - simi 5520160 LiMJ
Sjónarhóll
gleraugnaverslun
í Hafnarfírði
www.sjonarhofi.is
Frumkvöðull
að lækkun gleraugnaverðs
á Islandi
Heimspeki þessarar aldar
,.er almenn jjekking þeirrar næstu
S:
S. 564-5P70
Reykjavíkurvögur 22
hagnaður