blaðið - 30.11.2005, Síða 8

blaðið - 30.11.2005, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaAÍ6 Auk upplestrar mun Þórunn Clausen leikkona flytja eintal hinnar tragísku brúðar úr leikriti Benónýs Ægissonar, Drauganetið. Kynnir: Hlín Agnarsdóttir ALLIR VELKOMNIR MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR Salka Dregið úr sögukennslu Yíirvöld menntamála I Noregi íhuga að breyta námsskrá skóla á þann hátt að verulega verði dregið úr sögukennslu. Samkvæmt frétt dagblaðsins Aftenposten um málið verður sögukennslan ekki aðeins stytt niður í tvær klukkustundir á viku heldur verður áhersla lögð á að nemendur nýti sér efni á Internetinu og glærukynningar á kostnað lesturs og umræðna. Sumir telja hættu á að kennsla í nútímasögu verði hornreka nái nýju tillögurnar fram að ganga en samkvæmt þeim munu nemendur læra um víkingana, Rómarveldi og Kína á miðöldum en kennarar og nemendur taka sjálfir ákvörðun um hvað tekið verður fyrir af nútímasögu. Tillögurnar sem gert er ráð fyrir að taki gildi á næsta skólaári hafa sætt mikilli gagnrýni og Öystein Djupedal, menntamálaráðherra, hefur sagt að athugasemdir mótmælenda verði íhugaðar. Giftast bíl- stjóra til að komast hjá ferðalögum Fjórar konur sem vinna sem kennarar í afskekktu þorpi í Sádí-Arabíu hafa gifst bílstjór- anum sínum til að geta búið nær vinnustað samkvæmt frétt dagblaðsins Al-Watan. Blaðið sagði að konurnar, sem eru frá Al-Baha-héraði í suðvestur- hluta landsins, hefðu hrifist af góðu siðferði mannsins. Þær ákváðu því að giftast honum og búa saman í þorpinu þar sem þær kenna til að komast hjá þreytandi ferðalögum á hverjum degi. Fólkið var gefið saman við stutta athöfn og hafa konurnar fallist á að greiða bílstjóranum hluta af mánaðarlaunum sínum. Konur mega ekki aka bíl í Sádí-Arabíu en karlmenn geta átt allt að ljórar eiginkonur. Ríkisstjórn Kanada felld Kanadíska þingið samþykkti vantrauststillögu á ríkisstjórnina á mánudag í kjölfar spillingarmála Frjálslyndaflokksins. Kosningar fara að öllum líkindumfram síðla íjanúar. Þingkosningar fara að öllum lík- indum fram í Kanada í seinni hluta janúar í kjölfar þess að kanadíska þingið samþykkti vantrauststillögu á ríkisstjórnina á mánudag. Kosn- ingarnar munu líklega fara fram 23. janúar en minnihlutastjórn Paul Martin, forsætisráðherra, mun halda áfram að stjórna landinu fram að þeim. „Atkvæðagreiðslan í þinginu fór ekki eins og við hefðum kosið,“ sagði Martin. „En það verða íbúar Kanada sem taka ákvörðun um framtíð ríkisstjórnar okkar. Þeir munu dæma okkur,“ bætti hann við. íhaldsflokkurinn tók höndum saman við Nýja demókrataflokkinn og Québec-flokkinn um að fella ríkis- stjórnina vegna spillingarmála sem hefðu komið upp hjá Frjálslynda flokknum sem er í stjórn. Nýlegar skoðanakannanir sýna að frjáls- lyndir njóta aðeins meira fylgis en íhaldsflokkurinn en Nýi demókrata- flokkurinn skipar þriðja sætið. Paul Martin, forsætisráðherra Kanada, við atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á ríkis- stjórn hans á kanadíska þinginu í gær. Ógerlegt að mynda meirihlutastjórn Sama könnun gefur til kynna að Québec-flokkurinn myndi vinna stórsigur í hinu frönskumælandi Québec-héraði. Það gerði það að verkum að nánast ógerlegt yrði að mynda meirihlutastjórn og gildir þá einu hvaða flokkur hreppir meiri- hluta þingsæta. ■ Félagar í umhverfisverndarsamtökunum Greenpeace mótmæltu kjarnorkuáformum bresku ríkisstjórnarinnar í gær. Allsherjarendurmat á orkuþörf Breta Allsherjarendurmat á orkuþörf Bretlands stendur fyrir dyrum og kemur það í hlut Malcolm Wicks, orkumálaráðherra Bretlands, að sjá um framkvæmd þess. Síðast fór slíkt endurmat fram fyrir tveimur árum. Þá voru landsmenn sjálfum sér nógir með gasframleiðslu en nú þarf að flytja gas inn til landsins. Nick Robinson, ritstjóri stjórn- málafrétta hjá breska ríkisútvarp- inu (BBC), segir að Blair sé þess fullviss að eina leiðin til að uppfylla orkuþörf og ná markmiðum um að draga úr loftlagsbreytingum sé að byggja fleiri kjarnorkuver. Wicks segir aftur á móti að hvorki hann né Blair hafi gert upp hug sinn. ■ Hugsanlegum kjarnorku áformum mótmælt Umhverfisverndarsinnar mótmæltu hugsanlegri fjölgun kjarnorkuvera í landinu í gœr. Tony Blair segir endurnýjanlegar orkulindir ekki geta annað orkuþörf landsins íframtíð- inni ogþví verði að íhuga kjarnorku sem raunhœfan valkost. Allsherjar endurmat á orku- málum stendurfyrir dyrum á Bretlandi. Mótmælendur á vegum umhverf- isverndarsamtakanna Greenpeace trufluðu ræðu sem Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, hélt á ársfundi breska iðnaðarins í gær. 1 ræðunni kynnti Blair meðal annars áform rík- isstjórnar sinnar um nýtingu kjarn- orku en til tals hefur komið að ný kjarnorkuver verði reist i landinu til að mæta aukinni orkuþörf. Mótmæl- endurnir tveir klifruðu upp undir þakið á salnum þar sem Blair átti að halda ræðuna og héldu á borðum sem á var letrað slagorð gegn kjarn- orku. Eftir 48 mínútna töf gat Blair haldið ræðu sína í minni hliðarsal. Anna ekki eftirspurn Blair sagði að endurnýjanlegar orkulindir geti ekki annað allri eft- irspurn eftir orku og því verði að íhuga kjarnorku sem valkost. Hann sagði kjarnorku í senn vera erfitt og spennandi málefni. „Við þurfum á að halda opinni og lýðræðislegri umræðu um þetta málefni eins og önnur en ekki umræðu sem stjórn- ast af mótmælum og aðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir að fólk geti tjáð skoðanir sínar,“ sagði Blair. Blair varaði við því að eftir um 15 ár verði búið að taka úr notkun þær kolanámur og kjarnorkuver sem nú framleiði tæpan þriðjung raforku í landinu. Benti hann ennfremur á að endurnýjanlegir orkugjafar gætu komið í veg fyrir sum þessara vera en ekki í stað allra. UT6AFUGLEÐI SÖLKU í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld kl. 20.00 Höfundar og þýðendur SÖLKU munu lesa upp úr nýjum verkum sínum. Ingibjörg Hjartardóttir, Guðlaugur Arason, Þóra Jónsdóttir, Kristian Guttesen, Hildur Hákonardóttir, Þórhallur Heimisson o.fl.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.